Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Áætlun um rekstur og framkvæmdir til þriggja ára samþykkt í bæjarstjórn
Minnihluti bæj arstj órnar
telur rammann sprunginn
ÞRIGGJA ára áætlun um rekstur,
fjármál og framkvæmdir bæjar-
sjóðs Akureyrar árin 1999 til 2001
var samþykkt með atkvæðum
meirihlutans á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar en fulltrúar minnihlut-
ans sátu hjá við afgreiðsluna. Sam-
kvæmt áætluninni er gert ráð fyrir
400 milljónum króna til gjald- og
eignfærðrar fjárfestingar á ári eða
1,2 milljörðum króna í allt. Upp-
hæðirnar eru að mestu óskiptar,
einungis er getið nauðsynlegra
fjárveitinga til verkefna sem þegar
er byrjað á eða bæjarstjóm hefur
tekið ákvörðun um, en sú framsetn-
ing markast af því að skammt er til
kosninga og áherslur varðandi
skiptingu framkvæmdafjárins eru
mismunandi milli flokkanna. Nýrr-
ar bæjarstjómar bíður því að
skipta fénu innan þess ramma sem
áætlunin setur.
Réttlætanlegt að auka
lán eða selja eignir
Sigríður Stefánsdóttir Alþýðu-
bandalagi lagði fram bókun frá
bæjarfulltrúum flokksins þar sem
fram kemur sú skoðun að ramminn
sem settur er í áætluninni sé of
þröngur. Telja fulltrúar flokksins
nauðsynlegt að þegar á næsta ári
verði veitt fé til byggingar Lundar-
skóla og nýs leikskóla í stað Iða-
vallar. Kostnaður bæjarsjóðs
vegna þessara verkefna verði varla
undir 150 milljónum króna og rúm-
ast aðeins að litlu leyti innan
óskiptrar fjárveitingar í áætlun-
inni. Því sé réttlætanlegt, að mati
fulltrúa Alþýðubandalags, að auka
lántökur vegna þessara brýnu
verkefna eða afla fjár með sölu
eigna.
Sigurður J. Sigurðsson Sjálf-
stæðisflokki gagnrýndi áætlunina,
sagði hana skorta alla framtíðarsýn
til næstu þriggja ára, einungis
kæmu fram í henni þær skuldbind-
ingar sem bærinn hefði þegar tekið
á sig. I bókun fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins kemur fram að það sé
skylda meirihlutans að leggja fram
skýra mynd af íjármálum og fram-
kvæmdum bæjarsjóðs á komandi
árum og það eigi að gera í þriggja
ára áætluninni. Meirihlutinn beri
ábyi-gð á fjármála- og fjárfestingar-
stefnu kjörtímabilsins og telja verði
eðlilegt að hann sýni fram á það á
hvern hátt hann álíti mál þróast og
á hvern hátt framkvæma eigi þau
verkefni sem bíða úrlausnar.
Ásta Sigurðardóttir Framsókn-
arflokki mótmælti því að fjárveit-
ingar rúmuðust ekki innan þess
ramma sem settur hefði verið í
áætluninni, þær dygðu.
Jakob Bjöi-nsson bæjarstjóri
sagði að ekki mætti spenna bogann
of hátt og hann hefði ekki áhyggjur
af því þótt öll verkefni hefðu ekki
verið njörvuð niður við gerð áætlun-
arinnar, málin yrðu leyst er að því
kæmi.
Morgunblaðið/Kristján
VIKTOR Björnsson afhenti Jakobi Björnssyni bæjarstjóra undirskriftalistana og hafði orð á að handtakið
væri býsna fast, Þórunn Arnadóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir fylgjast með.
s
Ibúar við
Skarðshlíð
vilja úr-
bætur
FULLTRÚAR fbúa við Skarðs-
hlíð frá númer 20 til 40 afhentu
Jakobi Björnssyni bæjarstjóra
undirskriftalista á mánudags-
morgun þar sem skorað er á bæj-
aryfirvöld að gera úrbætur í göt-
unni. Þau Ragnheiður Ragnars-
dóttir, Björn Víkingsson og Þór-
unn Arnadóttir fóru á fund bæj-
arstjóra og gerðu honum grein
fyrir ástandi götunnar og komu
með tillögur til úrbóta.
