Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 27
ERLENT
Rússar vara Norðmenn við
afleiðingum njósnamálsins
Gæti skaðað sam-
starfíð í sjávarút-
vegsmálum
Ósló. Morgunblaðið.
ALEXANDR Avdejev, fyrsti að-
stoðarutanríkisráðherra Rússlands,
sagði í gær, að deilan, sem upp væri
komin milli Noregs og Rússlands út
af njósnum, gæti skaðað samstarf
ríkjanna í sjávarútvegsmálum.
Sagði hann, að brottrekstur tveggja
norskra sendimanna frá Rússlandi
ætti að verða holl lexía fyrir Norð-
menn, sem hefðu „logið upp njósna-
sökum“ á rússneska sendiráðsmenn.
Norðmennirnir tveir, sem vísað
var burt, eru Rune Castberg, ráð-
gjafi í sjávarútvegsmálum við sendi-
ráðið í Moskvu, og Ole Johan
Bjprnpy, vararæðismaður í Múrm-
ansk.
Varar við afleiðingum
„Eg vona bara, að norskir stjórn-
málamenn þori að velta því fyrir sér
hvaða afleiðingar þetta getur haft,“
sagði Avdejev í viðtali við rússneska
sjónvarpið. Sagði hann ennfremur,
að Norðmenn skyldu forðast uppá-
komur af þessu tagi vildu þeir halda
áfram viðræðum um skiptingu
Barentshafsins og samstarfinu í
sjávarútvegsmálum.
Avdejev, sem fer með norsk mál-
efni í rússneska utanríkisráðuneyt-
inu, gefur það einnig í skyn að sögn
norska ríkisútvarpsins, að eitthvert
þriðja land hafi staðið að baki
njósnamálinu en í Rússlandi hefur
því verið haldið fram, að Bandaríkja-
menn hafi sett allt saman á svið.
Sápuópera á síðum blaðanna
Njósnamálið eða hugsanlegar af-
leiðingar þess hafa valdið nokkrum
áhyggjum í Norður-Noregi. Ivan
Kristoffersen, fyrrverandi rikstjóri
dagblaðsins Nordlys í Tromso,
gagnrýnir norsku stjórnina mjög
harðlega í grein, sem birtist í blað-
inu í gær, og segir, að hún hafi
stefnt Barentshafssamstarfinu í
voða.
Kristoffersen er sérstaklega óá-
nægður með, að Kjell Magne
Bondevik, forsætisráðherra Noregs,
skuli hafa frestað fór sinni til
Moskvu og segir, að það hafi einmitt
verið vegna þess, að Rússar ákváðu
að reka tvo norska sendimenn úr
landi. Segir hann, að sendimennirnir
hafi verið lykilmenn í Barentshafs-
samstarfinu og því komi brottrekst-
ur þeirra sér mjög illa fyrir Norður-
Noreg.
„Þetta hjákátlega njósnamál, sem
flæðir af síðum blaðanna eins og ein-
hver sápuópera, er búið að eyði-
leggja samstarfið, sem Thorvald
Stoltenberg, fyrrverandi utanrflds-
ráðherra, byjjaði á 1992,“ segir
Kristoffersen.
uTdres
BOMULLARPEYSUR
M/KRAGA FRÁ
1980
ALLAR MCGORDON
GALLABUXUR
1980
2 STK 2980
DRESS
MANN
Sendum í póstkröfu.
Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730
Fax 562-9731