Morgunblaðið - 18.03.1997, Page 51

Morgunblaðið - 18.03.1997, Page 51
t MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 51 I_____________________FRETTIR Framlög atvinnulífsins til rannsókna- og þróunar- starfsemi helmingi lægri hér en í nágrannalöndunum Ahættufjármögnunar- ] sjóði vantar á Islandi „FRAMLÖG ríkisins til rannsókna- og þróunarstarfsemi hérlendis hafa síðustu árin verið svipuð og í ná- grannalöndunum, mæld sem hlut- fall af vergri landsframleiðslu, en hins vegar hafa framlög atvinnu- lífsins á sama tíma verið um helm- Íingi lægri hér en í þessum lönd- um,“ segir Björn Bjarnason I menntamálaráðherra. | Jón Bragi Bjarnason, prófessor í lífefnafræði, sem nýlega gerði samning við breskt lyfjafyrirtæki um stórt verkefni á sviði líftækni, hefur gagnrýnt íslensk stjórnvöld harðlega fyrir skilningsleysi og segir að á meðan ríkið leggi ekki nema 200 milljónir króna á ári í rannsóknastyrki gerist ekkert á | þessu sviði. Líftækni eitt | forgangsverkefna Tæknisjóðs Menntamálaráðherra segir þetta ekki alls kostar rétt hjá Jóni Braga. „Hann segir að það séu ekki settar nema 200 milljónir í þetta en heild- arframlög til Tæknisjóðs og Vís- indasjóðs nema nú um 350 milljón- um króna á ári. Líftækni hefur frá því um miðjan níunda áratuginn <5 og fram á þennan áratug verið ^ eitt af forgangsverkefnum Tækni- 4 sjóðs. En sá er munurinn á þessum " sjóðum og breska fýrirtækinu að íslensku sjóðirnir eru ekki áhættufjármögnunarsjóðir. Við höfum enn engan slíkan sjóð hér á landi. Hins vegar höfum við dæmi um það að menn hafa náð hér inn miklu áhættufé. Þar nægir að nefna nýstofnað fyrirtæki Kára Stefánssonar, íslenska erfðagrein- ingu.“ Björn bætir við að nú liggi fyrir Alþingi frumvarp frá ríkisstjóm- inni um nýsköpunarsjóð atvinnu- lífsins. Þar séu stigin ný skref í þá átt að skapa forsendur fyrir því að stuðla að nýsköpun með áhættufé og því ætti breytinga að vera að vænta til batnaðar áður en langt um líður. Annar samningur í burðarliðnum Annar íslenskur prófessor, Ág- ústa Guðmundsdóttir, er langt kominn með að gera samning um rannsóknasamstarf á sviði erfða- tækni við sama fyrirtæki og Jón Bragi, Phairson Medical. Verkefnið felst í því að einangra gen í þorski, sem segir fyrir um myndun tiltek- ins ensíms, flytja genið inn í ör- veru og framleiða ensímið þar. Þetta ensím hefur að sögn Ágústu mjög svipaða eiginleika og það ensím sem Jón Bragi vinnur úr ljós- átu og því nýtist öll sú þekking sem byggð hefur verið upp á und- anförnum árum í vinnslu þorsken- símanna í vinnslunni á ensímum úr ljósátu. Ágústa kveðst binda vonir við að samningurinn geri henni kleift að ráða einn starfsmann og jafn- vel að hafa einn til tvo meistara- nema. Hún segir það stórt vanda- mál þegar verkefnum á borð við þetta sé fleytt áfram á ótryggum styrkjum héðan og þaðan að erfitt sé að halda í starfsfólk. Það sé mjög slæmt þar sem langan tíma taki að þjálfa fólk til svo sér- hæfðra verkefna. Því sé það afar mikilvægt að geta gert samning á borð við þann sem hún er um það bil að undirrita. Fyrirtækin treg til að taka þátt í grunnrannsóknum Um þátttöku atvinnulífsins í rannsóknum segir hún að aðal- vandamálið sé hversu smá íslensk fyrirtæki eru. „Fyrirtækin eru það lítil að þau eru mjög treg til að taka þátt í grunnrannsóknaverk- efnum. Ef þetta eru ekki verkefni sem skila sér innan tveggja til þriggja ára hafa fýrirtæki á ís- landi einfaldlega ekkert fjárhags- legt bolmagn til að leggja í svona grunnrannsóknir," segir Ágústa. Erindi um Ólafs sögu MARÍA Anna Þorsteinsdóttir heldur erindi á vegum Félags íslenskra fræða í Skólabæ við Suðurgötu þriðjudaginn 18. mars kl. 20.30. Nefnist erindi hennar: Frá þjóð- sögu til skáldsögu og er byggt á nýútkominm bók hennar Tveggja heima sýn: Ólafs saga Þórhallssonar og þjóðsögurnar sem prentuð er í ritröðinni Studia Islandica. í erindinu verður m.a. greint frá því hvemig Eiríkur Laxdal, höfundur Ólafs sögu, tvinnar saman og skáld- ar verk sitt upp úr kunnum íslenskum þjóðsögum. Einnig verður