Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Óskilvirkni yfírskatta-
nefndar ámælisverð
í DÓMI sem kveðinn var upp í máli
íslenska útvarpsfélagsins gegn fjár-
málaráðherra, fyrir hönd íslenska
ríkisins, í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær er fjármálaráðherra gert að
endurgreiða stefnanda álagt viðbót-
arsölugjald að upphæð 888.841 kr.
ásamt vöxtum og málskostnaði.
I dómnum er fallist á að óhæfi-
lega langur dráttur hafi orðið á upp-
kvaðningu úrskurðar ríkisskatt-
stjóra eftir að rannsóknardeild
embættisins hóf athugun á tekju-
skráningargögnum, umfangi og
framkvæmd vöruskipta, gagn-
kvæmum afslætti og kostnaðaraðild
viðskiptamanna að dagskrárgerð
áranna 1986,1987 og 1988.
Einnig er sá dráttur sem varð á
Rangæingar búa
sig undir komu
hitasóttarinnar
Hitasótt-
in þegar
komin á
tvo bæi
HITASÓTTIN er nú komin á
tvo bæi í Rangárvallasýslu en
einkenna varð fyrst vart í
fyrradag. Á Herríðarhól í
Ásahreppi höfðu þrjú hross
veikst hjá Ólafi Emi Jónssyni
og sagðist hann ekki kunna
því illa að fá sóttina. Þetta
væri hlutur sem ekkert réðist
við og því best að láta þetta
ganga yfír sem fyrst.
Hjá Markúsi Ársælssyni í
Hákoti í Djúpárhreppi höfðu
tveir folar veikst. í fyrradag
tók hann eftir því að einn fol-
inn var svangur og eitthvað
laslegur. Tók hann fimm
graðfola sem voru saman
heim og mældi þá og kom í
ljós að tveir voru með háan
hita. I gær voru fjögur hross
komin með sóttina hjá Mark-
úsi.
Ótækt að vera bundinn
1 báða skó
Guðmundur Hauksson
hrossabóndi í Ási í Ásahreppi
sagðist vera að gera sig klár-
an til að taka á móti sóttinni. í
gær hafði ekkert veikst hjá
honum en hann taldi best að
þetta færi sem fyrst yfir og
vildi hann fá sóttina í sín
hross sem fyrst. Ótækt væri
að vera bundinn í báða skó
eins og tamningamenn og
stóðbændur hefðu verið síð-
ustu vikumar. Utflutningur
væri stöðvaður og því væri
augljóslega best að þetta
gengi sem fyrst yfir.
Hagsmunaaðilar friðsamir
Guðmundur sagði þó að þeim
væri vissulega vorkunn sem
standa að reglugerðum land-
búnaðarráðuneytisins að
þurfa að setja þessar hömlur
á meðan ekkert er vitað um
sjúkdóminn. Af þessum sök-
um hafi hann og aðrir hags-
munaaðilar líklega verið íríð-
samir. Aðrir sem ekki höfðu
fengið sóttina í hross sín og
rætt var við í Rangárþingi
tóku í sama streng og Guð-
mundur, allir vildu að hrossin
tækju sóttina sem fyrst.
afgreiðslu málsins hjá yfirskatta-
nefnd talinn óréttlætanlegur og því
vísað á bug að mannekla geti talist
viðunandi ástæða fyrir honum enda
fresti kæra ekld réttaráhrifum
kærðrar skattákvörðunar. Hvorki er
hins vegar fallist á að málsmeðferðin
hafi verið brot á mannréttindasátt-
mála Evrópu né að málsmeðferð rík-
isskattstjóra og yfirskattanefndar
skuli leiða til þess að viðbótarsölu-
gjald verði í heild sinni fellt niður.
Því er einnig vísað á bug að rann-
sóknartími rannsóknardeildar ríkis-
skattstjóra hafi verið svo langur að
óviðunandi væri. Engar reglur séu
um rannsóknartíma í skattalögum
auk þess sem tafir verði að hiuta til
að skrifast á stefnanda þar sem
bókhaldi hans hafi verið verulega
ábótavant og það hafi gert rann-
sóknina tímafrekari en ella.
Helmingur kostunar
skattskyldur
í dómnum er ekki fallist á þá
varakröfu stefnanda að framlög
kostenda heimsbikarmóts í skák í
Borgarleikhúsinu árið 1988 hafi
ekki myndað stofn til sölugjalds.
Stefnandi hafi lagt mikla áherslu á
auglýsingagildi mótsins fyrir
kostendur og því verði að líta svo á
að um auglýsingasölu hafi verið að
ræða. Þó er fallist á að framlag Is-
lenskra aðalverktaka að upphæð
1.000.000 teljist ekki til kostunar
gegn endurgjaldi.
