Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Frestun grásleppu-
vertíðar hafnað
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
hefur hafnað beiðni Landssam-
bands smábátaeigenda um að fresta
grásleppuvertíðinni um tíu daga
meðan markaðs- og sölumál skýrð-
ust, en vegna offramboðs og verð-
falls á mörkuðum í fyrra óttast smá-
bátaeigendur að grásleppuveiðar
geti verið í hættu ef ekki komi til
mun minni veiði, auk þeirra þrjátíu
prósenta verðlækkunar sem þegar
hefur verið ákveðin. Vertíðin á að
hefjast 20. þessa mánaðar, en nú er
allt í óvissu og Om Pálsson hjá LS
sagði í samtali við Morgunblaðið að
sambandið hefði hvatt félagsmenn
sína til að hefja ekki veiðar fyrr en
mál skýrðust.
Sala gengur vel
Sölumálin voru í góðum farvegi
framan af síðustu vertíð og mjög
hátt verð fékkst, en síðan fór að
bera á offramboði, einkum þegar
fiskimenn á Nýfundnalandi hófu
veiðar sínar og buðu lægra verð.
„Þetta var tíu þúsund tunnum meiri
veiði heldur en þörf var á og við lít-
um svo á að til þess að fá vit í þetta
á ný þá verðum við að draga úr
framboði. En þetta stendur allt fast
í bili og vertíðin alveg að bresta á,“
bætti Orn við.
Heildarsöluverðmæti grásleppu-
afurða á síðasta ári nam 1,1 millj-
arði króna, þar af voru 315 milljónir
fyrir söltuð hrogn en afgangurinn
fyrir fullunna vöru. „Þetta eru því
umtalsverðir hagsmunir. Heildar-
framleiðslan á íslandi í fyrra nam
13.300 tunnum, en við verðum að
koma þeirri tölu í 8-9.000 tunnur.
Þetta er viðkvæm grein, aðeins fjór-
ar þjóðir sem veiða grásleppu. Ver-
tíðin hjá Dönum er hálfnuð nú og
veiðin hefur verið mjög lítil. Norð-
menn byrja um líkt leyti og við, en
þar er reiknað með því að menn
sæki frekar í þorskinn sem gefur
hærra verð. Við Nýfundnaland
hefst vertíðin ekki fyrr en í lok apr-
íl,“ bætti Öm við.
Morgunblaðið/Ólafur Jens
ALLT frá því í haust hafa formerkin í landvinnslunni verið mun betri en undanfarin ár.
í
s
I
í
i
t
TÖLVUMIÐSTÖÐ HEIMILISINS
Tölvumiðstöðin er á hjólum með útdraganlegri plötu fyrir
lyklaborð og mús. Hún er rúmgóð hirsla þar sem vel fer
um öll helstu tæki og fylgihluti tölvuheimsins.
Ármúla 20. 108 Reykjavík. Sími 533 5900. Fax 533 5901
Stærð
lengd 80 sm
dýpt 50 sm
hæð 80,5 sm
Tölvumiðstöðin er fáanleg
í Beyki og Kirsuberjavið
Vandaoir
skrifstofustólar
af ýmsum
gerðum
EG Skrifstofubúnaður ehf.
200Mhz
15 tommu skjár
32 MB EDO minni
2.1 GB harður diskur
2 MB skjákort
24 hraða geisladrif
16 bita hljóðkort
Win '95 lyklaborð .
Mús ofl. A
Mikil hækkun hefur orðið á afurðaverði á Evrópumarkaði
30% hækkun á sjófrystum
þorskflökum í Evrópu
AFURÐAVERÐ þorsks, ýsu og
ufsa hefur að meðaltali hækkað um
20-30% á Evrópumarkaði á síðustu
sex mánuðum. Þar af hefur mest
hækkun orðið á sjófrystum þorsk-
flökum. Karfaflök hafa hækkað í
verði um 5-13% á sama tíma. Á
undanfómu hálfu ári hefur orðið
vart mestrar hækkunar frá ára-
mótum og hafa febrúar og mars er-
ið sérstaklega sterkir mánuðir fyr-
ir land- og sjófrystar flakaafurðir,
að sögn Kristjáns Hjaltasonar,
framkvæmdastjóra markaðsdeild-
ar Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna hf.
