Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 31

Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 31 i LISTIR Drauga- gangur Á STUNDUM virðist sem hlutimir fari úr böndum í vinnslu blaðsins svo að til vandræða horfír og eng- inn skilur. Eins og þegar mynd Caravaggios birtist í tvígang með grein minni í blaðinu 24. febrúar þrátt fyrir að ég margfæri yfir próförk og allar myndirnar væru réttar og á sínum stað er ég yfirgaf vinnsludeildina kvöldið áður. Það er nefnilega mikil vinna að baki slíkrar greinar og skiptir máli til úrslita að vel sé staðið að verki. Hvemig þetta átti sér stað á síð- asta snúningi er ráðgáta sem eng- inn gat svarað. I listrýni minni í þriðjudagsblað- inu, þar sem fjallað er um sýningar þriggja módernista sem nú standa yfir í Listasafni Kópavogs, víxluð- ust ekki aðeins textar undir tveim myndanna, heldur fylgdu rangar myndir skrifunum. Iðulega tek ég myndirnar sjálfur, einkum við góð- ar aðstæður, en í þessu tilviki treysti ég ekki myndavélinni til að ná nógu góðri mynd í kjallarasöl- unum. Á vettvang var því ræstur ljósmyndari með fullkomnar EINAR Þorláksson, Blámannatrúboðið, akrýl á dúk. græjur, en hann virðist bersýni- lega hafa tekið rangar myndir, og loks var þetta kórónað með því að víxla textum. Ég fer mjög sjaldan sjálfur yfir próförk listdóma, en hér er komið ljóst dæmi hvemig vel upp sett grein, þar sem menn hafa vandað til verka og allt virðist í besta lagi, reynist bera í sér ljóta fingurbrjóta. - Annað mál er að sjálfum varð mér á lítt skiljanlegur fingurbrjót- ur er ég fjallaði um umskiptin sem urðu með tilkomu popp- og hug- myndafræðilegu listarinnar, sem vel að merkja áttu sér stað á sjö- ELÍAS B. Halldórsson, Kulið svifar, olía á dúk. unda og áttunda áratugnum. Ní- mesta uppgang þess á öldinni allt undi áratugurinn markaði svo nýj- fram að krakkinu svonefnda. ar uppstokkanir í málverkinu og Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.