Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 37
Slök staða grunn-
korta af Islandi
Skúli Helgi
Víkingsson Torfason
TVISVAR hafa verið gerð kort af
öllu landinu. Danir luku gerð korta í
mælikvarða 1:100000 á 5. áratugn-
um. Bandaríkjamenn gerðu kort af
öllu landinu í kvai'ða 1:50000 (AMS-
kort), sem byggja á mælingum Dana
og loftmyndum sem teknar voru
1945 og 1946. Lokið var við kortin á
6. áratugnum.
Landmælingar íslands hafa á und-
anförnum árum verið að gefa út kort
í 1:50000 í samvinnu við Bandaríkja-
menn (DMA), en enn er óljóst
hvenær þeirri kortagerð lýkur, en ný
kort í þessum flokki hafa ekki komið
út nú um nokkurra ára bil.
Brýn þörf er fyrir nákvæm grunn-
kort af landinu. Kvarðinn 1:25000
með 5 m hæðarlínubili er nægilega
nákvæmur og heppilegur fyrir söfn-
un jarðfræðiupplýsinga, hvort held-
ur er vegna verklegra framkvæmda,
umhverfísmats, eða sértækra jarð-
fræðirannsókna af einhverju tagi.
Mikil gagnasöfnun um jarðfræði
landsins fer forgörðum, vegna þess
að staðsetningar verða ónákvæmar á
þeim fátæklega og gamla kortakosti
sem til er af landinu. Með aukinni
notkun nákvæmra staðsetningar-
tækja (GPS) verður þörfin á góðum
kortum enn brýnni en áður. Með
góðum kortum er hægt að nota þetta
tvennt saman til mikils hagræðis, en
ef kortið er vont getur komið upp
rugl sem erfítt er að henda reiður á.
Kort í 1:25000 og þaðan af stærri
kvörðum hafa verið gerð af tæplega
þriðja hluta landsins. (Sjá meðfylgj-
andi yfirlitskort). Par munar mest
um hlut Orkustofnunar, en auk
hennar hafa komið að þessari korta-
gerð: Landsvirkjun, Vegagerðin,
Landmælingar Islands, Veðurstofan
(Ofanflóðasjóður), Rannsóknastofn-
un landbúnaðarins og sveitarfélög.
Árið 1993 hófst á vegum Umhverf-
isráðuneytis svokallað „Tilrauna-
verkefni um stafræna kortagerð,
gróðurkort og landfræðileg upplýs-
ingakerfi“. Miklu var til kostað í
nefndastarfi fjölda fólks. I loka-
skýrslu stjórnar verkefnisins er lagt
á ráðin um hvernig hægt væri að
koma íslandi á kortið, í bókstafleg-
um skilningi, með því að gerð yrðu
kort af öllu landinu í mælikvarða
1:25000. Ekkert virtist vera því til
hindrunar að nú yrði landið kort-
lagt á vegum Umhverfisráðuneytis.
Spurningin virtist helzt um það hve
hratt yrði unnið, enda væru afköstin
auðvitað í samræmi við fjárveitingar
til verksins. En síðan hefur ekkert
gerzt. Það er eins og botninn hafi
gjörsamlega dottið úr verkefninu
þegar búið var að leggja á ráðin.
Síðastliðið haust var hér í heim-
sókn á vegum Lísu
(samtaka um landupp-
lýsingar á Islandi fyrir
alla) Martin Brand, for-
stjóri landmælinga
Norður-írlands og for-
maður evrópsku Lísu-
samtakanna. I máli
hans kom fram að
Norður-írland er allt
til í 1:2500 og þéttbýli í
1:1250. Við þurftum að
láta segja okkur það
tvisvar að ekki vantaði
eitt núll í þessar tölur!
Kvarðinn 1:2500 þýðir
nefnilega að eitt hund-
rað kort þarf í þeim
kvarða til að þekja
sama svæði og eitt kort
í 1:25000 gerir, en það var sá kvarði
sem tilraunaverkefnið fyrrnefnda
miðaðist við. En er þetta ekki eðli-
legt; þéttbýlt svæði í útlöndum en
strjálbýlið hér? Þetta má athuga
með því að bera saman tölur. Norð-
ur-írland er 6 sinnum fjölmennara
en Island en er ekki nema sjötti hluti
af flatarmáli þess. Sex sinnum sex
eru þrjátíu og sex, en grunnkort af
Norður-írlandi eru ekki 36 sinnum
þéttari en á Islandi, heldur 100 sinn-
um þéttari en það sem til stóð að
gera á Islandi, en ekkert hefur orðið
úr.
Martin Brand var inntur eftir
ástandinu handan landamæranna
það er í Irska lýðveldinu. Þar standa
mál ekki jafn vel vegna þess að þeg-
ar Irar tóku við þessum málum úr
höndum Breta við lýðveldisstofnun,
varð stöðnun í mai'ga áratugi. Til
voru ensk kort af landinu frá því
snemma á öldinni og það var talið
HANANtí - félag æsku-
fólks á eftirlaunum
Hananú-félagar við Gjábakka í Kópavogi.
