Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 23
NEYTENDUR
Spurt og svarað
Bein lína fyrir
aldraða og sjúka
STENDUR sú þjónusta til boða
hjá Landssímanum að ef aldraðir
þurfa aðstoð og ná einungis að
lyfta símtólinu þá hringi síminn
sjálfvirkt í visst númer?
Svar: „Þessi þjónusta hefur stað-
ið til boða í um tíu ár og kallast bein
lína. í dag eru það tæplega 400
manns sem nýta sér hana“, segir
Hrefna Ingólfsdóttir upplýsinga-
fulltrúi Landssímans. „Þjónustan er
án stofngjalds en ársfjórðungsgjald
er 190 krónur.
Bein lína virkar þannig að sím-
inn hringir sjálfvirkt í annan síma
þegar tólinu er lyft af og hægt er
að velja um að láta þetta gerast
samstundis eða eftir sex sekúnd-
ur. Ef síðari möguleikinn er valinn
er hægt að hringja í önnur númer
að vild áður en sekúndurnar sex
eru liðnar. Einnig er hægt að
breyta um fasta númerið eftir
þörfum."
Hrefna segir að þessi þjónusta
geti komið sér vel fyrir aldraða eða
sjúka svo og fyrir sjóndapra og þá
sem eru famir að missa minni og
hringja stundum í önnur númer en
þeir ætluðu sér.“
Verð ekki gefíð upp í síma
hjá Bónus
- Er verð á vörum í Bón-
us ekki gefið upp í síma?
Svar: Þetta er þjónusta sem kostar
fjármuni og við kjósum frekar að
lækka vöruverð en veita hana“, segir
Jón Asgeir Jóhannesson i Bónus.
OLL HREINSIEFNII
Úrvalið er hja okkur
Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur
Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001
rnuRH!
Garpur er kröftugur drykkur sem býr yfir
mikiu og hressandi ávaxtabragði og er ríkur
að kalki og C-vítamíni. Uppistaðan er mysa
en í henni eru öll helstu bætiefni mjólkurinnar.
Garpur er góður á íþróttaæfinguna,
\ skólann, fjallið, bíltúrinn og bústaðinn.
FAÐU ÞER EINN - DAGLEGA nmr
r
Eg læt ekki meta mig.
Eg er traustur viðskiptavmur!
L
Landsbanki íslands
Einstakllngsvitsklpll
TraustiS er hjá þér og ib y rgSIn h j i okkur