Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 60
*
60 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Will Harrison
Kári Perry fædd-
ist 7. mars 1926 i Los
Angeles í Kaliforníu.
Hann andaðist 10.
mars 1998 í Sjúkra-
húsi Reykjavíkur og
fór útför hans fram
frá Garðakirkju á
Álftanesi 18. mars.
Ég kynntist Will
Perry vel síðasta eina
og hálfa árið, þegar við
sátum báðir í stjórn
Fulbright stofnunarinn-
ar. Will var það mikið
kappsmál að rækta sambandið milli
Islands og Bandaríkjanna. Með
starfi sínu fyrir Fulbright stofnun-
ina, meðal annars sem formaður
stjómar árin 1996-1997, stuðlaði
WUl að auknum skilningi og nánari
tengslum milli landanna tveggja.
Hann leitaðist við að veita ungu fólki
dagsins í dag tækifæri, vitandi að
þetta unga fólk verður leiðtogar
morgundagsins.
Við sem vorum samstarfsmenn og
vinir WUls erum heppin að hafa átt
tíma með þessum heillandi manni. Á
meðan hann barðist við sjúkdóm
sinn hélt hann enn kímnigáfú sinni
og spaugaði, eins og við Bandaríkja-
menn gerum stundum, með það að
það eina sem verður ekki umflúið er
„dauðinn og skattarnir", og sagði
mér að hann væri ákveðinn í að
halda áfram að borga skattana sína.
WUl naut lífsins og lifði því til hins
ýtrasta. Hann leitaði uppi vitsmuna-
leg viðfangsefni og var mjög
námfús. Hann var góður borgari
sem var annt um meðbræður sína.
Pegar við nú minnumst hans erum
við þakklát fyrir starf hans, vináttu
og ást hans á Bandaríkjunum og ís-
landi. Ég votta Huldu eiginkonu
hans og eftirlifandi fjölskyldu samúð
mína.
Michael A. Hammer stjórnar-
maður í Fulbright og ræðismað-
ur Bandaríkjanna.
í dag kveðjum við einstakan mann
sem við systumar kynntumst sem
böm. Þessi maður hét Will H.K.
Perry, en við kölluðum hann ávallt
Perry. Hann var kvæntur frænku
okkar, Huldu Óskarsdóttur.
Við vomm mjög lánsamar að fá að
heimsækja þau hjónin tvisvar sinn-
um til Kaliforníu og voru það
ógleymanlegar ferðir. Perry hafði
alltaf tima til að tala við okkur og
var alveg einstaklega barngóður.
Hann kom aldrei fram við okkur
eins og börn heldur af virðingu og
sem jafningi, þrátt fyrir
aldursmun. Samskiptin
gengu furðuvel þrátt
íyrir að íslenska og
enska vom notuð til
skiptis. Þetta breyttist
með aldrinum, þá fóra
samskiptin eingöngu
fram á ensku.
Perry vildi sýna okk-
ur sem mest meðan við
dvöldum þar.
Við keyrðum til San
Francisco og yfir hina
frægu brú Golden Gate,
sigldum að Aleatraz-
fangelsinu, fórum niður
krókóttustu götu í heimi og fórum í
togbrautarvagna sem em einkenni
fyrir San Francisco-borg. Ekki síður
vom ferðir okkar með þeim hjónum
eftirminnilegar þegar við heimsóttum
Disney World í Los Angeles og Uni-
versal-kvikmyndaverið í Hollywood.
Allt þetta var mikil upplifun.
Perry og Hulda fluttu til íslands
árið 1982. Þá urðu ferðir okkar til
þeirra hjóna fleiri, því ávallt var gott
að koma á heimili þeirra.
Á seinni ámm höfum við oft rifjað
upp þessar ógleymanlegu ferðir til
Kalifomíu.