RÓMVERSKI heimspekingurinn
og stjórnmálamaðurinn Marcús Túll-
íus Cíceró fjallaði um ellina í riti sem
kom út í Róm árið 44 fyrir Krist.
Hann sagði þar að þeim sem ekki
hafi tök á að áorka neinu sér til far-
sældar í lífinu, verði sérhvert aldurs-
skeið þungbært; „þeim, sem á hinn
bóginn leita lífsins gæða hið innra
með sér, verður ekkert það vand-
meðfarið sem lögmál lífsins hefur í
fór með sér. A það einkum við um
ellina sem allir þrá að höndla, en fár-
ast svo yfir þegar hennar verður
vart“.
Þegar við lesum orð þessa manns
sem var uppi fyrir tvö þúsund árum
verður manni á að spyrja; hvað hefur
áunnist? Er ekki æskudýrkunin jafn-
glórulaus og fordómarn'r gagnvart
öðrum en stöðluðum ímyndum jafn-
blindir og jafnvel blindari en
nokkurn tíma áður? Hvað elli og
öldrun varðar er það rétt. Svo langt
hefur æskudýrkun gengið að til að
hreppa vel launað starf þarf viðkom-
andi helst að vera tvítugur með
langa starfsreynslu og tíu ára há-
skólanám að baki. Ef um er að ræða
konu þarf þar helst að bætast við að
hún sé komin úr barneign.
Auðvitað sjá allir að slíkt dæmi
gengur ekki upp. Ellin ein ætti ekki
að þurfa að útiloka fólk frá störfum.
Hún gerir fólk að vísu oft þreklítið til
líkamlegs erfiðis en hún eykur jafn-
framt líkur á digrum sjóðum í banka
reynslunnar hjá þeim sem auðnast
að kemba hærur sínar, reynslu sem
stundum getur verið gulli betri.
Sumir halda jafnvel að ellin svipti
fólk lífsnautn. Það gerir hún nátt-
úrulega ekki, en hún getur breytt til-
finningu fym' því hvað sé nautn og
hvað ekki.
Mjúk lending
I Kópavoginum er starfandi fé-
lagsskapur fólks sem vill njóta lífs-
ins, njóta öldrunar og elli. Þessi fé-
lagsskapur æskufólks sem er á miðj-
um aldri og eldra, er eins óformlegur
og hugsast getur og markmið hans
felst í nafninu; HANANÚ. Hananú
hugmyndin var og er að njóta þessa
aldursskeiðs, lenda mjúklega á braut
ellinnar, njóta ferðarinnar þangað og
verunnar þai'.
Hananú vai' stofnað fyrir réttum
15 árum og er nú orðinn fyrirmynd
annarra líki-a félaga víða um land. Á
hverjum laugardagsmorgni í þessi
15 ár hafa félagsmenn fengið sér
heilsubótargöngu um bæinn. Við
hittumst í félagsmiðstöðinni Gjá-
bakka um níuleytið og er heilsað
með ilmi af nýlöguðu kaffi. Það hefur
ekki brugðist að Hrafn Sæmundsson
er búinn að hella uppá, en hann hef-
ur verið ásamt Ásdísi Skúladóttur
mikill prímusmotor í starfseminni
frá upphafi. Fólk fær sér sopa og
Tökum þátt í starfi
Hananú, segja Sigur-
björg Þorleifsdóttir og
Friðrik Helgi Stein-
dórsson, og verum ung
án tillits til ára.
ræðir saman þar til haldið er út og
gengið í u.þ.b. klukkustund. í öll
þessi ár hefur aldrei fallið úr laugai'-
dagur, gönguferðirnar hljóta því að
vera að nálgast áttunda hundraðið.
Engin skrá er haldin um félagsstarf-
ið og lífsgleðin höfð að leiðarljósi.
Gönguferðir eru aðeins hluti af
fjölþættri starfsemi okkai' Hananú-
fólks. Á hverjum vetri eru farnar
leikhúsferðh', listasöfn heimsótt, far-
ið á kráari'ölt, stiginn léttur dans
o.s.frv. Þá er starfandi bókmennta-
klúbbur, sem er öllum, eins og allt
annað starf Hananú, frjáls og öllum
opinn. Á hverjum vetri taka klúbbfé-
lagar fyrh' einhvern höfund, einn eða
fleiri, kryfja og ræða. Stundum
koma skáld í heimsókn og að vori er
gjarnan farið í vettvangsferð til átt-
haga skáldsins og á söguslóðir. I
fyrravetur var augum beint að fær-
eyskum skáldum, og í kjölfarið var
farin ferð til Færeyja. Svo vel tókst
til að þar fæddist sú hugmynd að
stofna „Heimsklúbb Hananú". Um
þessar mundh' er Heimsklúbburinn í
óða önn að undirbúa ferð til Mið-
Evrópu, til þess lands sem íbúar
kenna við akur - Póllands.
