Morgunblaðið - 18.03.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.03.1997, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ________________FRETTIR Bensín á sjálf- sölumí 5-7 Morgunblaðið/Sig. Fannar. DAGSBRÚNARMENN mótmæla við Mjólkurbú Flóamanna. Dagsbrúnarmenn mótmæltu á Selfossi Mikið keypt af mjólk á Suðurlandi DREIFING á eldsneyti til bensín- stöðva hefur stöðvast með öllu í Reykjavík og einnig dreifing á hrá- olíu til skipa og flugvélaeldsneyti. Strætisvagnar Reykjavíkur eiga dísilolíuforða til einnar viku og er í undirbúningi að draga úr tíðni ferðanna. Afgreitt verður af sjálf- sölum á bensínstöðvum í Reykjavík að öllu óbreyttu meðan birgðir end- ast. Talið er að þær birgðir dugi í 5-7 daga. Búast má við að eldsneyt- isbirgðir endist lengur á svæðum sem eru þjónustuð frá Akranesi þar sem olíufélögin hafa fyllt birgða- tanka sína. Ekki verður þó fyllt á þá aftur meðan á verkfalli stendur. Bifreiðaeigendur á höfuðborgar- svæðinu ættu því að geta nálgast bensín í Hvalfirði, Borgarnesi eða á Akranesi þegar allt um þrýtur. Olíufélögin telja sig vera í fullum rétti með að hafa sjálfsalana opna. í flestum tilfellum eru bensínstöðv- ar orðnar verslanir og voru flestar opnar í gær sem slíkar. VR-menn eru þar við störf og almenna reglan er sú að einn VR-maður sé á hverri stöð. Þeir eiga ekki að dæla bens- íni og heldur ekki að taka við greiðslu fyrir bensínið heldur á bensínafgreiðslan að vera eins og að nóttu í gegnum sjálfsalana. Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, segir að nóg bensín sé til alls staðar eins og er. Hver ein- asta bensínstöð á höfuðborgar- svæðinu væri með sjálfsala og í neðanjarðartönkum væru 40-60 þúsund lítrar á hverri stöð. „Hvað sem öðru líður ætlum við okkur ekki að fara í stríð við Dags- brún. Það er líka til nóg bensín hérna rétt utan við bæjarmörkin, t.d. á Selfossi og Akranesi. Við erum búnir að haga málum þannig að allir birgðatankar úti á landi eru fullir núna svo við eigum ekki von á því að það þverri í einhveijar vikur,“ sagði Kristinn. Kristinn telur bensín á höfuð- borgarsvæðinu duga í um eina viku. Brögð að verkfallsbrotum Að sögn verkfallsvarða hjá Dagsbrún voru brögð að því að verkfallsbrot væru unnin á bensín- stöðvum í borginni í gær en engin dæmi voru um að slegið hefði í brýnu milli manna. Bensínstöðv- arnar hefðu haft 2-3 VR-menn á sumum stöðvum, aðallega hjá Skeljungi. Dagsbrúnarmenn hefðu séð um að tæma sjálfsalana sem stöðvuðust því af sjálfu sér þegar þeir fylltust. Dagsbrúnarmenn höfðu fregnir af því að olíufélögin ætluðu að senda skrifstofumenn til þessara verka en ekki hafði verið ákveðið í gær hvernig yrði brugðist við því. Knútur G. Hauksson, fram- kvæmdastjóri Olíudreifingar ehf., segir að birgðastöðvar séu úti um allt iand og starfsmenn sem ekki eru í Dagsbrún annist dreifíngu á olíu þar. Gasolíu- og bensíndreifing er t.d. frá birgðastöð á Akranesi til Hvalfjarðar og Borgarfjarðar. Hins vegar verður ekki hægt að fylla á birgðatankana. Olíu er skip- að á land í Reykjavík, Hafnarfirði og Hvalfirði en bensíni er eingöngu skipað á land í Reykjavík. Birgðir til eins mánaðar eru yfirleitt í birgðatönkunum. Flugvélaeldsneyti til nokkurra daga Olíudreifing ehf. dreifir flugvéla- eldsneyti út þessa viku til Keflavík- urflugvallar frá Hafnarfirði og birgðir eru taldar endast í nokkra daga þar. Hætt er að dreifa flug- vélaeldsneyti til innanlandsflugsins á Reykjavíkurflugvelli en birgðir eru taldar endast út þessa viku. Dreifing hefur einnig stöðvast á skipaolíu á höfuðborgarsvæðinu. Allra handa hf. langferðabílar hefur komið sér upp olíubirgðum til eins mánaðar reksturs. Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að í samningi sem fyrirtækið gerði við sitt olíufé- lag sé kveðið á um að alltaf sé til næg olía til rekstursins í a.m.k. einn mánuð. Fyrirtækið er nú með 15 þúsund lítra af dísilolíu í tönkum á athafnasvæði sínu. Jóhannes Ellertsson, hjá Vest- fjarðaleið, segir að fyrirtækið sé vel birgt af olíu og fyllt hafi verið á alla tanka í fyrrakvöld. Vest- daga fjarðaleið rekur 24 bíla en alla jafn- an er ekki nema um helmingur þeirra í daglegri notkun. Allt frá 200 upp í 600 lítrar af olíu eru á hveijum bíl. Einnig er fyrirtækið með aðrar birgðir þannig að rekst- urinn er tryggður í einn mánuð. SVR með birgðir í eina viku Lilja Ólafsdóttir, framkvæmda- stjóri SVR, segir að fullir tankar séu á öllum vögnum en birgðir eigi að duga í rúma eina viku. „Það er hugsanlegt að dregið verði úr tíðni ferða ef við sjáum fram á að verk- fallið ætli að dragast á langinn. Þó er ansi hart að þurfa að gera það þegar almenningur er að leggja einkabílunum. Ef til kæmi drægjum við úr tíðni ferða utan álagstíraa,“ sagði Lilja. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fékk fyrirspurn fyrir síðustu helgi um viðhorf þess til þess að sér- leyfishafar fengju stóra olíutanka hjá olíufélögunum og geymdu á athafnasvæðum sínum. Tryggvi Þórðarson, Heilbrigðiseftirliti, sagði að það væri flokkað með mengandi starfsemi að hafa svona tanka og þyrfti starfsleyfi til. „Hins vegar höfum við ekki mótað kröfur sem þarf að gera til þessa og erum því ekki í stakk búnir til þess að taka á þessum málum,“ sagði Tryggvi. Gunnar Olafsson, hjá Eldvarna- eftirliti Reykjavíkur, segir að það sé ómögulegt að koma í veg fyrir að almenningur hamstri bensín og geymi á alls kyns ílátum. Erfitt sé að fylgjast með þessu eftir að sjálf- salarnir komu til sögunnar. Hann segir að til séu brúsar sérstaklega til þess gerðir að geyma í bensín. „Hættan er sú að fólk láti bens- ín á venjulega plastbrúsa og að það hlaðist upp rafmagn við núning bensínsins við brúsann. Hugsan- lega gæti það gerst að neisti hlaupi í bílinn og það gæti verið nóg til þess að valda íkveikju,“ segir Gunn- ar. Hann segir að slöngur á dælum bensínstöðvanna séu sérstaklega jarðtengdar til þess að koma í veg fyrir að stöðurafmagn hlaðist upp. Selfossi. Morgunblaðið. GRÍÐARLEG sala hefur verið á mjólk í verslunum á Selfossi og mikill straumur af fólki hefur ver- ið af höfuðborgarsvæðinu sem kemur gagngert yfir heiðina til þess að kaupa mjólk. Um helgina kiáraðist hún í verslunum en er nú fáanleg aftur. Styst er fyrir íbúa á höfuðborg- arsvæðinu að Suðurnesjum með- töldum, að aka austur yfir fjall, til Hveragerðis eða Selfoss, eða Þor- lákshafnar til þess að nálgast mjólk. Mjólkurbú Flóamanna þjón- ustar einnig Litlu kaffistofuna á Suðurlandsvegi með mjólk en þar á bæ fengust þær upplýsingar að sú mjólk væri aðallega til einka- nota. Samstaða er sigur Dagsbrúnarmenn fjölmenntu fyrir utan Mjólkurbú Flóamanna á Selfossi í gærmorgun til þess að mótmæla aukinni framleiðslu