Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 38

Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Rokið upp með róg ÉG hef orðið íyrir því áður, að sósíalistar hafa rokið upp og öskr- að: Þú vilt ritskoðun! - ef mér hefur orðið það á að gagnrýna eitthvað, sem þeim er hjarta nær. Ég hef aldrei lagt til að eitt einasta ritverk verði ritskoðað, hvað þá bannað. I grein minni í Mbl. hinn 25. febrúar er hvergi orð að finna, sem svo mik- ið sem ýjar að því að banna eigi rit- verk Bertolts Brechts. Hver ætti að banna ritverk á Islandi? Hver ætti að framfylgja því banni? Samt rýk- ur Þorsteinn Gylfason upp með æsilegu hrópi: Arnór Hannibalsson heimtar að Brecht verði bannaður. Þessi fullyrðing er hreinn og tilefn- islaus uppspuni. Enn spinnur Þor- steinn áfram lygaþráðinn og með ímyndunarafli sínu fínnur hann upp „menningarstefnu" mína, sem er útlegging á því sem ég sagði ekki í fyrri grein minni. Þessi grein mín fjallaði ekki um bókmenntagildi verka B. Brechts. Það er því lágt lagzt á lúalagið að gera mér upp skoðanir og semja langan lista um verk sem ég, að ályktan Þorsteins, vil rekki að séu flutt á íslandi". Ég hef hvergi haldið því fram, að B. Brecht hafi verið vont skáld og þaðanafsíður að þýðingar Þorsteins Gylfasonar séu ekki sambærilegar frumtextanum að snilld. Ég hef aldrei og hvergi gefið út neinar yfir- lýsingar um það, að einhverjar ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og kynþáttum geri menn óhæfa til að yrkja vel. Sjálfsagt geta menn, sem halda lítt eða ekki fram mannrétt- indum skrifað traustan texta. Allt fjas Þorsteins Gylfasonar um „menningarstefnu“ mína er út í hött og lýsir best þeim aðferðum sem Þorsteinn telur sér hæfa að viðhafa. Það hefur hingað til ekki verið talið hátt risið á þeirri samræðuaðferð að hætta að ræða málið en skírskota til persónu andstæðingsins og ljúga ávirðingum upp á hann. Vindhögg Þorsteins Þ. Þorsteinn Þorsteinsson skrifar einnig í Mbl. hinn 4. marz 1998 og kveður mig halda „sýndarréttar- höld“ yfir Brecht. Það er undarleg- ur útúrsnúningur. Með fyrri grein minni vildi ég einungis benda á nokkur atriði, sem gagnlegt væri að hafa í huga fyrir þá, sem hlusta á eða lesa Brecht. Þorsteinn Þor- steinsson kveður tvo fræðimenn hafa gert fjölda athugasemda við bók Fuegis. Þorsteinn hefði mátt geta þess, að þessar athugasemdir hagga í engu höfuðatriðunum í því sem ég færði fram. (Fuegi hefur tekið tillit til þeirra í þýzkri þýð- ingu bókarinnar). Þorsteinn tiltek- ur heldur ekki, hvaða atriði eru ranglega tilfærð. Margt af því sem Fuegi hefur fram að færa er löngu þekkt. Þegar fyrir seinni heims- styrjöld var þetta haft eftir Kurt Tucholsky: „Leikrit eftir Brecht - eftir hvern skyldi það nú vera?“ Þorsteinn kveður konur þær, sem unnu fyrir Brecht hafa verið „vini“ hans. Það má vel vera. Kvenmaður sem ákveður að gerast ástkona eða hjákona karlmanns hlýtur að gera það af því að henni er hlýtt til hans. En það breytir ekki því, hvernig Brecht kom fram við þessar hjákon- ur sínar. Þær nutu ekki höfundar- réttar fyrir verk sín. Þær voru und- ir flokksaga og hefðu fengið að finna fyrir því, ef þær hefðu skýrt frá því sem gerðist eins og það gerðist. Og það var ekkert auðvelt fyrir þær að koma undir sig fótun- um sem sjálfstæðir rithöfundar. Því