Morgunblaðið - 18.03.1997, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 18.03.1997, Qupperneq 56
BHOCK G-BHOCK 56 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ 78.000. Verðkr. Nýkomið mikið úrval af borðstofuhúsgögnum,skenkum, skáoum oa hillusamstæðum Frabært verð margir uppröðunarmöguleikar Skenkur II Val húsqöqn Skapur 29.700 Armúla 8-108 Reykjavik verökr 568-5375 ■ Fax 568-5275 Sími 581-2275 I DAG VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Netfang: elly@mbl.is SKÁK llmsjön Margcir Pétursson FJÓRTÁN ára gamli Frakkinn Etienne Bacrot (2.500) keppir nú að því að verða yngsti stórmeistari skáksögunnar. Hann hefur unnið þijár fyrstu skákir sínar á alþjóðlegu móti í Enghien í Frakklandi. í fyrstu umferð vann hann sjálfan Viktor Kortsnoj. í annarri umferð hafði hann hvítt og átti leik í þessari stöðu gegn Darko Anic, sem einnig teflir fyrir Frakkland. 30. Hxe6! - Dxe6 31. Hel - Hxf6 32. Hxe6 - Hxe6 33. Rxd5 - Hb8 34. Bf4 og svartur gaf þessa von- lausu stöðu. Bacrot þarf nú aðeins þijá vinninga úr þeim sex skák- um sem hann á eftir að tefla á mótinu til að ná takmarki sínu. Hann er 14 ára og eins mánaðar og keppir að því að slá met Ungveijans Peters Leko, sem var 14 og hálfs árs þegar hann náði þessum áfanga. Fyrri met áttu þau Júdit Polgar og Bobby Fischer. Staðan í Enghien eftir þijár umferðir: 1. Bacrot 3 v., 2. Dorfman 2‘A v. 3.-4. Kortsnoj og Spraggett, Kanada 2 v., 5.-6. Nataf og Rausis, Lettlandi 1 ‘A v., 7.-8. Anic og Chabanon 1 v., 9. M. Ivanov, Rússlandi 7« v., 10. Fontaine 0 v. Meira af smásögum í Lesbók JAKOB hringdi og honum finnst að það mætti vera meira af smásögum í Lesbókinni. Hann hafði mjög gaman af sögunni Draumurinn eftir Björgu Elínu Finnsdóttur sem birt var í Lesbókinni 8. mars og vill endilega fá meira af svipuðu efni. Tapað/fundið Rúskinnshanski fannst LOÐFÓÐRAÐUR rúskinnshanski fannst á göngustíg í Engidal. Uppl. í síma 568-5817. Armband tapaðist TVÍLITT gullarmband tapaðist 10. febrúar, lík- lega við bílastæði Hag- kaups við Skeifuna, á bílastæði við Háteigs- kirkju eða við Borgar- spítalann. Upplýsingar í síma 554-6989 og 552-4994. Dýrahald Hvolpur óskar eftir heimili TVEGGJA mánaða hvolpur, tík af blönduðu kyni, fæst gefins. Upplýsingar 567-1413. HVÍTUR leikur og vinnur. Fjórðu bekkingar úr Menntaskólanum í Reykjavík Yíkveqi skrifar... SLENDINGAR leita nú í sívax- andi mæli á ævintýralegar slóð- ir víða um heim. Á næstunni leggja þrír ungir fjallgöngumenn í ferð, sem vonandi endar giftusamlega á Everest-tindi og hefur verið sagt ítarlega frá áformum þeirra hér í Morgunblaðinu. Þeir hafa áður klif- ið fjöll víða um heim. í fyrradag var frá því skýrt hér í blaðinu, að umboðsfyrirtæki Toy- ota hér á íslandi, P. Samúelsson hf. eða öllu heldur dótturfyrirtæki þess, hefði tekið ákvörðun um veru- legan stuðning við tvo unga íslend- inga, sem verða þátttakendur í leið- angri á Suðurskautslandið á þessu ári. Er ætlunin að prófa hina sérút- búnu jeppa, sem við erum að verða helztu sérfræðingar í heimi í að útbúa, á því svæði. Ef vel tekst til er ekki ólíklegt, að það leiði til þess, að slíkar bifreiðar verði notaðar í leiðöngrum þar í ríkara mæli en nú er vegna þess að snjóbílar, sem þar eru notaðir, eru bæði dýrir í innkaupum og rekstri. Öllum er ljóst, að það er ekki hættulaust að ganga á Everest-tind eða ferðast um Suðurskautslandið. En fjallgöngumennirnir ungu eru í jafn góðri þjálfun og þeir útlending- ar, sem glímt hafa við þennan hæsta fjallstind heims undanfarna áratugi. Þeir sem fara á Suður- skautslandið eru þátttakendur í leiðangri, sem væntanlega er skip- aður mönnum, sem vel þekkja til þar um slóðir. Þegar ungir jeppaáhugamenn byijuðu fyrir svo sem tveimur ára- tugum að sérútbúa þessa bíla kom engum til hugar að þetta áhugamál þeirra ætti eftir að verða að at- vinnugrein, sem það bersýnilega er orðið. Nú er ýmislegt sem bendir til þess að slíkur sérútbúnaður sé að verða íslenzk útflutningsvara. XXX EIR sem komnir eru yfir miðj- an aldur muna mæðiveikina svonefndu, sem herjaði á íslenzkt sauðfé með hörmulegum afleiðing- um. Víkveiji man enn eftir því þeg- ar komið var að sauðfé, sem hafði smitazt af þessari veiki. Af þessum sökum fóru fram víðtæk fjárskipti í landinu, þar sem sauðfé var skor- ið niður í nánast öllum sveitum landsins nema i Öræfasveit og á Vestfjörðum en úr þessum tveimur byggðarlögum er fyrst og fremst kominn sá sauðfjárstofn, sem nú er til í landinu. Að þessu er vikið vegna bréfs, sem birtist hér í blaðinu sl. laugar- dag frá Sigurði Sigurðarsyni, dýra- lækni á Keldum, þar sem hann tel- ur innflutning á fósturvísum af norskum kúastofni varasaman og segir m.a.: „Ég tel nokkra smit- hættu geta stafað af fyrirhuguðum innflutningi fósturvísa úr kúm frá Noregi ... Það sem mér finnst vara- samt er einkum veirusjúkdómur sem er talsvert útbreiddur í Noregi og við höfum kallað „smitandi slím- húðarpest" ... Tjón sem hún veldur er talsvert bæði í nautgripum og sauðfé ... Reynsla okkar sýnir, að smitsjúkdómar, sem berast í við- kvæma stofna geta farið geyst yfír og valdið verulegu tjóni, þótt þeirra verði lítt vart í löndum, þar sem þeir hafa verið lengi.“ Hér verður aldrei of varlega farið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.