Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Ranariddh
dæmdur
í 30 ára
fangelsi
DÓMSTÓLL í Kambódíu
dæmdi í gær Norodom Rana-
riddh prins í 30 ára fangelsi
fyrir að hafa lagt á ráðin um
valdarán með uppreisnar-
hreyfingu Rauðu khmeranna
og skipaði honum að greiða
andvirði rúmra 3,6 milljarða
króna í skaðabætur. Rana-
riddh hefur verið í útlegð frá
því honum var steypt af stóli
forsætisráðherra í júlí.
Búist hafði verið við því að
prinsinn yrði dæmdur í fang-
elsi og samkvæmt friðarsam-
komulagi, sem Japanir höfðu
milligöngu um, á faðir hans,
Norodom Sihanouk konungur,
að veita honum sakaruppgjöf.
Búist er við að Hun Sen, ann-
ar forsætisráðherra, sem
steypti prinsinum, samþykki
sakaruppgjöfína. Óljóst er þó
hvort hún nær til sektardóms-
ins, sem gæti komið í veg fyrir
að prinsinn sneri aftur til
heimalandsins.
Loftsteinn
boðinn upp
STARFSMAÐUR uppboðs-
fyrirtækisins Christie’s í
London heldur á loftsteini
sem ráðgert er að bjóða upp
í næsta mánuði. Steinninn er
13 sentímetra breiður og bú-
ist er við að hann verði seld-
ur fyrir 10.-12.000 pund,
andvirði 1,2-1,4 milljóna
króna.
Papon
„kaldrifjaður
skriffínni“
MARC Robert, einn sak-
sóknaranna í stríðsglæpamáli
Maurice Papons í Frakídandi,
lýsti sakborningnum í .gær
sem „kaldrifjuðum skriffinna",
sem hefði ekki vflað fyrir sér
að íyrirskipa handtöku 1.560
gyðinga, þeirra á meðal 223
bama, og láta flytja þá til
Þýskalands til að fullnægja
framagimd sinni. „Maurice
Papon vildi komast til æðstu
metorða sem fyrst, hvað sem
það kostaði," sagði Robert.
Réttarhöldin hafa staðið í
tæpt hálft ár og málflutningi
saksóknaranna lýkur í dag.
Sjómanna
leitað
TVÆR flugvélar og tugur
skipa leituðu í gær að tíu sjó-
mönnum sem saknað er eftir
að spænskur fískibátur sökk
undan strönd Marokkó. Fimm
bátsveijum var bjargað um
borð í annan bát.
Reuters
Mótmæla niðurskurðar
áformum ESB
ÓLÍFURÆKTENDUR frá Suður-
Spáni halda á lofti eftírlíkingu
beinagrindar, skreyttri mynd af
Franz Fischler, landbúnaðarstjóra
Evrópusambandsins (ESB), f mót-
mælagöngu fyrir framan landbún-
aðarráðuneytið í Madríd í gær.
Spánverjar framleiða um helming
allrar ólífuolfu í heiminum, en ef
tillögur framkvæmdastjórnar ESB
um breytingar á styrkjakerfi land-
búnaðarins í ESB ná fram að
ganga myndu þeir neyðast til að
takmarka framleiðsluna við
600.000 tonn á ári.
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnarinnar, kynnti á
blaðamannafundi í Brussel í gær
þessar tillögur, sem eru hluti af
stórri áætlun um uppstokkun á
landbúnaðar- og styrkjakerfí sam-
bandsins. Þessi uppstokkun þykir
nauðsynleg i ljósi tilvonandi
stækkunar ESB til austurs, en
hugmyndin á bak við hana er ekki
siður að færa landbúnað ESB
meira í átt að sjálfbærum mark-
aðsbúskap. Landbúnaðarráðherr-
ar núverandi fimmtán aðildarríkja
eiga eftír að ræða tillögurnar og
því óvíst hver endanleg útkoma
verður.
Þingið í Kína
Róttæk upp-
stokkun á rík-
isstjórninni
Peking. Reuters.
