Morgunblaðið - 18.03.1997, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 18.03.1997, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 45 + Ásta Brynjólfs- dóttir fæddist í Hrísey 11. mars 1912. Hún lést í Sjúkrahúsi Reykja- víkur 8. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Brynj- ólfur Jóhannesson útvegsbóndi í Hrís- ey, f. 1891, d. 1977, og kona hans Sigur- veig Sveinbjöms- dóttir húsmóðir, f. 1886, d. 1950. Brynjólfur og Sigurveig eignuð- ust átta böra, en _þau eru: 1) Jórunn f. 1910; 2) Asta f. 1912; 3) Jóhannes, f. 1914, d. 1962; 4) Sigtryggur, f. 1916; 5) Sig- urður, f. 1918; 6) Hallfríður, f. 1922; 7-8) Fjóla, d. 1989 og Sóley, f. 1926. Hinn 3. október 1942 giftist Asta eftirlifandi eiginmanni sinum, Alfreð Kristjánssyni, sendibílsljóra og I dag, þriðjudaginn 18. mars, verður jarðsungin elskuleg tengda- móðir mín Ásta Brynjólfsdóttir frá Hrísey. Mig langar til að minnast í fáeinum orðum þessarar mann- kostakonu sem ég kynntist síðla árs 1972 er ég tók upp á því að gera hosur mínar grænar fyrir Sigur- veigu, einkadóttur hennar. Ástu Brynjólfsdóttur verður ekki lýst í fáum orðum. Aðalsmerki hennar voru kærleikur, glaðværð og mikil útgeislun sem gerði það að verkum að fólk laðaðist að henni og leið vel í návist hennar. Ásta var alþýðukona, kunni margvísleg- an fróðleik og var gædd góðum gáfum. Hún var síður en svo skap- laus, mjög vönd að virðingu sinni og stolt kona, sem hafði mikla reisn til að bera eins og allt hennar fólk. Fjölskylda hennar bjó í Hrísey og stundaði faðir hennar útgerð þar. Minningar Ástu frá æskustöðvun- um voru hlýjar og vitnaði hún oft til fegurðarinnar í Eyjafirði. Systk- inahópurinn var stór og þurftu ung- ir sem aldnir oft að vinna langan vinnudag við að stokka upp og beita. Asta bar þess glögg merki að hún hafði snemma þurft að taka til hendinni. Dugnaður hennar og eljusemi voru einstök og þótti mér alla tíð eftirtektarvert hversu hand- fim hún var og rösk til vinnu. Við- horf hennar til allra verka var svo jákvætt og ekkert óx henni í augum sem gera þurfti. Alfreð, eiginmaður Astu, var einnig frá Hrísey og var faðir hans útgerðarmaður þar. Þau giftust 3. október 1942, var það alla tíð fyrir- myndarhjónaband og voru þau ein- staklega samrýnd hjón sem báru gagnkvæma virðingu hvort fyrir öðru. Hún var sannkölluð húsmóðir og á heimilinu naut stjómsemi hennar sín í ríkum mæli. Hún hafði yndi af því að bera fram góðgerðir fýrir gesti sína, hvort heldur það voru kökur eða matur. Verður að segjast eins og er að það var nán- ast sama hvað hún Ásta bar á borð, það bragðaðist allt eins og veislu- matur. Henni var ávallt mikið í mun að enginn færi svangur frá hennar borði og var hún býsna dijúg við að bjóða aftur á diskinn. Viðkvæðið var oft vildi maður ekki ábótina í annað eða þriðja sinn, „það er ekki von, þetta er ekki nógu gott“. Eins átti hún alla tíð afar erfitt með að sætta sig við að ég, sem er lítið gefínn fyrir ijóma, skyldi aldrei vilja Þ’ggja „smá ijómalufsu“ út í kakó- ið eða á pönnukökuna. Mér er minnisstæð fyrsta heim- sókn mín á heimili þeirra í Álfheim- um þegar ég var kynntur fyrir þeim hjónum, Ástu og