Morgunblaðið - 18.03.1997, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYIMDBOND/KVIKMYIMDIR/UTVARP-SJONVARP
MYNDBOND
SÍÐUSTU VIKU
Geimtrukkarnir
(Space Truckers) ir +
Börnin á akrinum
(Children of the Corn) k
Powder
(Powder) kk'h
Innrásin
(TheArrival) kk
Umsátrið á Ruby-
hryggnum
(The Siege atRuby Ridge) k k
Draumur sérhverrar konu
(Every Woman’s Dream) k k'h
Ríkhaður þriðji
(Richard III) +**Vt
Bleika húsið
(La Casa Rosa) + +
Sunset liðið
(Sunset Park) +Vi
í móðurleit
(Flirting with Disaster) + + +
Banvænar hetjur
(Deadly Heroes)
Dauður
(DeadMan) +
Frú Winterbourne
(Mrs. Winterbourne) + +Vi
Frankie stjörnuglit
(Frankie Starlight) + +Vi
Dagbók morðingja
(Killer: A Journal of Murder) Vt
Klikkaði prófessorinn
(The Nutty Professor) + + +
Eyðandinn
(Eraser) + +Vi
Sporhundar
(Bloodhounds) +
Glæpur aldarinnar
(Crime ofthe Century) + + +Vi
Próteus
(Proteus) +
Svaka skvísa 2
(Red Blooded 2) +Vi
Bardagakempan 2
(Shootfighter 2) +
Ást og skuggar
(Of Love and Shadows) + +
Stolt Celtic - liðsins
(Celtic Pride) ++Vi
MYNPBONP
Ástin o g lífið
Töfrandi fegurð
(Stealing Beauty)
Astarmynd
+ + +
Framleiðandi: Fox Searchlight
Pictures. Leiksljóri: Bernardo
Bertolucci. Handritshöfundur: Sus-
an Minot eftir sögu Bernardos Bert-
olucci. Kvikmyndataka: Darius
Khondji. Tónlist: Richard Hartley.
Aðalhlutverk: Liv Tyler, Sinead
Cusack, Jeremy Irons og Donal
McCann. 117 mín. Bandaríkin/Ítal-
ia. 20th Century Fox Home Enter-
tainment/Skífan 1997. Útgáfudag-
ur: 12. mars. Myndin er bönnuð
börnum yngri en 12 ára.
LUCY er nítján ára bandarísk
stúlka. Hún fer til Italíu til að dvelja
hjá vinum móður sinnar, eins og hún
gerði 4 árum áður. Lucy kom ekki
bara til að slappa af, heldur til að
leita að kynföður sínum, og einnig í
þeirri von að hitta fyrstu ástina sína,
hann Niccolo.
Mér finnst þetta mjög falleg mynd
um ástina. Um ástina í öllum sínum
ólíku myndum. Um ástina og lífið,
og hvað ástin hefur mikil áhrif á líð-
an okkar, og í raun á persónumótun
mannverunnar. Allar persónur mynd-
arinnar elska eða hafa elskað, en
samt snýst allt um og allir öfunda
^„1meyna; þá sem
ekki hefur notið
ástarinnar enn.
Þar sem myndin
er sögð út frá
ungri konu í leit
að sjáifri sér, eiga
konur ef til vill
auðveldara með að
skilja myndina og
finna samsvörun í
aðalpersónunni.
Ég hef heyrt unga menn segja ljóta
hluti um þessa mynd; Bertolucci er
með gráa fíðringinn, þetta er of mik-
ið pat út af einum meydómsmissi.
Mér fínnst myndin alls ekki fjalla um
þessa hluti, heldur er Bertolucci að
endurskapa hin ýmsu viðhorf mann-
eskjunnar til ástarinnar, og tekst það
mjög vel.
Kvikmyndatakan er mjög flott, og
stundum einum of, að maður hélt sig
vera að horfa á ítalska kaffi- eða
pastaauglýsingu. Ég skil ekki byijun-
aratriði myndarinnar sem var tekið á
myndband. Hvers vegna er það tekið
á myndband og hvað þýðir atriðið?
Persónusköpunin er mjög fjölbreytt,
skemmtileg og trúverðug. Bertolucci
hefur fengið til liðs við sig úrvals leik-
ara, sem allir standa sig frábærlega.