Þá er talið eðlilegt að kynningar
stefnanda á dagskrá útvarpsstöðv-
anna Bylgjunnar og Stjömunnar á
árunum 1987 og 1988 hafi myndað
stofn til söluskattskyldrar veltu og
að miðað sé við að 50% kostunar-
fjárhæða hafi verið til endurgjalds
og því söluskattsskyldar. í úrskurði
ríkisskattstjóra hafði þetta hlutfall
hins vegar verið ákveðið 67%. Að
þessu gefnu lækkar söluskattskyld
velta vegna umræddra viðskipta um
4.444.205 kr. og álagt viðbótarsölu-
gjald um 888.841 kr.
Það var Eggert Óskarsson hér-
aðsdómari sem kvað upp dóminn
ásamt þeim Helga I. Jónssyni hér-
aðsdómara og Stefáni D. Franklín
löggiltum endurskoðanda.
Morgunblaðið/Guðmundur St. Valdimarsson
Vítiskaldur helreykur
NÁTTÚRUFYRIRBÆRI sem
kallast þvi tilkomumikla nafni
helreykur myndaðist á Skjálf-
anda, rétt austan við Flatey,
þegar varðskipsmenn á Ægi
voru þar á ferð fyrir skömmu.
Helreykur er afbrigði af ís-
þoku sem myndast vegna mis-
munar á lofthita og sjávarhita
og er eins og gufi upp úr sjón-
um. Sjávarhiti þarna meðan á
yfírreið varðskipsmanna stóð
var um 1,9 gráður á celsíus og
lofthiti minus 11,5 gráður,
ásamt suðaustan 5 til 6 vind-
stigum. Lofthitinn var af svo
skornum skammti að þokan
fraus samstundis á öllu sem
hún lenti á, eins og hásetar
Ægis reyndu á sjálfum sér á
innan við Hmm mínútna ferð á
léttbát varðskipsins um svæðið.
Voru þeir klakabrynjaðir á eft-
ir.
Fundur fjármálaráðherra Norðurlandanna, Þýskalands,
Póllands og Eystrasaltsríkjanna
Astand lífeyrismála
mun betra hérlendis
ÁSTAND lífeyrismála hér á landi
er mun betra en í þeim löndum sem
ekld hafa byggt lífeyriskerfi sitt
upp á sjóðsöfnun. Það kom meðal
annars fram á fundi fjármálaráð-
herra Norðurlandanna, Þýskalands,
Póllands og Eystrasaltslandanna í
Kalmar í gær og í fyrradag, en á
fundinum var fjallað um stofnun
Efnahags- og myntbandalagsins, at-
vinnumál, uppbyggingu og þróun
velferðarkerfisins, áhrif breyttrar
aldurssamsetningar þjóðanna og
nauðsynlegar breytingar í lífeyris-
málum.
Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, sagði að á fundinum hefði
komið skýrt fram hvað Pólland og
Eystrasaltslöndin, Eistland, Lett-
land og Litháen, legðu mikla
áherslu á að komast inn í Evrópu-
sambandið og væru á fullum skriði
að framkvæma þær efnahagsum-
bætur í löndunum sem nauðsynleg-
ar væru til þess að þau væru gjald-
geng til inngöngu.
11 af 15 í EMU
Friðrik sagði að einnig hefði verið
rætt um Efnahags- og myntbanda-
lag Evrópu. Komið hefði fram að
haldið yrði áfram undirbúningi í
þeim efnum og ekki yrði snúið við á
þeirri braut sem mörkuð hefði ver-
ið. Komið hefði fram að 11 af 15 að-
ildarríkjum ESB tækju þátt í starfi
myntbandalagsins frá byrjun, en
það tekur til starfa í ársbyrjun
1999.
I frétt af tilefni fundarins kemur
fram að ráðherramir hafi verið
sammála um að aukin atvinna, eink-
um í einkageiranum, væri eitt mikil-
vægasta markmið hagstjórnar. Með
því væri lagður grunnur að traustu
velferðarkerfi og traust staða ríkis-
fjármála væri mikilvæg forsenda
þess. Kom fram að horfur væru á
afgangi á fjárlögum flestra Norður-
landanna á þessu ári.
Friðrik sagði að einnig hefði verið
rætt um aukna útgjaldaþörf vegna
lífeyrismála í þessum löndum. Mörg
þeirra væru nú að súpa seyðið af því
að hafa ekki byggt lífeyriskerfi sitt
á sjóðsöfnun, eins og hér hefði orðið
niðurstaðan. Það hafi verið almennt
álit að ástand þessara mála væri til
fyrirmyndar hér á landi og væri al-
veg ljóst að eftir þessu væri tekið
erlendis.
