Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 74
74 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Frá A til Ö: Hvað er að gerast? Hverjir voru hvar? Hvað er í boði - á skemmtistöðum?
Púkar leika
lausum hala
Dubliner var grænn eins og knattspyrnu-
völlur á Patreksdag og gestirnir gáfu fót-
boltabullunum ekkert eftir. Pétur Blöndal
heilsaði upp á heilagan Patrek og sá græna
púka í hverju horni á höfuðkrá Ira.
STEMMNINGIN á írsku kránni
Dubliner sl. þriðjudagskvöld var
grænni en á uppskeruhátíð fram-
sóknarflokksins. Og það var húsfyll-
ir! Enda tilefnið ekki af verri endan-
um. Velunnarar staðarins frá öllum
heimshomum héldu Patreksdag há-
tíðlegan, - keyrðir áfram af fjörkálf-
unum í Pöpunum, Ceol Chun 01 og
Hálfköflóttum.
Grænir álfar sprikluðu í hverju
homi og grænir púkar ærsluðust í
sálarkynnum kráargesta. Dansað
var við siðspillandi og fjörmikla tón-
list djöfulsins á borðum og bekkjum
og hangið í bitum þegar fór að rjúka
úr gólfinu.
Blaðamaður þurfti ekki að bíða
lengi eftir sæti áður en hann komst
að raun um að gestirnir voru undar-
lega innstilltir, þ.e. ef mælistiku ís-
lenskrar skemmtanaflóru er beitt.
Raunar voru þeir allt öðruvísi en
hann á að venjast af skemmtistöð-
um og krám höfuðborgarinnar.
Fyrir það íyrsta lögðu þeir ekld
mildð upp úr klæðaburði. Nema ef
vera skyldi að snobbað væri niður á
við. Eða út fyrir landsteinana, - þá
ekki til Parísar heldur írlands. Svo
urðu þeir að teljast afar nægjusamir.
Létu sumir sér vel lynda að sitja í út-
jaðri mannþröngarinnar eða í af-
skekktum herbergjum og klappa
saman lófum í takt við tónlistina, - án
þess að mæla orð af vörum. Eins og á
góðum landsleik I knattspymu. Svona
seiðandi getur írska tónlistin verið.
, Bragð&terk nýjung fjyrir sœlkera".
Ferskur kjúkungur Piri piri er kryddaður
bragðsterkri kryddblöndu fró Portúgal.
^otdsjö málning umhverfisvæt'
í hæsta gæðaflokki.
I"\T| Nordsjö aftur fyrstir
Öll Bindoplast málning
Nordsjö frá Nordsjö hefur fengið
umhverfisstimpil EBS
.* * *
Samtök asma- og * *
ofnæmissjúklinga l c *
í Svíþjóð mæla með V * . * *
Bindoplast málningu. ^ * *
Er þessi stimpill á
málningadósinni þinni
Útsölustaðir:
Málarameistarinn, Slðumúla 8,
Rvlk. s: 568 9045
Ó.M. búðin, Grensásvegi 14,
Rvik, S: 5681190
Lækjarkot, Lækjargötu 32,
Hf. s: 555 0449
B.G Bílakringlan, Keflavik s: 4214242
V.G. Búðin, Selfossí s: 482 3233
Málninbgabúðin, Akraness: 4312457
Haukur Guðjónsson, málarameistari,
Grindavík s: 897 6309
Það var ekki aðeins djöfulgangur
á dansgólfinu heldur tóku gestirnir
upp á ýmiskonar sérvisku í ofaná-
lag. Eins og þegar tvö heljarmenni í
skeggvexti lögðu hendur á axlir
hvors annars og létu alla gesti sem
þurftu að komast leiðar sinnar
skríða á hnjánum undir handgerð
göngin. ,AUir á hnéin - það er hefð
fyrir því!“ hrópuðu þeir upp á enska
tungu; greinilega ættaðir frá ætt-
jörð hefðarinnar, Bretlandi, eins og
svo margir kráargestir.
Meira að segja helmingur bar-
þjónanna er frá Bretlandi og talar
aðeins takmarkaða íslensku. „Þeir
hringja hingað og vilja fá vinnu,“
segir Jóhann Hjálmarsson, eigandi
staðarins. „Það eru írskir barir um
allan heim og þeim finnst gaman að
ferðast og skoða nýja staði.“
Fólkið sem sækir Dubliner segir
hann vera að megninu til frá þrí-
tugu upp í fimmtugt og að svo slæð-
ist inn yngra og eldra fólk. í miðri
viku sitji það yfir drykk, spjalli og
hlusti á þægilega tónlist. En um
helgar mætir danshjörðin með til-
heyrandi gný „og þá hefst fjörið,"
segir Jóhann að lokum.
SANDRA og Janie frá Glasgow
tóku þátt í gleðinni.
ANDY og Lisa ofan af velli tóku
vel undir í söngnum.
Davina er fyrir
Úrval af Davina vörum fæst hjá Heilsuhorni
Hagkaups, Kringlunni, og Fjarðarkaupum.
DUBLINER
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
JÓHANN Jakobsson og J C Adam sem var vel grænn í framan.
TAART, Teroen og Jop eru sjónvarpsmenn frá Hollandi sem voru að
gera heimildarmynd um stórmeistarann Jan Timman og fjölluðu örlít-
ið um næturlífið í Reykjavfk í leiðinni.
Fríða Rún Þórðardóttir næringarráðgjafi
kynnir og gefur ráðleggingar
varðandi Davina fæðubótarefnin
í Fjaröarkaupum
föstudaginn 20. mars
kl. 14-18.
GEORG og Ninna dönsuðu sig
inní nóttina.
DARREN Brock dælir bjórnum
í glösin.
í HAFNARSTRÆTI
►Hátíðarhöldin vegna Patreks-
dags stóðu yfir alla helgina með
alls kyns uppákomum. Mesta fjörið
var þó síðastliðið þriðjudagskvöld.
►Dökkur Guinness-bjór er eitt af
helstu sérkennum írskra kráa
ásamt söngnum og langborðunum.
Dubliner státar af öllu þessu. Því
má treysta að lagið „I’ve Been a
Wild Rover“ eða „Þá stundi Mundi
...“ er sungið hástöfum.
►Verðið á stórum Guinness (hálf-
um lítra) er 550 kr. og litlum Gu-
inness (0,33 ml) 350 kr.
►Aðrir kranabjórar eru Tuborg,
Kilkenny og Egils Gull. Þá er verð-
ið á stórum bjór 500 kr. og litlum
bjór 300 kr.
►Einnig eru 6 til 8 tegundir í boði
af flöskubjór í boði, þ.á m. Craic og
Finians, og kosta þeir 450 kr.
►Alla daga eru tilboð í gangi, t.d.
ókeypis snafs með bjór eða tveir
fyrir einn.
►Boðið er upp á írskan kráarmat
og er hann breytilegur frá degi til
dags, allt frá eggjaböku yfir í soðið
lambakjöt og pottrétti. Verðið er
frá 350 til 800 kr. Súpa kostar 300
kr. með nýbökuðu brauðu.
GRÆNIR og glaðir Papar.
• íþróttafólk
• Vaxtarræktarfólk
• Þá sem vilja ná upp þreki,
t.d. eftir veikindi
• Þá sem vilja grenna sig
• Þá sem vilja ná árangri
y:iT8W;
»sssSf
/I ■■'-ZZST'#?