Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 15

Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 15 Morgunblaðið/Kristján NANAST full mæting var á fundinn hjá Utvegsmannafélagi Norðurlands í gær. Félagið er stærsta aðildarfé- lagið innan LÍU og nær félagssvæði þess frá Hvammstanga austur á Langanes. Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar nokkuð bjartsýnn Frekar þungt hljóð í útvegsmönnum HÚSFYLLIR var í Alþýðuhúsinu á Akureyri í gær, þegar sjómanna- forystan kynnti miðlunartillögur ríkissáttasemjara í deilu sjómanna og útvegsmanna og frumvarpsdrög stjómvalda. Hann var einnig þétt setinn bekkurinn á Fosshóteli KEA, þar sem miðlunartillögumar og frumvörpin voru kynnt í hópi útvegsmanna. Útvegsmenn og sjó- menn greiddu atkvæði um miðlun- artillögumar í gær og stóðu kjör- fundir fram á kvöld. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Islands kom norður á fundinn á Akureyri og kynnti miðlunartillögumar og fmmvörpin. Hann sagðist í upphafi síns máls ekki hafa átt von á því þegar hann hitti sjómenn fyrir norðan síðast, að hann ætti að standa í þeim sporum að kynna miðlunartillögur í deilunni. Vilji þeirra hafi staðið til að semja um kjarasamning sjómanna. Allt unnið á einn veg Bjarni Hafþór Helgason, fram- kvæmdastjóri Útvegsmannafélags Norðurlands, sagði að farið hefði verið mjög vandlega yfir miðlunar- tillögurnar og fmmvarpsdrögin. „En ég get ekki neitað því að hljóð- ið í mönnum var frekar þungt. Um- ræðan var á þeim nótum, að nánast allt sem þarna kemur fram er unn- ið á einn veg og menn leituðu log- SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Islands, og Kon- ráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, ræða málin á fundi sjómanna. andi ljósi að einhverri setningu sem við gætum sagt að væri sér- staklega til komin til að styrkja okkar stöðu að einhverju leyti. Menn veltu upp ýmsum möguleik- um í stöðunni en menn em þungir á brún og það verður svo að koma í ljós hvemig það skilar sér upp úr kjörkössunum,“ sagði Bjarni Haf- þór. Sjómannasamband Eyjafjarðar, Skipstjóra- og stýrimannafélag Norðlendinga og Vélstjórafélag fs- lands stóðu fyrir sameiginlegum fundi í Alþýðuhúsinu. Konráð Al- freðsson, formaður Sjómannasam- bands Eyjafjarðar sagði að hljóðið í mönnum á fundinum hefði verið upp og ofan. „Þó má segja að þeir sem tóku til máls hafi verið frekar neikvæðir. Það er nú oftar sem nei- kvæðu raddirnar heyrast betur en ég held að menn muni samþykkja þetta eigi að síður,“ sagði Konráð. Gunnar M. Guðmundsson framkvæmdastjóri Sérleyfísbfla Akureyrar a • • Astandið á Oxnadalsheiði einkenndist af klúðri GUNNAR M. Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Sérleyfisbíla Akur- eyrar telur að ástandið við Bakkaselsbrekku á Öxnadalsheiði síðastliðinn mánudag hafi ein- kennst af klúðri. Fólk í um 100 bfl- um beið neðan við brekkuna eftir að komast upp og um 40 bílar voru í röð uppi. Bakkaselsbrekkan var ófær á sunnudag og fram á mánu- dagskvöld. „Við voram að koma að sunnan á 6 rútum og biðum í Varmahlíð meðan veðrið gekk yfir og vorum í góðu sambandi við þá á Öxnadals- heiðinni. Við lögðum af stað frá Varmahlíð um kl. 15 en þá hafði okkur verið sagt að búið væri að opna. Þegar við komum að Kotum er snjóblásarinn þar og við ókum á 20 kílómetra hraða á eftir honum í blíðskaparveðri að Bakkasels- brekku. Þá tók við löng og mikil bið og fólki var sagt að verið væri að ná póstbflnum niður úr brekkunni, það væri ástæðan fyrir biðinni. Bílstjóri í bíl frá okkur á suðurleið sá póstbflinn hins vegar koma til Akureyrar um 16.30, þannig að tafimar hafa verið af