Fyrsta ber að nefna Liv Tyler, sem
er sannarlega töfrandi falleg, og fædd
í hlutverkið. Richard er mjög fyndin
týpa, þótt hann sé klisjukenndur.
Hlutverk gamla karlsins, sem Jean
Marais leikur, virðist óþarft, nema
hann sé fulltrúi samkynhneigðra? Eða
vildi Bertolucci hafa hann með, þar
sem hann á sjálfsagt ekki langt eftir?
Eina senu verð ég þó að lasta, en
það er veislan. Öll sú sena var mjög
tilgerðarleg, leiðinleg og óþörf með
öllu. Setur hún því leiðinlegan svip
á myndina. Ég verð að segja að ann-
ars horfði ég með mikilli ánægju á
hveija mínútu myndarinnar sem
flaut fram hjá augunum á mér nú í
annað sinn.
Hildur Loftsdóttir
IIMIMIimTT
Hvað er væntanlegt í bíó vestanhafs?
Titill Leikstjóri Leikarar Söguþráður
That Old Feeling Carl Reiner Bette Midler, Dennis Farina Rómantísk gamanmynd um fráskilið par sem endur- nýjar gamlar glæður í brúðkaupi dóttur sinnar
Inventing the Abbotts Pat O’Conner (Circle of Friends) Liv Tyler, Joaquim Phoenix, Jennifer Conelly Flókun ástarmál þriggja systra í bandarískum smábæ árið 1957.
Double Team Tsui Hark J. C. Van Damme, Mickey Rourke, Dennis Rodman Starfsmaður C.I.A. lendir í vondum málum og þarf að berja frá sér.
Murder at 16.00 Dwight Little Wesley Snipes, Diane Lane Einkaspæjari rannsakar morð á starfsmanni Hvíta hússins.
Romy& Michele's High School Reunion David Mirkin Lisa Kudrow, Mira Sorvino, Janeane Garofalo. Tveir slæpingjar ákveða að villa á sér heimildir á bekkjarmóti.
Paradise Road Bruce Beresford Glenn Close, Frances Mc- Dormand, Julianna Margulies. Byggður á lífsreynslu kvenfanga í seinni heimsstyrjöldinni sem buðu japönskum vörðum birgin.
Addicted to Love Griffin Dunne Matthew Broderick, Meg Ryan. Rómantísk gamanmynd um samskipti stjörnufræðings og Ijósmyndara, og getið nú hver er hvað!
Till There Was You Scott Winant Jeanne Tripplehorn, Dylan Mc- Dermott, Sarah Jessica Parker. Ást og allt sem henni fylgir.
Breakdown Jonathan Mostow Kurt Russel, Kathleen Quinlan. Ferðalag verður endasleppt þegar eiginkonunni er rænt.
Grosse Pointe Blank George Armitage John Cusack, Joan Cusack, Alan Arkin. Leigumorðingi tekur að sér síðasta verkefnið.
Óvenjulegur ástarþríhyrningur
HILMAR Oddsson fékk nýlega
ásamt. Ólafi Rögnvaldssyni
styrk úr Kvikmyndasjóði til að skrifa
handrit að mynd í fullri lengd eftir
smásögu Sjón sem nefnist Undir
vængjum valkyijunnar.
Sagan er um arkitekt sem hefur
frá unga aldri átt í mjög sérkenni-
legu ástarsambandi við þýsku
hryðjuverkakonuna Guðrúnu Énssl-
in, sem var einn af forsprökkum
Baader-Meinhofhreyfingarinnar. Til
að bjarga hjónabandi sínu telur hann
sig þurfa að færa mjög sérkennilega
en persónulega fórn.
„Það sem ég hef mestan áhuga á
eru hin margvíslegu og ólíku birting-
arform ástarinnar. Ég er að reyna
að beija saman sögu af óvenjulegum
ástarþríhyrningi. Þar tefli ég saman
andstæðum eins og
arískri hörku og
miðevrópskri
mýkt, kynferðis-
legri kúgun og
jafnvel kvalalosta
andspænis raun-
verulegri ást, lík-
amlegri sem and-
legri. Annars eru
hér á ferðinni
gömlu góðu sann-
indin um að ástin
sé sterkasta aflið, hún ein sigri allt,“
sagði Hilmar Oddsson í samtali við
Morgunblaðið.
