Morgunblaðið - 18.03.1997, Blaðsíða 68
Atvinnutryggingar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUOCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Launþegaforystan hafnaði nýju tilboði frá vinnuveitendum í gær
Kj araviðræðurnar
héngu á bláþræði í nótt
MIKIL óvissa ríkti um framhald
kjaraviðræðna vinnuveitenda og
landssambanda og verkalýðsfélaga
Alþýðusambandsins hjá sáttasemj-
ara um miðnætti í nótt. Launþeg-
afélögin svöruðu í gærkvöldi nýju
tilboði vinnuveitenda sem lagt var
fram síðdegis. Var því hafnað í öll-
um meginatriðum og var mikil
óánægja með það. Engu að síður
var sáttaumleitunum haldið áfram
fram á nótt til að leiða í ljós hvort
einhverjir möguleikar væru á að
halda viðræðum áfram.
Var allt eins búist við að upp úr
viðræðum slitnaði en forystumenn
báðum megin borðsins voru þeirrar
skoðunar í gær að viðræðuslit
myndu hafa í för með sér að frek-
ari sáttaumleitanir legðust niður
um ófyrirsjáanlegan tíma og fátt
gæti komið í veg fyrir að fyrstu
allsheijarverkföll hæfust 23. mars.
Flest verkalýðsfélög sem hafa ekki
nú þegar samþykkt verkfallsboðan-
ir eru reiðubúin að láta kosningar
fara fram á næstu dögum um boð-
un allsheijarverkfalls 2. apríl.
Tilboð vinnuveitenda er að mestu
sambærilegt við kjarasamning sem
vinnuveitendur gerðu við Iðju og
Landssamband iðnverkafólks í sein-
ustu viku, þar sem kveðið er á um
sömu prósentuhækkanir, sveigjan-
legan dagvinnutíma, breytingar á
desember- og orlofsuppbótum, að
heimilt verði að færa taxta að
greiddu kaupi og lagt er til að samn-
ingstíminn verði til 15. október
1999. Fallið er frá tillögum um
lækkun yfirvinnuálags og að starfs-
maður verði að standa skil á 40
stunda dagvinnu til að fá greidda
yfirvinnu.
Gangur í viðræðum
rafiðnaðarmanna og ríkis
Samningafundi Rafíðnaðarsam-
bandsins og samninganefndar ríkis-
ins sem hófst kl. 18 í gær var ekki
lokið þegar Morgunblaðið fór í
prentun. Nokkur gangur var í við-
ræðunum skv. upplýsingum deilu-
aðila en mikil óvissa var þó um
hvort tækist að ná samningum áður
en boðað verkfall RSÍ hjá ríkinu á
að hefjast, á miðnætti annað kvöld.
Áhrif þess yrðu mest hjá Ríkisspít-
ölum, Ríkisútvarpinu, Þjóðleikhús-
inu og Siglingastofnun Islands.
Nýgerður kjarasamningur iðn-
verkafólks var kynntur á félags-
fundi í Iðju, félagi verksmiðjufólks,
í gær. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins kom fram talsverð
óánægja með samninginn. Var m.a.
gagnrýnt að engar tryggingar eða
opnunarákvæði væri að finna í
samningnum og gildistími samn-
ingsins væri til 15. október 1999.
Mjólkurfræðingafélag íslands
hefur samþykkt boðun ótímabund-
ins verkfalls sem á að hefjast á
miðnætti aðfaranótt 25. mars í
mjólkurbúum um allt land.
■ Verkföll/6
■ Breytt/35
Kaup á hlut í VÍS
Gertráð
fyrir víkj-
andi láni
í FORSENDUM Landsbankans fyrir
kaupum á helmingshlut Brunabóta-
félagsins í Vátryggingafélagi ís-
lands er gert ráð fyrir víkjandi láni
árið 1998 til að uppfylla kröfur um
eiginfjárhlutfall.
Björn Líndal, aðstoðarbankastjóri
Landsbankans, segir um þá gagn-
rýni að kaupin stangist á við lög um
eiginfjárhlutfall, að útreikningar á
áhrifum kaupanna á eiginfjárhlutfall
1997-1999 hafi verið gerðir á grund-
velli rekstraráætlana.
Segir hann að allan þennan tíma
uppfylli bankinn kröfur um eiginfjár-
hlutfall án þess að þurfa að auka
eigið fé með sölu hlutabréfa. Inni í
því sé gert ráð fyrir víkjandi láni
árið 1998 án þess þó að heimildir
bankans til slíkrar lántöku væru
fullnýttar.
■ Tilgangurinn/34
Hafnarfjörður
Formleg
rannsókn
áatvikiá
leikskóla
ÞJÓNUSTUDEILD skólaskrif-
stofu Hafnarijarðar og Félags-
málastofnun Hafnarfjarðar munu
í dag hefja formlega rannsókn á
því atviki sem varð á leikskólanum
Hörðuvöllum í Hafnarfirði í síð-
ustu viku er einn leiðbeinandi skól-
ans varð uppvís að því að líma
breitt límband fyrir munn tveggja
ára drengs.
Rannsakað sem
barnaverndarmál
Þá verður rannsakað hvort um
fleiri atvik hafi verið að ræða og
hvort börnin hafi hlotið skaða af,
að sögn Sigurlaugar Einarsdóttur,
leikskólafulltrúa skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar. Sigurlaug segir
ennfremur, að með atbeina félags-
málastofnunar sé þetta orðið að
barnaverndarmáli.