Alfreð. Hlýlegt og glaðlegt viðmót þeirra eyddi öll- um uppsöfnuðum kvíða mínum á svipstundu og mér leið eins og heima hjá mér. í framhaldi af því var ég nánast eins og heimalningur síðar verkstjóra, f. 21. október 1920. Foreldrar hans voru Kristján Jón- asson, útgerðar- maður í Hrísey, f. 1891, d. 1979 og kona hans Guðrún Jónsdóttir, húsmóð- ir, f. 1893, d. 1975. Ásta og Alfreð áttu eina dóttur, Sigur- veigu Alfreðsdótt- ur, hjúkrunarfræð- ing, f. 8. desember 1951. Sigurveig er gift Gunnari H. Hall, hagfræðingi og ríkisbók- ara, f. 23. desember 195L og eiga þau þijú böra: 1) Ástu Herdísi, háskólanema, f. 21. mai 1974; 2) Alfreð, f. 3. maí 1981 og 3) Gunnstein, f. 19. apríl 1984. Útför Astu fer fram frá Ás- kirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan kl. 13.30. hjá þeim og vorið 1974 fluttist ég inn á heimilið þegar fyrsta bam okkar hjóna fæddist. Þar dvöldum við í rúmt ár eða þar til við fluttum í eigið húsnæði. Ekki verður með orðum lýst hversu velkomið fyrsta bamabamið var í heiminn. í huga Ástu kom ekki annað til greina en að hún tæki að sér að gæta hennar nöfnu sinnar fyrsta árið á meðan móðirin lyki hjúkrunamámi sínu. Mér fannst alltaf eftirtektarvert hvað böm löðuðust að henni og hve ró- andi áhrif hún virtist hafa á þau. Var unun að fyigjast með því hvem- ig hún annaðist dótturdóttur sína af einstakri umhyggjusemi og ást- úð. Hún lagði sig í líma við að spjalla og sjmgja fyrir hana og átti það vafalítið dijúgan þátt í því að hún var óvenju skjót til máls. Þegar dóttir okkar var fjögurra ára gömul fluttumst við Sigurveig til Uppsala í Svíþjóð til framhalds- náms. Dvöldum við þar í þijú ár. Með reglulegu millibili sáu Ásta og Alli um að senda okkur ýmsar nauð- synjar eins og harðfisk og lýsi fyrir bamabamið. Alltaf vom þau hjónin reiðubúin að koma og veita alla þá aðstoð sem á þurfti að halda. Ann- að bam okkar hjóna, Alfreð, fædd- ist í Svíþjóð skömmu áður en við fluttum heim. Sem fyrr vom þau mætt á staðinn til að létta undir með okkur og hjálpa til við að pakka búslóðinni niður. Var það einstak- lega kærkomin aðstoð því að sjálfur var ég á kafi í próflestri. Síðustu tólf árin hefur íjölskyld- an mín búið í Glaðheimum, spölkom frá heimkynnum tengdaforeldranna í Álfheimum. Nábýlið auðveldaði bömunum, sem þá vora orðin þijú, að heimsækja afa sinn og ömmu reglulega og þangað þótti þeim gott að koma. Þar lærðu þau meðal annars að spila og svo var amma óþreytandi við að kenna þeim mannganginn. Hún var alltaf ung í anda og fylgdist náið með hveiju fótmáli þeirra og var þeim sem fé- lagi. Ósjaldan fóm bömin beint úr skólanum í heimsókn til þeirra og dvöldu þar daglangt. Var þá að sjálfsögðu gengið úr skugga um að þau sinntu lærdómnum á milli þess sem gaukað var að þeim einhveiju góðgætinu eins jólakökusneið eða pönnuköku. Þá var það oft að þau fengu að gista hjá afa og ömmu og var þá ævinlega hátíð í bæ. Ég minnist með þakklæti §öl- margra samverastunda með tengdaforeidranum í gegnum árin. Þeir era ófáir sumarbústaðimir víðs vegar um landið sem við höfum dvalið saman í í sumarleyfum okkar og notið umhverfisins og friðarins frá hversdagsamstrinu. Minnisstæð