Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 12

Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Rætt um banka í deiglunni á ársfundi Sambands íslenskra bankamanna Nauðsynlegt að hagræða og sameina í bankakerfinu Bankar eru of margir, tölvukostnaður er að sliga þá, þeir verða að laga sig að breyttu um- hverfí, var meðal þess sem Jóhannes Tdmas- son heyrði í erindum fulltrúa bankastofnana á ársfundi Sambands íslenskra bankamanna sem nú stendur yfír í Borgarnesi. SAMRUNI banka, tækni- framfarir, fækkun af- greiðslustaða, meira frjáls- ræði, breytt viðhorf neyt- enda, einkavæðing, nauðsyn hag- ræðingar og menntamál starfs- manna eru atriði sem stjórnendur banka á Islandi hafa þurft og munu þurfa að taka á í náinni framtíð eigi þeir að geta starfað áfram og veitt þá þjónustu sem vænst er af þeim í aukinni samkeppni innanlands sem utan. Fimm framsögumenn ræddu þetta efni á fertugasta ársfundi Sambands íslenskra bankamanna sem nú stendur yfir í Borgarnesi. Þeir eru Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis, Halldór Guð- bjarnason, bankastjóri Landsbanka Islands hf., Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbanka íslands hf., Svanbjörn Thoroddsen, fram- kvæmdastjóri markaðsviðskipta Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, og Valur Valsson, bankastjóri Is- landsbanka. Þá dró Gunnlaugur M. Sigmundsson alþingismaður saman helstu atriði úr framsöguerindun- um í lokin. Nýir aðilar í Qármálastarfsemi Guðmundur Hauksson minnti í upphafi máls síns á hvernig bankar hefðu lengst af starfað undir skýrri lagavernd sem verið hefði eins og múr um starf þeirra. Aðrir aðilar hefðu ekki fengið að stunda slíka starfsemi og bankar hefðu heldur ekki komið við sögu annars staðar í atvinnulífinu. Nú væri það breytt og einungis innlán væru í raun lög- vernduð en margir nýir aðilar væru farnir að stunda fjármálastarfsemi og múrarnir væru því teknir að falla. Hann sagði vöxt ------------ hafa verið hjá ýmsum öðrum peninga- og fjár- málastofnunum undan- farin ár, t.d. lífeyrissjóð- um, verðbréfafýrirtækj- um og tryggingafélögum en ekki bönkunum. Hlutur banka væri í dag um 21% af heildarfjár- magnsmarkaðnum en hefði verið yfir 30% fyrir áratug. Sparisjóðsstjórinn sagði fram- undan í bankamálum að lagavernd minnkaði og nú væri mögulegt að fá lán og ýmsa greiðsluþjónustu án milligöngu banka. Hann benti á hvernig vaxtamunur færi sífellt minnkandi hérlendis eins og gerst hefði erlendis, landamæri væru að hverfa og samkeppni milli landa að aukast, takmarkanir á fjárflutning- um einnig og reglur væru sam- ræmdar. Hann sagði meðal annars hafa orðið þá grundvallarbreytingu á störfum bankastjóra að tími þeirra færi nú orðið ekki mikið í að taka á móti viðskiptavinum sem væru að óska eftir lánum og taldi Morgunblaðið/Ásdís NÁLEGA 80 manns sitja ársfund Sambands íslenskra bankamanna sem haldinn er í Hótel Borgarnesi. Tap bankanna á greiðslu- miðlun er á annan milljarð ýmsar fleiri breytingar framundan. Með tilkomu tækninýjunga færu aukin bankaviðskipti fram um heimabanka og alnet, enda væri ódýrara að þjóna viðskiptamönnum á þann hátt, afgreiðslur með kort- um færu sífellt vaxandi og framundan væri að taka upp mynt- kort, þjóðfélagið yrði myntlaust áð- ur en langt um liði. Sagði hann því ekki aðeins breytingar framundan heldur byltingu. Taldi Guðmundur að tryggð viðskiptavina við sinn banka færi og minnkandi, m.a. vegna þess að viðskiptin yrðu sífellt vélrænni, mannshöndin kæmi æ minna við sögu vegna sjálfvirkni og því myndu viðskiptavinir gera æ minni greinarmun á því hver bank- inn væri. Verðum að steingervingum „Við lifum á tímum örra breyt- inga og okkur er nauðsynlegt að taka þátt í þessum breytingum. Ef við gerum það ekki þá verðum við að steingervingum og missum þennan veigamikla þátt sem fjár- málaþjónustan er til annarra aðila,“ sagði Guðmundur. Hann kvaðst sannfærður um að bankar fyndu sér annan farveg en skilyrði þess væri að stjórnendur og starfsmenn áttuðu sig á því hvað væri framundan, annars yrðu menn undir. „Bankar eru lifandi fjármálaíyrirtæki, ekki stofnanir, sem verða að “ laga