Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 25
Blair „fullkomlega“
sáttur við för Cooks
Sýrlendingar fal-
ast eftir aukinni
hlutdeild ESB
Damaskus, London, Tel Aviv. Reuters.
ROBIN Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, átti í gær viðræður við
leiðtoga Sýrlands um leiðir til þess
að koma á friðarumleitunum fyrir
botni Miðjarðarhafs. Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, kvaðst í
gær „fullkomlega" sáttur við fór
Cooks, sem vakið hefur harkaleg við-
brögð ísraelskra ráðamanna. Kvaðst
Blair staðráðinn í að standa við áætl-
aða for sína til Mið-Austurlanda í
næsta mánuði.
Cook dvaldi í Damaskus í um fjór-
ar klukkustundir og átti fundi með
utanríkisráðherra Sýrlands, Farouk
al-Sharaa, og forseta landsins, Hafez
Assad. Fóru Sýrlendingarnh' þess á
leit við Cook að Evrópusambandið,
sem Bretar eru nú í forsæti fyrir,
tæki virkari þátt í friðarumleitunun-
um og beitti Israela harðari þrýst-
ingi.
Friðarviðræður Sýrlendinga og
Israela hafa legið niðri síðan í byrjun
árs 1996. Líkurnar á að þær verði
teknar upp aftur minnkuðu til muna
þegar Benjamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra Israels, neitaði að til
greina kæmi að Israelar skiluðu
Gólanhæðum, sem þeir hertóku
1967.
Netanyahu með yfirhöndina
Hörð deila reis milli Breta og
Israela í fyrradag vegna skoðunar-
ROBIN Cook, utanríkisráð-
herra Bretlands (t.v.), ásamt
Farouk al-Sharaa, utanríkis-
ráðherra Sýrlands, í Damaskus.
ferðar Cooks til landnáms gyðinga í
Austur-Jerúsalem. Bretar sögðu
ferðina til þess gerða að gefa Israel-
um til kynna að Bretar, og þar með
ESB, væru ósáttir við útþenslu
landnámsins. Cook ætlaði að fara á
staðinn í fylgd palestínsks embætt-
ismanns, en úr varð að hann skoðaði
hæðina úr fjarlægð ásamt ísraelsk-
um ráðherra.
Breskir og ísraelskir embættis-
menn sökuðu hvorir aðra um óheil-
indi og gáfu út harðorðar yfirlýsing-
ar á víxl. Israelar segja ESB vera
hallt undir málstað Palestínumanna
og töldu Cook hafa gengið á bak
orða sinna er hann ræddi við palest-
ínskan þingmann, Salah Tamari, í
skoðunarferðinni. Cook sagðist ein-
ungis hafa tekið í höndina á Tamari.
Netanyahu aflýsti fyrirhuguðum
kvöldverði með Cook vegna atviks-
ins, og breskir embættismenn sögðu
að Israel væri í „vondu og fráhrind-
andi skapi“. Bæði Netanyahu og
Cook reyndu að gera sem minnst úr
deilunni, en breskir stjórnarerind-
rekar sögðu einsýnt að Netanyahu
hefði náð yfirhöndinni, að minnsta
kosti í bráð.
„Eitt er víst - Netanyahu hefur
nærri gert hlutverk ESB í friðarum-
leitununum að engu þar til Bretar
láta af forsæti," sagði háttsettur
diplómat í London. Austurríki tekur
við forsæti ESB af Bretum 1. júlí
nk. Friðarumleitanir fóru út um þúf-
ur fyrir ári er ísraelsk stjórnvöld
leyfðu byggingarframkvæmdir í um-
ræddu landnámi og ekki hefur bætt
úr skák að palestínskir öfgamenn
frömdu sprengjutilræði í ísrael og
Israelar neita að láta af hendi land-
svæði á Vesturbakkanum sam-
kvæmt áætlun.
Leið Cooks lá um sex ríki fyrir
botni Miðjarðarhafs og að lokinni
heimsókninni til Sýrlands í gær átti
hann stutta viðdvöl í Líbanon, sem
var síðasti viðkomustaðurinn. Eftir
fund með þarlendum ráðamönnum
hvatti Cook til þess að Israelar
drægju herlið sitt á brott frá suður-
hluta landsins, þar sem þeir halda
15 km breiðu svæði, Líbanonmegin
landamæranna, að því er þeir segja
til að tryggja öryggi í ísrael.
■ ' ' 1
All'JftlU §ttl-FÉIÍRAIlAm.L\\ Le Ðroit IIlmain
SIÐFRÆÐI
MVISKA
Opið málþing, Hótel Loftleiðum, (oingsölum
Laugardaginn 21. mars 1998
KJ. 09:30 Setning málþings
Dr. Njörður P. Njarðvík prófessor,
stórmeistari reglunnar flytur ávarp.
Kl. 09:45-10:45 Þorsteinn Gylfason, prófessor:
Siðfræði og samviska
Fyrirspurnir og svör.
Kl. 10:45-11:00 Kaffihlé.
Kl. 11:00-12:00 Guðrún Agnarsdóttir, læknir:
Siðfræði þjóðfélagsins
Fyrirspurnir og svör.
Kl. 12:00-13:30 Hádegisverðarhlé.
Kl. 13:30-14:30 Dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur:
Samviska kristins manns
Fyrirspurnir og svör.
Kl. 14:30-15:30 Vigdís Finnbogadóttir, forseti Alþjóðaráðs UNESCO
um siðferði í vísindum og tækni:
Siðvitun og aukin þekking
Kl. 15:30-15:45 Kaffihlé.
Kl. 15:45-16:45 Pallborðsumræður
Þingi slitið
Ráðsstefnustjóri: Kristín Jónsdóttir, framhaldsskólakennari.
Málþingið er öllum opið. Þátttökugjald er kr. 1.000. Vinsamlegast
tilkynnið þátttöku í síma 561 1557, 562 3434, fax 561 1567.
Netfang: samfrím@mmedia.is
Vcfsíður Sam-frímurararcglunnar Lc Droit Humain:
http://www.mmcdia.ís/sammhi ~ hhtp://\vww.droit-humain.org
lyktarskyn
hreyfiskynjun
heyrnarskyn
snertiskyn
sjónskyn
* *k * *
Settu PINnúntecið á öruggan stað svo þú gleymir þvi áldrei
PIN er Persónulegt InnsláttarNúmer.
Það fylgir þér ásamt debet- og kreditkortinu þínu hvert sem þú ferð.
Númerið veitir þér greiðan aðgang að sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB, sjálfsölum Olís
og hraðbönkum Landsbankans allan sólarhringinn. Hvenær sem þú þarft að taka
út peninga eða setja eldsneyti á bílinn þinn er PIN númerið lykillinn. Haltu PIN
númerinu þínu leyndu fyrir öðrum, það try'ggir öryggi í viðskiptum.
560 6000
Þú færð PIN númerið þitt í þjónustuveri Landsbankans, í síma VVV \/V/^
eða viðskiptabanka / sparisjóðnum þínum og hjá greiðslukortafyrirtækjunum.
VISA
V/SA
Electron
EURDCARD
J AI asierCard Maestro
0* BS
ódýrt bensín 1 ' j I P 1
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
* PIN er fjögurra stafa leyninúmer til notkunar í hraðbönkum og á rafrænum sjálfsafgreiðslutækjum, s.s. á bensínstöðvum.