fyr- irtækisins á mjólk. Var Birgi Guð- mundssyni mjólkurbússtjóra af- hent bréf þar sem ítrekuð voru mótmæli gegn aukningu mjólkur- framleiðslu á meðan á verkfalli stendur og óskað var eftir sam- stöðu með verkfallsmönnum. Dagsbrúnarmenn hrópuðu: „Samstaða er sigur" og þeir vildu með því undirstrika að þeim væri alvara. Að sögn Ólafs Ólafssonar, trúnaðarmanns Dagsbrúnar, eru þeir ósáttir við að mjólkurfram- leiðsla á Selfossi sé aukin meðan á verkfalli stendur í Reykjavík. Að sögn Hjálmars Agústssonar, trúnaðarmanns starfsmanna MBF, munu þeir halda sínu striki og ekki er ætlunin að fara út í ólögleg- ar aðgerðir vegna verkfallsins. „Við styðjum baráttu Dagsbrúnar- manna eins og við getum en það verður áfram framleitt hér fyrir heimamarkaðinn," sagði Hjálmar. í Mjólkurbúi Flóamanna er framleiðslan tvöfalt meiri en veiyulegt er en þar á bæ segja menn að þeir geti aldrei annað meiri eftirspurn en þeir gera nú. Pökkunarvélar fyrirtækisins séu ekki keyrðar meira en gerist á góðum sumardögum og þannig verði það áfram. Lítrinn á 110 krónur Borið hefur á að eigendur versl- ana í Reykjavík hafi farið austur yfir fja.ll og keypt mjólk og selt í verslunum sínum. Júlíus Þorbergs- son, eigandi söluturnsins Draums- ins við Rauðarárstíg í Reykjavík, segist í samtali við Morgunblaðið hafa selt mjólk í verslun sinni und- anfarna daga og að í gær hafi hann selt mjólkurlítrann á 110 krónur, en venjulegt verð er 68 krónur. Júlíus segist kaupa mjólkina utan af landi, m.a. frá Hvolsvelli og Selfossi, og selji aðeins tvo lítra á mann. Hann segir að verð á mjólkurlítranum hjá honum fari eftir því hve mikið kosti að sækja mjólkina austur yfir fja.ll og ítrek- ar að hann græði ekkert á þessu sjálfur. „Ég er bara að þjóna höf- uðborgarbúum svo þeir fái mjólk handa börnunum og öðrum,“ segir hann. Bankamenn munu greiða atkvæði um sáttatillögu ríkissáttasemjara á morgun Forysta bankamanna andvíg sáttatillögu FORYSTA bankamanna hvetur fé- lagsmenn sína til að fella sáttatillögu ríkissáttasemjara. Friðbert Trausta- son, formaður Sambands íslenskra bankamanna, segir tillöguna ófull- nægjandi. í hana vanti hækkanir til þeirra bankamanna sem eru á lægstu töxtunum og ennfremur sé útilokað fyrir bankamenn að fallast á þriggja ára samningstíma. Samkvæmt sáttatillögu ríkis- sáttasemjara hækka laun banka- manna um 0,7% frá 1. mars 1997 með vísan til álits gerðardóms frá síðasta ári. Til viðbótar gerir tillagan ráð fyrir 4,7% hækkun frá sama tíma, 4% 1. janúar 1998, og 3,65% 1. janúar 1999. Samningstíminn er til 15. febrúar árið 2000. Þetta eru sömu hækkanir og eru í samningum VR við vinnuveitendur. Samningstíminn of langur „Það eru ýmiss konar atriði sem við voru komnir með ágætis sam- komulag um við bankana sem ekki er tekið á í sáttatillögunni. Ekkert er tekið á kröfu okkar um sérstaka hækkun til þeirra lægstlaunuðu þrátt fyrir að þeir fái almennt sér- staka hækkun í öðrum kjarasamn- ingum sem gerðir hafa verið að und- anförnu. Samningstíminn er einnig alltof langur fyrir bankamenn sem eru að ganga í gegnum margvísleg- ar breytingar á næstu árum, hlutafj- árvæðingu, sameiningu sjóða og fleira. Við viljum ekki vera_ bundin af samningi til þriggja ára. Ástæðan er óvissan framundan, en ekki krón- ur eða aurar,“ sagði Friðbert. Friðbert sagði að í þeim hópi, sem samninganefnd bankamanna