Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AUGLYSIIMGAR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
®Fiæðsluiniðstöð
Reytgavíkur
Næsta skólaár verða 31 almennur grunnskóli og 5 sérskólar
í Reykjavík. Nemendur verða alls rúmlega 14.500. Stöðugt
er unnið að þróun á skólastarfi og unnið er að einsetningu
allra grunnskóla borgarinnar. Endurmenntunartilboð til
kennara og skólastjórnenda eru mörg og fjölbreytt.
Leitað er eftir
kennurum
í eftirtaldar stöður:
Engjaskóli, með 380 nemendur í 1. —7.
bekk. Sími: 510 1300.
Kennari í almenna kennslu,
íþróttakennari,
handmenntakennari (smíðar), 1/2 staða,
sérkennarar.
Foldaskóli, með 810 nemendur í 1.—10.
bekk. Sími: 567 2222.
Tölvukennari.
Húsaskóli, með 500 nemendur í 1. —10.
bekk. Sími: 567 6100.
Sérkennari.
Fossvogsskóli, með 310 nemendur í 1.—7.
bekk. Sími: 568 0200.
Kennari í almenna kennslu, 2/3 staða.
íþróttakennari.
Upplýsingar um stöðurnar gefa skólastjórar
og aðstoðarskólastjórar skólanna og Ingunn
Gísladóttir á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, net-
fang ingunng@rvk.is.
Umsóknarfresturertil 18. apríl nk. og ber að
skila umsóknum til skólastjóra.
Laun skv. kjarasaningum KÍ og HÍKvið Launa-
nefnd sveitarfélaga.
Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld
stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök
kvenna- eða karlastörf og vilja hvetja karl-
menn til þess að sækja um ofangreindar
stöður.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
LANDHELGISGÆSLA ÍSLANDS
Símavarsla o.fl.
Landhelgisgæsla íslands auglýsir eftir starfs-
manni til að annast símavörslu o.fl. hjá stofn-
uninni.
Starfssvið: Síma- og póstvarsla, skráning
reikninga í bókhaldskerfi o.fl.
Starfshlutfall: Um er að ræða 50% stöðu.
Æskilegrar menntunar- og hæfniskröfur:
Krafist er almennrar menntunar, nákvæmni
og skjótvirkni í vinnubrögðum, staðgóðrar
enskukunnáttu og helst nokkurrar kunnáttu
í norðurlandamálum.
Starfskjör: Starfskjör eru samkv. kjarasamn-
ingi milli Starfsmannafélags ríkisstofnana og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Miðað er við að ráðið verði í stöðuna sem
fyrst.
Umsóknum berað skila til Landhelgisgæslu
íslands, Seljavegi 32, Reykjavík, fyrir 28. þ.m.
á eyðublöðum sem þar fást.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán
Melsted yfirmaður starfsmannamála stofnun-
arinnar í síma 511 2222.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðnignu hefurverið tekin.
Síld og fiskur
Óskum eftir að ráða kjötiðnaðarmenn til starfa
sem fyrst.
Upplýsingar gefur Einar í síma 555 4488.
®Fiæðslumiðstöð
Reyigavíkur
Skólastjóri
Laus er staða skólastjóra nýs grunnskóla í
Reykjavík, Borgaskóla í Borgahverfi í Grafar-
vogi. Skólinn verðurfyrir 1, —10. bekk.
Kennsla fyrir yngstu nemendurna hefst í haust
og verður kennt í færanlegum kennslustofum.
Meginhlutverk skólastjóra er að:
• stýra og bera ábyrgð á starfsemi og rekstri
skólans.
• veita skólanum faglega forystu á sviði
kennslu og þróunar á skólastarfinu.
Kröfur gerðar til umsækjanda:
• Stjórnunarhæfileikar og reynsla.
• Kennaramenntun. Framhaldsmenntun æski-
leg t.d. á sviði stjórnunar eða í uppeldis- og
kennslufræðum.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Þekking á sviði rekstrar æskileg.
Leitað er að einstaklingi sem er reiðubúinn
að takast á við krefjandi uppbyggingarstarf
sem felst í að hanna og móta nýjan skóla.
Umsóknarfrestur er til 18. apríl. nk.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf að
hluta í júní.
Laun skv. kjarasamningum KÍ og HÍK við Launa-
nefnd sveitarfélaga.
Upplýsingar gefur Ingunn Gísladóttir á Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur, netfang ingunng@rvk.is
og umsóknirsendist henni á Fríkirkjuveg 1,101
Reykjavík.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavik, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Foxaskála 2 « Reykjavík • Sírai: 562 3518 * Fax: 552 7218
Verkstjóri,
saltfiskverkun
og hjúkrunarfræðingur
Við leitum að harðduglegum verkstjóra í litla
en kröftuga saltfiskverkun fyrir vestan. Mikil
og góð vinna.
