Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 5 7
Hjálparstarf Rauða
krossins í Irak
VIÐSKIPTABANNIÐ sem sett
var á írak fyrir átta árum hefur
haft alvarleg áhrif á líf almennings
í landinu. Atvinnuleysi er gi-íðar-
legt og er áætlað að um 80% þjóð-
arinnar hafi litlar sem engar tekj-
ur. Læknisþjónusta og starfsemi
sjúkrahúsa hefur verið í lágmarki
og hefur heilsufari þjóðarinnar
hrakað að sama skapi. Samkvæmt
upplýsingum frá Sameinuðu þjóð-
unum er talið að 3,5 milljónir
manna séu í hættu.
Það er Rauða krossinum mikil-
vægt að halda hlutleysi sínu og
sjálfstæði til þess að geta sinnt
hlutverki sínu. Þannig er það yfir-
lýst stefna að taka ekki afstöðu til
stjómmálalegs ágreinings en líta á
heildina út frá mannúðarsjónar-
miðum. Rauða kross hreyfingin
hefur ekki tekið beina afstöðu gegn
viðskiptahindninum en á 26. Al-
þjóðaráðstefnu Rauða krossins
með fulltrúum aðildarríkja Genfar-
sáttmálanna (138 ríki, 165 landsfé-
lög) árið 1995 var samþykkt álykt-
un þess efnis að ríki þyrftu að vera
meðvituð um afleiðingar viðskipta-
banns eða hindrana með tilliti til
Við getum öll lagt
hjálparstarfí Rauða
krossins lið, segir
Sigrún Árnaddttir, og
þannig lagt okkar af
mörkum til stuðnings
þeim Irökum sem mega
sín minnst um þessar
mundir.
mannúðarsjónarmiða og afleiðinga
þeirra á líf almennings. I ályktun-
inni var ítrekað að sköpuð yrðu
skilyrði til neyðaraðstoðar í lönd-
um þar sem viðskiptabann ríkir og
að ríki hefðu ákveðnar fjárhagsleg-
ar skyldur í þeim efnum. Jafnframt
var í samþykktinni hvatt til þess að
metin væru langtíma- og skamm-
tímaáhrif viðskiptabanns og haft
eftirlit með afleiðingum þeirra þar
sem þeim hefur verið komið á.
Aðstoð Rauða krossins
Rauði krossinn hefur starfað í
Irak í áraraðir en aðstoðin beinist
bæði að Irökum og Kúrdum sem
búa í norðanverðu landinu. Hingað
til hefur Rauða krossinum ekki
verið gert erfitt fyrir að sinna hlut-
verki sínu í Irak. Nú starfa um
þrjátíu sendifúlltrúar á vegum
Rauða krossins í landinu og um
fjögur hundruð heimamenn. Að
auki leggur fjöldi sjálfboðaliða
fram vinnu sína fyrir íraska Rauða
hálfmánann. Á þessu ári er gert
ráð fyrir að rúmlega einum millj-
arði íslenskra króna verði varið til
hjálparstarfs Rauða krossins í
Irak. Þetta er nokkuð lægri upp-
hæð en árið áður en lækkunin kem-
ur fyrst og fremst til vegna breyt-
inga sem eru fyrirsjá-
anlegar í kjölfar sam-
komulags Sameinuðu
þjóðanna sem nefnt
hefur verið „olía fyrir
mat“. I samkomulag-
inu felst að á sex mán-
aða tímabih sé Irökum
heimilt að selja olíu
fyrir tvo milljarða doll-
ara og er þeim gert að
nýta 70% af tekjunum
til að aðstoða almenn-
ing. Síðastliðið haust
gekkst Rauði krossinn
fyrir nokkuð ítarlegri
athugun á næringar-
ástandi barna í Irak og
á þessu ári verður dreift matvæl-
um til um 50 þúsund vannærðra
bama. Einnig verður veitt aðstoð
til bama- og fæðingarsjúkrahúsa
svo að þau geti keypt
lyf, hjúkranarvörur og
lækningatæki. Síðast
en ekki síst mun Rauði
krossinn halda áfram
að gera við þær vatns-
veitur í landinu sem
skemmdust í
Persaflóastríðinu.