Perry var fróður maður og hafði
ferðast mikið. Umræðuefnin gátu
verið óteljandi; hvort sem það var
jarðfræði, bókmenntir eða stjómmál
heilluðumst við systumar ávallt af
frásagnargleði hans. Perry var þeim
hæfileikum gæddur að sjá alltaf það
jákvæða í fari fólks. Hann var ávallt
léttur í lund og stutt í glettnina sem
fylgdi honum alla tíð. Kom það glöggt
í ljós þegar hann barðist hetjulegri
baráttu við erfiðan sjúkdóm.
Við þökkum fyrir að hafa fengið
að kynnast slíku ljúfmenni sem
Perry var. Þau hjónin hafa ætíð
reynst okkur systranum vel, sem
væmm við þeirra eigin bamabörn.
Við sendum Huldu og öðmm ást-
vinum okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Megi góður Guð styrkja ykkur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt
(V. Briem.)
Hulda og Inga Óskarsdætur.
Það era komin 25 ár síðan móðir
mín kynnti mig fyrir Will Perry. Ég
heilsaði honum kurteislega, en ég
ætlaði ekki að vera of vingjamleg
við þennan útlending. Hann var
hins vegar hlýr og vingjarnlegm- við
þessi fyrstu kynni okkar. Seinna
átti ég eftir að finna að þarna var
albesti maður sem ég hef þekkt.
Perry, eins og við kölluðum hann
alltaf, og mamma bjuggu í
Bandaríkjunum, ásamt bróður
mínum, í tæp 10 ár áður en þau
fluttu heim til íslands. Á þessum
ámm heimsótti ég þau og þau komu
líka oft heim. Perry var óþreytandi
við að sýna mér markverða staði í
Kaliforníu og dekra við mig á allan
hátt. Ég veit að það vom margir
Islendingar sem nutu gestrisni
þeirra í Kalifomíu og Perry var
ávallt boðinn og búinn að reyna að
sjá til þess að dvöl gestanna yrði
sem ánægjulegust.
Það er óhætt að segja að Perry
reyndist fjölskyldu okkar allri afar
vel. Mamma og hann vom mjög
samrýnd og það þurfti ekki annað
en að heyra þau tala hvort við annað
til að skynja þá ást og virðingu sem
var á milli þeirra. Samband hans við
langömmu mína, sem dvaldi hjá
þeim tvisvar um nokkurra mánaða
skeið var alveg sérstakt. Hann
kallaði hana alltaf „mamma mín“.
Hann átti sjálfur elskulega móður,
sem lést árið 1984. Hann var
einkabam hennar og þau höfðu
alltaf verið mjög samrýnd. Síðustu
mánuði hennar var hann hjá henni
og annaðist hana. Amma mín dvaldi
líka nokkmm sinnum hjá mömmu
og Perry og vom þau Perry afar
góðir vinir. Eftir að Perry og
mamma fluttu heim til íslands
komu þau sér upp fallegu heimili í
Garðabæ og undu sér þar vel. Perry
var einastakt snyrtimenni og
reglusamur með alla hluti og bar
heimilið þess merki. Þolinmæði og
umburðarlyndi vom ríkir þættir í
fari hans. Hann vildi öllum vel og sá
alltaf það besta í öllu fólki.
Síðastliðin 2 ár hafa verið
fjölskyldunni erfið og á rétt rúmu
ári hefur mamma misst móður sína,
bróður og nú eiginmann, öll úr sama
sjúkdómi. Ég veit að það hefur
verið mömmu ómetanlegur styrkur
að eiga góða nágranna og vini, sem
hafa reynst henni frábærlega vel á
þessum erfiðu tímum. Umönnun
þeirra allra þriggja á deild A-7 á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur var frábær
og er öllu starfsfólki þar þakkað af
alhug.
Við bróðir minn sjáum nú á bak
elskaðs stjúpföður og afastelpumar
hans og langafastrákurinn kveðja
hann með ástarþökk fyrir allt sem
hann var þeim.
Guð geymi elsku Perry okkar.
Valgerður.
