Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 80
Það besta
úr báðum heimum!
unix og NT = hp
OPIN KERFIHF
Thpl hewlett
mJfLM PACKARO
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
20-30% hækkun afurða-
verðs á Evrópumarkaði
AFURÐAVERÐ þorsks, ýsu og ufsa
hefur að meðaltali hækkað um 20-
30% á Evrópumarkaði á síðustu sex
mánuðum. Þar af hefur mest hækk-
un orðið á sjófrystum þorskflökum.
Karfaflök hafa hækkað í verði um 5-
13% á sama tíma. A undanförnu
hálfu ári hefur orðið vart mestrar
hækkunar frá áramótum og hafa
febrúar- og marsmánuðir verið sér-
staklega sterkir fyrir land- og sjó-
frystar flakaafurðir, að sögn Krist-
jáns Hjaltasonar, framkvæmda-
Fækka
verður
útibúum
FIMM bankastjórar, sem ræddu um
banka í deiglunni á ársfundi Sam-
bands íslenskra bankamanna í Borg-
arnesi í gær, voru sammála um að ís-
lenska bankakerfið verði að laga sig
að aukinni erlendri samkeppni með
því að grípa til hagræðingar og sam-
einingar svo og hagnýtingar tækn-
innar til að lækka kostnað og mæta
erlendri samkeppni.
Meðal þess sem fram kom í erind-
unum er að tölvukostnaður er að
sliga bankana og bankastjóramir
telja nauðsynlegt að ná samkomulagi
um að fækka afgreiðslustöðum bank-
anna í fámennum byggðarlögum þar
sem ljóst sé að ekki sé rekstrar-
grundvöllur fyrir fleiri en einni af-
greiðslu. Þá segja þeir sjálfvirknina
munu aukast mjög en hún sé meðal
annars forsenda fyrir fækkun útibúa.
■ Nauðsynlegt/12
-----*-*-«---
Deilt um
kaup á
Skímu/Mið-
heimum
BARÁTTA stendur nú yfír milli
tveggja af stærstu netþjónustufyrir-
tækjum í landinu, Landssímans hf.
og Islandia Internet, sem bæði telja
sig hafa gert bindandi samning um
kaup á þriðja fyrirtækinu á þessum
markaði, Skímu/Miðheimum, fyiir
160 milljónir króna. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins ætluðu
forsvarsmenn Islandia Internet með
málið til dómstóla fengju þeir hluta-
bréf í fyrirtækinu ekki afhent.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að eigendur Islandia Intemet telji að
eftir fundi á mánudag hafi verið
kominn á bindandi samningur við
Skímu/Miðheima um að Islandia
Internet keypti fyrirtækið fyrir 160
milljónir króna. Þessi samningur
hafí átt sér a.m.k. fjögurra mánaða
aðdraganda. Síðdegis á þriðjudag
fengu þeir fréttir af því að búið væri
að ganga frá kaupum Landssímans á
fyrirtækinu.
Heimildir innan Landssfmans
herma að það tækifæri hafi boðist í
skyndingu. Landssíminn hafi nú gert
skriflegan samning um kaup fyrir-
tækisins, sem stjóm þess hefur fjall-
að um og samþykkt.
stjóra markaðsdeildar Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna hf. Þetta verð-
ur helst rakið til mikillar eftirspurn-
ar og skorts á mörkuðum vegna lítfíl-
ar veiði Norðmanna og Rússa í
Barentshafi.
Kristján segir óljóst hvernig
ástandið verður eftir páska. „Veiðar
era nú hafnar í Barentshafí á ný og
við eigum alveg eins von á því að eft-
irspurnin gefí eftir þar sem líklegt
er að það verði meira framboð á
mörkuðunum eftir páska.“
„Landsins
forni fjandi“
HAFISINN er kominn. Isspöng
teygir sig inn í mynni Isafjarð-
ardjúps. Til hægri má sjá Rit,
en ísinn hefur þegar lokað sigl-
ingaleið inn á Jökulfírði.
Jaðar þéttrar ísbreiðunnar
teygir sig norður frá Horni og
suður að Bjargtöngum en rastir
og ísspangir teygja sig enn nær
landi. Þær ná langt inn á fsa-
fjarðardjúp og loka siglingaleið
inn á Jökulfírði. Nokkrar ís-
spangir voru þegar landfastar
við Fjallaskaga og allt norður
undir Kögur.
■ ísbreiðan/6
Það er einkum tvennt, sem bendir
til þess að eftirspurnin gefí eftir, að
sögn Kristjáns, annars vegar að
fóstunni, sem er mjög mikfívægur
tími í fisksölu, lýkur og hins vegar
að veiði er byrjuð i Barentshafi.
Viss leiðrétting
„Þetta er geysilega mikil hækkun
á svo skömmum tíma, en við megum
ekki gleyma því að verðið var orðið
nokkuð lágt eftir að það byrjaði að
fara niður á við árið 1991 þannig að
HAGNAÐUR Sjóvár-AImennra
nam 361 milljón króna í fyrra, sam-
anborið við 334 milljóna króna
hagnað árið 1996, og nemur aukn-
ing hagnaðarins 8% milli ára. Er
þetta besta afkoma í sögu félags-
ins.
Helstu rekstrarniðurstöður árs-
ins 1997 eru þær að bókfærð ið-
gjöld námu 4.480 milljónum króna
og hækkuðu um 8% milli ára. Bók-
færð tjón á árinu námu 3.015 millj-
það má líta á þessa verðhækkun nú
sem vissa leiðréttingu á því.“
Kristján segir að þróunin sé mun
stöðugri á Ameríkumarkaði og of
snemmt sé að segja til um hvað
muni gerast á þeim markaði varð-
andi þessa þróun.
Enn er ekki farið að gæta neinna
umtalsverðra hækkana á sjávaraf-
urðum á Bandaríkjamarkaði frá því
sem verið hefur.
■ Sjófryst þorskflök/24
ónum og hækkuðu um 6% milli ára.
Eigin iðgjöld námu 3.101 milljón
kr. og hækkuðu um 2% frá fyrra
ári. Eigin tjón námu 2.705 millj. kr.
og hækkuðu um 1% frá fyrra ári.
Hreinn rekstrarkostnaður var 782
millj. og hækkaði um 18% milli ára.
Markaðsvirði fjárfestinga
5,6 milljarðar
Síðasta ár einkenndist af mikilli
sölu vátrygginga félagsins og
Engin ís-
lensk kvik-
mynd valin
ENGIN íslensk kvikmynd tek-
ur þátt í kvikmyndahátíðinni í
Rúðuborg sem hefst í dag.
Skýringin sem fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar
gefur er sú að engin íslensk
kvikmynd hafi að þessu sinni
þótt frambærileg til keppninn-
ar. Þorfínnur Omarsson, fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs
Islands, hafnar því alfarið og
segir forsvarsmenn í Rúðuborg
hafa sniðgengið ísland við und-
irbúning og kynningu hátíðar-
innar sl. tvö ár.
■ Island sniðgengið/33
Morgunblaðið/RAX
heildariðgjöld fóra vaxandi þótt
meðaliðgjöld lækkuðu.
Bókfært verð fjárfestinga Sjó-
vár-Almennra í félögum á hluta-
bréfamarkaði nemur um 2.200
milljónum króna. Markaðsvirði
þessara bréfa er þó mun hærra, eða
5.660 milljónir. Mismunur á bók-
færðu verði í reikningum og mark-
aðsverði er því 3.400 milljónir.
■ Hagnaðurinn/B2
Besta afkoma í sögu
Sj ó vár-Almennra
■ Tveir aðilar/11