vildi hækka sérstaklega, væru rúmlega 1.000 manns og þar af yfir 900 konur. Þessi hópur væri á launatöxt- um á bilinu 65-98 þúsund krónur á mánuði, en krafa bankamanna væri að hann fengi 7% kauphækkun um- fram aðra. Með slíkri hækkun væru bankarnir að draga úr launamun kynjanna, sem væri verulegur innan bankakerfisins. Friðbert sagði að viðræður við bankana um þetta atr- iði hefðu verið komnar vel áleiðis, en endanlegt samkomulag hefði þó ekki legið fyrir. Friðbert sagði jákvætt að sáttatil- lagan gerði ráð fyrir að bankamenn fengju 0,7% hækkun vegna gerðar- dómsins, sem tók á ágreiningi um hækkanir á síðasta samningstíma. Bankamenn vildu hins vegar að þessi hækkun gilti frá því að síðasti samn- ingur tók gildi. „Eg tel að ef samningstímanum yrði breytt og lægstu taxtar yrðu hækkaðir í samræmi við okkar kröf- ur myndu menn fara langt með að ná samningum. Ég á bágt með að trúa að ætlunin sé að setja allt greiðslumiðlunarkerfi landsins og allt bankakerfið á annan endan út af ekki stærri hlutum," sagði Frið- bert. Bankarnir óánægðir með gerðardómsmálið Finnur Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra viðskiptabanka, sagði að bankarnir væru óánægðir með ákvæði sáttatil- lögunnar um 0,7% hækkun vegna gerðardómsins. Ágreiningur hefði verið milli bankanna og bankamanna um launahækkanir á síðasta samn- ingstíma. Bankamenn hefðu tapað því máli fyrir gerðardómi og að þeirra áliti ætti málið þar með að vera úr sögunni. Finnur sagði að samningamenn deiluaðila hefðu setið hjá ríkissátta- semjara fram á kvöld sl. laugardag og reynt að ná samkomulagi á grundvelli sáttatillögunnar. Það hefði ekki tekist fyrst og fremst vegna ágreinings um samningstím- ann. Atkvæði verða greidd um sáttatil- löguna á morgun og fimmtudag. Stefnt er að því að telja atkvæði nk. mánudag. Verði tillagan felld og ekki tekst að semja skellur á verk- fall 4. apríl. Verkfallið var boðað 20. mars, en sáttasemjari nýtti sér rétt til að fresta verkfalli í 15 daga. Verkfall hefur víðtæk áhrif Verkfall bankamanna myndi hafa mjög víðtæk áhrif. Starfsemi banka og sparisjóða stöðvast. Allt rafræna greiðslumiðlunarkerfið stöðvast og kretidkortakerfið sömuleiðis. Fyrir- tæki geta reyndar notast við posa, en þau geta ekki kannað stöðu við- skiptamannsins og viðskiptin verða því alfarið á ábyrgð þeirra. Debet- kort detta út og hraðbankar og síma- bankar sömuleiðis. Öll greiðslumiðl- un milli landa verður óvirk og verk- fallið mun því hafa víðtæk áhrif á innflutnings- og útflutningsverslun. Það eina sem má sinna eru skuld- bindingar bankanna og ríkisins við útlönd sem þegar hefur verið stofnað til. 5% bankamanna munu sinna þessum störfum í verkfalli. Ekki reiknast dráttarvextir af lán- um sem falla í gjalddaga eftir að verkfall hefst. Dráttarvextir reiknast hins vegar af lánum sem fallið hafa í gjalddaga áður en verkfall hefst og ekki hafa verið greidd fyrir verk- fall. Félagsmenn í Sambandi banka- manna starfa hjá Reikningsstofu bankanna, Byggðastofnun, Þjóð- hagsstofnun, Iðnlánasjóði og Iðnþró- unarsjóði auk banka og sparisjóða. Síðast fóru bankamenn í verkfall 1980 og stóð það í fjóra daga. Verk- fall nú mun hafa mun víðtækari áhrif en það verkfall vegna þess að þá var greiðslumiðlun og kredit- kortanotkun ekki komin til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.