er vikudvöl okkar í Flatey á Breiða- firði fyrir nokkram árum. Veður var óvenjugott, hlýtt var og sólríkt. Kyrrðin, sjávarloftið, fuglalifið og sólarlagið var með eindæmum fag- urt. Umhverfið og víðsýni til íjalla snart Astu djúpt og minnti hana greinilega á eyjuna litlu í Eyjafirði þar sem hún sleit bamsskónum. Af öðram sumarleyfum minnist ég ferðar okkar í sumarhús í Hollandi. Tengdaforeldramir tóku sig til og fóra í þriggja daga rútuferð um Móseldalinn og Rínarhérað. Þessi ferð var Ástu ógleymanleg og var ánægjulegt að hlusta á hana lýsa því sem fyrir augu bar. Hreifst hún mjög af fegurðinni og hversu allt var þar grænt og gróið. Síðasta eitt og hálft ár tók heilsu Astu að hraka en til þess tíma var hún mjög heilsuhraust. Var stór- kostlegt að fylgjast með hvemig tengdapabbi tók að sér bæði heimil- isstörfin og að hjúkra henni. í hnot- skum fannst mér það vera lýsandi fyrir það hvemig umhyggja og ást ætti að vera. Óneitanlega átti þessi duglega og stjómsama kona erfitt með að sætta sig við að finna krafta sína dvína. í stað þess að vera fremst í flokki við að hjálpa og lið- sinna öðram var hún orðin tiltölu- lega hjálparvana og upp á aðra komin. Áf mikilli natni annaðist Alfreð hana daga og nætur, allt til hinstu stundar. Ásta var trúuð kona og hún kveið því ekki að kallið kæmi, enda fullviss um að fyrir handan fengi hún góðar viðtökur. Með söknuði kveð ég elskulega tengdamóður mína og mun ég ávallt minnast með þakklæti umhyggju hennar og góðrar samfylgdar sem aldrei bar skuggga á. Megi góður guð veita tengdaföður mínum og Qölskyldunni allri styrk og trú á þessari erfiðu stundu með minning- una um göfuga og kærleiksríka konu í hjarta. Biessuð sé minning Ástu Brynj- ólfsdóttur frá Hrísey. Gunnar H. Hall. Elsku amma mín, oft hef ég hugsað með kvíða til þess að setj- ast niður og skrifa þessar línur. Nú þegar stundin er rannin upp hrærast í mér blendnar tiifinningar. Fyrst og fremst fínn ég til djúprar sorgar yfir að ástkær amma mín skuli ekki vera á meðal okkar leng- ur. Hins vegar veit ég að þau veik- indi sem þú hefur átt við að stríða hafa verið erfið og fengið mikið á þig. Ég veit að þú varst vel búin undir það sem koma skyldi og er þess fiillviss að þú hefur fengið góðar viðtökur fyrir handan. Þín mun verða sárt saknað, en ótal góðar minningar sitja eftir og ylja okkur sem eftir lifum. Ég þakka þér fyrir allar samvera- stundimar á liðnum áram. Þær hafa verið mér mjög dýrmætar og munu aldrei gleymast. Ég man þeg- ar ég var Iftil og var svo oft hjá þér og afa. Þá varstu óþreytandi við að kenna mér ýmis ljóð og kvæði og ég við að læra þau af þér. Einn- ig kenndir þú mér bæði að hekla og pijóna. Marga stundina sat ég í góðu yfirlæti í Álfheimunum með heklunál í hendi og bjó til jólagjafir handa öðram í fjölskyldunni undir handleiðslu þinni. Það vora þónokk- ur jólin sem lítið annað kom upp úr jólapökkunum frá mér en hekl- aðir pottaleppar, þvottapokar og annað þess háttar. Ég man líka eftir því hversu gaman mér þótti að fara með þér í Rafveituna að skúra. Ég fann mikið til mín að hafa hjálpað þér við vinnuna og var alveg viss um að þú hefðir verið helmingi lengur