Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 65
ELÍN Gestsdóttir, framkvæmdastjóri Fegurðarsamkeppni fslands, og
Þorgrímur Þráinsson, framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar, undir-
rita samninginn.
Reyklaus Fegurðarsam-
keppni Islands 1998
K-listinn í
Sandgerði efnir
til prófkjörs
Franskir
duggarar á
Islands-
miðum
ELÍN Pálmadóttir blaðamaður
mun laugardaginn 21. mars kl.
13.15-14.30 í Háskólabíói, sal 4,
segja frá frönskum sjómönnum á
fískiskipum hér við land á síðustu
öld.
Elín hefur rannsakað sjósókn frá
Bretagne norður um höf, bæki-
stöðvar þessa flota hér á landi, sam-
skipti sjómanna við íslendinga og
minjar um þessi tengsl í Frakk-
landi. Frá þessum rannsóknum seg-
ir í bók hennar, Fransí-Biskví.
Þetta er þriðji fyrirlesturinn í
fyrirlestraröð fyrir almenning sem
Sjávarátvegsstofnun HÍ heldur í til-
efni af Ári hafsins en fyrirlestrarnir
verða alls fímm, haldnir annan
hvern laugardag. Áður hefur Jakob
Jakobsson rætt um síldina og Árný
Erla Sveinbjörnsdóttir um breyt-
ingar á veðurfari og hafstraumum.
Fyrirlestraröðin er liður í við-
burðum sem ríkisstjórnin styður á
Ári hafsins.
Siðfræði sjáv-
arútveg's
NÝLEGA voru haldin þrjú um-
ræðukvöld í Vestmannaeyjum á
vegum Landakirkju, Hafrann-
sóknastofnunar og Þróunarfélags
Vestmannaeyja um siðfræði sjávar-
útvegs. „I framhaldinu var unninn
texti þar sem gerð var grein fyrir
helstu sjónarmiðum og áhersluat-
riðum sem fram komu á fundunum.
Var textinn samþykktur á almenn-
um fundi, þýddur á norska tungu og
fluttur á norrænni ráðstefnu um
málefnið fyi'ir skömmu.
Annað Iwöld kl. 20:30 verður síð-
asta kvöldið í þessari fundaröð. Þá
mun Vilhjálmur Árnason, heim-
spekiprófessor við Háskóla íslands,
flytja erindi í hinum nýja sal Lista-
skóla Vestmannaeyja. Mun hann við
það tækifæri taka ráðstefnutextann,
sem um var getið, og gagnrýna
hann. Síðan verður efnt til al-
mennra umræðna þar sem dr. Vil-
hjálmur situr fyrir svörum en fund-
arstjóri verður dr. Erlendur Jóns-
son heimspekingur,“ samkvæmt því
sem kemur fram í fréttatilkynn-
ingu.
Opinn fundur
um málefni
borgarinnar
POLITICA, félag stjórnmálafræði-
nema, mun standa fyrir opnum
fundi um málefni borgarinnar föstu-
daginn 20. mars. Fundurinn er
haldinn í Háskólabíói, sal 4 og hefst
klukkan 12:15 og stendur í klukku-
tíma.
Fyrir hönd Sjálfstæðisflokks
munu Árni Sigfússon og Guðlaugur
Þór Þórðarson tala en fulltrúar R-
listans verða Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Helgi Hjörvar.
Félag stjórnmálafræðinema hef-
ur í gegnum tíðina staðið fyiir fund-
um innan Háskólans til að gefa há-
skólastúdentum kost á að kynna sér
hin ýmsu málefni og stefnur, segir í
fréttatilkynningu. Fundurinn er
ætlaður háskólastudentum og öllum
þeim er áhuga hafa á málinu.
Frædslu-
fundur LAUF
FRÆÐSLUFUNDUR LAUF,
Landssamtaka áhugafólks um
flogaveiki, verður fímmtudaginn 19.
mars í sal Félags heyrnarlausra,
Laugavegi 26, og hefst hann kl.
20.30.
Doktor Arnar Hauksson flytur
erindi um breytingaaldur karla og
kvenna almennt.
Fegurðarsamkeppni íslands og
Tóbaksvarnanefnd, hafa gert með
sér samkomulag um það að
keppnin í ár sem og eftirleiðis
verði reyklaus. Með því er átt við
að stúlku sem reykir er óheimilt
að taka þátt í keppninni.
Þeim sem annast allan undir-
búning stúlknanna úti á landi sem
og í Reykjavík er óheimilt að
reykja í návist þeirra því stúlk-
urnar eiga skilyrðislausan rétt á
reyklausu umhverfi. Dómnefndar-
menn eru ekki undanskildir. „Það
segir sig sjálft að reykingar eyði-
SVEINN Aðalsteinsson, tilrauna-
stjóri Garðyi’kjuskóla Ríkisins,
heldur fyrirlestur föstudaginn 20.
mars á vegum Líffræðistofnunar
HI sem nefnist „Plöntulífeðlisfræði
í ylrækt".