Stórum bflum, vörubflum, er
gjarnan lagt í götunni og kemur
það í veg fyrir að vegfarendur
hafi nægilega yfírsýn. Hraða-
akstur er mikiíl frá gatnamót-
um Undirhlíðar að hraðahindr-
un við Háhlíð og frá því í sept-
ember síðastliðnum hafa tvö
börn orðið fyrir bfl á þessum
kafla. Mikill fjöldi barna leggur
leið sína yfir götuna og nýtir
ekki gangbrautina sem er ofar
og því nokkur krókur að fara að
henni. Þeir sem undir listann
skrifa segja það einlæga ósk
sína að úrbætur verði gerðar
sem fyrst, áður en stórslys verð-
ur.
Jakob kvaðst vel skilja áhyggj-
ur íbúa götunnar, erindi þeirra
yrði sent bæjarráði til umfjöllun-
ar og væntanlega myndi skipu-
lagsnefnd bæjarins einnig fjalla
um það og koma með tillögur.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Sundlaugin á Syðra-
Laugalandi opnuð á ný
SUNDLAUGIN á Syðra-Lauga-
landi í Eyjafjarðarsveit hefur verið
opnuð á ný eftir að hafa verið lokuð
um langt skeið. Hjónin Halla Berg-
lind Arnarsdóttir og Finnur Aðal-
björnsson í Laugarholti II sjá um
reksturinn.
Sundlaugin er opin þrisvar í
viku, á sunnudögum og mánudags-
og fímmtudagskvöldum. Finnur
sagði að aðsóknin væri ágæt og að
framhaldið lofaði góðu. Þau hjón
hafa komið fyrir nuddpotti við
sundlaugina og er hann að sögn
Finns mikil heilsulind.
Á myndinni sjást þær Ingibjörg
Jóhannsdóttir, Elísabet Skai-phéð-
insdóttir og Hrefna Hreiðarsdóttir,
Iáta fara vel um sig í heita pottin-
um við sundlaugina.
Grunnskólar Akureyrar
Tvær stöður skóla-
stjóra auglýstar
TVÆR stöður skólastjóra við
grunnskóla á Akureyri hafa verið
auglýstar lausar til umsóknar og
ein staða aðstoðarskólastjóra. Um
er að ræða stöður skólastjóra og
aðstoðarskólastjóra Lundarskóla
og stöðu skólastjóra Brekkuskóla.
Hörður Ólafsson, skólastjóri
Lundarskóla, hefur óskað eftir
flutningi á sinni skipun í Gilja-
skóla en hann er menntaður sér-
kennari. Jóhann Sigvaldason að-
stoðarskólastjóri er kominn á líf-
eyrisréttindi samkvæmt svokall-
aðri 95 ára reglu. Sveinbjörn
Njálsson, skólastjóri Brekku-
skóla, var ráðinn í stöðuna á síð-
asta ári án auglýsingar og er því
skylt að auglýsa stöðuna aftur nú.
Hörður Ólafsson hefur verið
skólastjóri Lundarskóla frá því að
skólinn hóf starfsemi íyrir um 25 ár-
um. I vetur eru nemendur skólans
um 350 í 1.-7. bekk en mun á næstu
árum fjölga í tæplega 500 nemendur
í 1.-10. bekk vegna breytinga á
skólaiyiirkomulagi sunnan Glerái'.
Brekkuskóli varð til við samein-
ingu tveggja eldri skóla, Barna-
skóla Akureyrar _og Gagnfræða-
skóla Akureyrar. I vetur eru nem-
endur um 700 í 1,—10. bekk en á
næstu árum mun nemendum
fækka í um 500 í 1.-10. bekk
vegna breytinga á skólafyrir-
komulagi.