hefði mín ekki notið við. Ég man ennþá eftir því hversu vel þú gekkst frá öllu og hættir ekki fyrr en allt var orðið skínandi hreint og fínt. Þetta hefur mér alltaf þótt vera lýsandi fyrir þig. Það var alltaf svo gaman að heimsækja ykkur afa í Álfheimana. Þið tókuð svo vel á móti mér, bárað á borð allt það besta sem til var og pönnukökumar þínar vora mitt uppáhald. Þið höfðuð alltaf nægan tíma fyrir mig, sem er ómetanlegt í nútímasamfélagi. Það var oft glatt á hjaila hjá okkur þremur og mörg spilin höfum við spilað gegnum tíð- ina, þá helst Hornafjarðarmanna eða þá gömluvist þegar fleiri vora í heimsókn. Þú fylgdist alla tíð svo vel með því sem efst var á baugi í þjóðmál- um og þá ekki síst íþróttum, bæði innlendum og erlendum. Það era ekki margar konur sem þekkja í sundur knattspymumennina John Aldridge og Ian Rush, sem vora hjá Liverpool, en það gerðir þú. Þar áttum við annað sameiginlegt áhugamál og við ræddum oft saman um íþróttir. Alla tíð hefur þú borið velferð mína fyrir bijósti, amma mín. Mér er minnisstætt þegar þú varst veik með flensu héma um árið. Ég dvaldi hjá ykkur afa um þær mundir og þrátt fyrir háan hita hafðir þú sí- felldar áhyggjur af því hvemig ég hefði það og hvort afi gæfi mér nú nóg að borða. Elsku amma mín. Alla mina ævi hefur þú umvafið mig ástúð og umhyggju og alltaf verið mér svo góð. Nú þegar þú ert horfin frá mér er mér efst í huga þakklæti fyrir allar þær stundir sem við höf- um átt saman og þá gleði sem þær hafa veitt mér. Þú munt ávallt lifa í huga mér. Þín dótturdóttir,_ Ásta Herdís. Harpa æskuminninganna hljóm- ar Ijúft í hugum okkar. Einn streng- ur þeirrar hörpu er Ásta Brynjólfs- dóttir. Hún var einstaklega ljúflynd, hjartahlý, ráðagóð og gestrisin. Heimili Ástu og Alla bar vott um samheldni, alúð og samhljóman sem varð okkur ósjálfrátt fyrirmynd en þó svo sjálfsögð að varla þurfti um að tala. Ásta er að sönnu ekki lengur meðal okkar í jarðneskum skilningi en harpan ómar og strengir hennar slitna hvorki né hljóðna því orðstír Ástu og gjörðir lifa í minningu okk- ar. Ég veit af lind, er h'ður fram sem Ijúfur blær. Hún hvíslar lágt við klettastall sem kristali tær. Hún svalar mér um sumardag, er sólin skín. Ég teyga af þeirri lífsins lind, þá ljósið dvin. Og þegar sjónin myrkvast mín og máttur þver, ég veit, að ljóssins draumadis mér drykkinn ber. Svo berst ég inn í bjartan sal og blessað vor. Þá verður jarðlífsgatan gleymd og gengin spor. (Hugrún.) Á þessari stundu ber að þakka ljúfar minningar og gleðiríkar sam- verastundir. Ástvinum og fjölskyldu vottum við innilegustu samúð. Blessuð sé minning hennar. Systkinin Hólastekk 5. Elsku Ásta frænka. í dag, 11. mars, hefðir þú orðið 85 ára og nú er komið að kveðju- stund. Ég vil að lokum þakka fyrir allt sem þið vorað mér þegar ég fluttist fyrir um tuttugu áram í Alfheimana. Var það mér alveg ómetanlegt af ýmsum orsökum. Við horfðumst í augu hvor úr sínum dyrum og ég vissi að þú hlytir að vera frænka mín, því ég kannaðist við Jóranni kaupkonu systur þína og fannst þið svo líkar. Við föðmuð- umst strax svo innilega og ég vissi að mér mundi líða vel hjá ykkur. Ég hafði hálfkviðið fyrir