Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 35

Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 35 SJONMENNTAVETTVANGUR MEÐAL margra furða á Náttúrusögusafninu var þetta meistaraverk hafdjúpanna, minnir á kafbát með ratsjám. ÞJÓÐLISTASAFNIÐ í Prag tveim árum eftir byggingu þess. ÞAÐ getur verið fagurt að b'ta yfir Moldá í morgunsárið. kominn inn í leikfangasafn, er var líkast markaði í uppsetningu og skorti nokkuð á stemmningu og húmor. Aðalsöfnin eru staðsett í klaustri heilags Georgs, sem Bo- leslav II lagði gi-unn að 973, og Sternberg-höllinni, heitin í höfuðið á aðalsmanninum Frans Josef Sternberg, sem stofnaði félag þjóð- ernislega sinnaðra listvina í Bæ- heimi 1786. Aðrir aðalsmenn lán- uðu gjarnan merkustu verk sín til félagsins sem hafði aðsetur í höll- inni, og fyrir seinni heimsstyrjöld- ina varð safnið ríkiseign. Bæði eru á köflum opinberun hvor á sinn hátt, hið fyrra hýsir tékkneska list frá gotík til endurreisnar- og bar- rokktímabilsins, en hitt evrópska list fram á þessa öld. Nokkur upp- stokkun og flutningur á sér stað svo ekki var aðgangur að öllu sem Sternberg-safnið hefur að geyma. Sökum þess að ég hafði verið á leiðinni tíl Vínarborgar skoðaði ég mjög vel eign safnsins á málverk- um Brueghel-feðganna, en í Vín var einstök sýning á þeim nýopnuð á Listasögusafninu, stendur til 14. apríl. Frétti af gífurlegri aðsókn og löngum biðröðum, svo ég hætti við fór, tími naumur og gæfulegra að einbeita sér að því sem maður þekkir minna til. Vegna umræðu um myndfalsanir má koma fram, að Vínarbúar eni sagðir skemmta sér við að geta sér til hvað sé raun- verulega eftir Jan eldri, en hvað synir hans tveir, Pieter og Jan yngiá, máluðu og merktu honum! Sjálfir voru þeir frábærir málarar en pabbinn til muna nafnkenndari og verðmætari. Veletrzní-höll, sem lengstum var kaupstefnuhöll og tímamótabygging í nútíma arki- tektúr er hún var byggð á árunum 1925-28, en lenti í bruna 1974 og var endurbyggð sem nútímasafn, auk þess að hýsa hluta af Stem- berg-safninu. Hönnuð af Oldrich Tyl og Josef Fuchs og afar nútíma- leg enn þann dag í dag, og þótt ótrúlegt sé nær byggingin yfir stærri samanlagðan gólfflöt en nokkurt annað núlistasafn í Evr- ópu, eða 25.000 fermetra! Safnið, sem lauk upp dyram sínum í des- ember 1995, er afar fínt og vel að því búið en virðist enn í mótun, að- koman ásamt jarðhæðinni allri nokkuð hrá, en á framtíðina fyrir sér. Efnahagsþrengingar hafa ekki hindrað að Tékkar rækti þessa hlið þjóðmenningar sinnar, frekar en t.d. Spánverjar. I safninu er saman komið mikið úi-val tékkneskrar og evrópskrar nútímalistar og tekur eðlilega drjúgan tíma að fara yfir það allt. Merkja má í sumum verk- anna afar skyld áhrif frá franskri list og bregður fyrir í íslenzku mál- verki á öldinni. Eftir að hafa heim- sótt öll þessi söfn í Prag á hraðferð hafði ég á tilfinningunni, að inn- lendir listamenn hefðu mátt rækta betur sína ríku bæheimsku arfleifð og yfirfæra á nútímann. Það kom sjálfum mér mjög á óvart eftir skoðun safnsins, að minnisstæð- ustu málverkin reyndust borgar- myndir frá Prag eftir Oscar Ko- koschka. Hins vegar er hin tékk- nesk-austurríska grein æskustíls- ins, Jugendstil/ Art Nouveau, sér á báti og mjög í stíl við fortíðina. Þetta snýst ekki um kvikmyndagerð KVIKMYNPIR Laugarásbfö DJARFAR NÆTUR „BOOGIE NIGHTS" irtck Leikstjóri, framleiðandi og handrits- höfundur: Paul Thomas Anderson. Aðalhlutverk: Mark Wahlberg, Burt Reynolds, Julianne Moore, Heather Graham. 