völdu þær það að koma frekar verk- um sínum á framfæri undir firma- merkinu „Brecht" heldur en alls ekki, eða í útgáfum sem aldrei hefðu hlotið neina athygli. Enginn neyddi „samstarfsmennina" til að vinna fyrir Brecht, segir Þorsteinn. En það réttlætir ekki að hann stakk í eigin vasa tekjunum af verkum þeirra. Ef Brecht hefði gert við þær svo sem rétt var og um samið, væru ekki erfíngjar kvennanna nú að undirbúa málaferli til að heimta nú loks rétt þeirra. Irmgild Weber, sem er systkina- barn Elísabetar Hauptmann, býr í Bandaríkjunum. Hún hefur ráðið Tim Burkert, lögfræðing í Ham- borg, til að undirbúa málsóknina. Burkert segir að tilgangurinn sé fyrst og fremst að fá viðurkenndan með dómi höfundarrétt Elísabetar Hauptmann til þeirra verka er hún lagði fram og voru birt undir safn- heitinu „Brecht", auk þess sem krafa verður gerð um að erfingj- arnir fái réttan hluta af tekjum þeim, sem koma inn fyrir verkin. Lögfræðingurinn rekur sig á vegg þegar kemur að því að fá að vita frá þeim, sem ráða arfinum eftir Brecht, hverjar tekjurnar hafa ver- ið og eru. Erfingjar annarra þeirra kvenna er unnu fyrir Brecht eru að Meginhluta þessarar aldar hafa tvær stefnur látið að sér kveða, segir Arnór Hannibalsson, annars vegar alræði eins flokks og miðstýrt hagkerfi og hins vegar stefna eignarréttar og frelsis einstaklingsins. undirbúa samskonar málaferli. Ef Brecht var jafn ljúft og Þorsteinn Þorsteinsson vill vera láta að geta samstarfsmanna sinna, ætti Þor- steini að vera innan handar að geta þess hverjir komu að verki við að semja leikrit það sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu innan skamms, en meðal þeiiTa var Ruth Berlau. Heimildum ber saman um það, að í lífi Bertolts Brechts hafi allt snúist um hann sjálfan. Allt var miðað við að ná því marki að verða viður- kenndur sem fremsti leikhússnill- ingur aldarinnar. Alla tíð hafði hann konur í kring um sig, sem þjónuðu honum til borðs og sængur. Ég hef ekkert á móti því að menn hrífist af slíkri manngerð. En ef menn aðhyll- ast þá siðfræði að ódrengskapur sé siðlegur og að það sé góð siðfræði að nota aðra menn 1 eigin þágu, - þá segi ég aðeins: Þeir menn hafa ekki góðan smekk. Hugmyndafræði Bertolt Brecht leit á sig frá því um 1930 sem áróðursmann Komm- únistaflokksins. Á því ári (1930) kom úr verkasmiðju hans leik- sýning undir nafninu Massnahme (Aðgerðir). Þar segir frá útsendur- um Komintern í Kína. Þrír þeirra eru reyndir, en sá fjórði er óreynd- ur. Hann verður ber að því að sýna samúð með þeim sem verða fyrir barðinu á kúgurum sín- um. Loks ofbýður hin- um eldri, hversu sá ungi á erfitt með að fóta sig á flokkslínunni, og drepa hann. Árið 1935 sagði B. Brecht við Sidney Hook: „Þeim mun sak- lausari sem þeir eru, þeim mun fremur verðskulda þeir að vera skotnir.