flutningun- um, úr annarri sveit og alein, en ég hefði ekki getað verið heppnari. Mér var tekið eins og systur af ykkar hálfu og fjölskyldunnar, og við sáumst oft á dag og flest kvöld horfðum við saman á sjónvarp eða spjölluðum. Aldrei nokkum tíma varð okkur sundurorða en vorum þó báðar skapheitar undir yfirborð- inu_ og aldrei sammála í pólitík. Ég kveið líka fyrir að flytjast frá ykkur Alla og skelfing varð það líka ömurlegt. Ég þakka allar ánægjustundir, ÁSTA BRYNJÓLFSDÓTTIR allar bílferðir, aUa göngutúra í Laugardalsgarði, en ég sé oft hvað ég hef verið frek á tíma þinn, því þeir vora svo óteljandi sem þú sinnt- ir og annaðist ævinlega og veittir af þinni Ijúfu, góðu höfðingslund.' Þú huggaðir svo vel og hlýlega með nærvera þinni, en þegar kom að sjálfri þér kvartaðir þú aldrei. Ekki þegar litla systir þín dó, langt fyrir aldur fram, eða þegar einkadóttir ykkar og flölskylda hennar vora að flytjast utan. Én það er huggun harmi gegn, hvað þú varst lánsöm með þína nánustu, sem dáðu þig og virtu og bára þig á höndum sér fram á síð- ustu stund. Minningin um þig lifir. Innilegar samúðarkveðjur frá ^ mér og minni íjölskyldu. Margrét Hansen. í dag verður til moldar borin elskuleg frænka mín Ásta Brynj- ólfsdóttir. Það er ekki auðvelt að koma frá sér hugsunum á blað er nákominn ættingi kveður. Ég finn mig vanmáttuga og orð mega sfn svo lítils á þessari kveðjustund, því margt vildi ég segja og hugurinn reikar víða. Eitt er það sem alltaf stendur upp úr, það er þakklæti, þakklæti fyrir að hafa átt svo yndis- lega frænku. Því það er nú einu sinni svo, að eftir því sem árin líða fer maður að gera sér betur grein fyrir hvað gefur lífinu gildi. Þar á ég við að vera þess umkomin að láta ættingja og vini finna að þeir séu mikils virði og einmitt þannig finnst mér ég geta lýst Ástu best. Ásta skipaði ávallt vissan sess í lífí mínu og ég held að mér sé óhætt að segja að það hafi verið gagn- kvæmt. Mér finnst ég ávallt standa í þakkarskuld við hana og ekki síð- ur Alla, vegna þess hvað þau tóku mér opnum örmum, þegar ég kom til náms hingað til Reykjavíkur ung að árum. Heimili þeirra stóð mér alltaf opið, og þangað var alltaf gott að leita. Sem dæmi um hugul- semi þeirra hjóna f minn garð, fannst þeim ekki annað koma til greina en að ég fengi eitthvað hollt að borða, að minnsta kosti um helg- ar. Og ekki þurfti ég að hafa fyrir því að koma mér sjálf heldur var ég sótt Annað dæmi um hugulsemi frænku minnar er að eitt sinn veikt- ist ég hastarlega, og það var ekki að sökum að spyija, ég var sótt og gengið úr rúmi fyrir mig, læknir sóttur og hlúð að mér á allan hátt. Þessi litlu minningabrot sýna best þá umhyggjusemi, fómfysi og væntumþykju sem Ásta átti í svo^ rikum mæli. Ásta var að eðlisfari mjög jákvæð manneskja og það mótaði allt henn- ar líf, frá henni streymdi ávallt hlýja og einlægni. Ljúfar minningar mun ég varð- veita í hjarta mér, er ég kveð þig, elsku frænka, Guð varðveiti þig og geymi. Elsku Alli, Sigurveig og fjöl- skylda, ykkur sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigurveig Sigtryggsdóttir og fjölskylda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.