Morgunblaðið - 08.04.1993, Síða 43

Morgunblaðið - 08.04.1993, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993 43 Eilíí'öardraumar geymdir í frystihúsum ódauðleikans Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. TILHUGSUNIN um eilíft líf hefur löngum kitlað ímyndunarafl- ið. Flestir láta staðar numið áður en draumórunum sleppir, en þeir eru til, sem eru reiðubúnir að ganga skrefi lengra til að höndla eilífðina í þessu jarðlífi. Þar sem er eftirspurn myndast óhjákvæmilega framboð. Eilíft líf verður reyndar ekki enn keypt fyrir peninga, en framfarir í vísindum hafa vakið vonir um að einhvern tíma verði maðurinn með ljáinn atvinnulaus. Þangað til bjóða frystihús ódauðleikans upp á varðveislu gegn vægu gjaldi. Náfrysting HVER veit nema líkkistur verði úreltar í framtíðinni, alltént fjölg- ar þeim Bandaríkjamönnum stöðugt sem hafa ákveðið að láta frysta sig við andlátið og bíða þess að hægt verði að blása í þá nýju lífi. „Komm-“ úna“ fyr- ir górillur Tókýó. Reuter. SJÖ afrískar górillur, sem vistað- ar hafa verið í ólíkum dýragörð- um í Japan, munu brátt hefja sambúð í loftræstri hvelfingu í Ueno-dýragarðinum í Tókýó. Vonast forsvarsmenn dýragarðs- ins til að þetta muni hvelja apana til að fjölga sér. Um er að ræða karlapana Sult- an, 23 ára, og Drum, 15 ára, og kvenapana Loru, 15 ára og Pico, 23 ára sem búið hafa í fjórum dýra- görðum víðsvegar um Japan. í Ueno hafa um nokkurt skeið verið þrjár górillur. Hinn fjallmyndarlegi fer- tugi Burburu og vinkonur hans Toyoko, 26 ára, og Taiko, 27 ára. Allar eru górillurnar láglendis- górillur ættaðar úr regnskógum Afríkuríkjanna Zaire og Kamerún. Talið er að um 35 þúsund górillur af þessari tegund séu enn til I heim- inum. Þær eru ekki í jafn bráðri útrýmingarhættu og fjallagórillurn- ar í Zaire og Rwanda, en af þeirri tegund eru einungis taldir vera til um 300 dýr. Þrátt fyrir það hefur veiði og sala á dýrunum verið bönn- uð. Nýr „górillugarður“ á stærð við fótboltavöll hefur verið innréttaður í Ueno-dýragarðinum þar sem reynt er að líkja sem best eftir náttúruleg- um aðstæðum górillanna. Þeir Bandaríkjamenn eru ekki margir, en þeim fjölgar stöðugt, sem hafa ákveðið að láta frysta sig við andlátið og bíða þess að hægt verði að blása í þá nýju lífi. 650 manns hafa skráð sig til frystingar hjá þremur fyrirtækjum í Banda- ríkjunum og nokkrir tugir manna liggja þegar á ís. Lághitavísindi eru hins . vegar skammt á veg komin og hingað til hefur ekki tekist að frysta eitt ein- asta kvikindi og vekja það til lífs. Hins vegar er hægt að frysta ein- staka frumur, fóstur á frumstigi og bein- og húðvefí og þíða að nýju í nothæfu ástandi. Helsti vandinn við að frysta líf- verur er sá að vatn kristallast við frystingu og eyðileggur frumu- tengsl. Reynt hefur verið að leysa þennan vanda með því að nota frostlög og hafa dýralíffæri ætluð til ígræðslu verið fryst með þessum hætti. Hins vegar hefur ekki enn tekist að græða þau í dýr. Málsvarar náfrystitækni viður- kenna að miklar framfarir þurfi að eiga sér stað í vísindum áður en hægt verður að þíða frosin lík og glæða þau lífi. En þeir benda á að þeir hafi engu að tapa á því að iáta frysta sig vegna þess að þeir séu hvort sem er látnir. Fryst höfuð 35 manns standa frosnir í mann- hæðarháum málmsívalningum í Lífsframlengingarstofnuninni Alc- or í Kaliforníu. Þar eru einnig 15 höfuð, sem hafa verið fryst ein og sér. Viðskiptavinimir, sem ákváðu að spara með því að láta aðeins frysta á sér