farið nokkrum orðum um hinn nýstárlega hugmyndaheim sögunnar þar sem álfar og aðrar þjóðtrúarverur eru boðberar vísindahyggju upplýsinga- aldar. Veitingar verða á boðstólum og er fundurinn öllum opinn. Fyrirlestur um melhveiti DR. KESARA Anamthawat-Jónsson, lektor í grasafræði við Háskóla Is- lands, flytur fyrirlestur á vegum Vís- indafélags íslendinga í Norræna hús- inu miðvikudaginn 19. mars kl. 21. Fyrirlesturinn fjallar um kynbóta- rannsóknir á tegundablendingum „melhveiti" sem búnir hafa verið til með víxlfijóvgunum milli melgresis og hveitis. Blendingamir eru notaðir til að flytja litninga á milli tegund- anna með það að markmiði að unnt verði að sameina kosti beggja teg- unda í nýjum kornjurtum til ræktun- ar á íslandi. Verkefnið er unnið hjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins og styrkt af Rannís. Fyrirlesturinn er öllum opinn. • • Ommubúð AÐ HAFNARSTRÆTI 4 í Reykjavík hefur verið opnuð verslun sem ber nafnið „Ömmubúð". í „Ömmubúð" er á boðstólum gjafavara, íslenskt handverk, minjagripir, blóm, þurr- skreytingar ásamt kertum, servétt- um og dúkum. „Ömmubúð" er opin virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-16. Trúnaðarbréf afhent RÓBERT Trausti Ámason, sendi- herra, afhenti 13. mars sl. Algírdas Brazauskas, forseta Litháen, trún- aðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Látháen með aðsetur í Kaupmanna- höfn. < I i ■ ( ( ( ( ( < < < < < < KANEBO KYNNING I LAUGAVEGSAPOTEKI I DAG OG A MORGUN KL. 13-17. SÉRFRÆÐINGUR FRÁ KANEBO VERÐUR MEÐ HÚÐGREININGARTÖLVUNA OG VEITIR / FAGLEGA RÁÐGJÖF. HÁÞRÓUÐ TÆKNI FRÁ JAPAN. Myndlistarsýning leik- skólabarna í Bakkahverfi MYNDLISTARSÝNING á verkum leikskólabarna í Bakkahverfi verður opnuð í dag, þriðjudaginn 18. mars, kl. 14 í húsnæði SVR og í göngugöt- unni í Mjódd. Sýningin er árlegur viðburður, nú haldin í fimmta sinn, og er liður í samstarfi allra leikskólabarna í Bakkahverfí. Börn á leikskólaaldri hafa ríka þörf fyrir að tjá sig í myndmáli á skapandi hátt. Leikskólarnir gegna hér mikilvægu hlutverki. Fjölbreyti- leg myndgerð og myndsköpun skip- ar veglegan sess í uppeldisstarfi leikskólanna og tengist öðrum þátt- um þess með ýmsum hætti, segir í frétt frá leikskólanum Arnarborg. Myndlistarsýningin er afrakstur vetrarstarfsins í leikskólunum. Kór barna af leikskólanum Arnarborg mun syngja nokkur lög við opnun- ina. Myndlistarsýningin stendur frá 18. mars til 11. apríl. -------♦ ♦ ♦-------- ‘Banana <ROAT Söngkeppni framhalds- skólanna FRAMHALDSSKÓLARNIR halda sína árlegu söngkeppni miðviku- daginn 19. mars nk. Að þessu sinni fer keppnin fram í Laugardalshöll- inni. Keppendur eru alls staðar af landinu komnir til að taka þátt. Keppnin hefst kl. 21 og stendur hún í um þijár klukkustundir. Biddu um Banana Boat ef þú vilt spara 40-60% □ Hvers vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlitra af Aloe geli þegar þú getur fengið sama magn af Aloe Vera geli frá Banana Boat á um 700 kr eða tvöfalt meira magn af Banana Boat Aloe Vera geli á 1000kr. □ Hvers vegna að bera á sig 2% af rotvarnarefnum þegar þú getur fengið 99,7% (100%) hreint Banana Boat Aloe Vera gel? □ Banana Boat næringarkremið Brún-án-sótar i úðabrúsa eða með sólvörn #8. □ Stýrðu sólbrúnkutóninum með t.d. hraðvirka Banana Boat dokksólbrúnkuoliunni eða -kreminu eða Banana Boat Golden olíunni sem framkallar gyllta brúnkutóninn. D Hefur þú prófað Naturica húðkremin sem allir eru að rala um, uppskrift Birgittu Klemo, eins virtasta húðsérfæðings Norðurlanda? Naturica Ört-krám og Naturica Hud-krám. Banana Boat og Naturica fást í sólbaðsstofum, apótekum, snyrtiv. verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavikur. Banana Boat E-gelið fæst líka hjá Samtökum psoriasis-og exemsjúklinga.____________________________________________ Heilsuval - Barónsstíg 20 w 562 6275 á síðustu ARCTIC CAT véisleðunum Eigum einnig nokkra notaða sleða. SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI: 568 1200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.