Morgunblaðið - 18.03.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 18.03.1997, Síða 1
108 SIÐUR B/C 64. TBL. 85. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Jeltsín stokkar upp í stjórn sinni og skipar Borís Nemtsov aðstoðarforsætisráðherra U mbótasinnum veitt mikil völd Reuter BORÍS Nemtsov, sem verður fyrsti aðstoðarforsætisráðherra í sdórn Rússlands, heilsar Boris Jeltsín forseta í Kreml í gær. Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, skýrði frá því í gær að Borís Nemtsov, 37 ára héraðsstjóri í Nísní Novgorod og vinsæll umbótasinni, yrði fyrsti aðstoðarforsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn landsins ásamt Anatolí Tsjúbaís, sem er 41 árs og fyrrverandi skrifstofustjóri forset- ans. Ljóst er að fijálslyndir umbóta- sinnar munu hafa bæði tögl og hagldir í stjóminni eftir þessa upp- stokkun, sem er sú mesta í fimm ár. Viktor Tsjernomyrdín forsætis- ráðherra sagði að nokkrir umbóta- sinnar yrðu gerðir að aðstoðarfor- sætisráðherrum, þeirra á meðal Jakov Úrinson aðstoðarefnahags- málaráðherra, sem verður einnig skipaður efnahagsmálaráðherra. Tsjúbaís verður fjármálaráðherra og á að hafa yfirumsjón með efna- hagsumbótunum. Þrír umbótasinnar til viðbótar verða skipaðir aðstoðarforsætisráð- herrar. Þeir eru Alfred Kokh, for- maður nefndar sem fjallar um eign- ir ríkisins, fjarskiptaráðherrann Vladímír Búlgak, sem á að fara með tækni- og vísindamál, og Oleg Sysujev, borgarstjóri Samara. Anatolí Kúlíkov innanríkisráð- herra, sem er íhaldssamari, verður áfram aðstoðarforsætisráðherra, svo og Valerí Serov, sem fer með samskiptin við önnur fyrrverandi sovétlýðveldi. Alls verða átta að- stoðarforsætisráðherrar í stjórninni, fímm þeirra eru umbótasinnar, einn íhaldssamur, og tveir tæknikratar sem erfiðara er að skilgreina. Tilkynnt verður um önnur ráð- herraembætti í lok vikunnar. Talið er að Jevgení Prímakov utanríkisráð- herra og Igor Rodíonov vamarmála- ráðherra haldi embættum sínum. Tekst á við einokunarfyrirtækin Skipun Nemtsovs kom mjög á óvart þar sem Jeltsín hafði sagt að Tsjúbaís yrði eini fyrsti aðstoðarfor- sætisráðherrann. Nokkrir frétta- skýrendur sögðu að Jeltsín hefði viljað fá Nemtsov í stjómina til að draga úr togstreitunni milli Tsjúbaís og Tsjernomyrdíns, sem þykir íhaldssamari. Hagfræðingar og frjálslyndir umbótasinnar, sem hafa gagnrýnt Jeltsín fyrir að hægja á umbótunum, fögnuðu skipun Nemtsovs og sögðu hana merki um að forsetinn væri staðráðinn í að knýja fram róttækar efnahags- umbætur. Jeltsín sagði að Nemtsov ætti að takast á við einokunarfyrirtækin og fara með félagsmál og samskiptin við sjálfstjórnarsvæðin í Rússlandi. Nemtsov, sem Jeltsín hefur lýst sem hugsanlegu forsetaefni, kvaðst óragur við að taka óvinsælar ákvarðanir til að knýja fram umbæt- ur þótt þær gætu skaðað pólitískan frama hans. Hann sagðist ætla að beita sér fyrir því að rússneskir ráðamenn losuðu sig við útlenda bíla sína og keyptu rússneska í stað- inn. Hann kvaðst þegar hafa rætt málið við Jeltsín, sem notar sjálfur þýskan Mercedes-bíl. ■ Jeltsín gagnrýnir NATO/24 Reuter ÞÚSUNDIR Albana söfnuðust saman við höfnina í Durres í gær í von um að komast úr iandi með bátum. Þjarmað að Berisha Tirana. Reuter. FAST er nú lagt að Sali Berisha, forseta Albaníu, að segja af sér vegna upplausnarinnar í landinu síðustu vikur. Sósíalistinn Fatos Nano, sem þykir líklegastur til að taka við embættinu, skoraði í gær á forsetann að hætta að hindra störf stjómarinnar og einbeita sér að því að koma á lögum og reglu í landinu. Uppreisnarmenn, sem hafa