Morgunblaðið - 08.04.1993, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993
Hjallakirkja vígð á páskadag
Kirkjuvígsla
HJALLAKIRKJA í Kópavogi hefur verið tæp tvö ár i byggingu og verður vígð á páskadag.
HJALLAKIRKJA í Kópa-
vogi verður vígð við hátíð-
lega athöfn á páskadag, 11.
apríl, tæpum tveimur árum
eftir að fyrsta skóflu-
stunga var tekin að bygg-
ingunni. Athöfnin hefst kl.
16. Biskup íslands herra
Ólafur Skúlason mun vígja
kirkjuna, sóknarprest-
urinn sr. Kristján Einar
Þorvarðarson þjónar fyrir
altari auk þess sem sr.
Guðmundur Þorsteinsson
dómprófastur, sr. Ægir Fr.
Sigurgeirsson, sóknarpest-
ur í Kársnésprestakalli, og
sr. Sigutjón Árni Eyjólfs-
son, nýráðinn héraðsprest-
ur í Reykjavíkurprófast-
dæmi eystra, aðstoða við
altarisgöngu.
Kór Hjallakirkju syngur undir
stjórn organista kirkjunnar
Oddnýjar Þorsteinsdóttur, Sigríð-
ur Gröndal syngur einsöng,
Gunnar Kvaran leikur á selló og
flautuleik annast Guðrún Birgis-
dóttir og Martial Nardeau. Sem
fastur liður messunnar (Ordinar-
ium) verður flutt Þýsk messa
D872 eftir F. Schubert. Á undan
athöfninni syngja bamakórar
Hjallaskóla undir stjórn Guðrún-
ar Magnúsdóttur. Að athöfn lok-
inni verða kirkjugestum boðnar
veitingar í Félagsheimili Kópa-
vogs.
Hjallasókn var stofnuð 25. maí
1987 þegar Digranesprestakalli
var skipt. Nú 6 áram síðar er
íbúafjöldi í Hjallasókn um 6.000
manns og fer fjölgandi.
Eitt fyrsta verk nýrrar sóknar-
nefndar, undir forystu Hilmars
Björgvinssonar, var að kjósa
sóknarprest og var sr. Kristján
Einar Þorvarðarson skipaður í
embættið frá 1. ágúst 1987.
Engri starfsaðstöðu var til að
dreifa í nýju sókninni fyrst í stað,
en Hjallasókn hefur haft aðgang
að Kópavogskirkju fyrir athafnir
og fljótlega fékkst starfsaðstaða
í Digranesskóla, með góðfúslegu
leyfi skólayfirvalda, og þar hefur
safnaðarstarfíð vaxið til þessa
tíma. í ársbyijun 1988 var kosin
byggingamefnd og hefur Karl
M. Kristjánsson veitt henni for-
ystu. Nefndin setti sér það mark-
mið að söfnuðurinn mætti eign-
ast kirkju og safnaðarheimili, án
þess að setja sig í þungar fjár-
skuldbindingar.
Það var síðan á hvítasunnudag
1991 sem dr.theol. Sigurbjöm
Einarsson biskup tók fyrstu
skóflustunguna að Hjallakirkju.
Bygging kirkjunnar var fram-
kvæmd í 3 áföngum og þótt langt
sé í land með lokaátakið í frá-
gangi hússins verður aðalhæðin
nú tekin í notkun, eða ca. 700
fermetrar af ca. 1.100 fermetram
alls. Kostnaður við kirkjuna nem-
ur í dag liðlega 100 milljónum
króna.
Arkitekt kirkjunnar er Hró-
bjartur Hróbjartsson. Aðalverk-
taki er Byrgi hf. og byggingar-
stjóri er Steingrímur Hauksson.
Kirkjan verður strax tekin í notk-
un og mun allt safnaðarstarf
flytjast úr Digranesskóla í Hjalla-
kirkju frá og með páskadegi.
Fyrstu fermingar í hinni nýju
Hjallakirkju verða annan páska-
dag.
(Fréttatilkynning)
Byggðarvernd
Bæjaryfír-
völd í Hafn-
arfírði veiti
svör við und-
irskriftum
BYGGÐARVERND krefur
bæjaryfirvöld í Hafnarfirði
svara við þeirri áskorun 5.300
kosningabærra Hafnfirðinga
að fyrirhuguð nýbygging við
Fjarðargötu verði ekki hærri
en aðrar byggingar í miðbæn-
um í bréfi til bæjarstjórnar
2. apríl.
