Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 10

Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Samgönguráðherra í utandagskrárumræðu um lagningu B orgarfj arðarbrautar Vegagerðin getur lagt bundið slitlag á veginn eins og hann er nú Morgunblaðið/Ámi Sseberg JÓN Kjartansson, bóndi á Stóra-Kroppi, var mættur á áheyrendapalla Alþingis í gær og fylgdist grannt með utandagskrárumræðu um vegstæði Bo rgarfj arð arbrautar. GUÐMUNDUR Bjarnason um- hverfisráðherra sagði í utandag- skrárumræðu á Alþingi í gær um legu Borgarfjarðarbrautar að hann hefði ekki getað annað samkvæmt ráðleggingum sinna sérfræðinga en að samþykkja svæðisskipulag norðan Skarðsheiðar 1997-2017 eins og nefnd fimm sveitarfélaga hefði lagt til, en á sama tíma frestað staðfestingu á vegstæði Borgarfjarðarbrautar milli Flóka- dalsár og Kleppjámsreykja. Ráð- herra tók jafnframt undir gagmýni Gísla S. Einarssonar, þingflokki jafnaðarmanna, um að það væri mjög slæmt að framkvæmdir að lagningu Borgar- fjarðarbrautar skyldu dragast úr hófi fram. Taf- irnar væru þó ekki skipulagsyf- ii’völdum að kenna heldur mætti fyrst og fremst rekja þær til þeirra deilna sem hefðu verið um lagningu vegarins heima í hér- aði. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokks, tók undir orð ráðherra og sagði að það hefði ver- ið eðlileg niðurstaða að fresta stað- festingu á vegstæðinu milli Flóka- dalsár og Kleppjámsreykja í sam- ræmi við tillögu samvinnunefndar sveitarfélaganna og vísa málinu þar með heim í hérað. Sturla Böðvarsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokks, gagnrýndi hins vegar um- rædda niðurstöðu umhverfisráð- herra og benti á að þar með hefði ráðherra ekki staðfest svokallaða sáttaleið, sem löglega kjörin sveit- arstjóm hefði samþykkt, sem og Vegagerðin, Skipulagsstjóm ríkis- ins og meirihluti þingmanna kjör- dæmisins. Sagði Sturla aðeins eina leið vera til lausnar á þessu máli. Hún væri sú að umhverfisráðherra staðfesti það skipulag sem fæli í sér svokallaða sáttaleið. í máli Halldórs Blöndal sam- gönguráðherra kom einnig fram að hann teldi að fyrrgreind sáttaleið væri raunhæf og sanngjöm. Hún væri tæknilega fullnægjandi og ekki það dýr að ástæða væri til þess að horfa sérstaklega til þess. Málshefjandi, Gísli S. Einarsson, þingflokki jafnaðarmanna, sagði í upphafi máls síns að í þrjú og hálft ár hefði staðið yfir þref og þjark um veglagningu Borgaríjarðar- brautar milli Flókadalsár og Kleppjámsreykja. „An þess að lýsa ítarlega þeim innansveitarátökum og þjáningum sem þetta mál hefur valdið í samfélaginu Reykholts- dalshreppi verður að segja að stjómsýsluaðfarir eru með hrein- um ólíkindum," sagði Gísli. „Til þess að koma Vegagerðinni til að skoða aðra möguleika á veglínu varð hæstvirtur samgönguráð- herra að gefa fyrirskipun þar að lútandi og virtist vera víðtæk sátt um þá tillögu, þ.e. leið 3a sem unn- in var af verkfræðistofunni Hönn- un hf.“ Gísli benti jafnframt á að sveitarstjórn Reykholtsdalshrepps, Vegagerðin, Skipulagsstjóri ríkis- ins, umhverfisráðherra, þingmenn Vesturlands og Skipulagsstjóm ríkisins hefðu samþykkt tillöguna. Þrátt fyrir það hefði umhverfisráð- herra ákveðið að ráði skipulags- stofnunar að setja málið á byrjun- arreit með því að vísa því aftur heim í hérað. Gísli skoraði því næst á umhverf- isráðhen-a að draga úrskurð sinn í málinu til baka spurði m.a. hvort viðunandi væri fyrir æðsta vald samgöngumála að stjómsýslukerf- ið gæti á þennan hátt komið í veg fyrir vegabætur. Veglína dregin um blómlega byggð Guðmundur Bjamason umhverf- isráðhema rakti í máli sínu ein- staka þætti málsins og lagði áherslu á að málsmeðferð skipu- lagsyfírvalda hefði verið með eðlilegum hætti. Málið