í dag er kvaddur hinstu kveðju
Will Harrison Kári Perry, maðurinn
sem lagði hornsteininn að því skipu-
lagi sem íslenskar almannavamir
hafa stuðst við í liðlega aldarfjórð-
ung. Það mun hafa verið á vordög-
um 1971 sem ég hitti Perry fyrst og
þá um borð í varðskipinu Ægi. í för
með honum var Guðjón Petersen,
þáverandi stýrimaður hjá Landhelg-
isgæslunni og síðar framkvæmda-
stjóri Almannavarna ríkisins. Ferð
þeirra var heitið til Vestmannaeyja
og í framhaldi af því í hringferð um
landið í þeim tilgangi að kynnast að-
stæðum og ræða við forystumenn al-
mannavarna í hinum dreifðu byggð-
um landsins um sitthvað er laut að
fyrirhugðu skipulagi almannavarna.
Þremur mánuðum áður hafði Perry
komið hingað til lands sem sérfræð-
ingur Sameinuðu þjóðanna á sviði
almannavama í þeim tilgangi að
leggja granninn að nýju skipulagi
fyrir almannavamir á Islandi.
Ekki bauð mér í gmn á þeim
stundum sem við vomm samskipa
frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja
og síðan austur á firði, að þar færi
verðandi samstarfsmaður, en sú
varð jú raunin því liðlega 1 ári síðar
var undirritaður ráðinn í tímabundið
starf hjá Almannavömum ríkisins
sem hefur síðan teygst til dagsins í
dag.
Það má fullyrða hér og nú að vart
hefðu íbúar þessa lands getað vænst
betri ráðgjafar á almannavarnasviði
en þeirrar sem hingað barst með
Peny. Þar fór saman yfirgripsmikil
þekking á verkefninu, haldgóð
reynsla af nær aldarfjórðungs starfi
að almannavörnum í Costa Contra
County í Kalifomíu í Bandaríkjun-
um og hæfni til að koma bæði
reynslu og þekkingu til skila á ein-
faldan og upplýsandi hátt.
Ráðgjafarstörfum Perrys hér á
landi var skipt í tvö tímabil, hið
fyrra var frá febrúar 1971 og stóð í
sex mánuði. í lok þeirrar dvalar skil-
aði hann yfirgripsmikilli greinar-
gerð til íslenskra stjórnvalda þar
sem fram kom úttekt hans á þeirri
neyðarþjónustu sem starfrækt er í
landinu, ásamt tillögum varðandi
framtíðarskipulag og uppbyggingu
almannavama. Einnig vom skil-
greindir þeir hættuþættir sem hugs-
anlega gætu ógnað öryggi fólks og
byggðar í landinu. Ákveðið var að
fara að tillögum þessum sem m.a.
fólust í gerð svonefndra neyðaráætl-
ana fyrir hinar ýmsu byggðir í land-
inu.
Síðara tímabilið hófst síðan í des-
ember 1972. Þá yfirfór Perry þær
áætlanir sem unnar höfðu verið, hélt
fundi með þeim aðilum sem skipu-
laginu tengdust og lagði á ráðin um
framhaldið. Það var einmitt á þess-
um mánuðum sem við Perry urðum
samstarfsmenn. Við lok þess tíma-
bils hófust einar stærstu náttúm-
hamfarir seinni ára hér á landi þ.e.
eldgosið í Heimaey. Það leiddi til
þess að dvöl Perrys var framlengd
um tvo mánuði. Þannig nutum við
áfram hollra ráða hans varðandi
skipulag og framkvæmd hinna ýmsu
úrlausnarefna sem upp komu varð-
andi þær björgunar- og vamarað-
gerðir sem í gangi vom.