Þetta var m.a. kynnt á fjöl-
mennum foreldrafundi sem hald-
inn var á vegum skólaskrifstof-
unnar í safnaðarheimili Víðistaða-
kirkju í gærkvöldi.
Unnið að faglegri
«PPbyggingu
Á fundinum voru ennfremur
kynntar þær samningaviðræður
sem nú eru í gangi á milli verka-
kvennafélagsins Framtíðar og
Hafnarfjarðarbæjar um að bærinn
taki við rekstri leikskólans, að
sögn Sigurlaugar, en einnig var
sagt frá því að í dag, þriðjudag,
myndi hún, ásamt tveimur leik-
skólakennurum frá öðrum leik-
skólum og skólaráðgjafa Hörðu-
valla, byija á því að skoða allt
innra starf leikskólans og vinna
að faglegri uppbyggingu hans.
Forsætisráðherra
heimsækir Færeyjar
Ráðamenn
ræðast við
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra og kona hans Ástríður
Thorarensen fóru í opinbera
heimsókn til Færeyja í gær. Fyr-
irhugað er að Davíð eigi viðræð-
ur við ráðamenn og heimsæki
ýmis fyrirtæki og stofnanir, en
heimsókninni lýkur á morgun.
Fjörugar samræður spunnust
þegar um samskipti þjóðanna
milli Davíðs og gestgjafa hans,
Edmunds Joensen, lögmanns
Færeyja, á feijunni sem flutti þá
og fylgdarlið þeirra frá Vogey
til Straumeyjar.
UTRF á Kamtsiatka seefir samninffi sínum við IS upp án fyrirvara
ÍS íhugar að hefja starfsemi
í eigin nafni í Rússlandi
Sjávarútvegsfyrirtækið UTRF á
Kamtsjatka í Rússlandi hefur sagt
upp samstarfssamningi sínum við
íslenzkar sjávarafurðir einhliða og
án fyrirvara. Ástæða þess að samn-
ingnum er sagt upp er fyrst og
fremst ágreiningur um rekstur fyr-
irtækisins á Kamtsjatka og sú krafa
ÍS að hafa fulla stjórn á verkefn-
inu. Samningur fyrirtækjanna var
til tveggja ára og er nú á fyrra
árinu. Hann er óuppsegjanlegur
nema til komi ærnar ástæður. Sam-
vinna ÍS og UTRF færði ÍS um 4
milljarða króna veltu á síðasta ári,
en alls nam sala afurða UTRF um
57.400 tonnum. 24 menn eru nú að
störfum á Kamtsjatka á vegum ÍS.
Ekki er ljóst á þessari stundu
hver framvinda samstarfs UTRF
og ÍS verður, en væntanlega verður
hún rædd á fundum í Rússlandi í
næstu viku. Benedikt Sveinsson,
forstjóri íslenzkra sjávarafurða,
segir í samtali við Morgunblaðið,
að vissulega sé þetta alvarlegt og
mikið átakamál. „Við erum þó til-
tölulega rólegir vegna þessa. Samn-
ingurinn er til tveggja ára, en komi
til tafarlaus uppsögn af þeirra hálfu
munum við leita réttar okkar í sam-
ræmi við ákvæði samningsins, sem
lýtur þýzkum lögum.
Við höfum alfarið neitað því að
gefa eftir þá forystu sem samning-
urinn færir okkur og við vitum að
þarna er um að ræða einhliða
ákvörðun forstjórans, Alexanders
Abramovs. Þetta var gert í and-
stöðu við marga af lykilmönnum
innan fyrirtækisins og marga hlut-
hafa þess. Kannski er þetta leið
þeirra til að fá okkur að samninga-
borðinu á ný til að knýja fram ein-
hverjar breytingar. Það vitum við
ekki og framhaldið verður einfald-
lega að koma í ljós,“ segir Benedikt.
Mikil áhrif á reksturinn
- Hvaða áhrif hefur þetta á
rekstur ÍS?
„Þetta hefur auðvitað mikil áhrif.
Samvinnan við UTRF skilaði tæp-
lega 20% af veltu ÍS á síðasta ári,
en gert var ráð fyrir því að það
yrði heldur minna í ár. Okkar menn
fyrir austan munu halda áfram að
sinna sínum störfum þar til annað
kemur í ljós, en það verður einnig
að teljast líklegt að framtíð UTRF
verði fyrirtækinu erfið án sam-
starfsins við okkur. Það er ennfrem-
ur ljóst að við munum kanna aðra
starfsemi í eigin nafni á þessum
slóðum. Við höfum öðlazt mjög
dýrmæta reynslu af því að hafa
starfað við erfiðar aðstæður á
Kamtsjatka í fjögur ár. Sú reynsla
á tvímælalaust eftir að koma okkur
til góða. Sem dæmi um erfiðleikana
við að starfa í Rússlandi má nefna
að heil ríkisstjórn var rekin í síðustu
viku. Þrátt fyrir þessa erfíðleika
mega íslenzk fyrirtæki ekki gefast
upp við að vinna í þessum heims-
hluta,“ segir Benedikt Sveinsson.
Dimmalætting/Kalmar Lindenskov
■ MöguIeikar/4