Þessi grein er skrifuð til þess að
minna á afmæli Hananú og hvetja
sem flesta til að taka þátt í starfi
þessa merka félags og eða taka það
sér til eftirbreytni. Því þótt sömu
fordómarnir virðist lifa og fyrir
2042 árum síðan, þegar Císeró rit-
aði bókina góðu um ellina, er engin
ástæða til þess að sníða sér sjálfum
lífsstakk eftir annarra manna hé-
giljum. I stað þess að setjast við
gluggann að loknum stai'fsdegi og
bíða, höldum við á vit ævintýra und-
ir mottóinu: „Við erum ung án tillits
til ára.“
Höfundnr starfa með Hanamí í
Kópavogi.
nægja. Nú hefur hins vegar verið
tekið á í þessum efnum og verið að
vinna sig út úr stöðnuninni.
Þróunarlönd hafa mörg hver verið
illa stödd á sviði grunnkortamála, en
þar hefur smám saman orðið mikil
breyting á, og á þróunaraðstoð að
Brýn þörf er fyrir ná-
kvæm grunnkort af
landinu. Skúli Víkings-
son og Helgi Torfason
segja moldarkofahugs-
unarhátt stjórnvalda
í þessum efnum þjóð-
inni til vanza.
sjálfsögðu þar drjúgan þátt. Mörg
þróunarlönd taka Islandi langt fram
og ekki víst að auðvelt verði að finna
land þar sem ástandið er lakara en
hér ef leitað yrði.
I fyrrum Sovétlýðveldum var
ástand grunnkortamála með ýmsum
hætti. Við stöðnunina bættist sá al-
menni löstur, sem því kerfi fylgdi, að
upplýsingum þurfti að halda leynd-
um. Þetta olli alls kyns rugli á kort-
um. Islenzkt fyrirtæki á sviði korta-
gerðar, Hnit hf., hefur haft útibú í
Litháen frá því að landið endur-
heimti sjálfstæði sitt. Þegar þeir
komu þai' fyi'st var ástandið ekki
betra en hér og að sumu leyti verra.
Nú eru Litháar komnir langt fram
úr Islendingum á þessu sviði.
Góð kort af landi eru meðal grund-
vallarverkefna ríkisvalds í hverju
landi. Það er umhugsunarefni hvers
vegna þessi hundingjaháttur er á
þessum málum hér á landi. E.t.v. má
einhvern lærdóm af því draga hve
líkt var með nágrannalýðveldunum
íslandi og írlandi (þangað til Irar
tóku sig á). Báðar þessar þjóðir
komu úr algjöru fásinni að þvi að
stýra öllu þvi sem heilu þjóðfélagi
heyrir. Konungsveldin sem réðu fyn'
(hið danska og enska) byggðu á gam-
alli hefð og grónum stofnunum. Hér
var engu slíku til að dreifa og þótt
ýmsir einstaklingar hefðu þekkingu
á efninu, verður slíkt oft að litlu ef
stofnanirnar, vettvanginn, vantar.
Þetta eru afsakanir sem giltu full-
komlega fyrir íslenzk stjórnvöld á
sínum tíma, en ekki lengur. Moldar-
kofahugsunarháttur stjórnvalda í
þessum efnum er þjóðinni til vanza.
Það er með ólíkindum að við þess-
ar aðstæður skuli ráðheiTa detta í
hug að fara að flytja Landmælingar
íslands upp á Akranes. Það væri
reyndar verðugt verkefni fyrir rann-
sóknarblaðamenn þjóðarinnar að
kanna það hvaða ástæður liggja að
baki þessum flutningsáformum.
Hver sem ástæðan kann að vera er
hún ekki umhyggja fyrir þeim nauð-
synlegu verkum sem Landmælingar
Island þyrftu að sinna. Það er ljóst
að fæstir hinna reyndu starfsmanna
stofnunarinnai' munu starfa þar
áfram eftir flutning, og kostnaður
við flutningana mun varla auka ráð-
stöfunarfé hennar. Báðir þessir
þættir benda því til, að afturför verði
í landmælingum og kortagerð hér á
landi, í stað þeirra framfara sem
blöstu við þegar framangreindu til-
raunaverkefni lauk fyrir fáum árum.
Farið er fram á, að umhverfisráð-
herra geri opinberlega grein fyrir
áætlunum ráðuneytisins varðandi
framhald þessa starfs.
Höfundar eru jarðfræðingar á
Orkustofnun.
Primordiale
N U I T
NÆTURVÖRÐUR HÚÐARINNAR
Primordiale Nuit næturkremið frá LANCOME
inniheldur A vítamín. Strax frá fyrstu notkun
verður húðin hvíldari, mýkri og endurnærð.
Snyrtibudda með 4 förðunarvörum fylgir
50 ml Primordiale dag- og næturkremum
Vor- og sumarlitimir eru komnir og
er blöndun þeirra töfrum líkust!
Fjöldi spennandi tilboða og kaupauka.
Kynning í dag og á morgun.
Bankastræti 8, sími 551 3140