I mars 1973 var komið að kveðju-
stund, en áfram var gæfan hliðholl
okkur hjá Almannavömum því með-
an Perry dvaldi hér í seinna skiptið
kynntist hann konuefni sínu Huldu
Oskarsdóttur sem gegnt hafði hluta-
störfum hjá Almannavörnum ríkis-
ins meðfram aðalstarfi sínu sem rit-
ari Péturs Sigurðssonar, forstjóra
Landhelgisgæslunnar. Þannig
hnýtti okkar ágæti Perry enn frek-
ari tryggðabönd við almannavarnir
og íslendinga. Þrátt fyrir að þau
hjón hefðu búsetu í Kaliforníu frá
árinu 1973 til 1983 rofnuðu tengslin
aldrei og enn frekar efldust þau
þegar þau fluttust til íslands árið
1983 þá alkomin. Heimili sitt reistu
þau í Garðabæ nánar tiltekið að Ás-
búð 106.
Fram að þessu hef ég nær ein-
göngu rætt um sérfræðinginn og
ráðgjafann Perry, en hvernig var þá
maðurinn sjálfur? Því er í eðli sínu
fljótsvarað, maðurinn var líkt og
ráðgjafinn hollur, einlægur og um-
fram allt afar skemmtilegur bæði til
orðs og æðis. Kímnigáfu hafði hann
með eindæmum góða og í sögum
hans og bröndurum fólust margir
gullmolar.
Kannske er orðið íslandsvinur of
notað nú á dögum þegar farið er að
nota það á skemmtikrafta sem hafa
hér aðeins fárra klukkustunda við-
dvöl. Hins vegar get ég með stolti
sagt að Perry var sannur íslands-
vinur/íslendingur og það með stór-
um stöfum og til marks um það
tamdi hann sér ýmsa séríslenska
siði. Sem dæmi má nefna að hann
varð svo hrifinn af þeim íslenska sið
að halda upp á sumardaginn fyrsta
að þegar hann hélt til Bandaríkj-
anna að afloknum ráðgjafarstörfum
á fslandi gerði hann það að reglu að
flagga ávallt íslenska fánanum við
hús sitt á þeim ágæta degi. Annað
slíkt dæmi má nefna, en það er að
eftir að hann fluttist alkominn til ís-
lands þótti honum tilheyra að bera
íslenskt nafn. Þannig valdi hann sér
nafnið Kári, en það nafn var í miklu
uppáhaldi hjá honum og bar hann
það með sannkölluðu stolti æ síðan,
fleiri slík dæmi mætti nefna.
Jafnaðargeð, kurteisi og yfirveg-
un vora Perry eðlislægir þættir og í
samstarfi var hann afar þægilegur.
Eftir heimkomuna 1983 sinnti hann
ýmsum sérverkefnum í hlutastarfi
hjá Almannavörnum ríkisins, m.a. sá
hann um samskipti við varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli með stökum
sóma og vann að gerð neyðaráætl-
t
Bróðir minn og móðurbróðir,
JÓN STEFÁNSSON,
frá Höskuldsstöðum,
sfðast til heimilis á Húnabraut 40,
Blönduósi,
lést á sjúkrahúsi Blönduóss laugardaginn 14. mars.
Jarðarförin ferfram frá Blönduóskirkju laugardaginn 21. mars, kl. 14.00.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Guðrún Skagfjörð Stefánsdóttir,
Heiðdfs Haraldsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GÍSLÍNA SIGURÐARDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður til heimilis á Dalbraut 27,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju á morgun,
föstudaginn 20. mars kl. 15.00.
Eygló Olsen, Guðmundur Sigurjónsson,
Agnes O. Steffensen, Björn B. Steffensen,
Óli P. Olsen. Jarþrúður Rafnsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
WILL HARRISON
KÁRIPERRY
unar vegna flugslysa þar. Jafnframt
var hann skráður til starfa í stjórn-
stöð Almannavarna ríkisins á hættu-
og neyðartímum og tók sem slíkur
þátt í fjölda æfinga og aðgerða. Á
það samstarf bar aldrei skugga og
ávallt var fengur í ráðum hans og til-
lögum.