sig að breyttu hlut- byggja rekstui’ sinn á vel starfsfólki sem beitir verki, menntuðu fullkomnustu tölvutækni sem er fá- anleg á hverjum tíma í sínum störf- um,“ sagði Guðmundur ennfremur og sagði þekkingu starfsfólks lykil- atriði í þessum efnum. Vegna sífellt meiri ráðgjafar sem fram færi á vegum bankanna yrði menntun æ veigameiri þáttur. Taldi hann að hún yrði að fara fram jöfnum hönd- um innan bankakerfisins, að núver- andi starfsmönnum yrði gefínn kostur á endurmenntun með hvers kyns námskeiðum, jafnframt að bætt yrði við öðru sérmenntuðu fólki. ' Halldór Guðbjarnason vitnaði til síðustu ársskýrslu bankastjórnar Landsbankans þar sem segir að næstu ár muni einkennast af enn frekari grundvallarbreytingum í rekstri fjármálafyrirtækja, tækni- nýjungar væru að gjörbreyta öllu samskiptaneti fjármálaíyrirtækja við viðskiptavini og aukin sam- keppni væri íyrirsjáanleg, ekki síst frá aðilum sem ekki hefðu til þessa haslað sér völl á þessu sviði. „Það sem einkennir þessa þróun hér á landi er að þessar breytingar ger- ast á tiltölulega skömmum tíma,“ sagði Halldór. Hann sagði blikur á lofti í bankakerfinu vegna breyttra aðstæðna, svo sem samkeppni um sparnað einstaklinga, einkavæðing- ar, aukinna verðbréfaviðskipta, al- þjóðavæðingar og tækniframfara. Oft fastir í fari fortíðar Halldór sagði tæknina skapa nýja möguleika en erfitt hefði reynst að fækka útibúum sem væri þó nauð- synlegt og nefndi sem dæmi að kostnaður við að þjónusta við- skiptavini með heimabanka eða símaþjónustu væri aðeins 50% þess sem hann væri í hefðbundnu útibúi. Halldór taldi banka ekki standa framarlega í því að hagnýta sér upplýsingatækni, hún væri byggð á forritum sem væru komin vel til ára sinna. „Við erum oft fastir í fari for- tíðar og erum á sama tíma að glíma við nýja samkeppni sem nýtir sér framfarir í þessum efnum,“ sagði Halldór. Hann nefndi að bandarísk- ir bankar hefðu sumir hverjir boðið viðskiptavinum sínum að greiða þeim íyrir að nota hraðbanka eða símabanka í stað þess að koma í úti- búin. Þá sagði hann bönkum nauð- synlegt að vanda betur til útlána til að draga sem mest úr útlánatapi. Hann sagði banka telja heimamark- að sinn ná sífellt lengra. Þannig skilgreindu bankar á Norðurlönd- um öll Norðurlöndin sem heima- markað sinn og bankar í Evrópu litu á öll Evrópulönd sem heima- markað. Halldór nefndi að kostnaðarað- hald væri þýðingarmikið á tímum minnkandi vaxtamunar og brýnt væri að ekki yrði stofnað til kostn- aðar nema fyrirsjáanlegt væri að það gæti skapað auknai- tekjur. Kostnaðarstjórnun fælist þó ekki eingöngu í því að skera niður kostn- að, stundum yrði að fjárfesta til að ná mætti framtíðarárangri. Banka- stjórinn sagði að stærstur hluti af fjárfestingu bankanna og flestir starfsmenn væru bundnir við greiðsludreifingu en sífellt stærri hluti hennar væri nú að komast í rafrænt form. „Það er tilfinning mín að á þessari starfsemi séu ís- lenskir bankai’ að tapa stórfé. Það er því knýjandi nauðsyn að fá full- nægjandi vitneskju um afkomu þessarar þjónustu og endurskipu- leggja hana þannig að hún gefi bönkum eðlilega framlegð. Aukin verðbréfaviðskipti er sú starfsemi sem bankar binda mestar vonir við til að auka aðrar tekjur," sagði Halldór Guðbjarnason. Þá sagði Halldór að launakostn- aður bankanna væri um 50% af rekstrarkostnaði og stór hluti af öðrum kostnaði væri beint tengdur fjölda starfsmanna. Hann sagði tölvukostnað einnig gífurlegan, hann væri nánast að sliga bankana og hefði verið á áttunda hundrað milljónir króna hjá Landsbankan- um á síðasta ári. Útibúum aðeins fækkað um 1% Sólon R. Sigurðsson sagði vanta heildarstefnu ríkisins varðandi fyr- irhugaða sölu bankanna, hversu hratt eigi t.d. að selja hlutinn í Fjárfestingabanka atvinnulífsins og hverjum. Hann bar fram tölur um þróun ýmissa atriða í ------------ bankakerfinu síðustu árin og benti t.d. á hvernig umfang í starfi lífeyris- sjóðanna hefði aukist margfalt meira en bank- anna. Sólon taldi rými til hagræðingar hjá íslenskum bönk- um, útibú væru nú 181 og hefði að- eins fækkað um 1% frá árunum 1990-1991. Hann sagði um 3,9% af heildarfjármagni bundið