1997. BANDARÍSKA bíómyndin Djarf- ar nætur eða „Boogie Nights“ er ópus hins unga leikstjóra og hand- ritshöfundar Paul Thomas Ander- son um klámiðnaðinn vestra á diskótímanum, um það bil sem iðn- aðurinn var að verða verulega ábatasamur með tilkomu mynd- bandatækninnar og áður en eyðni kom til sögunnar. Myndin er næst- um því epísk að umfangi og fylgir risi og falli einnar af klámstjörnum tímabilsins og liðinu sem hann kynnist, sem margt er skrautlegt. Aðalpersónan er ungur strákur sem fer að heiman (sagt er að sag- an byggi að einhverju leyti á ævi klámriddarans John Holmes) þegar hann kynnist klámmyndaframleið- anda sem lofar honum gulli og grænum skógum leiki hann í mynd- um hans. Stráksi fær nýtt nafn, hið flugbeitta Dirk Diggler, og vinnur til verðlauna iðnaðarins fyrir bólfimi sína en ekki síður leik. Allir fá einhverja guðsgjöf úr að spila, segh- hann og í hans tilfelli er það risastór drellir. Anderson filmar sögu klám- stjörnunnar og klámiðnaðarins á þessu tímabili með töluverðum bravúr. Hann notar mikið hand- helda myndavél er gerir myndatök- una mjög hreyfanlega og skapar gott flæði sem undirstrikað er með Sýningum lýkur Norræna húsið SÝNINGUNNI Non-ænt ljós og myrkur lýkur sunnudaginn 22. mars. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18. Gallerí Stöðlakot Sýningu Steindóru Bergþórsdótt- ur á glerlist lýkur sunnudaginn 22. mars. Galleríið er opið daglega frá kl. 14-18. --------------- Nýjar bækur • HEILSUFRÆÐI heimilanna - hollráð við algengum kvillum er í samantekt Gísla Ragnarssonar. Þetta er uppflettirit fyrir almenning um einföld en holl ráð sem duga gegn fjölda algengra sjúkdóma og kvilla. Byggt er á nýjustu sérfræði- ritum, jafnt innlendum sem erlend- um. Bókin nær yfir víðtækt svið, þar sem m.a. eru ráðleggingar varð- andi næringu, tannhirðu og hrein- læti, auk ýmissa ráða sem lúta að forvörnum í heilsugæslu. Ekki eru í bókinni neinar kraftaverkalækning- ar eða úrræði sem koma í stað hefð- bundinnar læknismeðferðar, segir í fréttatilkjmningu, heldur traust ráð sem hægt er að nýta við eigin heilsugæslu. Gísli Ragnarsson hefur m.a. áður gefið út bækur um heilbrigðisfræði og lífræna efnafræði auk þess sem hann hefur ritað greinar um heil- brigðismál í innlend og erlend tíma- rit. Útgefandi er IÐNÚ hókaútgáfa og er bókin 348 bls. Verð: 3.250 kr. tónlist. Tökurnar eru oft langar og flóknar og hann brúkar víxlklipp- ingar frá einum atburði á annan með góðum árangri. Þetta er ekk- ert sem Martin Scorsese eða Qu- entin Tarantino hafa ekki gert áður (og myndin verður reyndar eins og Tarantinomynd á tímabili) en And- erson nýtir sér vel upptökutæknina til þess að skapa frásagnarstíl sem fellur að viðfangsefninu og setur í einn ólgandi hræripott diskóið, klámið, dópið, ofbeldið, drauma og vonbrigði svo úr verður næsta vold- ug kvikmynd, gráglettin, írónísk og á einhvern hátt döpur. Viðfangsefn- ið gerir myndina að sjálfsögðu klámfengna en Anderson kemst hjá því að gera hana ómerkilega. Hún