Fischerklukkumót
FISCHER-klukkumót verður
haldið á vegum Skákfélags Akur-
eyrar í kvöld, fímmtudagskvöldið
19. mars og hefst það kl. 20 í skák-
heimilinu við Þingvallastræti 18 á
Akureyri. Á sunnudag, 22. mars
fer fram á sama stað 15 mínútna
mót. Allir era velkomnir.
Möguleik-
ar Netsins
MÖGULEIKAR fyrirtækja til
að nýta sér Netið verða kynnth-
á Fosshóteli KEA á Akureyri í
dag, fimmtudaginn 19. mars og
hefst dagskráin kl. 17, en hún
er á vegum Tölkvutækja og Is-
landia Internet.
Stutt erindi flytja Jón Birgir
Guðmundsson forstöðumaður
Ráðgarðs á Akureyri sem m.a.
fjallar um breytingar á ráðn-
ingarferli með tilkomu tölvu-
pósts og heimasíðu, Svavar G.
Svavarsson, framkvæmdastjóri
Islandia Internet, sem fjallar
um þann hafsjó upplýsinga og
fróðleiks sem finna má á Net-
inu og hvernig fyrirtæki geta
nýtt sér miðilinn og Hrafnkell
Tulinius, vörustjóri hjá Tækni-
vali, sem ræðir m.a. um hvernig
fyrirtæki geta nýtt sér net-
lausnir til að auðvelda sam-
skipti og auka öryggi í rekstri í
samskiptum fyrirtækja.
Söfnun fyrir
nýju sónar-
tæki
KVENNASAMBAND Akur-
eyrar hefur ákveðið að hrinda
af stað söfnun til kaupa á nýju
sónartæki fyrir mæðraeftirlitið
á Akureyri, en það sem nú er
notað er úr sér gengið og brýn
þörf fyrh' endurnýjun þess.
Af þessu tilefni verður hald-
inn fundur í Safnaðarheimili
Glerárkh-kju á laugardag, 21.
mars, kl. 15 þar sem hugmynd-
ir um söfnunina verða kynntar.
Sigfríður Inga Karlsdóttir yfír-
ljósmóðir og Vilhjálmur
Andrésson yfirlæknh' segja frá
tækinu og hlutverki þess.
Ráðstefna
um heilsu-
far kvenna
RÁÐSTEFNA um heilsufar
kvenna verður haldin í Odd-
fellowhúsinu við Sjafnarstíg á
Akureyri í dag, fimmtudaginn
19. mars, og hefst hún kl. 13.
með ávarpi Ingibjargar
Pálmadóttur heilbrigðisráð-
herra.
Á ráðstefnunni verður rætt
um stöðu kvenna innan fjöl-
skyldunnar og í þjóðfélaginu,
fjallað um notkun kvenna á
heilbrigðisþjónustu og ýmsa
sjúkdóma, svo sem af völdum
reykinga, geðræna sjúkdóma
eins og þunglyndi og átröskun.
Mai'kmiðið er að sem flest
sjónarmið komi fram þannig
að skapa megi áhugaverðar
umræður um heilsufar kvenna
sem verða hluti af þeim gögn-
um sem notuð verða við gerð
tillagna til heilbrigðisráðherra
um leiðir til úrbóta á heilsufari
kvenna.
Á ráðstefnunni verður kynnt
nýútgefið rit um heilsufar
kvenna þar sem fram koma
ýmsar upplýsingar sem ekki
hafa verið birtar áður, m.a. um
heilsu kvenna og aðstæður frá
víðu sjónarhorni.
■ Ráðstefnan er öllum opin.
Aksjón
\
20.30 ►Sjónvarpskringlan á
Akureyri
21.00 ►Úr bæjarlífinu Bæj-
arsjónvarpið fer á bílasýningu.
||V||n 21.10 ►Níubíó-
IfllnU Kiki Klassísk mynd
Almodóvars um bóhemalíf
hinnar nútímalegu Madríd-
borgar. Leikstjóri: Pedro
Almodóvar. Aðalhlutverk:
Veronica Forquet, Peter Coy-
oteog Victoria Abril. Spænsk
1993.