“ Hann átti við þá Kaménév og Zínovév, sem þá höfðu lotið í lægra haldi fyrir Stalín í sovézka kommúnistaflokknum. Brecht átti við það, að jafnvel þótt mennirnir væru saklausir samkvæmt venju- legum borgaralegum lögum, þá verðskulduðu þeir að vera drepnir fyrir það eitt að hafa orðið Leiðtog- anum þyrnir í augum og fyrir að hafa ekki lotið flokksaganum. Bi-echt áleit einnig að Flokkurinn hefði haft rétt fyrir sér, þegar yfir- völd í Austur-Berlín létu skjóta á verkamenn, er þeir mótmæltu kjör- um sínum hinn 17. júní 1953. Hann hélt tryggð við málstað flokksins alla ævi. I áróðri Flokksins felst dýrkun á alræði og ofbeldi, og almennum mannréttindum er vísað á bug: frelsi einstaklingsins og helgi lífs- ins. Þegar nú er minnzt B. Brechts er einnig minnzt áróðursmeistar- ans. Fyrir mér mega menn vera hrifnir af þeim þætti ævistarfs hans, ef menn svo kjósa. En ég lít svo á, að það lýsi frekar brigðulum smekk. Góð list boðar mannúð og mildi, ekki mannhatur, grimmd og morð. Tvenns konar lífssýn Meginhluta þessarar aldar hafa tvær stefnur látið að sér kveða hvarvetna í heiminum. Onnur boðar byltingu og stéttastríð, alræði eins flokks, miðstýrt hagkerfi, ritskoðun og algjört fráhvarf frá réttindum einstaklingsins. Hin stefnan boðar frelsi einstaklingsins, virðingu fyrir einstaklingnum og eignarrétti hans, mann- réttindi, frið. Stór hluti mennta- manna á Vesturlöndum gleypti við hinni fyrr- nefndu stefnu. Þeir gengu til þjónustu við stéttastríðsmálstaðinn. Fjölmörg skáld og rit- höfundar voru þar á meðal. Flest af því sem ritað hefur verið í nafni „sósíalistískrar raun- sæisstefnu" (þ.e. eftir kokkabókum Flokks- ins) er nú gleymt og grafið, einkum eftir að bakhjarl sósíalista, Sovétvaldið, hrundi. Sá sögulegi atburður olli að sjálfsögðu alvar- legri sálarkreppu meðal þeirra sem höfðu tekið trú á, að sósíal- isminn væri framtíð mannkyns. Það kom nefnilega í ljós, að mann- sæmandi líf og samfélag verður ekki mótað með ofbeldi og alræði. Þótt þetta sé nú ljóst, láta sósí- alistar ekki af lífsskoðun sinni. Þeir koma einungis fram undir öðrum nöfnum. Það er þeim því gleðiefni, þegar hægt er að syngja einhverri gamalli hetju hreyfing- arinnar lof og kalla hana snilling. Ur því að snillingurinn Brecht var sósíalisti þá get ég verið það líka. (Svipað er að baki Kiljans-dýrkun- inni). En það er hætt við því, að þetta verði þeim skammgóður vermir. Ef flokksáróðursmeistar- anum Brecht og samstarfsmönn- um hans hefur tekizt að setja sam- an verk sem standast tímans tönn, þá er það ekki af því að verkin styðji þessa lífsskoðun, heldur hafa þau þá skírskotun út fyrir hana. Varla verður hans minnzt fyi-ir kvæði eins og Lob der Partei (Lof sé Flokknum) eða Lob des Kommunismus (Lof sé kommún- ismanum). Á þessari öld hafa hugmyndir sósíalismans skotið ótrúlega djúp- um rótum í menningarlífi Islend- inga. Um það hefur Þórarinn Eld- járn ort: ...að ennþá heldur sjó með lík í lest hans leka fley með rá og siglu brotna. Menn þekkja dauninn, drottinn minn sú pest er draumar þrár og vonir taka að rotna". Höfundur er prófessor. Arnór Hannibalsson Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu -kjarni málsins! Hvað er rétt og hvað er rangt um rekstrarkostnað? í UMRÆÐUM um húsnæðismál undanfar- ið hefur stundum komið fram, að rekstrarkostn- aður Húsnæðisstofnun- arinnar sé nálægt hálf- um milljarði króna á ári hverju og hann sé ör- ugglega hægt að lækka! Þessu er slegið fram og við það eitt látið sitja, þótt sagan sé þar með engan veginn fullsögð; aldrei er þess getið hverjar tekjur koma hér á móti né .heldur hver hin „fyrirsjáanlega lækkun" á rekstrar- kostnaðinum er. Mál- flutningur af þessu tagi er vitaskuld ekki við hæfi. Almenningur á rétt á að fá fullnægjandi upplýsingar um það hvernig málið