náð bæjum í suðurhluta Albaníu á sitt vald, segjast ekki ætla að leggja niður vopn fyrr en Berisha segi af sér. Nano kvaðst vilja að Berisha færi frá en bætti við að hann legði ekki mesta áherslu á þá kröfu. „Þar sem þorri mótmælendanna hefur krafist afsagnar Berisha vikum saman er ljóst að hann hefur ekki meðtekið skilaboðin. Ég hefði kosið að heilsa honum sem albönskum borgara en ekki forseta." Nano var forsætisráðherra um tíma árið 1991 og dæmdur í fang- elsi tveimur árum síðar vegna meintrar spillingar, en hann sagði ákærurnar tilhæfulausar og lið í ofsóknum hægrimanna. Berisha samþykkti í vikunni sem leið að sleppa honum úr fangelsi. Að minnsta kosti hundrað manns hefur beðið bana í óeirðunum í Alb- aníu sem hafa staðið í rúman mán- uð. Um 6.000 Albanir hafa flúið yfir Adríahafið til Ítalíu, þeirra á meðal 800 manns sem ítalska strandgæslan bjargaði úr gömlu og ryðguðu herskipi í gær. ESB hafnar hernaðaríhlutun Utanríkisráðherrar ríkja Evrópu- sambandsins höfnuðu um helgina beiðni Berisha um hernaðaríhlutun. Þeir samþykktu hins vegar að senda ellefu manna nefnd til Albaníu til að meta hvernig hægt yrði að að- stoða ráðamenn landsins við að binda enda á uppreisnina. Major boðar til kosninga 1. maí Stefnir í harð- vítuga baráttu London. Reut- IOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í gær að efnt yrði til þingkosninga í landinu 1. maí. Búist er við langri og harðvít- ugri kosningabaráttu, en skoðana- kannanir benda til þess að litlar lík- ur séu á að íhalds- flokkurinn fari með sigur af hólmi í kosn- ingunum og fái umboð kjósenda til að stjórna landinu fimmta kjör- tímabilið í röð. Major var þó bjart- sýnn þegar hann til- kynnti kjördaginn við aðsetur forsætisráð- herra í Downing- stræti. „Ég tel að ég sigri í þessum kosning- um. Við höfum 18 ára valdaferil sem ég er stoltur af,“ sagði Maj- or eftir að hafa gengið á fund Elísabetar Bretadrottningar, sem lagði blessun sína yfir beiðni hans um að ijúfa þing í byijun apríl og boða til kosn- inga. Breskir íhaldsmenn hafa gjör- breytt ásjónu landsins frá því þeir komust til valda árið 1979, einka- vætt fjölda ríkisfyrirtækja, dregið stórlega úr áhrifum verkalýðsfélaga og bundið enda á áratuga efnahags- hnignun. Andstæðingar þeirra segja hins vegar að stefna flokksins hafi leitt til meiri ójafnaðar í land- inu og nú sé tímabært að hann fari frá völdum eftir átján ár við stjórnvölinn. Þeir segja stjórnina veika, úr tengslum við almenning og hugmyndasnauða. „Major þarf kraftaverk“ Tony Blair hefur fært Verka- mannaflokkinn að miðjunni og hann er nú með 25 prósentu- stiga forskot á íhalds- flokkinn samkvæmt nýlegum skoðanakönn- unum. Engin dæmi eru um að breskur stjórn- arflokkur hafí unnið upp jafnmikinn mun svo skömmu fyrir kosn- ingar. „John Major þarf kraftaverk til að halda sér í Downing-stræti,“ skrifaði stjómmála- skýrandinn Peter Ridd- el í The Times í gær. íhaldsmenn vonast þó til þess að fylgi Verka- mannaflokksins hrynji í kosningabaráttunni, sem mun standa í 44 daga og verða sú lengsta í Bretlandi í 80 ár. Major varð á sunnudag við áskor- un Blairs um sjónvarpskappræður milli þeirra tveggja fyrir kosning- arnar. Stjórnmálaskýrendur sögðu þetta örvæntingarfulla tilraun af hálfu íhaldsmanna til að snúa vörn í sókn. Ráðgjafar Majors voru sagð- ir vonast til þess að hann gæti not- fært sér reynsluleysi Blairs, sem hefur aldrei gegnt ráðherraembætt- um, og tregðu hans til að útskýra stefnu sína í mikilvægum mála- flokkum. Reuter John Major

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.