Morgunblaðið - 19.03.1998, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 19.03.1998, Qupperneq 41
40 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 MORGUNB LAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. UFFE ELLEMANN HÆTTIR AKVEÐIN tímamót verða í dönskum stjórnmálum vegna þeirrar ákvörðunar Uffe Ellemann-Jensens að hætta sem leiðtogi Venstre, en hann tilkynnti þetta á blaðamannafundi í fyrradag. Enginn vafi er á því, að hann er einn litríkasti stjórnmálamaður Dana um árabil, ákveð- inn í skoðunum og fylginn sér. Uffe Ellemann lætur af leiðtogastarfinu 18. apríl nk., en hann mun sitja áfram á þingi. Hann styður varaformann sinn, Anders Fogh Rasmussen, í stöðu flokksleiðtoga. Uffe Ellemann-Jensen vísar því á bug, að hann hafi tekið ákvörðun sína vegna vonbrigða út af því, að borg- araflokkarnir misstu naumlega af stjórnartaumunum í nýafstöðnum þingkosningum. Hann kveðst hafa tekið ákvörðun sína þegar á liðnu hausti. Hann skýrir afsögn sína svo, að hann sé of ungur (56 ára) til að láta af störf- um, en verði orðinn of gamall til að fara fyrir flokki sínum í þingkosningum eftir fjögur ár. Betra sé að hann hætti á meðan einhverjum þykir missir að honum úr pólitík frem- ur en að bíða þar til fólk gleðjist yfir brottför hans. Þetta er heillaráð, sem stjórnmálamenn mega hafa í huga. Um árabil var Uffe Ellemann einn af þekktustu blaða- mönnum og ritstjórum Danmerkur og hann hefur átt sæti á þingi fyrir Venstre frá 1977 og varð formaður flokksins 1985. Hann var utanríkisráðherra 1982-1993 og var mjög áhrifaríkur og umdeildur í því embætti. Stjórnarsamstarf Venstre og íhaldsflokksins undir forustu Poul Schliiters var mjög árangursríkt og sú ríkisstjórn leiddi Dani út úr miklum efnahagslegum þrengingum og skóp þá traustu stöðu, sem þjóðin býr við enn í dag. Uffe Ellemann-Jensen er ákafur stuðningsmaður Evr- ópusambandsins og samvinnu ríkja álfunnar, svo og Atl- antshafsbandalagsins og norræns samstarfs% Hann liggur ekki á skoðunum sínum og hefur m.a. hvatt Islenþinga til inngöngu í ESB. Hann hefur margoft komið til Islands í einkaerindum jafnt sem opinberum og þekkir vel til lands og þjóðar. Það mátti m.a. ráða af tilvitnunum hans í Njálu, þegar hann tilkynnti afsögn sína í fyrradag. Island hefur átt hauk í horni, þar sem Uffe Ellemann er, og svo verður vafalaust áfram. KVENNADEILD LANDSPÍTALA REYNIR TÓMAS Geirsson, forstöðumaður Kvenna- deildar Landspítalans, færir rök fyrir því í grein hér í blaðinu að hagræða megi í rekstri fæðingardeilda og nýta fjármuni betur með því að færa til fjármagn. Menn verði að horfast í augu við þá staðreynd að starfsemin sé ein- faldlega orðin of lítil á sumum stöðum til þess að faglegur og fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir hendi. A Kvenna- deild Landspítalans sé á hinn bóginn of fátt starfsfólk miðað við þjónustuþörf. Reynir Tómas segir mikilvægt að styrkja betur rekstr- argrundvöll Kvennadeildar Landspítalans. Þar fæðast tvö af hverjum þremur börnum landsins. Deildin er og eina fæðingar- og kvensjúkdómadeild okkar sem er af þeirri stærð sem þarf til þess að halda uppi sérhæfðri fóstur- greiningu og mæðravernd, sjá um meðferð alvarlegustu meðgöngusjúkdóma, kvensjúkdóma og krabbameina í grindarholi og bjóða tæknifrjóvgun. Þar fer og fram mik- ilvægt kennslu- og rannsóknarstarf. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra segir hins vegar að þeir tímar komi í strjálbýli að ekki sé hlaupið að því að koma konu í barnsnauð til Reykjavíkur. Það verði því að tryggja að kona geti fætt nærri heimahögum. í svipaðan streng tekur Jón Kristjánsson, formaður fjár- laganefndar. Sjálfgefið er að fjárveitingavaldið hafi hlið- sjón af báðum framangreindum sjónarmiðum. Fram hjá því verður eftir sem áður ekki horft, að sérhæfing á þessu sviði, sambærileg við það sem bezt þekkist erlendis og bezt tryggir heilsufarslega hagsmuni fólks, verður vart byggð upp nema á einum stað í landinu. Það á því að vera forgangsverkefni í þessum þætti heilbrigðisþjónustunnar að búa vel að Kvennadeild Landspítalans og gera kenni kleift að sinna til frambúðar mikilvægu og vaxandi hlut- verki sínu. Gengisþróun og söluhagnaður eigna hefur skipt sköpum varðandi af- komu Flugleiða hf. á mörgum undanförnum árum SÚRT OG SÆTT í SÖGU FLUGLEIÐA Afkoma Flugleiða hefur verið mjög sveiflu- kennd á undanförnum árum. A tímabilinu 1987-1997 mátti félagið þola tap af reglulegri starfsemi á sex árum en naut rekstrarhagnaðar á fímm árum. Söluhagnað- ur eigna hefur verið ríkur þáttur í afkomu félagsins sem nam á sama tímabili rúmum 4,6 milljörðum á núvirði. A þessu árabili hefur átt sér stað gríðarlegur vöxtur á uppbyggingu og umsvifum Flugleiða og eigið fé þeirra aukist í 6,2 milljarða kr. 7 A aðalfundi félagsins í dag standa stjórnend- ur og hluthafar frammi fyrir taprekstri síðasta árs eftir þrjú samfelld hagnaðarár. Ómar Friðriksson stiklar á stóru í sögu Flugleiða umliðinn áratug. TAP VARÐ af rekstri Flugleiða og dótturfé- laga þess á síðasta ári eftir þrjú samfelld hagn- aðarár þar á undan. AIls varð 295 milljóna kr. tap af rekstrin- um. Tap af reglulegri starfsemi fé- lagsins eftir tekju- og eignarskatta varð 693 millj. kr. reiknað á verðlagi í lok síðasta árs. Félagið seldi hins vegar flugvéi og aðra rekstrarfjár- muni á árinu með 398 milljóna kr. hagnaði. A árinu kom félaginu einnig til tekna reiknaður tekjuskattur sem nam 170 millj. kr. Eiginfjárstaða fé- lagsins hefur jafnt og þétt styrkst á undangengum árum. Eiginfjárhlut- fall félagsins var komið í 34% í iyrra samanborið við 33% árið á undan og 26% á árinu 1995. Farþegum í milli- landaflugi félagsins fjölgaði um 13,3% og farþegafjöldi í innanlands- fluginu jókst um 4,4% frá árinu á undan, sætanýting batnaði. Taprekstur félagsins hlýtur að vera mikil vonbrigði fyrir fjárfesta Flugleiða nú þegar hluthafar koma saman á aðalfundi félagsins í dag til að fá skýringar stjórnenda á afkom- unni. Meginástæður sem nefndar hafa verið fyrir lakri afkomu á ný- liðnu ári eru að óhagstæð gengis- þróun hafi orðið á versta tíma fyrir félagið á mikilvægum mörkuðum, sem kom illa niður á rekstraraf- komu félagsins. Einnig hafi launa- kostnaður aukist umtalsvert um- fram það sem ráð var fyrir gert. Þá hafi tap af innanlandsfluginu haft sitt að segja. Gengisstýring hefur gegnum tíð- ina verið með alstærstu viðfangsefn- um stjórnenda félagsins en liðlega þriðjungur af kostnaði Flugleiða fellur til í Bandaríkjadollurum. Sala í Evrópumyntum á meginlandi Evr- ópu og í Skandinavíu vegur hins vegar mjög þungt í tekjumyndun fé- lagsins. Stórar gengissveiflur er- lendra mynta hafa haft mikil áhrif á efnahagsreikning Flugleiða gegnum árin. Sem dæmi úr reikningum fé- lagsins