einhverjum öðram ástæðum. Það var ágætis veður þar sem við bið- um, farþegarnir fóra út að leika sér og við sáum vel til fjallatinda í ná- grenninu," sagði Gunnar. „Þetta einkenndist að mínu mati af al- gjöra klúðri, þetta ástand. Við horfðum upp á snjóblásara og hefil í tvo tíma og var ekkert hreyft við þessum tækjum. Gunnar sagði að um árabil hefðu bflstjórar búið við mjög góða þjón- ustu á Öxnadalsheiði, en sér fynd- ist hún hafa versnað. Vegurinn væri oft ekki hreinsaður nægilega vel, snjónum ekki blásið burtu og því yrði hann ófær um leið og færi að renna. Ráðstefna um árang- ur í skólastarfí RÁÐSTEFNA um árangur skóla- starfs í grannskólum á Norðurlandi eystra verður haldin í Hólum, hátíð- arsal Menntaskólans á Akureyri, næstkomandi laugardag og hefst hún kl. 9.30 með ávarpi Ástu Sig- urðardóttur formanns skólaráðs Eyþings og ávarpi Þorsteins Gunn- arssonar rektors Háskólans á Akur- eyri. Skólaþjónusta Eyþings, kennara- deild Háskólans á Akureyri og Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri boða til ráðstefnunnar. Tilgangur hennar er að fjalla um ár- angur í skólastarfi með hliðsjón af samræmdum prófum og saman- burðarkönnunum Rannsóknarstofn- unar uppeldis- og menntamála. Einnig verður fjallð um hvernig stuðla megi að bættum árangri í skólum á svæðinu. Amalía Bjömsdóttir starfsmaður Rannsóknarstofnunar uppeldis- og menntamála og lektor við Kennara- háskóla íslands flytur aðalfyrirlest- ur ráðstefnunnar um náms- og fé- lagslega stöðu ungmenna á Norður- landi eystra, en auk hennar flytja kennarar, skólastjórar, fulltrúar Háskólans á Akureyri, Skólaþjón- ustu Eyþings, sveitarstjórna og for- eldra erindi um viðfangsefnið út frá sínum sjónarhóli. Ráðstefna um árangur skólastarfs á Norðurlandi eystra haldin í Menntaskólanum á Akureyri 21. mars 1998. Ráðstefnustjórar: Anna Þóra Baldursdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri. Rúnar Sigþórsson, kennsluráðgjafi Skólaþjónustu Eyþings. 09.30-09.35 09.35-09.45 09.45-10.30 10.30- 10.50 10.50- 1.05 11.05-11.25 11.25-11.45 11.45-12.00 12.00-13.10 13.10-13.30 13.30- 13.50 13.50- 14.10 14.10-14.30 14.30-14.50 14.50-15.10 Dagskrá Setning - Ásta Sigurðardóttir, formaður Skólaráðs Eyþings. Ávarp - Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri. Náms- og félagsleg staða ungmenna á Norðurlandi eystra - Amalía Björnsdóttir, starfsmaður RUM og lektor við KHÍ. Umræður og fyrirspurnir. Hlé. Mikilvægi raungreina og vandi grunn- skólans - Stefán G. Jónsson, dósent við Háskólann á Akureyri. Staða og möguleikar kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Umræður og fyrirspurnir. Hádegishlé. Upplýsingasöfnun í skóla sem forsendur umbóta - Guðmundur Þór Ásmundsson, skólafulltrúi á Akureyri. Hvað geta sveitarfélög gert til umbóta í skólastarfi? - Einar Njálsson, bæjarstjóri Húsavík. Stuðningur foreldra við umbætur í skólastarfi - Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvar Akureyrar. Skólastarf í Grunnskóla ísafjarðar - Kristinn Breiðfjörð, skólastjóri G.í. Umræður og fyrirspurnir. Kaffi. 15.10-15.30 Hugleiðingar um árangur í skólastarfi - Iðunn Antonsdóttir, kennari í Húsabakkaskóla. 15.30- 15.50 15.50-16.10 16.10-16.30 16.30- 16.45 16.45 Leiðir til úrbóta - Halldóra Haraldsdóttir, skólastjóri Giljaskóla. Áherslur í umbótastarfi - Rósa Eggertsdóttir, forstöðumaður þjónustudeildar Skólaþjónustu Eyþings. Umræður og fyrirspurnir. Samantekt og framtíðarsýn - Jón Baldvin Hannesson, forstöðumaður Skólaþjón- ustu Eyþings. Ráðstefnuslit. Ráðstefnugjald 1.500 krónur. Skráning í síma 463 0900.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.