Þegar rætt er um Perry verður
ekki undan því vikist að nefna til
sögu hans ágætu eiginkonu, Huldu
Oskarsdóttur Perry, svo samrýnd
sem þau hjón vom. Þau vom ekki
aðeins hjón, heldur sannir vinir, þar
sem jafnræði, virðing og væntum-
þykja sat ávallt í fyrirrúmi. Þetta
sannaðist best þegar Perry veiktist
fyrir liðlega ári. Þá var Hulda hans
klettur og skjól sem mýkti áföll og
mildaði vanlíðan. Þannig konu er
gott að eiga og slíkan eiginmann er
sárt að kveðja.
Um leið og ég og kona mín þökk-
um af alhug fyrir samstarf og vin-
áttu bið ég algóðan Guð að styrkja
og styðja Huldu og fjölskyldu þeirra
alla. Megi minningin um góðan
dreng sefa sorgir og milda þeim við-
skilnaðinn.
Jafnframt skulu hér fram bornar
hugheilar þakkir fyrir gott og
ánægjulegt samstarf frá starfs-
mönnum Almannavarna ríkisins
fyrr og síðar. Einnig frá þeim hjálp-
arliðum sem skráðir em til starfa í
stjórnstöð okkar á hættu- og neyð-
artímum.
Far þú í firiði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
(V. Briem.)
Hafþór.
Vegna fráfalls Wills H. Perrys vil
ég fyrir hönd bandaríska sendiráðs-
ins á Islandi votta eiginkonu hans
mína einlægu samúð. Það er með
mikilli eftirsjá að ég kveð Will, en
hann var einn þeirra manna sem
gæddir vora einstaklega jákvæðu
hugarfari, velvilja og bjartsýni.
Hann sat í stjórn Fulbright-stofnun-
arinnar frá árinu 1994 og þangað til
hann lést, og sat sem formaður
stjómarinnar árið 1996. Bandaríkja-
menn og Islendingar nutu góðs af
velvilja hans. Hann sýndi samferða-
fólki sínu bæði umhyggju og virð-
ingu og með sömu umhyggju og
virðingu kveðjum við Will.
Day O. Mount, sendiherra
Bandaríkjanna.
Kær vinur minn Will H. Perry er
látinn 72 ára að aldri. Með andláti
hans lauk sögu merkismanns sem
með störfum sínum kom með nýja
sýn inn í almannavarna- og öryggis-
mál á Islandi, reyndar ekki aðeins á
íslandi því að þær hugmyndir sem
hann bar hingað um heildarsam-
þættingu öryggismála breiddust
einnig til annarra landa þótt öðram
hlotnaðist að flytja þær.
Will H. Perry, eða Perry eins og
ég kaus að kalla hann, þótt við vær-
um dús frá fyrstu kynnum, kom
fyrst til Islands í febrúar 1971 á veg-
um Sameinuðu þjóðanna til að vera
íslenskum stjórnvöldum til ráðu-
neytis á sviði varnarviðbúnaðar
gegn náttúrahamförum og öðmm
áfóllum. Skipuðust mál þannig að
Pétur Sigurðsson, þáverandi for-
stjóri Landhelgisgæslunnar og Al-
mannavarna ríkisins, fól undirrituð-
um að starfa með Perry þá sex mán-
uði sem verkefnið átti að standa og
hófst með því samstarfi ævilangur
vinskapur sem aldrei bar skugga á.
Var Perry á 45. aldursári þegar
hann kom hingað og þegar búinn að
upplifa margháttaða reynslu í
Kóreustyrjöldinni, við rekstur fjöl-
skyldufyrirtækis og framkvæmda-
stjóm Almannavarna í því fylki
Bandaríkjanna þar sem jarðskjálfta-
hættan vofir sífellt yfir og rannsókn-
ir á jarðfræðilegum ógnum náttúr-
unnar vora einna lengst komnar á
þróunarbrautinni. Perry var þá þeg-
ar orðinn vel þekktur í Kaliforníu
vegna starfa sinna á sviði neyðarvið-
búnaðar og jarðskjálftavarna og
reyndi ég það síðar þegar ég átti þar
leiðir á fundi og ráðstefnur, eftir að
Perry var fluttur alfarið til íslands,
að hans var minnst í Kalifomíu fyrir
störf sín á því sviði.