Morgunblaðið - 08.04.1993, Síða 25

Morgunblaðið - 08.04.1993, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993 25 Lyfjadreifing o g frelsishugsjón eftir Böðvar Jónsson Fyrir þann sem fylgst hefur með umræðum um lyfjadreifing- una að undanförnu er ekki óeðli- legt að álykta að frelsishugsjónin ráði meira ferðinni við mótun stefnu í lyfjadreifingunni en þær staðreyndir sem fyrir liggja. Vissulega er full ástæða til að skoða hugmyndina um fijálsa lyfjadreifíngu í fullri alvöru, og ekki óeðlilegt að slík hugmynd komi fram hér á landi því við lifum í þeim heimshluta þar sem frelsi og fijáls samkeppni eru lykilhug- tök. En fijáls samkeppni á einfald- lega ekki alltaf við. Ég leyfi mér að styðja þessa staðhæfingu með því að vísa til lokaorða skýrslu sem unnin var sem lokaverkefni Hrannars Erlingssonar, nema í viðskipta- og hagfræðideild Há- skóla íslands, og gefin út í maí 1992. Eftir að hafa brotið málefni lyfjadreifmgarinnar til mergjar á 77 blaðsíðum kemst höfundurinn að eftirfarandi niðurstöðu: „Niðurstaðan var ótvíræð, aukið frelsi í smásölu lyfja við núverandi aðstæður er afar óæskilegt. Astæður þess eru fjölmargar en nefna má þætti eins og aukinn kostnað, hættu á aukinni neyslu, mismunun milli landsbyggðarfólks og höfuðborgarbúa og svo mætti lengi telja. Það verður að viður- kennast að sem fylgismanni fijálsrar samkeppni á flestum svið- um þá olli þessi niðurstaða mér talsverðum vonbrigðum. Vonandi er þetta þó undantekningin sem sannar regluna. Útkoma af þessu tagi er einmitt góð áminning um að hversu góðar sem hagfræði- kenningar eru og hversu vel sem þær reynast í raun þá eru þær ekki algildar." Segja má að grein sem birtist í tímaritinu Time 8. mars síðastlið- inn styðji á afgerandi hátt niður- stöðu hagfræðinemans. í Banda- ríkjunum er löng hefð fyrir frelsi í lyfjadreifingu og því mætti ætla, út frá lögmálinu um fijálsa sam- keppni, að þar væri lyfjaverð lágt. Þessu virðist samt ekki svo farið því samkvæmt umræddri grein er staðhæft að lyíjaverð í Bandaríkj- unum hafi farið algerlega úr bönd- unum á síðustu árum. A Iínuriti sem fylgir greininni kemur frain að á 10 ára tímabili, það er frá 1982-1992, hafi lyfjaverð hækkað margfalt umfram verðbólgu. Böðvar Jónsson „Niðurstaðan var ótví- ræð, aukið frelsi í smá- sölu lyfja við núverandi aðstæður er afar óæski- legt. Ástæður þess eru fjölmargar en nefna má þætti eins og aukinn kostnað, hættu á auk- inni neyslu, mismunun milli landsbyggðarfólks og höfuðborgarbúa og svo mætti lengi telja.“ Þéssi hækkun er margföld á við það sem þekkist í Evrópu, en í flestum Evrópulöndum er fjöldi útsölustáða lyfja og lyfjaverð háð opinberum ákvörðunum. Hvernig stendur íslenskt lyfja- verð samanburð við þau banda- rísku? Um það hef ég engar skýrsl- ur eða töflur en með því að nýta þær upplýsingar sem fram koma í greininni í Time þá kemur eftir- farandi í ljós. í greininni er sagt frá sjúklingi sem þurfti að greiða 89,95$ fyrir 60 töflur af Voltaren, sem samsvarar 5.417 ísl. kr. að frádregnum söluskatti.' Ekki kem- ur fram í greininni hvort um er að ræða 25 eða 50 mg töflur en ef reiknað er með 50 mg töflum, þá er verðið hér á landi 2.125 án söluskatts. Ef um 25 mg töflur er að ræða verður útkoman enn óhagstæðari fyrir bandaríska markaðinn. í greininni eru fleiri dæmi sem líta má á. Algengar verkjatöflur sem innihalda para- setamól og kodein, að vísu ekki sama vörumerki hér og þar, kosta í Bandaríkjunum 1.167 kr. án sölu- skatts, á íslandi 663 krónur, Zantac 150 mg, 60 stk. Bandarík- in 4.227, ísland 4.993 kr., Xanax 0,5 mg sem hér á landi er selt frá sama framleiðanda undir nafninu Tafil 0,5 mg, 100 stk., Bandaríkin 2.879, ísland 1.608. Það er athygli vert að banda- ríski markaðurinn sem búið hefur við fijálsa lyfjadreifingu lengur en nokkur annar og sem vegna stærð- ar sinnar ætti að eiga allra kosta völ í magnafslætti skuli þurfa að bjóða sjúklingum þar í landi upp á það verð sem að ofan greinir. Vissulega er ekki hægt að alhæfa út frá svo takmörkuðu dæmi, en það ætti að minnsta kosti að ýta undir það, að við skoðum betur hver áhrif fijálsrar lyfjadreifíngar yrðu á verðmyhdun lyfja hér á íandi. Heimildir: Smásala lyfla á íslandi, Hrannar Erlingsson, Háskóli íslands, maí 1992. Time, 8. mars 1993. LyQaverðskrá 1. mars 1993, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Gengisskráning nr. 61 30. mars 1993. * Söluskattur í Bandaríkjunum mismunandi eftir fylkjum, frá 5 til 9%. í útreikningum notað meðalgildi 7%. Höfundur er lyfjafræðingur og félagi í Stéttarfélagi íslenskra lyfjafræðinga. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Barátta í braut. Fjallafegurðin var mikil þegar keppt var á laugardeginum, þó keppendur Iétu móðann mása við stýrið og tækju lítið eftir næsta nágrenni. Söngtil sigurs í fjallarallinu Útivera ad vetrar- __________lagi___________ Gunnlaugur Rögnvaldsson ÍSLANDSMÓTIÐ í vélsleða- akstri hófst á Mývatni fyrir skömmu þegar fyrsta mótið af þremur sem gilda til meistaratit- ils, fór fram í nágrenni Kröflu- virkjunnar. Norðanmenn voru sigursælir sem fyrri ár og Polar- is vélsleðar hirtu 13 gull af 17, en keppt var í mörgum flokkum í fjórum greinum, spyrnu, fjall- aralli, brautarkeppni og snjó- krossi, sem var skemmmtileg nýbreytni. Samheldni hóps keppenda frá Akureyri hefur skilað árangri síð- ustu ár og hann hélt uppteknum hætti á Mývatnsmótinu. Strákamir norðlensku æfa saman og bjuggu í sumarbústað skammt frá keppnisstað, þar sem keppnisand- anum var haldið við milli daganna tveggja sem mótið var haldið á. Polaris fimmmenningamir Guð- lau'gur Halldórsson, Vilhelm Vil- helmsson, Finnur Aðalbjömsson, Arnar Valsteinsson og Gunnar Hákonarsson unnu 10 gull og þrír þeir síðastnefndu unnu fjallarallið svonefnda undir merki Polaris og tímaritsins 3T, en tveir bestu tímar keppenda í þriggja manna sveit giltu til úrslita. Arnar Valsteinsson náði langbesta tíma í 35 km langri brautinni, varð mínútu á undan næsta keppanda, en hann hefur alltaf blómstrað í þessari keppnis- grein. „Það kemur alltaf einhver sérkennileg tilfinning yfir mig, þegar ég keppi í fjallarallinu. Um leið og ég er kominn af stað fer einbeitingin á fullt. Mér finnst svo gaman í fjallarallinu að ég raula lög á fullu, syng í hjálminum. Mér hefur tekist að vera útsjónasamur, að finna góðar aksturslínur en hraðinn var mikill í rallinu og við vorum stundum að taka 10-15 metra flug á leiðinni og svifum framaf hengjum. Skyggnið var slæmt, snjókoma á köflum og því ekki mjög hagstæðar aðstæður," sagði Amar Valsteinsson. Félagi hans, Finnur Aðalbjöms- son, vann þrenn verðlaun á mót- inu. Var í sigursveit rallsins, vann í sínum flokki í brautarkeppninni, varð annar í spymu. „Snjókrossið var mjög skemmtilegt og kominn tími á eitthvað nýtt, við emm orðn- ir leiðir á spyrnunni, sem er tíma- frek og langdregin," sagði Finnur. „ísakstur gæti t.d. komið í staðinn fyrir spymuna og snjókrossið er sniðið fyrir áhorfendur, þar sem margir keppendur aka brautina í einu. Við vorum sjö talsins í sitt hvomm flokknum og Vilhelm Vil- helmsson vann í sínum flokki ör- ugglega, eins og reyndar í brautar- keppninni og Gunnar Hákonarsson í aflminni flokknum. Hann var í banastuði í keppninni og sannaði getuna á nýrri sleðategund. Okkur norðanmönnum gekk vel og aðal- málið var að láta sem fæsta bikara suður. Það hjálpar okkur gífurlega að æfa saman og halda hópinn, það er náttúrulega innbyrðis met- ingur milli okkar, en við stöndum hver við baks annars í keppni.“ Sá sunnanmaður sem stóð sig best var Ingólfur Sigurðsson á Arctic, en hann vann tvo gull í spymunni og eitt silfur. Hann nældi síðan í tvenn bronsverðlaun í brautarkeppninni. Ásamt öðmm sunnanmönnum hyggur hann ör- ugglega á hefndir í næsta móti sem verður í Bláfjöllum að mánuði liðn- um, en þá munu heimamenn ör- ugglega leggja allt í sölumar til að leggja gestina að norðan að velli. En þeir þurfa að hafa mikið fyrir því, norðanmennirnir em í góðu formi og unnu marga sigra af miklu öryggi. Páskamyndin í ár Honeymoon in Vegas Ferðin til Las Vegas ★ ★★ Mbl. Ein besta gamanmynd allra tíma sem gerði allt vitlaust í Bandaríkjunum. Nicolas Cage, (Wild at Heart, Raising Arizona), James Caan (Guðfaðirinn og ótal fleiri) og Sara Jessica Parker (L.A. Story). Bono (U2), Billy Joel, Brian Ferry og John Mellencamp o.fl. flytja Presley-lög í nýjum og ferskum búningi. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 (engin 11-sýning laugard. 10.4.). Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 á skírdag og annan í páskum. Gleðilega páska
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.