hefði ekki verið stöðvað eða tafið af skipulagsyfir- völdum heldur mætti rekja ástæðu tafanna til ágreinings heima í héraði. Ráðherra kvaðst ennfremur hafa farið að ráðleggingum þeima ráð- gjafa sem um þessi mál fjölluðu og að það væri framkvæmdaaðilanna sjálfra og þeima sem um slík mál fjölluðu að komast að niðurstöðu um það hvar vegurinn verði lagður. Sturla Böðvarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að þegar byrjað var að skipuleggja Borgar- fjarðarbraut hefðu vegagerðar- hönnuðir dregið upp veglínu um blómlega byggð og ekki gert ráð fyrir því að þar væri fyrir fólk með bú sín og vilja til að efla landbúnað- inn. „Meirihluti sveitarstjórnar Reykholtsdals sem lögum sam- kvæmt fer með skipulagsmál í sveitarfélaginu gat ekki fallist á áform Vegagerðarinnar. I ljósi þess beittum við þingmenn kjör- dæmisins okkur fyrir því í ársbyrj- un 1996 að hæstvirtur samgöngu- ráðhema Halldór Blöndal fengi ótengdan aðila til að skoða þetta mál. Virtur lögfræðingur benti á að meðalhófsreglu stjómsýslulaga væri ekki gætt með því að velja þessa veglínu ef um aðra jafngóða leið var að ræða og því hæpið að leggja veg um tún og engi og kljúfa jarðir.“ Sagði Sturla að því hefði orðið úr að leita annama kosta og að óháður hönnuður þekktrar verkfræðistofu hefði lagt til svo- kallaða sáttaleið, sem löglega kjör- in sveitarstjóm hefði samþykkt og væri tilbúin til þess að afgreiða með flýtimeðferð. Síðar í umræð- unni kvaðst Sturla telja að það vantaði hvorki skipulagsvinnu, rannsóknir, né undirbúning í þessu máli heldur þyrfti að taka ákvörð- un til að leysa þetta mál og ósann- gjamt væri að vísa málinu aftur heim í hérað. Vegagerðin farin að borga himinhá gjöld Halldór Blöndal samgönguráð- hema sagði m.a. að deilumar í Borgarfirði hefðu komið sér mjög á óvart vegna þess að hann teldi sáttatillöguna raunhæfa. Ennfrem- ur tók hann undir það sjónarmið að það myndi valda miklu óhagræði fyrir bóndann á Stóra-Rroppi ef vegur yrði lagður fyrir neðan Stóra-Kropp. „Þess vegna kemur mér mjög á óvart að ekki skuli hafa náðst samkomulag í sveitinni um sáttaleiðina og líka það að bændur ALÞINGI GÍSLI S. Einarsson málshefjandi sagði að í þrjú og hálft ár hefði staðið yfir þref og þjark um veglagningu Borgaríjarðarbrautar milli Flókadalsár og Kleppjárnsreykja. uppi í Borgarfirði hafi það fyrir sér- stakt keppikefli og markmið að vegir að óþörfu séu lagðir yfir tún og lendur nágrannabænda," sagði samgönguráðhema. Samgönguráðhema sagði enn- fremur að hann sæi því ekkert til fyrirstöðu skipulagslega að leggja bundið slitlag á veginn eins og hann væri núna. Ráðhema tók einnig fram að það væri rétt sem fram hefði komið í máli Gísla S. Einars- sonar að Vegagerðin væri farin að borga himinháar fjárhæðir fyrir umhverfismat að óþörfu og fyrir hvers konar bréfaskriftir og athug- anir sem nauðsynlegt væri að gera vegna nýma vinnubragða Skipulags ríkisins. Hjörleifur Guttormsson, þingmaður Alþýðubandalags og óháðra, undraðist það hins vegar að ráðhema skyldi gagnrýna það að farið væri að lögum og reglum. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokks, kvaðst telja að niðurstaða umhverfisráðherra um að vísa málinu heim í hérað væri eðlileg enda væri hún byggð á heimildum í skipulags- og bygging- arlögum og eftir ráðgjöf skipulags- stofnunar. „A hinn bóginn geta menn deilt um þessa niðurstöðu enda sýnist sitt hveijum í málinu," sagði hann. Magnús sagði ennfremur að mál- ið hefði margar hliðar en sú versta væri deilan sem ríkti innan sveitar því hún hefði leitt af sér óæskileg áhrif á samfélagið í héraðinu. „Þeg- ar niðurstaða um vegstæði liggur fyrir munu framkvæmdir um nauð- synlega uppbyggingu vegarins hefjast