er í hjarta sínu um ameríska drauminn og er að því leytinu ákaf- lega mannleg og sorgleg. Hún er um mann sem þráir frægð og frama og klámiðnaðurinn er eins góð leið upp til stjarnanna og hver önnur. Þetta er sami heimurinn og við þekkjum úr glanstímaritunum en samt eins konar undirveröld. Þarna er lélegur leikur, hræðileg handrit, afleit leikstjórn, skelfileg fram- leiðsla, stjörnur með mikil- mennskubrálæði, vondir aukaleik- arar, ríkidæmi og glamúr, hei, al- veg eins og í alvöru bíómyndunum. Anderson gerir sér far um að lýsa fólkinu á bak við klámiðnaðinn og búa til úr því sögur á mannlegum nótum og gera það hversdagslegt; allir vita að þeir geta ekki staðið í þessari vitleysu að eilífu en þeir eiga erfitt með að smella aftur inn í samfélagið með klámið á bakinu. Það er líka ákveðin kaldhæðni fólgin í klámmyndagerðinni, sem Anderson gerir sér fínlega mat úr. Klámmyndaframleiðandinn Jack Horner, sem Burt Reynolds leikur og hefur ekki verið betri í langan tíma, dreymir um að búa til alvöru bíómynd úr klámmyndinni og finnst honum hafa tekist það með Dirk Diggler í myndaseríu um kná- an lögreglumann sem einnig er ofsalegur kvennamaður; Horner er svo hreykinn að hann næstum því viknar. Anderson sýnir okkur brot úr meistarastykkinu og við sjáum að Horner er verri en Ed Woods og maður fær hálfgerða samúð með bjánanum. Ef það er eitthvað sem myndin sýnir þá er það þetta: Klámið er iðnaður hinna hæfileika- lausu. Eða eins og einn þeirra segir við Horner hinn metnaðarfulla: Vinur, þetta snýst ekki um kvik- myndagerð. Leikur er allur hinn besti. Mark Wahlberg, sem leikur Dirk Diggler, gerir það af miklum sannfæringar- krafti, Julianne Moore er stórkost- lega á skjön sem klámdrottningin mikla sem fer um sviðið eins og keisaraynja um lastabæli sitt, Reynolds hefur ekki verið betri í langan tíma eins og áður sagði og tekst að gera bæði mannvin og drulluhala úr sama manninum og Heather Graham er fín sem hjóla- skautastúlkan, eitt af vörumerkjum Hornermyndanna. William H. Maey kemur fram í litlu hlutverki kokkálaðs eiginmanns og stelur senunni í hvert skipti eins og maga- sár í framan. Anderson hefur gert góða bíó- mynd úr sögu klámstjörnunnar og lýsingu á klámiðnaðinum. Hún er að vísu of löng og hann skautar svo- lítið frá aðalefninu þegar Tar- antinotaktarnir taka völdin en það er minniháttar mál. Það er fengur að myndinni því hún er fyrst og fremst um raunir og sigra ósköp venjulegs fólks, sem bara vill svo til að gerir klámmyndir. Arnaldur Indriðason Sértllboð tíl Costa del Sol 14. apríl, 4 vikur frá 43.575 Verð kr. Verð kr. Við höfum nú tryggt okkur viðbótargistingu á Costa del Sol í vorferðina 14. apríl á hreint frábæru verði. Sunny Beach, fal- legt, lítið íbúðarhótel við hliðina á hinum þekkta Benal Beach gisti- stað. Studioíbúðir með eldhúsi, baði, svölum, fallegum garði og móttöku sem er opin allan sólar- hringinn. Veðrið í apríl og maí á Costa del Sol er eins og best verður á kosið og þú nýtur þjónustu farar- stjóra Heimsferða allan tímann. 43.575 M.v. hjón með bam, Sunny Beach. 4 vikur, 14. apríl. 49.960 M.v. 2 í studio, Sunny Beach, 28 nætur, 14. apríl. Austurstræti 17, 2. hæð sími 562 4600

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.