íslendingar geta
hjálpað
Talið er að 10 millj-
ónir jarðsprengna
hggi í íraskri jörð sem
jafngildir einni
sprengju fyrir hverja
tvo íbúa landsins. Um
20 þúsund írakar - varlega áætlað
- hafa orðið fyrir limlestingum af
völdum þessa voðavopns. Rauði
kross Islands safnar nú styrktarfé-
lögum og munu framlög þeima á
þessu ári renna til aðstoðar fórnar-
lömbum jarðsprengna, m.a. í Irak.
Þar rekur Alþjóða Rauði krossinn
gervilimaverkstæði og endurhæf-
ingarstöðvar þar sem fórnarlömb
jarðsprengna fá ókeypis aðstoð,
t.d. gervilimi, hækjur og hjólastóla.
Jafnframt er veitt endurhæfing svo
að fólk geti staðið á eigin fótum á
ný og tekist á við daglegt hf hjálp-
arlaust. Flestir Islendingar geta
lagt þessu starfi Rauða krossins lið
með því að bætast í hóp styrktarfé-
laga hjálparsjóðs Rauða kross Is-
lands. Þannig getum við lagt okkar
af mörkum til stuðnings þeim Irök-
um sem mega sín minnst um þess-
ar mundir.
Höfundur er frumkvæwdustjóri
Rauða kross íslands
Ljónviljugir
vinnufelagar!
ir winm ifélnni hnrf nrS \/^rn trni iQti ir nn
Góöur vinnufélagi þarf aö vera traustur og
óreiöanlegur. Hann þarf aö vera Ijónsterkur
og snöggur og vinna eins og Ijón.
Góður vinnufelagi er gulls Tgildi.
’artner
vinnur með þér!
• 3m3 flutningsrými og 600 kg burðargeta
• 1100 cc bensínvél eða 1800 cc dísilvél
• loftpúði, blaðahaldari í mœlaborði og niðurfellanlegt
farþegasœti sem eykur flutningsgetu og getur nýst
sem skrifborð o.fl.
Verð frá aðeins kr. 947.791 án vsk.
Verð kr. 1.180.000 með vsk.
iú
fagmannlegur!
• sendibill eða 9 manna smárúta
• 4m3 flutningsrými og 815 kg buröargeta
• 1900 cc dísilvél, loftpúði, fjarstýrðar samlœsingar.
rafmagn í rúöum o.fl.
Verð frá aðeins kr. 1.522.891 án vsk.
Verð kr. 1.896.000 með vsk.
óxer
laginn!
• sendibíll
• 3 lengdir og hár eöa lágur toppur
• 2.0 lítra bensínvél eða 2.5 lítra dísilvél meö túrbínu
• framdrif og loftpúði sem staðalbúnaöur
• fjórhjóladrif, ABS-bremsur, vinstri hliðarhurö, gluggar
o.fl. sem aukabúnaður
Verð frá aðeins kr. 1.574.297 án vsk.
Verð kr. 1.960.000 með vsk.
löxer
á góðum grunni!
• grindarbíll með einföldu eða tvöföldu húsi
• 3 lengdlr
• 2.0 iítra bensínvél eöa 2.5 lítra dísilvél meö túrbtnu
• framdrif og loftpúði sem staðalbúnaöur
• fjórhjóladrif, ABS-bremsur o.fl. sem aukabúnaður
Verð frá aðeins kr. 1.358.233 án vsk.
Verð kr. 1.691.000 með vsk.
PEUGEOT
LJ N V E6 I N U M I
Sendibílarnir frá Peugeot eru rúmgóðir og hafa mikla buröargetu. Mikið er
lagt upp úr góðum aðbúnaöi ökumanns og vönduðum sœtum því góð
vlnnuaðstaðd tryggir Petrl líðan og aukin afköst. Vinnubílarnir frá Peugeot
hafa fengið mjög góða einkunn fyrlr gott aðgengi, stórar huröirog elnstaklega
góða vlnnuaðstöðu. Peugeot er framtíðarvinnustaður.
Veldu rétta vinnufélagann, láttu Ijónið vinna með þér. Veldu Peugeot.
FUR
NÝBÝLAVEGI 2
SfM1: 554 2600
Bilver Akranesi • BíIatsngi. isafirði . flilasala Akureyrar . Skipaafgreiðsla Hésavikur . Fell, Egilsstaðum • Vélsmiöja Hornafjarðar
Sigrún Árnadóttir
V