Morgunblaðið - 08.04.1993, Page 40

Morgunblaðið - 08.04.1993, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993 Mikill áhugi erlendis á íslenska ferðavakanum MIKILS áhuga hefur orðið vart erlendis og innanlands á íslenskum hugbúnaði til upplýsingamiðlunar til ferða- manna, svonefndum ferðavaka, sem hugbúnaðarfyrirtækið Fjarhönnun hf. hefur þróað og tekinn var í notkun á síð- asta ári hérlendis. Telja stjórnendur fyrirtækisins að straumhvörf verði í útbreiðslu ferðavakans erlendis á næsta ári með tilkomu nýrrar tækni sem þróuð hefur verið í samvinnu við bandaríska fyrirtækið Apple. Þá er Fjarhönn- un í samningum við tvö stór útgáfufyrirtæki í Bandaríkjun- um á sviði myndgeisladiska um útgáfu á diski um ísland og fleira. Ferðavakinn hf. er nú að 80,5% í eign Fjarhönnunar hf. og 19,5% í eigu skoska fyrirtækisins William Bain Company. Skoska fyrirtækið mun markaðssetja ferðavakann á Stóra-Bretlandi á næsta ári en Fjar- hönnun á meginlandi Evrópu. Fyrirspumir skráðar „Varðandi markaðssetningu ferðavakans erlendis má geta þess að einfaldleiki forritsins og sá eigin- leiki þess að skrá sjálfkrafa fyrir- spumir ferðamanna hefur hvar- vetna vakið athygli og áhuga er- lendra aðila, t.d. frá Benelux-lönd- unum, Þýskalandi, Sviss og Norður- löndum. Það sem helst hefur staðið erlendri sölu fyrir þrifum er verð þess búnaðar sem ferðavakinn keyrir á. Á þessu verður veruleg breyting á næsta ári en þá kemur í gagnið með beinu samstarfi Fjar- hönnunar og Apple-fyrirtækisins í Bandaríkjunum mun ódýrari og handhægari búnaður með þá eigin- leika sem ferðavakinn þarfnast," kvæmdastjóri Fjarhönnunar. Ferðaþjónustuaðilar sem skrá sig í ferðavakann fá upplýsingar um fyrirspumir um sitt fyrirtæki fyrir hvert ár eftir þjóðernum fyrirspyij- enda og geta auk þess fengið nán- ari tölfræðiúrvinnslu. Anna Dóra Sæþórsdóttir landfræðingur sér um úrvinnslu þessara gagna hérlendis og þau eru vottuð af Talnakönnun hf. Stór markaður fyrir diska Ragnar Halldórsson, stjómarfor- maður Fjarhönnunar, segir að ört vaxandi markaður sé fyrir mynd- geisladiska í heiminum og nú þegar geti flestar venjulegar einkatölvur nýtt diskana, sem em í reynd venju- legir tónlistargeisladiskar. í rit- stjórnargrein tölvutímaritsins Byte er talið að sú bylting sem er að verða í útgáfu á myndgeisladiskum sé engu minni en þegar Gutenberg fann upp prentvélina. Sölunni verð- ur einkum beint að efnaðri erlend- um ferðamönnum og verður diskur- inn auglýstur í fagtímaritum. Fjölgun skráninga Notendur ferðavakans hérlendis Morgunblaðið/Sverrir Ferðavakinn FRÁ VINSTRI: Kristín Jónsdóttir og Guðrún Þorgeirsdóttir, mark- aðssljórar Ferðavakans, Vigfús Ásgeirsson frá Talnakönnun hf., sem séð hefur um vottun tölfræðigagna, og Anna Dóra Sæþórsdóttir landfræðingur, sem séð hefur um talnaúrvinnslu. í fyrra vom 55 þúsund talsins, þar af tæpur helmingur íslendingar. 280 af um 700 ferðaþjónustuaðilum hér á landi voru skráðir í ferðavak- ann en dreifistöðvamar em í eigu Ferðavakans hf. Að sögn Ragnars er búist við allt að helmings fjölgun skráninga á þessu ári. Hann sagði að ferðavakinn væri nú orðinn allt að tífalt hraðvirkari og með mun betri myndupplausn en áður var. Gunnlaugur Jósefsson, fram- kvæmdastjóri Fjarhönnunar, sagði að stefnt væri að lægri meðalkostn- aði við skráningu í ferðavakann sem jafngilti heilsíðuauglýsingu í tíma- riti. „Það sem ferðavakinn hefur fram yfir slíkar auglýsingar er að hann veitir svömn um fyrirspurnir notendanna,“ sagði Gunnlaugur. Vetur í Svarfaðardal Morgunblaðið/Snorri Snorrason Djáknanám viðHÍí haust SAFNAÐARSTARF kirkjunn- ar er orðið mjög víðtækt og eiga sóknarprestar mjög bágt með að sinna öllum þáttum þess svo vel sé, segir í frétta- tilkynningu. Þörfin fyrir að- stoðarmenn presta, sem hafi nokkra guðfræðilega mennt- un, hafi aukist rnjög hin síðari ár. Háskóli íslands og