DAGINN eftir að umbótasinninn
Zhu Rongji var kjörinn forsætis-
ráðherra Kína samþykkti kín-
verska þingið í gær nýja ríkis-
stjórn sem vonir eru bundnar við
að muni gera hinum nýja forsætis-
ráðherra kleift að hrinda víðtæk-
um efnahagsumbótum í fram-
kvæmd, með það fyrir
augum að gera Kína að
stórveldi 21. aldarinn-
ar.
Þetta eru mestu
breytingar á ríkis-
stjóm landsins sem
kínverski kommúnista-
flokkurinn hefur
nokkru sinni áður ráð-
ist í. Yfir þau ráðuneyti
sem skipta mestu fyrir
stjóm efnahagsins
voru skipaðir menn
með staðgóða reynslu
af stjórnun og lögmál-
um markaðsbúskapar,
í stfl við hinn nýja for-
sætisráðherra. Sam-
tals vora skipaðir 29
ráðherrar, þar af 22
sem ekki áttu þar sæti áður, allt
tiltölulega ungir og vel menntaðir
menn.
Byggja upp nýtt iðnaðar-
og fjármálakerfi
Ráðherravalið, sem stjóm
kommúnistaflokksins ákvað löngu
áður en hin nýja ríkisstjórn var
kjörin, þykir endurspegla þá miklu
áherzlu sem kínversk stjórnvöld
vilja leggja á viðleitni tO að byggja
upp og styrkja nýtt iðnaðar- og
fjármálakerfi sem hafi bolmagn til
að hrista af sér áhrif efnahags-
kreppunnar sem hefur riðið yfir
Austur-Asíu undanfarið og sé fær
um að stýra Kína inn á braut vel-
megunar og aukinna áhrifa á al-
þjóðavettvangi, sem byggist á
efnahagslegum mætti hins fjöl-
menna ríkis. Allir nýju ráðherr-
arnir fengu staðfest-
ingu þingsins mótat-
kvæðalaust.
Aður hafði þingið
samþykkt áform Zhus
um mikla fækkun
ráðuneyta. Alls voru
15 ráðuneyti lögð nið-
ur en fjögur ný búin
tO í staðinn; þar með
var ráðuneytunum
fækkað úr 40 í 29.
Ekki búizt við
breytingum á utan-
ríkisstefnunni
Stjómmálaskýrend-
ur sögðust ekki búast
við neinum meiri hátt-
ar breytingum á
stefnu Kína í utanrík-
is- og vamarmálum.
Tang Jiaxuan, sem á farsælan
feril í utanríkisþjónustunni að
baki og er sérfræðingur í tengsl-
um Kína við Japan, tekur við emb-
ætti utanríkisráðherra. En fyrir-
rennari hans, Qian Qichen, aðal-
hvatamaðurinn að baki þeirrar
stefnu að bæta samskipti Kína við
Bandaríkin, er talinn líklegur til
að halda veralegum áhrifum í mót-
un utanríkismálastefnunnar með
því að halda stöðu varaforsætis-
ráðherra.
Tang Jiaxuan, nýr
utanríkisráðherra
Kína.
Þjóðernissinnaðir hindúar mynda stjórn á Indlandi
Norður-Irland
Segja smíði kjarna-
vopna koma til greina
Nýju Delhí. Reutcrs.
FLOKKUR þjóðemissinnaðra
hindúa á Indlandi, Bharatiya
Janata (BJP), og tólf aðrir flokkar
kynntu í gær stefnu nýrrar minni-
hlutastjómar, sem á að taka við
völdunum í dag. Flokkamir sögð-
ust vilja stuðla að friðsamlegum
samskiptum við öll nágrannaríkin
ef þau sýndu sama friðarvilja. Þeir
sögðu að nýja stjórnin myndi
leggja megináherslu á að tryggja
öryggi landsins og því kæmi til
greina að Indverjar framleiddu
kjamavopn.
Atal Behari Vajpayee, sem sver
embættiseið forsætisráðherra í
dag, kynnti stefnu flokkanna og
sagði að þeir legðu áherslu á að
Indverjar létu meira tfl sín taka á
alþjóðavettvangi í samræmi við
stærð og mikilvægi landsins.
