Morgunblaðið - 18.03.1997, Page 44

Morgunblaðið - 18.03.1997, Page 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Tamn- ingamenn með sýn- ingu í höllinni FÉLAG tamningamanna held- ur um næstu helgi þriggja kvölda sýningu í Reiðhöllinni. Þar koma fram margir kunnir stóðhestar og má þar nefna Galsa frá Sauðárkróki, Hlekk frá Hofi og Hjörvar frá Ketils- stöðum. Einnig verða sýndir ungir og efnilegir folar sem ekki hafa áður komið fram. Bæði yngri og eldri félags- menn bjóða upp á fagsýningar ýmiskonar og nemendur í Hólaskóla verða með sérstaka sýningu. Að sögn Hafliða Halldórs- sonar sýningarstjóra gildir aðgöngumiðinn á ýmislegt fleira en bara sýninguna því allir miðar, sem seldir verða fyrir laugardagskvöld, gilda einnig á dansleik sem haldinn verður á laugardagskvöldið á Hótel íslandi. Þá gildir miðinn einnig sem fimm þúsund króna innborgun á hljómflutn- ingstæki frá Hljómco og að síðustu er hann einnig happ- drættismiði þar sem vegleg samstæða frá Hljómco er í verðlaun. Hafliði sagði að sýningin yrði aðeins tveir tímar með hléi en oft hafa Reiðhallarsýn- ingamar þótt of langar. Þulur verður hinn kunni hestamaður Sigurður Sæmundsson. Nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á Reiðhöllinni og sagði Hafliði að nú væri boðið upp á sæti fyrir 868 manns auk þess sem frá væru tekin 100 sæti fyrir boðsgesti. Þá væri búið að bæta lýsinguna í höllinni. Stóðhest- ar keppa í Gunnars- holti BOÐIÐ verður upp á keppni stóðhesta þar sem keppt verð- ur í tveimur flokkum í tölti, 5 vetra og yngri og 6 vetra og eldri. Einnig verður keppt í 100 metra flugskeiði. Athygli vekur að sömu reglur munu gilda um fótabúnað hrossanna og eru í gildi á kynbótasýning- um. Keppnin fer fram á vellin- um við stóðhestastöðina í Gunnarsholti og hefst klukkan 14. Jón Vilmundarson hrossa- ræktarráðunautur Bún- aðarsambands Suðurlands og framkvæmdastjóri Hrossa- ræktarsamtaka Suðurlands gerði ráð fyrir að þarna mættu margir af bestu stóðhestum landsins en einnig kæmu fram kandídatar í toppsætin á vori komandi. Á föstudag verður mönnum boðið að koma með stóðhesta og hryssur til dóms. HELGI Gíslason mætti með Frey í skeiðið og náði fimmta sæti en gaman verður að fylgjast með þeim félögum í sumar. BJARNA og Jeremíasi hefur gengið vel það sem af er ári og höfnuðu nú í fimmta sæti eftir harða keppni. Tj arnar draumurinn rættist HESTAMÓT á tjörninni varð að veruleika á laugardag þegar Félag tamningamanna undir forystu Haf- liða Halldórssonar hélt þar opið mót með töltkeppni og flugskeiði sem kallað er. Þessi ágæta hugmynd hefur lengi blundað meðal hesta- manna og varð nú að veruleika. Tilgangurinn með mótinu um helg- ina var meðal annars að kynna sýn- ingu FT sem haldin verður í reið- höllinni um næstu helgi og svo að lífga upp á borgarbraginn með því að færa borgarbúum eitt stykki hestamót inn fyrir túngarðinn. Þátttaka í mótinu varð gífurleg miðað við að hér var um hraðsuðu- mót að ræða, það er skráð á staðn- um og útsláttar fyrirkomulag í dóm- um. Þátttakendur komu víða að allt frá Grundarfírði og austan úr Rangárvallasýslu og þar á meðal voru nokkrir kunnir stóðhestar eins og Kolfmnur frá Kvíarhóli, Geysir frá Gerðum, Þokki frá Bjamanesi, Kópur frá Mykjunesi og Piltur frá Sperðli. Hestakostur mótsins var mjög góður í heildina og vart hægt að segja að þar hafi sést hestar sem betur hefðu heima setið. Veðrið var eins og best var á kosið, sól og blíða þótt aðeins biti í kinn. Talið er að hátt á annað þúsund manns hafi lit- ið við þá þrjá tíma sem mótið stóð yfir og gerður góður rómur að uppá- tækinu. ísspor gaf verðlaunin en yífillfell, Góa, SS og Heildverslun Ásbjöms Ólafssonar lögðu til veit- ingar í föstu og fljótandi formi með- an á mótinu stóð. Mótið tókst vel í alla staði og má ætla að þama sé góður