er vaxið, þegar á allt er litið. Því er nauðsynlegt að benda á það, sem hér fer á eftir. Kostnaður 472 milljónir króna - tekjur 463 milljónir króna Bráðabirgðatölur benda til, að rekstrarkostnaður stofnunarinnar í heild hafi numið 472 milljónum króna á síðasta ári. Þar á móti koma (a) tekjur af þjónustu, sem verðlögð er í lágmarki, og talið er að hafi numið 303 millj. króna; og (b) 160 milljóna króna tekjur af 1% lántökugjaldi hús- bréfadeildar, sem heim- ilt er að telja með. Tekj- ur þessar nema samtals um 463 milljónum króna. Þessar tölur gefa vissulega aðra mynd en þá, sem mest hefur ver- ið hampað í fjölmiðlum undanfarið. Til viðbótar má geta þess, að áhrifa- mikill aðili í stjómkerf- inu telur, að stofnunin hafi fulla heimild til þess að telja með, tekju- megin, önnur lántöku- gjöld, sem greidd eru. Fengist leyfi til þess kæmi fram mjög mikill rekstrar- hagnaður. En því hefur ekki verið að heilsa. Sennilega hentar ekki vissum aðilum að stofnunin sýni hagnað. Hvemig skiptist kostnaðurinn? En er ekki hinn eiginlegi rekstr- arkostnaður stofnunarinnar eftir sem áður 472 milljónir króna? Vissulega var það kostnaðurinn við rekstur hins almenna húsnæðis- lánakerfis á síðasta ári. En það, sem lýtur að hinum eiginlega rekstri stofnunarinnar sjálfrar, kostaði um 240 milljónir króna á árinu. Til viðbótar honum koma neðangreindir kostnaðarþættir, vegna starfrækslu húsnæðislána- kerfisins (svo hinir stærstu séu tí- undaðir): 1) Til veðdeildar LÍ vegna dag- legrar afgreiðslu á lánum og mót- töku afborgana af þeim, auk bók- halds og allrar annarrar fjárvörslu í þágu húsnæðislánakerfisins (nema Húsnæðislánakerfið er, að mati Sigurðar Guð- mundssonar, eflaust eitt ódýrasta og hag- kvæmasta lánakerfi sem rekið er í landinu. þess, sem er í vörslu Seðlabanka Is- lands): 91 milljón króna. 2) Til banka og sparisjóða, fyrir vinnu, sem þar er unnin, í þágu við- skiptavina stofnunarinnar og þeirra: 30 milljónir króna. 3) íslandspósts hf. fyi-ir burðar- gjöld: 23 milljónir króna. 4) Til Reiknistofu bankanna, fyrir tölvuvinnu í þágu húsnæðislána- kerfisins: 17 milljónir króna. 5) Til lögfræðinga á almennum markaði, vegna starfa þeirra víðs vegar í landinu: 15 milljónir króna. Otaldir eru þá ýmsir aðrir kostn- aðarliðir, s.s. kostnaður við endur- skoðun (6 m.kr.), aðgangur að fst- eignamatsskrá (5 m.kr.) og ýmis sérfræðivinna (5 m.kr.), auk margs annars. Ódýrasta og hagkvæmasta Iánakerfí í landinu Allt er þetta kostnaður við rekst- ur hins sameiginlega húsnæðislána- kerfis allra landsmanna. Húsnæðis- stofnunin er kjarni þess og kostnað- ur við rekstur hennar sjálfrar er ekki nema rúmur helmingur af rekstrarkostnaði kerfisins í heild. I því sambandi má slá því föstu, að húsnæðislánakerfið er eflaust eitt ódýrasta og hagkvæmasta lánakerfi sem rekið er í landinu. I því efni munu aðrir aldrei komast með tærnar þar sem það hefur hælana. Lántakendur eru um 60 þúsund, lánin er um 140 þúsund talsins og heildarútlánin nema um 220 millj- örðum króna. Kostnaður á hverja einingu er örugglega í lágmarki. Allar þessar staðreyndir þurfa menn að hafa í huga þegar þessi mál eru rædd og ekki aðeins sumar þeirra. Höfundur er framkvæmdastjóri Húsnædisstofnunar rfkisins. Sigurður E. Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.