„Við ætlum að halda öllum kost-
um opnum, m.a. hugsanlegri smíði
kjamavopna, til að vemda öryggi
og sjálfstæði þjóðarinnar," sagði
Vajpayee og bætti við að ekki hefði
verið ákveðið hvenær Indverjar
kynnu að hefja framleiðslu kjama-
vopna.
Indverjar sprengdu kjamorku-
sprengju neðanjarðar árið 1974 en
hafa sagt að þeir hyggist aðeins
beita kjamorkunni í friðsamlegum
tilgangi. Vestrænir sérfræðingar
hafa hins vegar sagt
að Indverjar eigi nú
þegar kjarnavopn eða
geti smíðað þau á
skömmum tíma.
Pakistanar sakaðir
um hryðjuverk
Vajpayee er talinn
á meðal hófsömustu
forystumanna
Bharatiya Janata og
hefur reynt að draga
úr spennu milli
hindúa og múslima í
landinu. Ymis atriði,
sem voru í kosninga-
stefnuskrá flokksins,
era ekki í stefnuyfir-
lýsingu stjórnarinnar.
Þar er t.a.m. ekkert
minnst á kröfu her-
skárra stuðnings-
manna flokksins um að reist verði
hof í Ayodhya í Uttar Pradesh-ríki.
Fyrir tæpum sex árum rifu stuðn-
ingsmenn BJP niður mosku í
Ayodhya, sem þeir telja fæðingar-
stað hindúaguðsins Rama, og það
olli átökum milli hindúa og
múslima sem kostuðu 3.000 manns
lífið.
Indverska utanríkisráðuneytið
gagnrýndi stjórnvöld í Pakistan
harkalega í gær og sak-
aði þau um að hafa
staðið fyrir hermdar-
verkum á Indlandi.
Ráðuneytið sagði að
hermdarverkamenn
hefðu sótt í sig veðrið í
landinu eftir þingkosn-
ingamar, einkum í
Jammu og Kasmír.
I vikunni sem leið
sakaði stjómin í
Pakistan Indverja um
að hafa staðið fyrir
þrettán sprengjutil-
ræðum í landinu á jafn
mörgum vikum sem
hefðu kostað 36 manns
lífið. Indverska utan-
rfldsráðuneytið neitaði
þessu og sagði að
Pakistanar hefðu aukið
stuðning sinn við
hermdarverkamenn í Jammu og
Kasmír. Ráðuneytið kvaðst hafa
sannanir íyrir því að leyniþjónusta
Pakistans væri viðriðin mörg
sprengjutilræði á Indlandi á síð-
ustu áram.
Um það bil tugur hreyfinga hef-
ur barist fyrir því að Kasmír verði
sjálfstætt ríld eða sameinist
Pakistan. Talið er að átökin hafi
kostað 25.000 manns lífið.
Reutcrs
Atal Behari Vajpa-
yee, sem sver emb-
ættiseið forsætis-
ráðherra Indlands
ídag.
Clinton seg-
ir að nú gef-
ist „einstakt
tækifæri“
Washington. Reuters.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hvatti á þriðjudagskvöld
leiðtoga deiluaðila á írlandi tO þess
að grípa „einstakt tækifæri" til að
komast að sátt um frið á Norður-
íriandi. Clinton átti fund með
Bertie Ahem, forsætisráðherra Ir-
lands, og fjölda fulltrúa frá mót-
mælendum og kaþólikkum sem
taka þátt í friðarviðræðunum er
standa yfir í Belfast.
Á þriðjudag var haldinn hátíð-
legur í Bandaríkjunum og víðar
dagur heilags Patreks, verndar-
dýrlings írlands, og af því tilefni
bauð Clinton tO samkomu í Hvíta
húsinu á þriðjudagskvöld. Vora
þar saman komnir fulltrúar
margra fylkinga deiluaðila og
sagði Clinton þetta „sögulega
stund“ sem nota yrði til að ná sátt-
um.
Friðarviðræðumar í Belfast era
haldnar að undirlagi írskra og
breskra stjórnvalda og hófust í
september sl. Er þess vænst að
um páskana liggi fyrir drög að
samkomulagi sem binda muni
enda á þriggja áratuga mannskæð-
ar deOur á Norður-írlandi sem
kostað hafa rúmlega 3.200 manns-
líf.