í húsnæði bankanna og búnaði sem væri tæp- lega helmingur eigin fjár. A Norð- urlöndunum væri þetta hlutfall 0,6%-l,57% af heildarfjármagni og 13-22% af eigin fé og sagði hann það benda til að hagræðingarmögu- leikar væru fyrir hendi í útibúaneti íslenska bankakerfisins. A hinum Norðurlöndunum hefði þeim fækk- að, t.d. um 30% í Finnlandi. Sólon taldi mögulegt að ná hag- ræðingu í rekstri útibúanetsins ef bankar og sparisjóðir kæmu sér saman um að reka aðeins eitt útibú þar sem ljóst væri að enginn rekstrargrundvöllur væri íyrir tveimur útibúum. Þá sagði hann hægt að ná umtalsverðum sparnaði í bankakerfinu ef hætt yrði að greiða niður greiðslumiðlunina eins og gert væri í dag og gjöld hækkuð í átt til raunkostnaðar og leggja jafnframt áherslu á að auka sjálf- virkni, beingreiðslur og sjálfsaf- greiðslu. Áætlaði Sólon að tap bankanna á greiðslumiðlun væri hátt á annan milljarð og ljóst væri að vaxtamunurinn væri notaður til að greiða þetta tap. Bankastjórinn sagði útibúanetið hafa byggst upp við önnur skilyrði en nú væru fyrir hendi, breyttar að- stæður hlytu að knýja fram breyt- ingu. Eina leiðin til að ná innlánum hefði á sínum tíma verið sú að opna nýtt útibú. Taldi hann mögulegt að fækka útibúum án þess að það kæmi verulega niður á þjónustu, pósthús sinntu t.d. greiðslumiðlun að vissu marki, mikilvægi útibúa í bankaþjónustu færi minnkandi en mikilvægi annarra þátta vaxandi. Hann sagði að lokum að mál mál- anna virtist vera hver sameinaðist hverjum, kvaðst ekki vilja tjá sig um það þar sem ársfundur Búnað- arbankans hf. hefði ekki farið fram og lítil umræða hefði farið fram inn- an bankaráðsins. Taldi hann ljóst að einhver samruni yrði í banka- kerfinu í næstu framtíð. Svanbjörn Thoroddsen sagði að starf bankanna væri nú mun sér- hæfðara en áður og að breytingar væru að gerast hér á landi á mun skemmri tíma en í nágrannalönd- um. Hann sagði tæknibreytingar og upplýsingabyltinguna, lagabreyt- ingar og hegðun viðskiptavina hafa breytt öllu fjármálastarfi en grunn- viðfangsefnin væru þó hin sömu: Fjármögnun, áhættustýring, miðl- un, ráðgjöf og verðmætatilfærsla. Mestar breytingar væru varðandi miðlun og ráðgjöf. Aðspurður hvort hinir bankarnir væru líklegir kaup- endur að 49% hlut ríkisins í Fjár- festingabanka atvinnulífsins sagði Svanbjörn engar áætlanir um slíkt. Vel mætti ímynda sér að líklegir kaupendur væru innlendir eða er- lendir aðilar sem hefðu áhuga af viðskiptalegum toga, almenningur á íslandi eða starfsmenn. Arðsemin of lítil Valm- Valsson sagði nauðsynlegt að taka bankamálin fóstum tökum. Hann sagði íslenska banka í vax- andi mæli mæta erlendri sam- keppni og skoða yrði stöðuna með það i huga. Valur sagði að hér væru of margir bankar, of margir af- greiðslustaðir og of margir banka- starfsmenn. Afleiðingin væri sú að kostnaður væri of mikill og arðsem- in of lítil. Hann sagði erlenda banka hafa gengið gegnum þróun íyrir 10 árum sem nú væri komin hingað, að lækka yi’ði kostnað og sameina banka. Hann sýndi tölur um kostn- aðarhlutfall banka og sagði íslenska banka svipaða og þýska og franska og það gæti stafað af því að ríkisaf- skipti af bankamálum í þessum ---------- löndum væru svipuð. Hann nefndi að sjálf- virkni væri brýn og sagði að árið 1990 hefðu um 5% af færslum í íslands- banka verið með sjálfsaf- ““ greiðslum, í fyrra hefði hlutfallið verið 56% og árið 2000 yrði það líklega orðið 80%. Hann sagði nauðsynlegt að styrkja íslenska banka, lækka kostnað með samruna og að ríkið drægi sig út úr bankarekstri. Hann sagði sameiningu þá leið sem mest reynsla væri af. Hann sagði einka- væðingu eiga auknu fylgi að fagna og vitnaði í nýlegan þjóðarpúls Gallups þar sem kom fram að um 75-77% landsmanna væru fylgjandi sölu hlutafjár í ríkisbönkunum. Hann sagði ekkert aðalatriði hversu hratt ríkið drægi sig út úr banka- rekstri, það gæti gerst á einu ári eða fimm, en það yrði að gerast. I lokin dró Gunnlaugur M. Sig- mundsson alþingismaðui’ saman það helsta sem fram kom í erindum fimmmenninganna. Einhver sam- runi banka er fyrirsjáanlegur á næstunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.