Morgunblaðið - 08.04.1993, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 08.04.1993, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993 15 SELKÓRINN Tónlist Jón Asgeirsson Nú fara vorverk áhugamanna- kóranna að heijast og sá fyrsti er kallar til sín vorið er Selkórinn, undir stjórn Jóns Karls Einarsson. Á efnisskránni voru innlend og er- lend alþýðulög og hluti af Ástar- ljóðavölsunum eftir Johannes Brahms. Tónleikarnir hófust á Ó blessuð vertu sumarsól eftir Inga T. Lárus- son og Hver á sér fegra föðurland, eftir Emil Thoroddsen. Þessi ágætu lög voru sungin af þokka og sama má segja um flest alþýðulögin, Nocturne eftir Evert Taube, tvö íslensk þjóðlög, vögguvísur og Ver- öld fláa, Rúnaslaginn eftir Ingunni Bjarnadóttur, sem var hressilega sunginn. Frumflutt voru tvö ágæt lög eftir Jakob Hallgrímsson, Ó, undur lífsins við kvæði eftir Þor- stein Valdimarsson og Hönd, við kvæði eftir Kristján frá Djúpalæk. Lög Jakobs eru ágætlega samin og nær hann að byggja upp fallega syngjandi í miðrísandi tónboga í báðum lögunum, er kórinn náði að móta mjög fallega. Ástarijóðavalsarnir eftir Brahms eru erfið söngtónlist og þar kom fram reynsluleysi kórfélaganna, sérstaklega þar sem gerð er mikil krafa til einstakra radda. í fullum hljómi kórsins var söngurinn best- ur, eins og í tveimur síðustu völsun- um og sérstaklega þeim næstsíð- asta, Nein, es ist nicht auscukomm- en, sem er einna frægastur af völs- unum. Undirleikarar voru Kristín Guðmundsdóttir og Arndís Inga Sverrisdóttir, er léku af þokka en hefðu mátt leika sterkar og þar með styðja betur við hljóm kórsins. Veikur og hlutlaus píanóleikurinn olli því að kórinn var oft nokkuð „berskjaldaður", auk þess sem píanóstíllinn hjá Brahms varð ein- um of mikið í bakgrunninum, í stað þess að vera oft „driftin" í valstakt- inum. S Y N I N G sfitu ríkori Sýnum í dag og næstu daga í Skútahrauni 9, Hafnarfirði, heilsárssum- arhús, sertj eru til sölu. Húsin eru frá Fífa Sól, 52 m2, alveg fullbú- in með innréttingum, tækjum og húsgögnum og Fífa Sól, 40 m2, og er það hús í smíðum. Við framleiðum fleiri stærðir af þessum húsum á ýmsum byggingarstigum. Gott verð og greiðsluskilmálar. Hamraverk hf.. Skútahrauni 9, Hafnarfirði, sími 53755. Anna Sigríður Helgadóttir mezzósópran. Anna Sigríð- ur Helga- dóttir með tónleika í Gerðubergi ANNA Sigríður Helgadóttir, mezzósópran, heldur tónleika í menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi, þriðjudaginn 13. apríl klukkan 20.30. Meðleikari á g píanó er Ólafur Vignir Alberts- | son. Flutt verða sönglög eftir Jórunni Viðar, Jón Ásgeirsson, Victor Urbancic, Hjálmar H. Ragnarsson, Karl O. Runólfsson, J. Brahms, Benjamin Britten, C.W. von Gluck, C. Saint-Saens og G. Verdi. Anna Sigríður Helgadóttir hóf söngnám í Tónskóla Sigursveins hjá John Speight, sextán ára gömul, en nam síðan söng við Söngskólann í Reykjavík hjá Guðrúnu Á. Símonar, Má Magnússyni og Katrínu Sigurð- ardóttur. Jafnframt námi söng hún með kór íslensku óperunnar, Dóm- kórnum, Háskólakórnum og var fé- lagi í sönghópnum Hljómeyki. Haustið 1989 fór Anna Sigríður til Ítalíu og var við söngnám hjá Rinu Malatrasi í þijú ár. í dag er Anna virk í sönglífi hér á landi, syngur með Tónakórnum, kór Bú- staðakirkju og í sönghópnum Emil og Anna Sigga, en hún var einn af stofnendum hópsins árið 1985. Anna Sigríður hefur víða komið fram sem einsöngvari, bæði í sí- gildri tónlist og sem djasssöngkona. Ólafur Vignir Albertsson, lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík árið 1961. Fram- haldsnám stundaði hann við Royal Academy of Music í London með samleik með söngvurum sem sér- grein. Auk ótai tónleika á íslandi hefur Ólafur leikið í mörgum lönd- um Evrópu, í Bandaríkjunum og Kanada, einnig í útvarpi, sjónvarpi og á hljómplötur. Hann hefur verið skólastjóri Tónlistarskóla Mosfells- bæjar frá árinu 1965 og píanóleik- ari ljóðadeildar Söngskólans í Reykjavík frá 1987. Ert þú að tapa réttindum? Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfírlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1992: Lífeyrissjóður Austurlands Lífeyrissjóður Bolungarvíkur Lífeyrissjóður framreiðslumanna Lifeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar Lífeyrissjóðurinn Sameining Lífeyrissjóður Sóknar Lífeyrissjóður Suðurnesja Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík Lífeyissjóður verkamanna á Hvammstanga Lífeyrissjóður verkstjóra Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga Sameinaði lífeyrissjóðurinn Lífeyrissjóðurinn Björg Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar Lífeyrissjóðurinn Hlíf Lífeyrissjóður matreiðslumanna Lífeyrissjóður sjómanna Lífeyrissjóður starfsfólks í veitingahúsum Lífeyrissjóður trésmiða á Akureyri Lífeyrissjóður verkalýðsfélaga á Suðurlandi Lífeyrissjóður verksmiðjufólks Lífeyrissjóður Vestfirðinga Lífeyrissjóður Vesturlands Hafii- þú ekki fengið yfirlit en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri ofangreindra lífeyris- sjóða, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfírlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en I. maí nk. Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð, er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna: Ellilífeyri - Makalífeyri - Barnalífeyri - Örorkulífeyri Gættu réttar þíns! r I lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars: Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launþegar, innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits,ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi, innan sömu tímamarka, leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega, er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.