Sjónarhóll karlmanns
Upphaflega var það Ólafur Rögn-
valdsson hjá Ax-Film sem kom að
máli við Sjón og varð sér út um
kvikmyndaréttinn að sögunni. Hann
bað Hilmar að skrifa handritið með
það fyrir augum að hann myndi leik-
stýra myndinni seinna meir.
„Hvenær af því verður fer eftir
því hversu vel gengur að fjármagna
verkið og hversu gott handritið verð-
ur. Sagan er erótísk og markvisst
sögð út frá allt að því eigingjörnum
sjónarhóli karlsins. Ég reyni því að
gefa henni ákveðna hlýju og mýkt
svo hún muni höfða jafnt til karla
sem kvenna.
Það er ögrandi hversu ólík sagan
er öllu því sem ég hef fengist við
áður. Hún er að mörgu leyti kaldari
og jafnvel hrárri. En mesta ögrunin
felst í því hversu mikið frelsi ég fæ
til að bæta við söguna. Hún er upp-
haflega skrifuð í formi bréfs sem
eiginkonan les frá manni sínum. í
sögunni er hún í raun ósýnileg per-
sóna en í myndinni verður hún lykil-
persóna. Útkoman verður örugglega
allt annað verk en sagan, þótt ég
fylgi söguþræði Sjón í megindrátt-
um,“ sagði Hilmar Oddson kvik-
myndaleikstjóri um væntanlegt
kvikmyndahandrit sitt, Undir
vængjum valkyijunnar.
KAPPLEIKIR
í SJÓNVARPI
18. -24. mars
ÞRIÐJUDAGUR 18. mars
Kl. 19.45 - RAIUNO
Inter - Anderlecht
Kl. 20.35 á ARD
Valencia - Schalke
Kl. 21.30 áEURO
Leikir kvöldsins
MIDVIKUDAGUR 19. mars
Kl. 19.30 á RTL
Auxerre - Dortmund
Kl. 19.30 á SUPER
Rheinhausen - Lemgo
Kl. 19.30 á SÝN, TV3-D og TV3-S
Atletico Madrid - Ajax
Kl. 19.30 áTV3-N
Juventus - Rosenborg
Kl. 21.30 á SYN
Auxerre - Dortmund
FIMMTUDAGUR 20. mars
Kl. 19.00 á TV3-S
AIK - Barcelona
Kl. 19.15 áSKY
Skotland - Wales (u-15)
Kl. 19.45 áRAIDUE
Fiorentina - Benfica
Kl. 19.45 áSÝN og TV2-N
Liverpool - Brann
Kl. 21.30 á EURO
Leikir kvöldsins
FOSTUDAGUR 21. mars
Kl. 19.00 áSUPER
Diisseldorf - Stuttgart
Kl. 19.45 á SKY
Luton- Brentford
LAUGARDAGUR 22. mars
Kl. 00.35 á SUPER
Miami - LA Lakers
Kl. 14.30 áSUPER
Dortmund- Bor M’gladbach
Kl. 15.00 á RUV
Everton - Manchester United
Kl. 19.30 áSKY
Athletico Bilbao - Compostela
SUNNUDAGUR 23. mars
Kl. 13.00 áSKY
Oldham - Chrystal Palace
Kl. 14.00 áSTÖÐ 2
Fiorentina- Parma
Kl. 16.00 á SKY, SUPER og SÝN
Wimbledon - Newcastle
Kl. 18.00 áSAT.1
Karlsruhe - Bayern Miínchen
Kl. 18.05 á SUPER
Orlando - LA Lakers
Kl. 18.30 á SKY
Rayo Vallecano - Atletico Madrid
Kl. 19.30 áSÝN
Roma - Bologna
MANUDAGUR 24. mars
Kl. 18.30 á DSF
Mainz - Kaiserslautern
Kl. 20.00 áSKY.SUPER ogSÝN
Arsenal - Liverpool
við hjálpum
MEÐ ÞINNI
hjálp
Þú getur tekið þátt í að viðhalda lífsvon karla,
kvenna og barna í neyð með því að hringja
í síma 562 6722 og gerast styrktarfélagi
Hjálparsjóðs Rauða kross íslands.
Framlög þín renna óskipt til hjálparstarfs
Rauða kross íslands erlendis. i
Þú færð reglulega upplýsingar um *
hvernig við verjum fénu.
Þú ákveður hve mikið, hve oft og hvenær þú greiðir.
+
RAUÐl KROSS ISLANDS