má rifja upp að gengishagn- aður félagsins var 188 millj. kr. á ár- inu 1991 á verðlagi þess árs en svo snerist þróunin við er félagið varð fyrir tæplega tveggja milljarða kr. gengistapi á árinu 1992. A árinu 1993 varð félagið aftur fyiár rúm- lega tveggja milljarða kr. gengistapi en á árinu 1994 snerist dæmið við og nam gengishagnaður rúmum millj- arði kr. A árinu 1995 nam gengis- hagnaður 567 millj. kr. en á árinu 1996 varð viðsnúningur enn á ný er félagið varð fyrir 254 millj. kr. geng- istapi, skv. ársreikningum félagsins. Stórar sveiflur og mikil uppbygging A umliðnum tíu til 15 árum hafa orðið miklar sveiflur á afkomu Flug- leiða milli ára samhliða mikilli upp- byggingu félagsins. Á ellefu ára tímabili frá 1987-1997 skilaði félagið heildarhagnaði í sjö ár en tap varð af rekstrinum á fjórum árum. Heild- arhagnaður skv. rekstrarreikningi Flugleiða og dótturfélaga á þessu tímabili, framreiknaður til verðlags í lok síðasta árs, nam samtals 3.161 milljónum kr. Stafar þessi hagnaður fyrst og fremst af sölu eigna. Sölu- hagnaður hefur verið mjög stórt hlutfall af heildarafkomu samstæð- unnar á þessu tímabili og nam sam- anlagður söluhagnaður yfir þetta | tímabil að núvirði 4.631 milljónum kr. Félagið hefur hins vegar skilað langtum minni hagnaði af reglulegri starfsemi. Tap varð af reglulegri starfsemi félagsins í sex ár en hagn- aður á fimm árum á þessu tímabili. Miklar breytingar hafa orðið á umfangi félagsins. Áætlunarstöðum hefur fjölgað um þriðjung frá árinu 1989. Ferða- mönnum frá Evrópu hefur fjölgað um 300% á einum áratug og bjóða Flugleiðir nú tengingar yfir N-Atl- antshaf milli 72 borga í stað átta fyrii' einum áratug. Farþegum fé- lagsins hefur fjölgað jafnt og þétt, árið 1994 fjölgaði þeim um 17%, 1995 um 8%, 1996 um 15% og í fyrra um 13,3%. Arið 1983 var eigið fé fé- lagsins neikvætt um 866 milljónir kr. og var það með elsta flugflota flugfélaga í Vestur-Evrópu. Með sölu véla, endurnýjun flugflotans og hlutafjáraukningu á umliðnum árum var eigið fé félagsins komið í 6,2 milljarða á síðasta ári. Hefur ítrekað á þessu tímabili verið gripið til skipulagsbreytinga, og sparnaðaraðgerða. Tvennt hefur skipt sköpum um starfsemi og ár- angur Flugleiða á umliðnum tíu ár- um. Annars vegar endurnýjun alls flugflotans sem ráðist var í og hins vegar allsherjar endurskipulagning sem gerð var á leiðakerfi millilandaflugsins með samtengingu flugleiðaneta er Keflavíkurflugvöllur var gerður að tengistöð. Fram til þess tíma var fé- lagið með fjögur aðskilin leiðakerfi í millilandaflugi sínu. Árin 1988-1993 voru mesta end- urnýjunarskeið í sögu Flugleiða en á því árabili endurnýjuðu Flugleiðir allan ílugflota sinn og áttu er upp var staðið sjö þotur og fjórar skrúfuþotur á kaupleigu. Heildar- fjárfesting í nýjum flugfiota, við- haldsstöð, hóteli og bílaleigu var metin rúmlega 20 milljarðar kr. Reksturinn hefði endað með gjaldþroti Sigurður Helgason, þáverandi stjórnaformaður, lýsti stöðunni svo á aðalfundi í mars 1989 að óhjá- kvæmilegt hefði verið að grand- skoða allan rekstur félagsins frá gnmni. „Ef haldið hefði verið áfram á sömu braut án breytinga er ljóst að reksturinn hefði endað með gjaldþroti," sagði hann. Rekstrartap á árinu 1988 varð 246 millj. kr. en söluhagnaður vegna flugvéla o.fl. á árinu nam rúmlega 1.600 millj. kr. Innanlandsflug Flugleiða var rekið með