Morgunblaðið - 18.03.1997, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 18.03.1997, Qupperneq 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylgavik 9 Simi 5691100 9 Simbréf 569 1329 9 Netfang:lauga@mbl.is Þjónustuíbúðir aldraðra Frá Gyðu Jóhannsdóttur: FYRIR skömmu var fjallað um neytendamál í þjóðarsálinni. Þar kom fram hjá Drífu Sigfúsdóttur að mikið af kvörtunum bærist til þeirra frá eldra fólki sem festi kaup á svokölluðum þjónustuíbúð- um aldraðra vegna þess hve dýrar þær væru og að þjónustan væri minni en fólk hefði gert sér vonir um. Astæðan fyrir því að þessar íbúðir sem ganga kaupum og söl- um á fijálsum markaði eru dýrar eru þessar: 1) Þær eru staðsettar í vönduð- um og fallegum sambýlishúsum og mikið í þær lagt vegna þess að aldraðir sem hafa selt gömul og óhentug hús gera miklar kröfur þegar þeir kaupa íbúðir sem eiga að gera þeim lífið léttara á efri árum. 2) Þar sem félags- og þjón- ustumiðstöðvar sem borgin (skatt- greiðendur) rekur eru staðsettar í sama húsi og umræddar íbúðir eykur það verðgildi á meðalstórri þjónustuíbúð um eina milljón króna. Það er óréttlátt en skiljanlegt, þar sem fólk þarf ekki að fara út úr húsi til þess að taka þátt í sam- eiginlegu borðhaldi, föndri, spilum, dansi og annarri afþreyingarstarf- semi sem boðið er uppá og aldrað- ir í öllum hverfum borgarinnar hafa aðgang að. Þjónustuíbúðirnar ganga kaup- um og sölum á fijálsum markaði. Það liggur Ijóst fyrir hvað eldra fólki stendur til boða í félags- og þjónustumiðstöðvum borgarinnar og á það jafnt við um alla hvort sem heldur er, aldraður einstakl- ingur sem á þjónustuíbúð í sama húsi, _eða annar sem á íbúð í hverf- inu. í öllum sambýlishúsum aldr- aðra eru húsfélög. íbúar þjónustu- íbúðanna geta að sjálfsögðu komið á þeirri þjónustu sem þeir óska eftir ef meirihluti íbúanna er því samþykkur og vill greiða þann kostnað sem af henni leiðir s.s. vakt allan sólarhringinn við bjöllu- kerfi hússins o.fl. Það er hinsvegar óskiljanlegt að þeir sem hafa fjármagn til þess að festa kaup á þessum dýru íbúð- um telji sig geta gert kröfu á hend- ur skattgreiðendum um meiri þjón- ustu þeim til handa, en hinum sem verða að gera sér að góðu að búa áfram í sínum gömlu íbúðum og húsum víðsvegar um borgina. Það er svo annað mál að nýting og rekstrarkostnaður á félags- og þjónustumiðstöðvum sem borgin byggir og rekur er mjög umdeild- ur. Byggingarkostnaður er á annað hundrað milljónir á hveija félags- miðstöð. Þær eru lokaðar um helg- ar og eftir kl. 5 á daginn virka daga. Þær eru í samkeppni við kirkjurnar sem margar hveijar eiga glæsileg safnaðarheimili og gera mikið að því að laða eldra fólk til samstarfs. I Danmörku (Óðinsvéum) eru klúbbar aldraðra í öllum hverfum borgarinnar sem sjá um rekstur á félagsmiðstöðvum eins og þeim sem hér um ræðir. Þeir fá vissa ijárupphæð frá borgaryfirvöldum árlega til þess að standa straum af kostnaði við reksturinn. Vinnan og félagsskapurinn sem þessu er samfara fyllir upp í tóma- rúm fólks sem er hætt á vinnu- markaðnum og félagsstarfið verð- ur þróttmeira þar sem fólkið sjálft leggur fram krafta sína og ræður ferðinni. GYÐA JÓHANNSDÓTTIR, Miðleiti 7, Reykjavík. Seljum punkt Smáfólk allt í einu sótti að mér efi um þér ... sjálfa mig! Frá Eggerti E. Laxdal: ÞAÐ er hart barist um bitana í þjóðarkökunni um þessar mundir, það er orðin venja, að þeim, sem minnst hafa, sé áfram skammtað naumt, en hinir, sem tróna á toppnum, fá mest til sín. Öryrkjum og eldri borgurum er sífellt haldið við sultarmörk. Við svo búið má ekki standa lengur. Þetta fólk verður að vakna til dáða, annars fer illa. Síðasta bragð valdhaf- anna, var að ráðast á sparifé þessa fólks, sem hefur tekist að spara saman eitthvað af peningum, til þess að létta undir á elliárunum, en nú eru þessir peningar teknir af valdhöfunum og látnir í ríkishít- ina, því að hún er talin meira virði en lifandi fólk. Valdhafamir láta sig engu skipta, þótt fólkið svelti og búi við skort á öllum sviðum. „A ég að gæta bróður míns?“ sagði Kain, þegar hann hafði gengið af honum dauðum. Ekki vantar slagorðin hjá vald- höfunum fyrir kosningar til Al- þingis. Hagur mannsins skal ganga fyrir öðrum málum, en þeg- ar komið er í ráðherrastólana, þá er allt svikið og fólkið blóðmjólkað, einkum þeir, sem minnst mega sín. Hvað á þetta að ganga lengi? Er ekki kominn tími til þess að setja punkt við gerræðið, með samtaka- mætti allra þeirra, sem ekki hafa úr neinu að spila, ungir sem gaml- ir verða að rísa upp og gera stór- átak í málinu, til þess að óréttlæt- inu megi linna. Unga fólkinu kem- ur þetta við, ekki síður en öðrum, því að lífið er stutt og efriárin blasa við í allri sinni nekt. EGGERT E. LAXDAL, Hveragerði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.