höfuðin, voru þeirrar hyggju að þegar hægt yrði að af- frysta höfuð þeirra hlyti tækni- þekkingin að vera orðin það mikil að einnig yrði hægt að rækta nýjan líkama við þau. Varðveisla líkama sem á að frysta hefst þegar eftir andlátið. Blóði er tappað af líkamanum og þess 1 stað dælt inn vökva, sem kemur í veg fyrir niðurbrot líffæra. Því næst er flogið með líkamann í „frystihúsið" þar sem dælt er í hann glýseróli, sem notað er jafnt í frostlög sem sprengiefni, áður en hann er frystur í fljótandi köfnun- arefni við mínus 195,5 gráður á selsiuskvarða. Það getur kostað allt frá 28 þúsund dollurum (rúmlega 1,7 milljón króna) upp í 150 þúsund dollara (um níu og hálfa milljón króna) að láta frysta sig og fara viðskiptin iðulega þannig fram að viðskiptavinurinn lætur líftrygg- ingu sína renna til fyrirtækisins, sem mun frysta hann. Vísindin efla alla dáð og hver veit nema einhvern tíma verði hið ómögulega mögulegt. Ef til vill verða þeir, sem hafa verið frystir, vaktir af frostköldum svefni eftir nokkrar aldir og geta þá heilsað upp á barnabarnabamabarna- barnabörnin sín. Nema gleymist að vekja þá þegar tæknin loks verð- ur fyrir hendi ... Mótmæli danskra og þýskra sjómanna Norskir sjómenn styðja aðgerðirnar Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. NORSKIR sjómenn hafa lýst stuðningi við aðgerðir danskra og þý- skra sjómanna og hafa sjálfir hótað ámóta aðgerðum á heimaslóðum til þess að koma í veg fyrir að rússaþorski verði landað í Noregi. „Ódýr rússaþorskur flæðir nú yfir nokkurs konar „gullæði" ríkir hjá markaðina og heggur að rótum til- fiskvinnslunni en sjómenn bera sig veru okkar sjálfra og starfsbræðra hins vegar illa vegna þess hvað okkar í Evrópubandalagslöndunum rússaþorskurinn hefur leitt til mikill- (EB), sagði Káre Ludvigsen, formað- ar verðlækkunar. ur sjómannasamtakanna á Troms- svæðinu. Samtök norskra smábátaeigenda lýstu einnig yfir stuðningi við aðgerð- ir sjómanna í EB-löndunum að und- anförnu. Að sögn Ludvigsen óttast norskir sjómenn að rússnesltir togarar stundi mikla rányrkju í Barentshafi; ofveiði sem haft geti alvarlegar afleiðingar fyrir stofnana þar. Ódýr rússafiskur sem landað hefur verið í Noregi að undanfömu hefur leitt til þess að Til harðra átaka kom milli þýskra sjómanna og lögreglu á hafnarbakk- anum í Kiel í fyrradag er feija með norskum og sænskum fiskflutninga- bílum innanborðs lagðist þar að. Fjörutíu lögreglumönnum tókst á endanum að ryðja bifreiðunum leið en sjómennirnir, sem voru 50 tals- ins, gáfu sig þó ekki fyrr en bílar með háþrýstivatnsbyssum birtust á bakkanum. Visar veg’imi FLAMINGÓ-fuglunum í Hagenbeck-dýragarðinum í Hamborg í Þýskalandi var hleypt út úr húsi í gær eftir vetur- langa inniveru. Myndin var tekin er starfsmaður dýragarðsins vísaði flamingóunum veginn til útivistarsvæðis þeirra. — d*<-------------------------------------- I Vinsamlegast sendib mér bækling um ^ SOS BARNAÞORPIN, mér ab kostnaöarlausu I Ég vil styrkja barn í: I Asíu meö 1.000,- kr. á mánubi | Afríku I S.-Ameríku I Ég vil styrkja uppbyggingu þorpa hjá SOS meb 1.000,- kr. ársfjórðungslega I " mánabarlega I I Nafn______________________________________ -S"C- □ □ □ □ □ □ Heimilisfang____________ I Bæjarfélag _____________ I Kennitala_______________ X Greiðslufyrirkomulag: | Gíró □ VISA [[[] Kort nr._______________________ SOS BARNAÞORPIN • HAMRABORgÍ 200 KÓPAVOGUR • SÍMI: 64 29 10 SOS BARNAÞORPIN Á ÍSLANDI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.