Að sögn Kristjáns má rekja
þessar hækkanir til skorts á mörk-
uðum vegna lítillar veiði Norð-
manna og Rússa í Barentshafi.
„Eftirspurnin er mest á þessum
Ovíst er hvað ger-
ist á mörkuðum
eftir páska
árstíma, á fóstunni fyrir páskana.
Hins vegar er óljóst hvernig
ástandið verður eftir páska. Veiðar
eru nú hafnar í Barentshafi á ný og
við eigum alveg eins von á því að
eftirspumin gefí eftir þar sem lík-
legt er að það verði meira framboð
á mörkuðunum eftir páska.“
Viss leiðrétting
Það er einkum tvennt, sem
bendir til þess að eftirspurnin gefí
eftir, að sögn Kristjáns, annars
vegar að föstunni lýkur sem er
mjög mikilvægur tími í fisksölu og
hins vegar að veiði er byrjuð í
Barentshafi.
„Þetta er geysilega mikil hækk-
un á svo skömmum tíma, en við
megum ekki gleyma því að verðið
var orðið nokkuð lágt eftir að það
byrjaði að fara niður á við árið 1991
þannig að það má líta á þessa verð-
hækkun nú sem vissa leiðréttingu
á því.“
Jafnhliða verðhækkunum hefur
sala aukist nokkuð í þessum teg-
undum, sérstaklega hefur þorsk-
sala til Evrópu verið mjög sterk
það sem af er árinu. „Sjófrysting
þorsks jókst í fyrra þannig að það
hefur verið mjög gott framboð af
honum og í landfrystingu hefur
framleiðslan sömuleiðis aukist það
sem af er þessu ári.“
Dreifðari áhætta
Kristján segir að þessari þróun
nú svipi mjög til ársins 1991 þegar
afurðaverðið hækkaði mikið með
þeim afleiðingum að erlendir
kaupendur sneru sér í auknum
mæli að alaskaufsa og öðrum hvít-
fiski. „Sömuleiðis skapaði samein-
ing þýsku ríkjanna 1990 mjög
mikla eftirspurn á því svæði árið
1991, en síðan þegar sameining-
unni var lokið og fólk var búið að
eyða sparifénu sínu, minnkaði
heildareftirspurnin eftir fiski auk
þess sem neytendur fóru að snúa
sér að kjúklingum og öðru kjöt-
meti.“
Kristján telur líklegt að eftir-
spurnin eftir fiski frá Islandi muni
ekki minnka nú í kjölfar hærra
verðs þar sem framboð af alaska-
afsa og öðrum hvítfiski hafí farið
minnkandi í heiminum auk þess
sem sölunni hafi verið dreift á fleiri
markaði.
„Þetta hefur verið nokkuð sterk-
ur! tími frá áramótum sem hjálpað
hefur bæði landvinnslunni og sjó-
frystingunni. Allt frá því í haust
hafa formerkin í landvinnslunni
verið mun betri en undanfarin ár.
Mestu skiptir aukin þorskveiði og
meiri gæði sem þýðir dýrari
pakkningar.“
Kristján segir að þróunin sé mun
stöðugri á Ameríkumarkaði og of
snemmt sé að segja til um hvað
muni gerast á þeim markaði varð-
andi þessa þróun. Enn sem komið
er, er ekki farið að gæta neinna
umtalsverðra hækkana á sjávaraf-
urðum á Bandaríkjamarkaði frá
því sem verið hefur.
Aðalfundur
íslandsbanka hf.
Aðalfundur fslandsbanka hf. 1998 verður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu mánudaginn 23. mars 1998
og hefst kl. 14:00.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein
samþykkta bankans.
2. Tillaga um heimild til bankaráðs til kaupa á
hlutabréfum í íslandsbanka hf.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í
íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð,
19. og 20. mars frá kl. 9:15 - 16:00 og á fundardegi
frá kl. 9:15 - 12:00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja
aðgöngumiða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 12:00
á hádegi fundardags.
10. mars 1998
Bankaráð íslandsbanka hf.
ÍSLANDSBANKI
L
L
I
i:
L
I
L
l
I
t
I
8
L