í fréttatilkynningu segir: „Garð-
yi-kjan á íslandi er ein af fáum
greinum landbúnaðarins sem vex að
umfangi milli ára og veltir nú alls
um 2 milljörðum króna árlega. Yl-
ræktin og sumar aðrar greinar hafa
þó átt í vök að verjast vegna vax-
andi samkeppni frá útlöndum.
Framleiðendur verða því að hag-
ræða sem mest í rekstri og leitast
við að auka framleiðslu sína með
sama eða minni tilkostnaði.
Ein leið í stuðningi hins opinbera
við greinina er að sjá framleiðend-
um fyrir öflugi-i tilrauna- og rann-
sóknastarfsemi sem gæti nýst í
framleiðsluaukningu. Við Garð-
vrkjuskóla ríkisins að Reykjum er
nú að rísa tilraunahús garðyrkjunn-
ar sem býður upp á glæsilega til-
raunaaðstöðu.
I erindinu verður þessari aðstöðu
lýst stuttlega og tæpt á þeim rann-
sóknaverkefnum sem brýnt er að
sinna í náinni framtíð m.a. í sam-
vinnu við Rannsóknastofnun land-
Bæjarmála-
félag stofnað
í Arborg
STOFNFUNDUR bæjarmálafé-
lags í Árborg sem standa mun að
framboði í maí nk. verður haldinn á
Hótel Selfossi fimmtudaginn 19.
mars kl. 20.30.
Fólk sem stóð að framboði K-lista
á Selfossi, Stokkseyrarlistanum og
lista óháðra á Eyrarbakka hefur
starfað í undirbúningshópnum.
„Framboðið mun starfa undir
merkjum jöfnuðar og félagshyggju.
Félagar í bæjarmálafélaginu geta
allir orðið sem eru orðnir 16 ára og
eldri,“ segir í frétt frá undirbún-
ingshópi.
leggja ímynd fegurðar, glæsileika
og heilbrigðis sem þátttakendur í
Fegurðarsamkeppni Islands eiga
að endurspegla, segir í frétt frá
Fegurðarsamkeppni Islands.
17 stúlkur hafa nú verið valdar
til þátttöku í keppnina um fegurð-
ardrottningu Reykjavíkur sem
haldin verður á Broadway 23.
apríl 1998 og undirbúningur í
fullum gangi. I mars hefjast svo
undankeppnir á landsbyggðinni,
sú fyrsta 21. mars þegar ungfrú
Austurland verður valin á Egils-
stöðum.
búnaðarins eins og ný reglugerð
Garðyrkjuskólans kveður á um.
Plöntulífeðlisfræðin er ein af undir-
stöðugreinum ylræktarrannsókna. í
erindinu verður skýrt frá þeim
rannsóknum, sem fyrirlesari hefur
stundað við sænska landbúnaðarhá-
skólann, sem snúast einkum um
þætti í lokuðum ræktunarkerfum
við ylræktun grænmetis."
Fyrirlesturinn verður haldinn í
húsakynnum Líffræðistofnunar,
Grensásvegi 12, stofu G-6 kl. 12.20.
Ollum er heimill aðgangur.
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
vígði nýlega nýtt húsnæði heilsu-
gæslustöðvarinnar í Garðabæ.
Nýja húsnæðið, sem er 923 fer-
metrar, er á annarri hæð hússins
við Garðatorg 7. Það var keypt af
Áiftárósi ehf. sem skilaði því full-
búnu í samræmi við þær verklýs-
ingar sem notaðar hafa verið við
hönnun heilsugæslustöðva.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til
prófkjörs meðal stuðningsmanna
K-listans um val á frambjóðendum
vegna bæjarstjórnarkosninganna í
vor.
Niðurstaða prófkjörsins verður
bindandi í 4 efstu sætin, nái fram-
bjóðendur 50% atkvæða í viðkom-
andi sæti miðað við kosningaþátt-
töku. Allt stuðningsfólk K-listans
með kosningarétt 23. maí nk. hefur
rétt til að mæta á kjörstað og taka
þátt í uppstillingu framboðslistans.
Eftirtaldir 10 aðilar gefa kost á
sér til framboðs í prófkjöri K-list-
ans: Brynhildur Kristjánsdóttir, 43
ára hárgreiðslumeistari, Brekku-
stíg 2, Gunnar Guðbjörnsson, 46
ára húsasmiður, Holtsgötu 11, Ing-
þór Karlsson, 35 ára vélfræðingur,
Ásabraut 2, Jóhanna S. Norðfjörð,
33 ára húsmóðir, Suðurgötu 31,
Framboðslisti
Sjálfstæðis-
flokksins í
Grundarfirði
Á FUNDI Sjálfstæðisfélags Eyrar-
sveitar í Grundarfírði sunnudaginn
15. mars sl. var samþykktur fram-
boðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í vor.
Listann skipa: 1. Sigríður Finsen,
2. Þorsteinn Friðfínnsson, 3. Mar-
vin ívarsson, 4. Dóra Haraldsdóttir,
5. Linda Ósk Sigurðardóttir, 6.
Hrólfur Hraundal, 7. Pétur Erlings-
son, 8. Margrét Óskarsdóttir, 9.
