Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR Í9. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Haffsbreiða úti fyrir ströndum Vestfjarða lokar siglingaleið
Morgunblaðið/RAX
ÞYKK ísbreiðan nálgast land við Sléttanes milli DýraQarðar og
Arnarfjaröar.
ISSPANGIR loka siglingaleið inn á Jökulfírði og færast hratt nær
Grænuhlíð suðaustan við Rit.
Isbreiðan færist hratt að landi
MIKLA hafísbreiðu rekur aust-
ur af Grænlandi, að Vestijörð-
um og var ísinn kominn fast
upp að landinu þegar ljós-
myndari og blaðamaður Morg-
unblaðsins slógust í för með
ískönnunarleiðangri Landhelg-
isgæslunnar í gær.
Áhöfn TF-SÝNAR, Fokker-
flugvélar Landhelgisgæslunn-
ar, kannaði hafisinn úti fyrir
Vestfjörðum, mældi fjarlægð
hans frá landi og grennslaðist
í leiðinni fyrir um skip á veið-
um. Litið var um fískveiðar í
gær enda sjómenn í verkfalli
en þó sást varðskip Land-
helgisgæslunnar úti á ísa-
fjarðardjúpi og reyndist vera
að sækja straummælingadufl
áður en ísbreiðan næði til
þess.
Jaðar þéttrar ísbreiðunnar
teygir sig norður frá Horni og
suður að Bjargtöngum en rast-
ir og ísspangir teygja sig enn
nær landi. Þær ná langt inn á
ísafjarðardjúp og loka sigl-
ingaleið inn á Jökulfírði.
Nokkrar ísspangir höfðu þegar
fest land við Fjallaskaga og
allt norður undir Kögur.
Fjarlægð ísbreiðunnar
sjálfrar frá landi var enn nokk-
ur í gær en ekki er góðs að
vænta ef spá Veðurstofu Is-
lands rætist. Spáð er suðvest-
anátt frá og með morgundeg-
inum og fram yfír helgi, sem
mun að öllum líkindum bera
hafisinn enn nær landinu. í
gær var jaðar ísbreiðunnar
ekki nema 21 sjómflu norð-
norðvestur af Straumnesi og
30 sjómflur norð-norðvestur af
Barða.
fsbreiðan er flöt og þétt og
berst nokkuð hratt upp að
landinu með hafstraumnum.
Þykkt íssins er líklega um
tveir metrar, en að sögn Ingi-
bjargar Jónsdóttur, hafísfræð-
ings Veðurstofu Islands, er
erfítt að spá um þykkt þeirra
og stærð. Af útlitinu að dæma,
sagði Ingibjörg að ísinn hefði
Grænland
Hafís fyrir
Vestfjörðum
18. mars 1998
STÓR ísspöng þokast inn ísafjarðardjúp og hægra megin við hana sést varðskip Landhelgisgæslunnar
örsmátt í samanburði við þykkan ísinn. Fjær má sjá aðra ísspöng landfasta við Snæfjallaströnd.
líklega myndast nú í vetur þar
sem hann væri fremur sléttur.
„Eldri ís þekkist á því að hann
er hryggjóttur, sem stafar af
því að hann hefur margbrotn-
að og frosið saman á ný.“
Ingibjörg sagði að ísbreiðan
hefði líklega myndast í Norð-
ur-Grænlandshafí, borist suður
með austurströnd Grænlands
og nú vestur til íslands með
hafstraumum og vindum. „Ef
suðvestanáttin helst út vikuna,
eins og spá Veðurstofu íslands
gerir ráð fyrir, er ekki ól/klegt
að ísbreiðan berist austur með
norðurströnd landsius. Ef
vindáttir haldast óhagstæðar
þá gæti ísinn borist þaðan og
með hafstraumum suður fyrir
norðausturhomið,“ sagði Ingi-
björg. Ef svo verður getum við
átt von á ís með austurströnd-
inni allri og allt suður undir
Ingólfshöfða eins og síðast
gerðist hafísárið mikla 1968.
Það veltur hins vegar á sjávar-
við strendur landsins. Mikill
langvarandi ís getur haft þau
áhrif að snörp kæliug verði á
lofthita úti fyrir ströndunum
sem hann liggur við. Hitastig
sjávar hefur einnig mikið að
segja.
Að sögn Páls Geirdal leið-
angursstjóra er siglingaleið
fyrir Horn varhugaverð, þá
sérstaklega frá Rit að Kögri
þar sem ísspangir og íshrafl
liggja mjög nærri landi. Líkur
eru til að ísbreiðan þokist inn á
Húnaflóa innan skamms og
varasamt er að sigla í myrkri
og slæmu skyggni.