Jafnframt leitar heilbrigðisstofnunin að hjúkr-
unarfræðingi í fulla stöðu í sama þorpi.
Því ekki að skella sér vestur á firði? Upplagt
fyrir hjón eða sambýlisfólk. Góð íbúð og ágæt
laun fyrir gott fólk.
Umsóknarfrestur er til 25. mars nk.
Nánari upplýsingar veitir Jónína Vilhjálmsdótt-
ir, ráðningarstjóri.
Sími: 562 3518. Fax: 552 7218. Netfang:
icemac@islandia.is
lceMac ehf., er sérhæft fyrirtæki í margvíslegri þjónustu viö sjávarút-
veginn, vélum, tæknibúnaði og ráðgjöf. Fyrirtækið rekur jafnframt
Ráðningarþjónustu sjávarútvegsins, MENN STRAX! sem er sérhæfð
ráðningarþjónusta eingöngu fyrir sjávarútveginn.
Lögreglumaður
Embættið óskar eftir lögreglumanni til afleys-
ingastarfa í eitt ár og skal starf hefjast eftir
samkomulagi, en eigi síðar en 1. júní nk.
Um er að ræða vaktavinnu í 100% starfi.
Starfinu fylgir skylda til að gegna tollgæslu-
störfum jafnframt öðrum löggæslustörfum.
Laun samkvæmt kjarasamningum BSRB.
Umsækjendurskulu hafa lokið námi frá Lög-
regluskóla ríkisins.
Skrifleg umsókn skal berast undirrituðum fyrir
1. apríl nk.
Upplýsingar eru veittar í síma 478 1363 á skrif-
stofutíma.
Sýslumaðurinn á Höfn
Páll Björnsson.
TILKYNNINGAR
L Auglýsing frá yfirkjörstjórn í Kópavogi
Vegna utankjörfundarkosninga sem hefjast
30. mars nk. mun yfirkjörstjórn taka á móti
framboðslistum vegna sveitarstjórnakosning-
anna 23. maí nk. mánudaginn 23. mars kl.
20:30 í Félagsheimili Kópavogs 2. hæð.
Kjörstjórnin mun svo fimmtudaginn 26. mars
á sama stað og sama tíma, og að viðstöddum
umboðsmönnum lista úrskurða um fyrirliggj-
andi framboð og listabókstafi.
Lokafresturtil að skila framboðslistum vegna
sveitarstjórnarkosninganna er 3. maí nk.
Yfirkjörstjórn í Kópavogi,
Jón Atli Kristjánsson,
Haukur Ingibergsson,
Vigfús Hallgrímsson.
Atvinnuþróunarverkefni
Byggðastofnun hefur á undanförnum árum
veitt styrki vegna atvinnuþróunarverkefna á
landsbyggðinni. Á árinu 1998 er það fjármagn
sem til ráðstöfunar er svo knappt að aðeins
verður hægt að sinna takmörkuðum fjölda fyr-
irliggjandi umsókna. Afgreiðsla þeirra um-
sókna sem síðar kunna að berast fer eftir því
hvort stofnunin fær rýmri fjárráð til styrkveit-
inga.
ATVINNUHÚSNÆOI
Skrifstofuhúsnæði
til leigu í Mörkinni 3 (Virku-húsinu) frá 1. maí.
130 fm á 2. hæð og 65 fm á 3. hæð.
Upplýsingar gefur Helgi í síma 568 7477 og
heimasíma 557 5960.
FUNOIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verð-
ur haldinn á Hótel Selfossi föstudaginn 3. apríl
1998 og hefst kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr.
samþykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum:
Áfundinum verðurborin upp tillaga til breyt-
inga á 1. mgr. 16. gr. samþykkta félagsins er
varðarfjölda félagsmanna á bak við hvern
fulltrúa á félagsfundum. Lögð ertil fækkun
félagsmanna á bak við hvern fulltrúa úr 50
í 30. Lagt ertil að ákvæði greinarinnar hljóði
þannig:
„...Deildarstjóri ersjálfkjörinn fulltrúi deildar
sinnará fundum félagsins, án tillits til fjölda
félagsmanna í deildinni miðað við, að hann
komi fyrir fyrstu 30 deildarmenn, 2 fulltrúar
fyrir deild, sem hefur 31-60 félagsmenn, 3 full-
trúar fyrirþær, sem hafa 61-90 og svo fram-
vegis."
3. Önnur mál, löglega borin upp.
Tillögur frá félagsaðilum, sem bera á fram á
aðalfundi, þurfa að vera komnar skriflega í
hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum
fyrir aðalfund.
Reykjavík, 11. mars 1998.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands.
Aðalfundur
Aðalfundur starfsmannafélags Kópavogs
verður haldinn fimmtudaginn 19. mars,
kl. 20.30 í félagsheimili Kópavogs.
Stjórnin.