enda er gert ráð fyrir því í vegaáætlun og er það von mín að það verði sem allra fyrst,“ sagði hann að síðustu. I máli Arna M. Mathiesens, þing- manns Sjálfstæðisflokks, kom m.a. fram að hann teldi tvennt gleymast í þessari umræðu. Annars vegar gleymdist réttur einstaklingsins, í þessu tilfelli bóndans og hins vegar staða fáliðans gagnvart meirihlut- anum, sem í þessu tilfelli væru þeir íbúar Flókadals sem ættu sam- göngur sínar undir legu þessa veg- ar. Sagði hann að það yrði athyglis- vert að sjá hvemig meirihlutinn í sveitarfélaginu myndi taka á þess- um vanda. Alþingi Stutt Yfir 260 nemendur í fjarkennslu NEMENDUM í fjarnámi við Verkmenntaskólann á Akureyri hefur fjölgað úr því að vera tæplega 20 í tveimur áfóngum í það að verða 263 í 73 áföngum á síðastliðnum þremur árum. Þetta kom fram í máli Hjálmars Ámasonar, þingmanns Framsóknarflokks, á Alþingi í gær, er hann spurði menntamálaráðherra að því hvort hann hygðist beita sér fyrir aðgerðum til að tryggja áframhaldandi þróun í fjar- kennslu skólans. I máii Hjálmars kom ennfremur fram að á síðustu önn hafi nemendur í fjarnáminu verið búsettir allt frá Namibíu til Mexikós fyrir utan þá nemendur sem væru búsettir víða um Isiand. Hið sama gilti um búsetu kennara en þeir búi í öllum landsfjórðung- um. „Þetta er stórt stökk á stuttum tíma og mikiisvert og lýsir í raun engu öðru en þörfínni fyrir fjarnám og möguleikunum sem það feiur í sér,“ sagði Hjálmar m.a. I máli Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra kom fram að fjar- kennslan í Verkmenntaskólanumn væri enn tilraunaverkefni sam- kvæmt skilgreiningu menntamálaráðuneytisins og yrði það áfram til næstu áramóta. Sagði hann að sérstakur hópur starfaði nú á vegum ráðuneytisins um málefni Verkmenntaskólans og ljarkennslunnar til að styrkja grunninn þannig að verkefnið komist af þróunarstigi og verði varanlegt verkefni í Verkmenntaskólanum á Akureyri. „Það er ljóst að menntamálaráðuneytið er reiðubúið til þess að vinna að því með skólanum að styrkja forsendurnar fyrir íjarkennslunni og taka á því í samræmi við þá miklu eftirspurn og þann mikla metnað sem ríkir á þessu sviði innan skólans," sagði ráðherra meðal annars. Tillaga um aðgeröir vegna hitasóttar KRISTÍN Halldórsdóttir þingmaður Kvennalistans heftir lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um aðgerðir vegna hitasóttar í hrossum. Meginefni tillögunnar er að Alþingi álykti að fela landbún- aðarráðherra að sjá til þess að unnin verði ítarleg rannsókn og út- tekt á aðdraganda, ferli og afleiðingum hitasóttar í hrossum sem breiðst hefur út hér á landi á þessu ári. Rannsóknin verði unnin á vegum embættis yfirdýralæknis og stuðst verði við upplýsingar og gögn frá dýralæknum og hestamönnum. Á grunni hennar verði mót- uð áætlun um viðbrögð í samráði við atvinnumenn í liestamennsku og félagasamtök hestamanna. í greinargerð tillögunnar segir m.a. að brýnt sé að draga réttan lærdóm til framtíðar af þeirri hitasótt í hrossum sem geisað hefur hér á landi að undanförnu. Miklir hagsmunir séu í húfi þegar um ís- lenska hestinn sé að ræða, bæði fjárhagslega og atvinnulega séð. Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Eftirfarandi mál eru á dagskrá: 1. Staðfesting viðbótarsamn- inga við Norður-Atlantshafs- samninginn. Fyrri umr. 2. Framlag til þróunarsam- vinnu. Fyrri umr. 3. Friðlýsing íslands fyrir kjarnorkuvopnum. 1. umr. 4. íslenskt sendiráð í Japan. Fyrri umr. 5. Samstarf íslands, Færeyja, Grænlands og Noregs í fisk- veiðimálum. Fyrri umr. 6. Norrænt samstarf 1996-97. Ein umr. 7. Vestnorræna ráðið 1997. Ein umr. 8. Sameining Kjalarneshrepps og Reykjavíkur. 3. umr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.