Morgunblaðið - 16.12.1993, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gakktu ekki út frá neinu
sem vísu í viðskiptum dags-
ins. Þú hefur tilhneigingu
til a‘ð eyða of miklu í
skemmtanir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu þess að standa við
gefin loforð. Láttu ekki
dagdrauma ráða ferðinni
og ekki taka að þér fleiri
verk en þú ræður við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Sýndu aðgát í vinnunni í
dag. Sumir sem þú átt sam-
skipti við eiga það til að
ýkja. Taktu orðum þeirra
með fyrirvara.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Varastu óþarfa skuldasöfn-
un í dag. Þér hættir til að
eyða óhóflega í skemmtan-
ir. Óþolinmæði dregur úr
afköstum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft ekki að þykjast
vera eitthvað annað en þú
ert til að koma þínum mál-
um á framfæri. Gættu þess
að særa engan.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) rjjf
Þú afkastar ekki jafn miklu
í dag og þú ætlaðir. Annað-
hvort ert þú með of mörg
jám í eldinum eða vinnu-
gleðina vantar.
Vog ^
(23. sept. - 22. október)
Þú ert með hugann við
skemmtanir en gætir spillt
gleðinni með of mikilli
eyðslu. Gættu hófs í pen-
ingamálum í kvöld.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Hugsaðu þig um tvisvar
áður en þú kaupir eitthvað
sem þú hefur enga þörf
fyrir og láttu góða dóm-
greind ráða í dag.
Bogmaður
(22. nóv. — 21. desember) m
Reyndu að vera stundvís
ef þú mælir þér mót við
aðra til að falla ekki í áliti.
Láttu ekki verkefni dagsins
bíða.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft að sýna aðgætni
við innkaupin í dag svo þú
sitjir ekki uppi með eitthvað
sem þú hefur ekki not fyrir.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar). ðh
Þótt þú fáir margar góðar
hugmyndir þarftu að hafa
í huga hvað er hagkvæmt.
Ekki ana út í neina óvissu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) £
Ferðalag sem þú hefur
áhuga á gæti orðið mjög
kostnaðarsamt. Ekki trúa
öllu sem þér er sagt. Sumir
segja ósatt.
Stj'órnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
íw»rr{»niniiiinnnu:uuR — ...............—...... .......
LJÓSKA
SMÁFÓLK
LOOK UJHAT MOM PUT IN
MY LONCH FOR U5...
CHKI5TMA5 C0OKIE5!
Sjáðu hvað mamma hefur sett í
nestið mitt handa okkur ... jóla-
smákökur!
U)0L)! A U)H0LE BUNCH!
T00 BAP U)E DON'T HAVE
p 50ME0NE T0 5HAKE THEM...
Vá! Heilan helling! Verst að við
höfum engan til að deila þeim með.
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Áður en Roman-lykilspila-
spumingin kom til skjalanna
lentu spilarar stundum í slysum
af þessu tagi:
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ ÁG64
VG5
♦ G7643
♦ 95
Suður
♦ 3
VÁKIO
♦ ÁD98
♦ ÁKDG7
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 lauf
Pass 1 spaði Pass 2 tíglar
Pass 3 tíglar Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 7 tíglar(!?)
Útspil: spaðakóngur.
Sagnhafí drepur á spaðaás,
bítur á jaxlinn, en spilar svo tígli
á drottninguna. Hún á slaginn
og vestur fylgir með tíunni.
Hvað nú?
Þetta getur varla talist mikið
vandamál. Það blasir við að spila
hjarta þrisvar til að komast inn
í borð svo hægt sé að svína aft-
ur trompkónginn. Sem var ein-
mitt það sem suður gerði þegar
spilið kom upp. Og fékk þá rétt-
láta refsingu fyrir sagngleðina:
Norður
♦ ÁG64
VG5
♦ G7643
Vestur ^ ‘*‘r> Austur
♦ KD108
V D86432
♦ 102
♦ 8
♦ 9752
V 97
♦ K5
♦ 106432
VÁK10
♦ ÁD98
♦ÁKDG7
Suður
♦ 3
Þessi einfalda blekking vest-
urs var 25 IMPa virði. Sveit
hans hefði tapað 11 ef spilið
hefði unnist, en vann í staðinn
14. Vestur gat ekki stillt sig um
að njóta augnabliksins á kostnað
sagnhafa: „Þú tókst eftir því að
ég kallaði í hjarta, rnakker."
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á öflugu opnu móti í Sánkti
Pétursborg í október kom þessi
staða upp í skák stigalausa Rúss-
ans Lembert, sem hafði hvítt og
átti leik, og 16. stigahæsta skák-
manns heims, þess unga Sergejs
Tivjakovs (2.635).
Hvíta atlagan er mjög óvenju-
leg og glæsileg: 25. Rc8+! - Kd8
(Svartur tapar mestöllu liði sínu
eftir 25. - Dxc8? 26. Dg7+) 26.
Dbl! - e5, 27. Bxe5! - Rxe5,
28. Hb8 - Rc6, 29. Hel! (29.
Db6+ dugði einnig til vinnings)
29. - Rxb8, 30. Dxb8 - Re4,
31. Rd6+ - Ke7, 32. Hxe4+ -
Kf6, 33. Re8+ og Tivjakov gafst
upp. Sannarlega óvæntur sigur
skákmanns sem er ekki einu sinni
í hópi 10.000 skákmanna á alþjóð-
lega stigaskalanum.
Rússneski stórmeistarinn
Aleksej Drejev sigraði á mótinu
með miklum yfirburðum, hlaut 8
v. af 9 mögulegum. Næstir komu
Akopjan, Armeníu, og Neverov,
Rússlandi, með 6V2 v. Drejev fór
síðan beint á HM landsliða í Luz-
ern og hlaut þar 5 v. af 6 möguleg-
um.