halla bæði árin 1987 og 1988 og hefur það verið rekið með tapi á hverju ári allar götur síðan. Ráðist var í nýja stefnumótun fé- lagsins og skipulagsbreytingar í kjölfar úttektar ráðgjafarfyrirtæk- isins Boston Consulting Group, þótt ekki væri í einu og öllu farið eftir þeim ráðum sem ráðgjafarnir lögðu til. Flutningar milli Evrópu og Bandaríkjanna voru skornir niður um helming og áfangastöðum í Bandaríkjunum fækkað úr fimm í tvo. Á árinu 1989 var á þriðja tug starfsmanna sagt upp. Afkoma félagsins á árinu 1989 var talin sú versta í sjö ár. Tap skv. efnahagsreikningi var um 270 millj. kr. á núvirði þrátt fyrir 418 millj. kr. söluhagnað. Að mati stjórnenda fé- lagsins voru meginástæður þess að tekjur urðu minni en áætlanir gerðu ráð fyrir annars vegar slæmt efna- hagsástand innanlands og hins vegar voru farþegar í N-Atlantshafsflugi færri en reiknað hafði verið með. Vísuðu stjórnendur félagsins því á bug að með hinum miklu fjárfestingum í flugvélakaupum væri tekin of mikil áhætta. Vélarnar hefðu verið pant- aðar á hárréttum tíma bæði með til- liti til afhendingar þeirra og kaup- verðs. Áidegur kostnaður af rekstri nýju Boeing-vélanna var nokkur hundruð milljónum kr. lægri en af gömlu DC-8 vélunum. Framtíðarsýn sett fram Stjórnendur Flugleiða settu sér höfuðmarkmið og framtíðarsýn á ár- inu 1990. Framundan var stóraukin samkeppni af hálfu erlendra flugfé- laga er allar takmarkanir á flug- rekstri í Evrópubandalagið yrðu felldar niður árið 1992. Setti félagið sér það markmið að hagnaður eftir skatta af reglulegri starfsemi yrði að lágmarki 5% af heildartekjum og ávöxtun eigin fjár félagsins að lág- marki 7% yfir ávöxtun ríkisskulda- bréfa á hverjum tíma. Greiddur skuli árlega allt að 10% arður af nafnverði hlutafjár og að eiginfjár- hlutfall félagsins yrði aldrei lægi-a en 25%. Þessu síðasttalda markmiði átti að ná fyrir lok ársins 1992 en reyndin varð sú að markmiðinu varð ekki náð fyrr en á árinu 1995 er hlutfall eiginfjár var komið í rúm 26%. Á árinu 1990 var farið að ræða mögulegt samstarf við erlend flug- félög sem leiddi síðar til þess að gerður var samstarfssamningur við SAS. „Mín niðurstaða er sú, að heima- markaður Flugleiða sé það lítill, að til þess að við eigum okkur afkomu- möguleika í framtíðinni og séum samkeppnisfærir, sé nauðsynlegt að Flugleiðir tengist einhverjum af þessum stóru flugfélagaheildum í Evrópu," sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, í viðtali við Morgunblaðið á þessum tíma. Áfram var haldið við endurnýjun flugflotans er gengið var að samn- ingum um endurnýjun innanlands- flota Flugleiða sumarið 1990 og gerður kaupleigusamningur um þrjár Fokker F-50 vélar og kaup- rétt á þeirri fjórðu. Umsamið verð var 730 millj. kr. á verðlagi þess árs. Vélarnar voru afhentar á árinu 1992. Hagnaður á árununi 1990 og 1991 Á árinu 1990 tókst að snúa rekstri félagsins í nokkurn hagnað í íyrsta sinn frá árinu 1986 sem nam á árs- lokaverðlagi 1997 65 millj. kr. End- anlegur hagnaður ársins nam 497 millj. kr. og handbært fé frá rekstri félagsins var rúmar 1.100 millj. kr. Hagnaður af sölu eigna nam um 432 millj. kr. Helstu skýringar stjórn- enda Flugleiða á þessum umskipt- um voru þær að farþegum hefði fjölgað, eldsneytiskostnaður minnk- að með tilkomu nýju Boeing-vél- anna og gengislækkun Bandaríkja- dollars var félaginu sérlega hag- stæð, þar