Morgunblaðið - 08.04.1993, Side 75
seei jij
HUDAQUTMMI'? ai«A,iaHUÍ
OM
TTOTCGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR S7 APRIUT9FB”
Minning
Guðrún Lilja Ólafs-
dóttir frá Strönd
Fædd 30. júlí 1911
Dáin 2. apríl 1993
Mig setti hljóða þegar Dúna vin-
kona minn hringdi í mig til Svíþjóð-
ar og tilkynnti mér lát móður sinn-
ar, Lilju Olafsdóttur. Það var svolít-
ið sérstakt, því að við hjónin höfðum
daginn áður verið að tala um hvað
hún hefði verið ern og vel á sig
komin síðastliðið sumar.
Ég fór að hugsa til æskuáranna
í Vestmannaeyjum og mig langar
til að minnast Lilju í örfáum orðum.
Ég varð heimilisvinur á Arnar-
felli þegar við Dúna vorum stelpur
og það var notalegt að koma þang-
að, því að þar var mér alltaf tekið
sem jafningja af fullorðna fólkinu.
Það var gott að drekka kaffi við
eldhúsborðið og spjalla og Lilja
hafði alitaf áhuga á að heyra hvað
við stelpurnar höfðum til málanna
að Jeggja.
Ég varð þess fljótt áskynja hve
Lilja var mikil sjómannskona og
hvað hjónaband hennar og Þor-
steins var kærleiksríkt.
Þorsteinn var mjög léttur í lund
og það var oft glatt á hjalla þegar
hann glettist við okkur vinkonurn-
ar. Heimili þeirra var ákaflega
smekklegt og voru þau hjón mjög
samheldin. Þau áttu miklu barna-
láni að fagna og hefur samheldni
ávallt einkennt fjölskylduna. Kemur
það einna best í ljós þegar heilsu-
leysi steðjar að, þá standa þau sam-
an sem einn maður.
Lilja var ákaflega greind og
skemmtileg kona og var ekki síður
ánægjulegt að hitta hana í seinni
tið. Hún var laus við alla sjálfsvor-
kunnsemi og þótt á móti blési hélt
hún reisn sinni til hins síðasta.
Elsku Dúna mín, ég sendi þér
og öllu þínu fólki mínar innilegustu
samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur.
Hjördís Magnúsdóttir.
Nú hefur Lilja kvatt þennan
heim. Lilja frænka, eins og ég
nefndi hana, var móðursystir mín.
Hún var dóttir hjónanna Guðrúnar
Bjarnadóttur og Ólafs Diðriks Sig-
urðssonar frá Strönd í Vestmanna-
eyjum.
Hún var ein af tíu systkinum,
og af þeim systkinahópi er nú ein
eftirlifandi, Guðrún Ólafsdóttir.
Lilja giftist 22. febrúar 1931
Þorsteini Gíslasyni skipstjóra frá
Görðum í Vestmannaeyjum og varð
þeim sex barna auðið. Eitt þeirra,
drengur lést á fyrsta aldursári.
Þorsteinn lést 25. maí 1971 og
saknaði Lilja hans ávallt mjög mik-
ið, enda voru þau afar samrýnd
hjón og milli þeirra ríkti einlæg ást
og virðing.
Mér þótti afskaplega vænt um
Lilju frænku, enda sýndi hún mér
alla tíð mikinn kærleika. Þegar hún
og Steini bjuggu á Arnarfelli í Vest-
mannaeyjum, var ég alltaf velkomin
á þeirra heimili, hvort sem var á
þjóðhátíð í Eyjum eða í sumarfríum
mínum, og fann ég svo innilega
hversu velkomin ég var.
Lilja frænka var mikil ptjóna-
kona og eru ófá sokkaplöggin og
vettlingarnir sem hún prjónaði og
gaf börnum mínu. í mínum augum
var Lilja sérlega hlý, gjafmild og
traust kona.
Með þessum kveðjuorðum vil ég
og fjölskylda mín þakka henni alla
þá umhyggju, sem hún ætíð sýndi
okkur.
ErruTvandræöum...Q
... meö fermingargjöfina !
SNmpilpenni er piæsileg pjöf!
POaBfopg ut ________________
Simi 67 1900 *
Börnum hennar og öðrum að-
standendum sendi ég hugheilar
samúðarkveðjur. Megi minning
Guðrúnar Lilju lifa.
Lóa.
CROSS'
SINCE 1046
&
...Alltíeinniferð
m
l-HUI.I.IV-
HALLARMÚLA 2 • Sími 813211 • Fax 689315
AUSTURSTRÆTI 18 • Sími 10130 • Fax 27211
KRINGLUNNI • Sími 689211* Fax 680011
...OG NU ER ÞAÐ
KOIAPORTSHELGI
■ ARSINS ■
Afmælishátíðin á laugardaginn
og sunnudagurinn á mánudag!
Á laugardaginn verður rífandi stemningí miðbænum þegar við
höldum upp á 4ra ára afmæli Kolaportsins í kamivalstíl
- mætum í skrautlegum búningum og dönsum samba.
Listamenn Kramhússins skemmta með Afró-dansi og
trumbuslætti. Óvæntar uppákomur og fjör allan daginn.
Við höldum svo hátíðarhöldunum áfram með glæsilegu
markaðstorgi á mánudag, annan í páskum.
Gleðilega páska!
KOIAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Við óskum Kolaportinu
til hamingju með afmælið!
l*Dfflstoss
JSTENSILL
OFFSET
pvoNusmN
GÁMAMÓNUSTANHF.
Ji
62 62 62
>• «' 4CltC0«U I. I*. itl,