Kristján Bersi Ólafsson, í stjóm
Byggðarvemdar, sagði að eins og
byggingin væri áætluð nú væri
hún 25,5 m á hæð og þyrfti að
lækka um u.þ.b. 10 m til að falla
að umhverfínu.
Hins vegar segir hann að Guð-
mundur Ámi Stefánsson, bæjar-
stjóri, sem beitti sér fyrir lækkun
byggingarinnar um eina hæð, segi
hana 21 m á hæð. „Mismunurinn
er af því hann sleppir efstu hæð-
inni sem er inndregin. Þessi mæl-
iaðferð er svona svipuð því að
maður sé mældur upp á öxl,“ sagði
Kristján.
Hann sagði að ekki hefði verið
ákveðið hvað Byggðarvemd myndi
gera hyggðust bæjaryfirvöld ekki
gera neitt í stöðinni en mótmælun-
um yrði haldið áfram. í samtalinu
kom fram að Byggðarvemd hefur
beðið um skýrslu frá skipulagsyfir-
völdum í Hafnarfirði um gang
málsins og skýrslur tengdar því.
Sumarbúðir kirkjunnar
Heiðarskóla, Borgarfirði
Innritun hefst 19. apríl og fer fram í Bústaðakirkju.
Opið alla virka daga nema föstudaga kl. 17—19.
Sími 37801.
Flokkaskipan:
7. júní - 16. júní (6-8 ára)
21. júní — 2. júlí (9 - 12 ára) 5. júlí-16. júlí (9 -12 ára)
Dvalargjald er kr. 23.000, rútuferðir innifaldar.
Innritunargjald kr. 5.000.
Æ.S.K.R. — Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum.
Flug’kostur
NÝJA DORNIER 328 skrúfuþotan á Reykjavíkurflugvelli. Hún var
aðeins tæpa fímm tíma frá Miinchen til íslands og eyddi um 2.400
kg af eldsneyti, en átti samt eftir um 1.000 kg í vængjum sínum.
Ný Dornier-skrúfuþota
í fyrsta sinn á Islandi
NÝ skrúfuþota af gerðinni Domier 328 millilenti í vikubyrjun á
Reykjavíkurflugvelli en vélin var á leið vestur um haf. Flugvélin
kom frá Miinchen til Reykjavíkur í einum áfanga, 1.700 sjómílur,
og tók ferðin aðeins tæpa fímm tíma. Domier 328 er hraðfíeygasta
skrúfuþota heims í sínum stærðarflokki.
Nýja Domier 328 skrúfuþotan
kom við á íslandi á leið til Bandaríkj-
anna í reynsluflug til að uppfylla
kröfur bandarískra flugmálayfír-
valda um lofthæfí. í Evrópu er
reynsluflug Domier 328 á lokastigi
og er áætlað að hún fái samevrópskt
lofthæfískírteini (JAR) um mitt sum-
ar.
Domier-flugvélin sem kom til ís-
lands var með tækjabúnað í farþega-
rýminu sem verður sérstaklega not-
aður í tengslum við reynsluflugið í
Bandaríkjunum. Þessi tiltekna flug-
vél er sú fjórða sem smíðuð hefur
verið og hafa þær allar tekið þátt í
umfangsmiklu reynsluflugi eins og
raunar allar nýjar flugvélagerðir
þurfa að gera.
„Flugið frá Miincheh til Islands
gekk mjög vel,“ sagði Meinhardt
Feuersenger yfirtilraunaflugmaður
hjá Domier-fyrirtækinu. „Ferðin tok
einungis tæpa fímm tíma þrátt fyrir
að við urðum að leggja lykkju á leið
okkar vegna flugumferðar, en alls
lögðum við að baki 1.700 sjomílur í
þessum áfanga," bætti hann við.
Samkvæmt þessu hefur meðalflug-
hraði vélarinnar á leiðinni til íslands
verið um 340 hnútar/klst. Flugvélin
átti eftir um 1.000 kg af eldsneyti
við lendingu á Reykjavíkurflugvelli,
en á leiðinni Munchen-ísland var
eyðslan um 2.400 kg.
Domier 328 getur rúmað allt að
33 farþega. Hún er búin jafnþrýstum
farþegaklefa og getur flogið í 35.000
feta hæð. Dornier-fyrirtækið, sem
er hluti af þýsku samsteypunni Da-
imler-Benz, ráðgerir að smíða lengri
gerð af þessari nýju hraðfleygu
skrúfuþotu sinni og kemur sú til með
að hafa 48 sæti.