þjóðkirkj- an hafa nú sameinast um að endurvekja hið forna þjónustu- hlutverk kirkjunnar með því að bjóða upp á djáknanám við guð- fræðideild næsta haust. Hlut- verk djákna í kirkjulegu starfi er einkum að sinna fræðslu- og líknarþjónustu bæði innan safn- aða og á vegum ýmissa félaga- samtaka. Starfsmenn Hagvirkis Félag til að styrkia fyrirtækið FÉLAGAR í Starfsmannafélagi „ÖNDVEGI íslenzkra dala“ hefur Svarfaðardalur verið kallaður í kvæði. Myndin var tekin fyrir skömmu í skógar- reitnum, sem Eiríkur Hjartarson ræktaði fyrr á öldinni í landi Hánefsstaða. Stóllinn gnæfir yfir fjallið sem Svarf- aðardalur klofnar um, og heitir Skíðadalur austan megin en Svarfaðardalur áfram vestan megin. Uppseit er í hnattferð Heimsklúbbs Ingólfs UPPSELT er í hnattferð Heimsklúbbs Ingólfs, alls 60 sæti. Lagt verður af stað hinn 3. nóvember og tekur ferð- in 33 daga. Þar af ávinnst einn dagur þegar ferðast er austur fyrir daglínu, svo fólk upplifir þann dag tvisvar. Þó er bæði hægt að lengja ferðina eða stytta. S-Iands- og V-landsvegur Lægsta tilboð 50% af kostn- aðaráætlun VEGAGERÐ ríkisins fékk tilboð sem er rétt rúmlega helmingur af kostnaðáráætlun þegar hún bauð út jarðvinnu við Suðurlands- og Vesturlandsveg milli Rauða- vatns og Höfðabakka, gerð nýrra vegamóta við Höfðabakka og gerð hljóðmana og rofvarna í Reylqavík. Lægsta tilboðið var frá Rein sf. og Háfelli hf., 165,3 milljónir króna, en kostnaðar- áætlun var 328,8 milljónir króna. Fyrsta áfanga þessa verks á að vera lokið 11. júní næstkomandi en því skal að fullu lokið 29. apríl á næsta ári. Níu tilboð bárust í verkið og voru öll talsvert innan við kostnaðaráætlun. Ingólfur Guðbrandsson, for- stjóri Heimsklúbbs Ingólfs, sagði að í ferðinni yrði komið við á mörgum þekktum og fajlegum stöðum. „Þar má nefna Bang- kok, með sínum listrænu skreyt- ingum, hofum og höllum, eyjuna Bali í Indónesíu, helstu borgir Ástralíu og Stóra kóralrifíð, sem er kallað áttunda undur verald- ar. Þá verða tveir viðkomustaðir á Nýja-Sjálandi og farið verður til Suðurhafseyjanna Fiji og Hawaii. Á heimleiðinni verður farið um kvikmyndaborgina Los Angeles og New York.“ Ingólfur sagði að hnattferðin hefði verið kynnt á laugardag og í framhaldi af því hefðu þau sæti selst, sem óráðstafað var. „Fólk gerir sér ljóst, að það ger- ir kostakaup að komast í svona ferð fyrir innan við 400 þúsund krónur, sem er aðeins hálfvirði miðað við almennt verð. Enn eru fáeinar pantanir óstaðfestar og þeim verður ráðstafað um miðjan mánuðinn, ef til kemur. Fólki finnst hnattferð spennandi ævin- týri, enda gefst tækifæri til að sjá og kynnast ýmsum fegurstu stöðum heimsins og ólíkri menn- ingu í þremur heimsálfum." Hagvirkis hafa stofnað hlutafélag- ið Hornsteininn hf. en því félagi er ætlað að styrkja starfsemi fyr- irtækisins Hagvirkis-Kletts. Hug- myndin að þessu félagi kviknaði skömmu eftir að krafa um kyrr- setningu eigna Hagvirkis-Kletts var sett fram og nú þegar hafa 90 starfsmenn skráð sig fyrir hlut í Hornsteininum hf. í frétt frá Starfsmannafélagi Hag- virkis um þetta mál segir m.a. að á bak við hugmyndina um hlutafélagið, sem nú er orðin að raunveruleika, liggi fyrst og fremst sá vilji og ásetn- ingur starfsmanna að leggja sitt af mörkum til að renna styrkari stoðum undir starfsemi Hagvirkis-Kletts með kaupum hlutabréfa í fyrirtæk- inu. Aukið hlutafé sé forsenda fyrir samþykki kröfuhafa um nauðasamn- ing þann sem nú er unnið að. Hið nýja félag, Homsteinninn, hefur nú hafið söfnun hlutafjárloforða af þess- um sökum. Fram kemur ennfremur að Hom- steinninn styður Hagvirki-Klett með samstarfssamningi til að ná verk- samningi um byggingu leikskóla á Hvaleyrarholti en Hagvirki-Klettur hefur ekki eitt og sér heimild umsjón- armanns til að ganga til verksamn- ings á meðan umleitan til nauðasam- ings stendur yfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.