vettvangur fyrir hestasýning- ar ýmiskonar. Mikilvægt er þó í því sambandi að hestamenn hafi þessar samkomur, ef fleiri verða, hóflegar að tímalengd en lendi ekki í því að gera Tjamarmót að maraþonsam- komum eins og flestar samkomur hestamanna verða gjaman. Tveir til þrír tímar ættu að vera hámarkið. Úrslit urðu nokkuð óvænt í karla- flokki en þar skaut áhugamaðurinn Ingólfur Jónsson atvinnumönnun- um aftur fyrir sig á gæðingi sínum Fiðringi. Keppendur í karlaflokki urðu að fara nokkrar aukaferðir því dómuram gekk illa að fá niðurstöðu enda hestar jafnir að fegurð og getu. Stóðhesturinn Piltur frá Sperðli sem Bragi Andrésson sat vakti mikla athygli fyrir mikið yfir- ferðartölt en komst hinsvegar ekki í verðlaunasæti því hægatöltið gleymdist hjá þeim félögum. Um kvöldið héldu Fáksmenn grímutölt í reiðhöllinni í Víðidal en þátttaka var þar heldur dræm. Úrslit Tjarnarmóts urðu annars sem hér segir: SÉRVERSLUN HESTAMANNSINS Háaleitisbraut 681: - Austurver Simi 568 4240 > ;v~ ~r Morgnnblaðið/Valdimar Kristinsson VERÐLAUNAAFHENDING á Tjörninni. Eitthvað sem hestamenn hefur lengi dreymt um loks orðið að veruleika. Sigurvegarinn í karlaflokki, Ingólfur á Fiðringi, þá Erling á Kópi, Sigurður á Sverri, Sigurður á Háfeta og Bjarni á Jeremíasi. MÖRG gammagripin voru tekin á tjörninni á laugardag. Hér tekur Viðar Halldórsson gæðing sinn Prins frá Hvítárbakka til kostanna en þeir voru lengi vel með besta tímann í flugskeiðinu en urðu að lokum að sætta sig við annað sætið sem er, jú, það næst besta. Karlaflokkur 1. Ingólfur Jónsson Fáki, á Fiðringi frá Ógmundarstöðum. 2. Erling Sigurðsson Fáki, á Kópi frá Krossi, A-Land. 3. Sigurður Marínusson Fáki, Sverði. 4. Sigurður Matthíassson Fáki, á Háfeta frá Þúfu. 5. Bjarni Sigurðsson Gusti, á Jerem- íasi. PCIinogfugueíhi 1 Y 11*^11! lt! iyjLFv Stórhöfða 17, við GuIIinbrú, sími 567 4844 Kvennaflokkur 1. Auður Stefánsdóttir Fáki, á Röðli. 2. Sigrún Erlingsdóttir Gusti, á Ási frá Syðri Brekkum. 3. Birgitta Magnúsdóttir Herði, á Óðni frá Köldukinn. 4. Björg Ólafsdóttir Ljúfi, á Geysi frá Gerðum. 5. Þóra Þrastardóttir Fáki, á Hrafni. Ungmennaflokkur 1. Guðmar Þór Pétursson Herði, á Spuna frá Syðra Skörðugili. 2. Lára Magnúsdóttir Hornfirðingi, á Þokka frá Bjarnastöðum. 3. Sigríður Pjetursdóttir Sörla. 4. Ásta Bjarnadóttir Gusti, á Eldi. U nglingaflokkur 1. Magnea Rós Axelsdóttir Herði, á Vafa frá Reykjavík. 2. Sigurður R. Sigurðsson Fáki, á Seifi. 3. Inga K. Traustadóttir Herði, á Funa frá Hvítárholti. 4. Sigurður Halldórsson á Krapa. 5. Hinrik Þ. Sigurðsson á Stormi. Barnaflokkur 1. Berglind R. Guðmundsdóttir Gusti, á Fjöður frá Svignaskarði. 2. Sylvía Sigurbjörnsdóttir Fáki, á Kópi frá Mykjunesi. 3. Kristján Magnússon Herði, á Rúbín. 4. Sigurður Pálsson Herði, á Frey frá Geirlandi. 100 metra flugskeið 1. Elías Þórhallsson Herði, á Vála, 8,52. 2. Viðar Halldórsson Fáki, á Prins frá Hvítárbakka, 9,35. 3. Hugrún Jóhannsdóttir á Frey- dísi, 9,45 4. Erling Sigurðsson Fáki, á Elvari frá Búlandi, 9,45. 5. Helgi Gíslason á Frey 9,46. Úrslit í Grímutölti Fáks: Tölt 18 ára og eldri 1. Sigurbjörn Bárðarson Fáki, á Djákna frá Dunhaga. 2. Snorri Dal Fáki, á Hörpu. 3. Reynir Aðalsteinsson á Þekki frá Ketilsstöðum. 4. Kristín H. Sveinbjörnsson Fáki, á Fjólu frá Efri-Brú. 5. Sveinn Ragnarsson á Glæsi. Tölt 17 ára og yngri: 1. Bergþóra Snorradóttir Fáki, á Kvisti frá Dalsmynni. 2. Sylvía Sigurbjörnsdóttir Fáki, á Hauki frá Akureyri. 3. Gunnhildur Sveinbjamardóttir Fáki, á Kolskeggi frá Barkarstöðum. 4. Sigurður R. Sigurðsson Fáki, á Jarpi frá Þúfu. 5. Áníta Aradóttir á Faxa frá Sogni. Besti karlbúningur: Svavar Magnússon á Spaða, besti kvenbún- ingur: Kristín H. Sveinbjarnardótt- ir, frumlegasti búningurinn: Reynir Aðalsteinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.