í áhöfn TF-SYNAR í gær
voru Tómas Helgason flug-
sljóri, Páll Helgason flugmað-
ur, Guðmundur Emil Sigurðs-
son siglingafræðingur og Jón
Ebbi Björnsson loftskeytamað-
ur sem sáu um að koma örugg-
um skilaboðum um legu hafís-
breiðunnar til allra sem á
þurfa að halda.
og lofthita hér við Iand hvort
ísinn hverfur næstu daga eða
heldur áfram að ógna siglinga-
leiðum.
Nokkur fylgni er á milli
hitastigs og nálægðar hafíss
Hitasótt í hrossum
Reg’lug-erð
til varnar
útbreiðslu
veikinnar
LandbúnaðaiTáðuneytið hefur gefíð
út nýja reglugerð til vamar út-
breiðslu smitandi hitasóttar í hross-
um. Reglugerðin er sett samkvæmt
tillögum yfirdýralæknis og í sam-
ráði við helstu hagsmunaaðila í
hrossai'ækt.
Þá hefur landbúnaðarráðherra
ákveðið að koma á fót formlegum
starfshópi undir yfirstjórn yfir-
dýralæknis með þátttöku sérfræð-
inga, hagsmunaaðila og stjórnvalda
til að kanna aðdraganda sjúkdóms-
ins og nauðsynlegar varúðarráð-
stafanir.
Samkvæmt hinni nýju reglugerð
er landinu skipt upp í eftirtalin
varnarsvæði:
1. Reykjavík, Hafnarfjörður,
Garðabær, Kópavogur, Bessa-
staðahreppur, Mosfellsbær og
Árnessýsla - þar sem sjúkdóm-
urinn hefur komið upp.
2. Akranes - þar sem sjúkdómurinn
hefur komið upp.
3. Reykjanes sunnan Hafnarfjarðar
- þar sem smithætta er mikil.
4. Kjalarnes- og Kjósarhreppur -
þar sem smithætta er mikil.
5. Borgarfjarðarsýsla, sunnan
Skarðsheiðar - þar sem smit-
hætta er mikil.
6. Rangárvallasýsla, vestan Mark-
arfljóts - þar sem smithætta er
mikil.
7. Aðrir kaupstaðir og landshlutar -
þar sem smithætta er minni.
Ströng skilyrði
um heyflutninga
Milli varnarsvæða gildir bann við
flutningi hrossa, reiðtygja og
hrossaflutningstækja. Þá skulu þeir
sem umgangast hross forðast sam-
gang við hross af öðrum svæðum en
þeim sem þeir tilheyra. Sé hins veg-
ar brýn þörf á slíkum samskiptum
skulu notaðar ítarlegar sóttvarnir
til að hindra að smit berist á milli
svæða. Engar takmarkanir eru hins
vegar á starfsemi innan svæða.
Heyflutningar eru leyfðir milli
varnarsvæða að uppfylltum ströng-
um skilyrðum um grófhreinsun, há-
þrýstiþvott og úðun með sótt-
hreinsilegi. Þá skulu öll tæki sem
gætu borið smit sótthreinsuð.
Útflutningur hrossa er stöðvaður
meðan óvissa ríkir um orsakir veik-
innar.
------------------
Christiansen
sigraði á
Reykjavíkur-
skákmótinu
Bandaríkjamaðurinn Lan-y Christi-
ansen sigraði á Reykjavíkurskák-
mótinu með 714 vinning af 9 mögu-
legum. Hann gerði jafntefli við Ivan
Sokolov frá Bosníu í síðustu um-
ferð. Nick deFirmian frá Banda-
ríkjunum varð annar með sjö vinn-
inga. Daninn Curt Hansen varð
þriðji með 614 v. í 4.-10. sæti með
sex vinninga urðu þeir Sokolov,
Igor Rausis, Lettlandi, Svíarnir
Jesper Hall og Ralf Ákesson, Eng-
lendingarnir Chris Ward og Nigel
Davies og Þjóðverjinn Stefan Kind-
ermann.
í hópi þeirra sem hlutu 5!4 vinn-
ing og lentu í 11.-21. sæti voru Is-
lendingarnir Helgi Ólafsson, Þröst-
ur Þórhallsson og Jón Viktor Gunn-
arsson.
Þeir Hannes Hlífar Stefánsson
og Björgvin Jónsson voru í hopi
keppenda í 22.-28. sæti með 5 vinn-
inga.
■ Bandarískur/59