Árni Pétursson, 10. Hreinn Bjarna-
son, 11. Sverrir Pálmarsson, 12.
Jensína Guðmundsdóttir, 13. Ásgeir
Valdimarsson og 14. Kristján Guð-
mundsson.
Listi framfara-
sinnaðra kjós-
enda í Garðinum
Garði. Morgunblaðið.
FYRSTI listinn af þremur væntan-
legum var birtur á almennum fundi
Áður var heilsugæslan í 240 fer-
metra húsnæði við Garðaflöt en
það húsnæði leyfðý ekki frekari
fjölgun starfsfólks. Á nýju heilsu-
gæslustöðinni er starfsaðstaða fyr-
ir sex lækna auk Héraðslæknis
Reykjaness. Þá er þar einnig að-
staða fyrir mæðravernd og ung-
barnaeftirlit auk rannsóknar- og
aðgerðarstofa.
Kristinn Guðmundsson, 36 ára
fiskverkandi, Brekkustíg 20, Óskar
Gunnarsson, 52 ára húsasmiður,
Stafnesvegi 14, Sigurbjörg Eiríks-
dóttir, 50 ára húsmóðir, Hlíðargötu
37, Sigurður Guðjónsson, 58 ára
byggingastjóri, Stafnesvegi 22,
Sveinbjörn Guðmundsson, 36 ára
verkstjóri, Vallargötu 8 og Þor-
valdur Kristleifsson, 47 ára sjó-
maður, Klapparstíg 8.
Prófkjörið fer fram laugardag-
inn 21. mars nk. og verður opinn
kjörstaður í Miðhúsum, Suðurgötu
19-21 á tímabilinu kl. 10-20.
K-listinn á nú 4 bæjarfulltrúa og
hefur hreinan meirihluta í bæjar-
stjóm Sandgerðisbæjar. 2 af nú-
verandi bæjarfulltrúum, þau Óskar
Gunnarsson og Sigurbjörg Eiríks-
dóttir, gefa kost á sér til áfram-
haldandi setu í bæjarstjórn.
í Garðinum sl. fimmtudag. Þetta er
listi framfarasinnaðra kjósenda og
hyggst listinn sækja um bókstafinn
F til kjörstjórnar.
Fjórir efstu menn sitja í núver-
andi hreppsnefnd en listinn verður
þannig sldpaður:
1. Sigurður Ingvarsson rafverk-
taki, 2. Ingimundur Þ. Guðnason
tæknifræðingur, 3. Jón Hjálmars-
son forstöðumaður, 4. Ólafur H.
Kjai-tansson tæknifræðingur, 5.
Guðrún S. Alfreðsdóttir stuðnings-
fulltrúi, 6. Brynja Rristjánsdóttir
kaupmaður, 7. Gísli Kjartansson
húsasmiður, 8. Hulda Matthíasdótt-
ir fiskverkandi, 9. Rafn Guðbergs-
son fiskverkandi, 10. Einvarður Al-
bertsson útgerðarstjóri, 11. Gísli R.
Heiðarsson fiskverkandi, 12. Harpa
M. Sturludóttir, 13. Kristjana
Kjartansdóttir og 14. Kai-itas Hall-
dórsdóttir.
Leiðrétting
í GREIN undir yfirskriftinni
„Fædd sama dag, skírð og fermd
•saman“ í sérblaði um fermingar er
talað um að faðir annars fenningar-
barnsins heiti Jónas Heiðar en hið
rétta er að hann heitir Jónas Hleið-
ar. Morgunblaðið biður hlutaðeig-
andi afsökunar á mistökunum.
Löndun vantalin
LOÐNULÖNDUN hjá Loðnu-
vinnslunni hf. reyndist vantalin^ í
frétt í sérblaði Morgunblaðsins Úr
verinu í gær. Þar var sagt að 25.260
tonnum hefði verið landað þar á
þessu ári, þar af um 4.000 í fryst-
ingu. Það er ekki rétt. Hið rétta er
að alls var landað þar um 29.260
tonnum, þar af 4.000 í frystingu.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum um leið og þau
eru leiðrétt.
Auður Sif besti
ungi sýnandinn
NAFN besta unga sýnandans í frétt
af hundasýningu féll því miður nið-
ur í Morgunblaðinu í fyrradag. Auð-
ur Sif Sigurgeirsdóttir, sem sýndi
írskan setter var valin besti ungi
sýnandinn. Jafnframt láðist Hunda-
ræktarfélagi Islands að senda upp-
lýsingar til Morgunblaðsins um
besta hundinn í tegundahópi. Hann
var Sperringgárdens Christian
Collard, sem er af tegundinni Ca-
valier King Charles Spaniel.
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Plöntulífeðlis-
fræði í ylrækt
:t ' U;
■ ~rr •
Morgunblaðið/Þorkell
NÝJA heilsugæslustöðin í Garðabæ.
Heilsugæsla Garða-
bæjar í nýtt húsnæði