sem nýju flugvélarnar voru að mestu leyti fjármagnaðar í dollurum. Lækkaði dollarinn um 9,4% á árinu gagnvart krónunni. Lækkun dollars hefur þó einnig óhagstæð áhrif á eignamat félagsins því vélarnar eru endurmetnar í doll- urum og lækkar bókfært verð þeirra af þeim sökum. Varnarbarátta Þrátt fyrir að nokkur hagnaður yrði af reglulegri starfsemi Flug- leiða á árinu 1991 var fjárhagsleg afkoma félagsins alls óviðunandi að mati stjórnenda félagsins. Að teknu tilliti til söluhagnaðar og reiknaðra skatta nam heildarhagnaður félags- ins um 174 millj. kr., þar af nam söluhagnaður 80 millj. kr. Hörður Sigurgestsson, stjórnaformaður Flugleiða, sagði á aðalfundi í mars 1992 er rekstrarniðurstaðan var kynnt að félagið yi'ði að leita sér olnbogarýmis og vaxtarmöguleika á erlendum mörkuðum. „Það má segja að við þær kringumstæður sem ríktu í alþjóða flugrekstri og við áframhaldandi stöðnun í íslensku + Eiginfjárstaða hefur styrkst undanfarin ár FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 41- FLUGLEIÐIR hf.: Úr rekstri 1982-1997 7 milljarðar kr. Upphæðir á verðlagi 1997 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 Hagnaður (-tap) (Söluhagnaður og rekstrarhagnaður) Söluhagnaður (-tap) □ Rekstrarhagnaður (-tap) '891, } ■—l m=\ 1992 1993 ■ I ■ I ■‘“1 '97| 1990 1991 ™L-1 ■—I 1994 1995 1996 1,5 milljarðar kr. Veltufé frá rekstri 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 -1,0 Kennitölur Veltufjárhlutfall |—Veltufjárhlutfall án fyrirfram innheimtra tekna 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 efnahagslífi á árinu 1991 hafi Flug- leiðii’ háð árangursríka varnarbar- áttu. Þegar horft er til lengri tíma er fjárhagsleg afkoma ársins 1991 ekki viðunandi. Á þessu ári náðust ekki þau fjárhagslegu markmið sem félagið hafði sett sér. Það má hins vegar segja að við þær kringum- stæður sem ríktu hafi náðst viðun- andi árangur sem er betri en ýmis flugfélög í nágranpalöndum okkar geta státað af,“ sagði hann. Ráðist var í sparnaðaraðgerðir á árinu 1991 sem áttu að skila 200 millj. sparnaði á verðlagi þess árs og auka átti enn á markaðssókn félagsins. 500 millj. kr. sparnaður Á haustdögum árið 1992 var ákveðið að fara í saumana á öllum kostnaðarliðum í rekstri félagsins og það markmið sett að ná fram 500 milljóna kr. sparnaði á ársgrund- velli. I ársbyi’jun 1993 boðuðu stjórnendur Flugleiða víðtækan sparnað og fækkun stöðugilda sem hrinda átti í framkvæmd á næstu 18 mánuðum. Akveðið var að segja upp 44 starfsmönnum hérlendis og á tíu stöðum erlendis, ráðist var í ýmsar skipulagsbreytingar og lýstu for- svarsmenn félagsins yfir að ákveðið hefði verið að gera gagngerar breyt- ingar á rekstri innan landsflugsins. Umtalsvert rekstrartap var á ár- inu 1992. Heildartap skv. rekstrar- reikningi nam tæplega 150 millj. kr. Var þessi árangur alveg óviðunandi að mati stjórnenda félagsins sem var m.a. sagður stafa af því að með- alfargjöld hefðu lækkað um 10% frá árinu á undan. Lýst var yfir að marka þyrfti nýja stefnu í starfsemi félagsins. Á aðalfundi í mars 1993 sagði Sigurður Helgason, forstjóri félagsins, að Flugleiðir stæðu á ákveðnum tímamótum í lok mesta endurnýjunarskeiðs í sögu félags- ins. „Allur flugflotinn hefur verið endurnýjaður, hótel félagsins hafa verið tekin í gegn og nú síðast var opnuð glæsileg viðhaldsstöð í Kefla- vík. Nú er þessu skeiði lokið í bili og engar stórar framkvæmdir eru fyr- irhugaðar á næstunni. Framundan er uppbygging á mörkuðum félags- ins og fyrsta skerfið í þá átt er sam- starfssamningurinn á milli Flugleiða og SAS. Með þessum samningi opn- ast nýir möguleikar fyrir Flugleiðir á leiðum innan Evrópu og það er trú mín að þar geti fyrirtækið helst fundið sér svigrúm til vaxtar á kom- andi árum.