Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 71^
FÓLK í FRÉTTUM
LEVI’S DAGAR I DERES
Komdu og fáðu Levi’s 501 gallabuxur frítt!
PALLALVFTUR
pór HF
Reykjavfk - Akureyrl
Reykjavík: Ármúla 11 -sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
KVIKMYNDIR/Sambíóin hafa tekið til sýninga Disney-gamanmyndina
Rocket Man með Harland Williams, Jessica Lundy, Beau Bridges og
fleirum í aðalhlutverkum.
HOUSTON, það er komið
upp nýtt vandamál! Fyrsta
mannaða geimfarið er á
leiðinni til Mars þegar aðalvisinda-
maðurinn, eldflaugasérfræðingur-
inn í áhöfninni, forfallast og kemst
ekki með. Þá eiga stjórnendur í
miðstöðinni í Houston úr vöndu að
ráða. Það eru bara eftir tveir menn
í heiminum sem hafa hæfni til þess
að stjórna tölvu geimflaugarinnar.
Annar heitir Peacock en honum líð-
ur illa úti í geimnum vegna sjóveiki
og flugveiki. Hinn er Fred Z.
Randall, mjög snjall maður sem
hannaði stýrikerfi geimflaugarinn-
ar. Gallinn við Fred er að hann er
svo mikill hrakfallabálkur. Hann
hefur aldrei áður farið út í geiminn
en samt stendur hann sig betur en
Peacock á erfiðum prófum og er
þess vegna valinn í þessa erfíðustu
geimferð sögunnar.
Aðrir í áhöfninni eru yfírleitt
ekki mjög hrifnir. Yfirmaðurinn,
Overbeck (William Sadler), og
ljóskan Julie (Jessica Lundy) hefðu
frekar viljað hafa Peacock úti í
geimnum með sér og hið sama gild-
ir um sjimpansann í áhöfninni,
Ódysseif. Það er bara gamli geim-
farinn, Bud, sem ber smátraust til
Freds og getu hans til þess að
leysa verkefnið.
Á leiðinni til Mars fer allt í bál
og brand um borð í geimfarinu.
Fred lendir saman við Overbeck,
verður ástfanginn af Julie og upp-
götvar svo loks að það er líf á
Mars.
Rocket Man er Disney-mynd og
leikstjórinn Stuart Gillard segir að
þótt hann hafí enn enga staðfest-
ingu fengið fyrir því að það sé líf á
Mars í raun og veru þá viti hann að
í myndinni sé húmor á Mars og það
sé fyrst og fremst að þakka aðal-
leikara myndarinnar, Harland
Williams, sem þarna leikur aðal-
hlutverk í sinni fyrstu mynd.
„Frammistaða Harlands í mynd-
inni er til marks um hvað hann er
elskulegur náungi, ótrúlega hæfí-
leikaríkur og ber næmt skynbragð
á gamanleik,“ segir leikstjórinn.
Framleiðandinn, Roger Birnbaum,
segir að eitt það ánægjulegasta við
myndina hafí verið að fylgjast með
Harland springa út og blómstra í
hlutverkinu.
Harland Williams er Kanada-
maður, eins og fleiri þekktir gam-
anleikarar, t.d. Jim Carrey og Dan
Ackroyd. Hann er fjölhæfur maður
og naut lengi vinsælda fyi'ir uppi-
stand og kom þá fram víða á sviði
og í sjónvarpi. Hann hefur einnig
leikið í gamanþáttum i sjónvarpi og
komið m.a. fram í myndinni Dumb
and Dumber með Jim Carrey og
Down Periscope með Kelsey
Grammer, betur þekktum sem
Frasier. Williams er líka teikni-
myndahöfundur og hefur skrifað
barnabækur.
19.—22. mars Ath. opið sunnudag
ÁHÖFNIN er toriryggin í garð Freds. Sjimpansinn, Ijóskan og yfir-
maðurinn standa saman gegn honum.
FÖRINNI er heitið til Mars.
2 bolir í pakka J-r990; - 990,-
Levi's peysur 3A9&, - 2.900,-
Levi's hettupeysur A-.49tJ, - 3.500,-
ohSA
Kringlunni, sími 5331718.
Opið sunnudag ♦ Nýtt kortatímabil
Komdu á Levi's daga og prófaðu í leiðinni Levi's „Shrink
to fit“ gallabuxurnar. „Shrink-to-fit“ er jafngömul upp-
finning og fyrstu Levi's buxurnar sem voru saumaðar
árið 1853. Þá voru allar gallabuxur „hráar“ og óþvegnar.
Maður fór í þær í baði og var í þeim þangað til þær þorn-
uðu. Þannig fékk maður gallabuxur sem pössuðu full-
komlega og voru sérstaklega slitsterkar. Nú getur þú
prófað þetta sjálf(ur). Fimmtud. 19., föstud. 20., iaugard.
21. og sunnud. 22. mars verðum við með í búðinni
Levi's baðkar oa tvo sérstaka Levi's burrkara. Þannig
að nú getur þú fengið alveg hráar og óþvegnar Levi's
gallabuxur frítt.
Skelltu þér í baðið og síðan í þurrkarann og stuttu sfðar
færðu Levi's gallabuxur frítt.
Menn og apar á Mars