Á fundinum benti Friðrik meðal
annars á að breytingar á starfsemi
lífeyrissjóðanna hefðu nýverið verið
lögfestar hérlendis með það að
markmiði að treysta fjárhagslega
stöðu sjóðanna og auka valfrelsi í
lífeyrismálum. Lagði hann áherslu á
að lífeyrissjóðakerfið þyrfti að
byggjast á þremur meginatriðum,
hinu opinbera, sem fyrst og fremst
ætti að tryggja lágmarksafkomu líf-
eyrisþega, skylduaðild að lífeyris-
sjóðum, sem ættu að vera grund-
völlur lífeyrisgreiðslna í framtíðinni
og aðild að frjálsum lífeyrissjóðum,
til að treysta afkomu lífeyrisþega
enn frekar.
Innbrotum
í Reykjavík
fækkar enn
MUN færri innbrot hafa verið til-
kynnt til lögreglu í Reykjavík frá
áramótum en á sama tíma í fyrra.
Síðustu tvo og hálfan mánuð hafa
verið tilkynnt 258 innbrot til lög-
reglu, en á sama tíma í fyrra, þ.e.
fyrstu tvo og hálfan mánuð seinasta
árs, voru tilkynnt 388 innbrot. Alls
nemur fækkunin 33,5%.
Fækkun þessi er í samræmi við
þróunina á seinni helmingi liðins
árs, þegar innbrotum fækkaði til
muna samanborið við sama tíma ár-
ið 1996. Þá hafði orðið stigvaxandi
aukning tilkynntra innbrota allt frá
árinu 1991.
Aukið eftirlit til góðs
„Þessar tölur benda til að sú já-
kvæða þróun sem varð síðari helm-
ing liðins árs hvað varðar fækkun
innbrota haldi áfram,“ segir Omar
Smári Armannsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík.
Hann kveðst telja að breytt skip-
an löggæslumála eftir 1. júlí á sein-
asta ári kunni að vera ein þeirra
skýringa sem búi að baki fækkun
innbrota, en einnig kunni að vera að
aukið eftirlit með þeim einstakling-
um sem hafa verið virkir afbrota-
menn hafi skilað árangri. Þá beri að
líta til þess að lögreglan hafi á þeim
tíma sem um ræðir nýtt til fulls
möguleg úrræði til að stöðva iðju af-
kastamikilla atvinnumanna á sviði
innbrota.
„Eins og kunnugt er getur virk-
um afbrotamönnum orðið mjög
mikið úr verM þegar þeir ganga
lausir og reynslan sýnir að tiltölu-
lega fáir einstaMingai’ geta valdið
miMum skaða. Þvf sMptir miklu
máli að beina athygli að þeim sér-
staMega. Þá hefur framkvæmd
rannsókna breyst að mörgu leyti
hjá embættinu, auk þess sem ná-
lægð lögfræðiþáttarins hefur aukist
til góðs með sMpan saksóknara við
embættið og fjölgun lögfræðinga,"
segir Ómar Smári.
------♦♦♦--...-
Sjómannadeilan
Atkvæði
talin í dag
ATKVÆÐAGREIÐSLU um miðl-
unartillögu ríMssáttasemjara í deilu
sjómanna og útvegsmanna lauk
klukkan 10 í gærkveldi, en á sumum
stöðum hafði henni þó loMð fyrr um
daginn. EkM lágu fyrir upplýsingar
um kjörsókn, enda kosið í hverju fé-
lagi fyrir sig um allt land.
Talning atkvæða fer fram í dag
og hefst klukkan 18 í húsnæði ríMs-
sáttasemjara. Talning atkvæða er
sameiginleg fyrir Vélstjórafélag Is-
lands og Vélstjórafélag ísfirðinga
annars vegar og fyrir Sjómanna-
samband Islands, Alþýðusamband
Vestfjarða, Farmanna- og fisM-
mannasamband íslands og SMp-
stjóra- og stýrimannafélagið Bylgj-
una hins vegar.
------♦♦♦------
Rigning
næstu daga
VEÐURSTOFAN spáir sunnan- og
suðvestanáttum næstu daga með
hita á bilinu 1 til 8 stig og rigningu.
I dag er spáð suðvestanátt með
súld eða rigningu sunnanlands og
suðaustanátt með slyddu eða rign-
ingu norðanlands. Á föstudag og
laugai-dag má búast við stinnings-
kalda eða allhvassri sunnan- eða
suðvestanátt með rigningu og hita á
bilinu 3-8 stig. Á sunnudag lægir
heldur með kólnandi veðri og éljum
eða slydduéljum sunnan- og vestan-
lands.
-
C
(
é
c
I
c
t
I
(
i
I
f
I
I
(
c
(
c
1
I