“ Taka verður súrt með sætu Mikill taprekstur varð einnig á ár- inu 1993. Heildartap skv. rekstrar- reikningi nam tæpum 202 millj. kr. „Tap var af Norður-Atlantshafsflugi og innanlandsflugi en hagnaður af Evrópuflugi og öðrum grein um. Tap af rekstri innanlandsflugs er al- varlegast vegna þess hve stór hluti það er af veltu. Ein skýring á versn- andi afkomu millilandaflugs er að með tilkomu þriðju Boeing 757 flug- vélarinnar sem bættist í rekstur fé- lagsins í lok maí á síðasta ári og samstarfssamningsins við SAS varð veruleg aukning á framboði félags- ins í millilandaflugi en farþegum fjölgaði ekki sem þessu nam. Fram- boð mælt í tonn-kílómetrum jókst um 9,1% milli ára og var aukningin bæði í Evrópu og Norður-Atlants- hafsflugi. Fjölgun farþega milli ára var aftur á móti aðeins 3% þannig að nýting var nokkuð lakari en á síð- asta ári. Þá hafa fargjöld á flestum helstu mörkuðum félagsins haldið áfram að lækka að raungildi og má búast við áframhaldandi þróun í þá átt með auknu viðskiptafrelsi á flugmarkaði í Evr- ópu,“ sagði Sigurður Helgason for- stjóri á aðalfundi er reksti'arniður- staðan var kynnt. Var afkoman talin svo alvax-leg að ekki væri í'éttlætan- legt að gi’eiða hluthöfum arð á aðal- fundi í mars 1994. Vék stjói’nai’for- maðurinn að þessu í ræðu á fundin- um og benti m.a. á að eiginfjárhlut- fall Flugleiða í árslok hefði verið 16% og hafði lækkað úr 18% frá fyn’a ári. „Eðlilegt er að minna á í þessu sam bandi að hlutafé er áhættufé. Þeh' sem leggja fram slíkt fé vita, að um það gilda ekki sömu lögmál og innstæður á sparisjóðs- bók. Auðvitað er mai-kmiðið það að fá arð af því fé sem lagt er í atvinnu- í’ekstur. Þeir sem leggja fram áhættufé vita hins vegar einnig það að taka verður súrt með sætu. Við tölum um áhættufé vegna þess að áhætta er fólgin í rekstrinum,“ sagði Hörður. I máli Harðar kom fi-am að markmiðið um að lækka kostnað um 500 milljónir á tveimur árum hefði náðst og á einu áii hefði tekist að lækka kostnað um 400 millj. kr. Leitt var í Ijós í fréttaskýr- ingu hér í blaðinu vorið 1994 að markaðsvirði hlutafjár Flugleiða hefði fallið um 51% frá ái’slokum 1990 til ársloka 1993 eða um 2.349 millj. kr. á verðlagi um áramótin 1993/94. Hagnaður þrjú ár í röð Umtalsverð umskipti urðu á i’ekstri félagsins á árinu 1994. Heildai’hagnaður ársins varð 660 millj. ki’. á núvirði og þar af var í’ekstrai’hagnaður 322 millj. kr. en söluhagnaður tæplega 339 millj. kr. Heildarveltan hafði aukist um 10,5% á milli ára. Farþegum félagsins fjölgaði um 23% á árinu og höfðu aldrei verið fleiri í sögu félagsins og sætanýting batnaði. 