Morgunblaðið - 08.04.1993, Side 92
HEWLETT
PACKARO
--------UMBOÐJB
HPÁ iSLANDi H F
Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000
Frá moguleika til veruleika
SÍMl^eafumfsÍMBRÉFeaiIsfVóSTHÓLFföS^/AJÍURErRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Morgunblaðið/RAX
Kísiliðjan fær ekki leyfi til að hefja kísilgúrvinnslu í Syðriflóa Mývatns
Tilraunir með vinnslu á
kísilgúr á landi í sumar
Rætt um að dæla kísilgúr undan Kröflueldahrauni frá 18. öld
TILRAUNIR verða hafnar í sumar með nýjar vinnsluaðferð-
ir á kísilgúr til að afla Kísiliðjunni kísilgúrs þegar hráefni
á núverandi vinnslusvæðum í Mývatni þrýtur. Athugað
verður hvort hægt sé að dæla kísilgúr undan hrauninu sem
rann yfir hluta vatnsins í Kröflueldum á átjándu öld. Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra undirritaði í gær nýtt náma-
, - leyfi fyrir Kísiliðjuna hf.
Leyfíð, sem er til ársins 2010, er
bundið ákveðnum svæðum í Ytri-
flóa Mývatns og verður ekki heim-
ilt að hefja kísilgúrnám í Syðriflóa
eins og Kísiliðjan hafði farið fram
á. _
í sambandi við útgáfu námaleyf-
isins lýsti iðnaðarráðherra því yfir
Skeljungur hefur keypt
2,6% í Sjóvá- Almennum
að hann muni í samvinnu við hags-
munaaðila beita sér fyrir rann-
sóknum á nýrri vinnslutækni við
kísilgúmám í vatninu og á hugsan-
legri nýtingu á kísilgúr sem lenti
undir hrauni í Kröflueldum 1719-
1727. Ráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að ætla megi
að kísilgúr sé undir hrauninu í landi
Reykjahlíðar. Hann sagði að
ætlunin væri að fínna gamla vatns-
botninn og komast til botns í þessu
máli í þess orðs fyllstu merkinu.
Hraunið er ekki þykkt og sagði Jón
að menn teldu mögulegt að kom-
ast þama í gegn með loftborunum.
Óvíst magn undir hrauninu
SKELJUNGUR HF. keypti á síðasta ári 2,6% hlutafjár í
Sjóvá-Almennum en nafnvirði bréfanna er um 6,6 milljónir
^króna. Miðað við síðasta viðskiptagengi er verðmæti bréf-
anna hátt í 30 milljónir. Á aðalfundi Sjóvár-Almennra sem
haldinn var í gær var Garðar Halldórsson kjörinn í stjóm
félagsins í stað Jóhanns G. Bergþórssonar.
Þar með situr Garðar bæði í
stjóm Sjóvár og Eimskips, en það
gera einnig Benedikt Sveinsson,
Hjalti Geir Kristjánsson og Krist-
inn Bjömsson.
Þetta kemur fram í grein í við-
skiptablaði Morgunblaðsins þar
sem fjallað er um umfangsmikil
eignarhaldstengsl stórra almenn-
ingshlutafélaga. Þar kemur fram
að hlutur Eimskips í Skeljungi
hefur farið vaxandi og einnig hafa
stjórnunarleg tengsl fyrirtækjanna
aukist. Forstjóri Eimskips var t.d.
kjörinn í stjórn Skeljungs á síðasta
aðalfundi félagsins og einnig var
forstjóri Skeljungs kjörinn í stjórn
á aðalfundi Eimskips í síðasta
mánuði.
Sjá „Umfangsmikil eignar-
haldstengsl...“ bls. 4-5 í við-
skiptablaði.
Ráðherra sagði ekki vitað hve
mikið af kísilgúr væri undir hraun-
inu og vinnsluaðferðir þyrfti að
finna. Hann sagði að vegna mikils
vatnsrennslis undir hrauninu teldu
menn hugsanlegt að um gúrinn
leiki vatn og væri þá hægt að ná
honum með dælingu án þess að
grafa upp hraunið. Einnig væri
rætt um að reyna að dæla vatni
niður og ná efninu þannig upp.
Sjá fréttir á bls. 38 og 46.
Spilavítisrekstur
Sekt og
fangelsi
SJO forsvarsmenn tveggja spila-
klúbba í Reykjavík, sem starfs-
semi var stöðvuð í með lögreglu-
aðgerð 9. október síðastliðinn,
voru í gær dæmdir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í 3-4 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og til að
greiða hver 2 milljónir króna í
sekt til ríkissjóðs eða sitja 90
daga í varðhaldi ella.
Þrír mannanna ráku spilaklúbb-
inn Klakann við Ármúla og fjórir
Fríklúbbinn við Súðavog.
Um tvö sakamál var að ræða. í
dómum Péturs Guðgeirssonar hér-
aðsdómara er talið sannað að
ákærðu hafi látið fara fram fjár-
hættuspil í húsnæðum klúbbanna.
Þá segir að sannað sé að í Frí-
klúbbnum hafí ákærðu eða aðrir á
þeirra vegum veitt gestum sem
ekki sátu að spilum áfengi gegn
gjaldi og um Klakann segir að þar
hafí gestir þegið áfengisveitingar
og látið af hendi rakna þjórfé þegar
þeim græddist fé á spilunum.