50 millj. kr. tap var hins vegar af innanlandsfiuginu. Ákveðið var á ái-inu 1994 að stofna sérstakt félag um innan- landsflug Flugleiða. Stjórnendur Flugleiða töldu að markaðir í Skandinavíu og löndum þar sem þýska er töluð væi-u mettaðii- og sögðu að nú yrði sérstök áhersla lögð á Bandai'íkja- markað. I grein sem Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, ski’ifaði í Moi’g- unblaðið í október 1994 sagði hann: „Undanfarin ár hafa verið ei’fið í alþjóðlegum flugreksti’i. Stjói’nend- ur Flugleiða eru sannfærðir um að þær aðgerðir sem félagið hefur gi-ipið til í i’eksti’inum og þær ákvarðanii’ urn fjái’festingu í nýjum flugflota, sem teknar voru upp úr miðjum síðasta áratug, hafa ekki einasta fleytt félaginu yfir þessa boða heldur raunverulega bjargað rekstrinum og skapað félaginu grundvöll til heilbrigðs framtíðar- rekstrar." Stjórnendur félagsins voru farnir að boða nýjar áherslur á þessum tíma, sem hafa sett mark sitt á stefnu félagsins á síðustu árum. Stóð félagið frammi fyrir því að flugvélakostur þess yi’ði að fullu - nýttur á árinu og lýst var yfír að umsvif Flugleiða yrðu ekki aukin nema með fjölgun flugvéla. Á aðal- fundi í mars 1995 gerði Hörður Sig- urgestsson ferðaþjónustuna að sér- stöku umtalsefni. „Almennt tel ég að við verðum að gera ráð fyrh’ því að fjárfesta verulega í ferðaþjónustu á næstu árum til þess að auka vöxt hennar. Þá er ég ekki eingöngu með í huga fjárfestingu, t.d. í flugvéla- kosti, heldur ekki síður í aðstöðu innanlands eins og t.d. í gistiþjón- ustu en ýmislegt bendir nú til að -- margt af þeirri fjárfestingu sem nú er fýrir hendi sé að verða fullnýtt að minnsta kosti yftr háannatímann." Lítið má út af bera Hagnaður varð af rekstri Flug- leiða annað árið í röð á árinu 1995. Heildarhagnaður varð rúmlega 682 millj. kr. og þar af var rekstrar- hagnaður 306 millj. „Þótt rekstrar- árangur síðustu tveggja ára hafi verið jákvæður má lítið út af bera. Stjórnendur Flugleiða notuðu því árið 1995 öðru fremur til að huga að stefnumótun. Staða og möguleikar Flugleiða hafa verið vegin og metin með tilliti til áætlaðrar þróunar í al- . þjóðaflugrekstri fram til ársins 2005. Með þessu verður lagður grunnur að framtíðarþróun leiða- kerfis og flugflota ásamt ákvörðun- um um framtíðarmarkaði,“ sagði Sigurður Helgason um afkomu fé- lagsins á ársfundi í mars 1996. Stefnumótun til ársins 2005 Á fyrri hluta ársins 1996 var af- koma Flugleiða lakari en gert hafði verið ráð fyrir. Réð þar mestu . _ hækkun á eldsneytisverði og óhag- stæð gengisþróun, að mati stjórn- enda félagsins. Þróunin varð hag- stæðari á síðari hluta ársins og var árið í heild gert upp með hagnaði. Heildarhagnaður nam 643 millj. kr. Hins vegar dróst rekstrarhagnaður saman miðað við síðustu tvö ár á undan og nam rúmum 197 millj. kr. Heildarhagnaður af sölu eigna var um 446 millj. kr. Sigurður Helgason sagði á aðalfundi í mars í fyrra að eiginfjárstaða félagsins hefði haldið áfram að batna á árinu á undan, skuldir verið gi-eiddar niður og handbært fé vaxið um einn milljarð. Greiðslustaða félagsins væri sterk. Kynnt var nýtt skipulag og ný framtíðarsýn félagsins til ársins 2005 í júlí 1996, þar sem Flugleiðir voru ekki lengur skilgreindar sem flugfélag heldur ferðaþjónustufyrir- tæki. Settu stjórnendur Flugleiða sér það markmið að auka veltu fé- lagsins um 10% á ári frá árinu 1997 og að hagnaður fyrir skatta næmi minnst 5,5% af veltu um aldamót. í júní á síðasta ári voru svo boðuð ný og stórtæk áform Flugleiða inn í næstu öld. Gerður var stærsti rammasamningur félagsins um flug- vélakaup til þessa við Boeing- verk- smiðjurnar sem felur í sér mögu- leika á kaupum á allt að 12 þotum til ársins 2006. „Framtíðarviðgangur félagsins byggist á þrennu: Keflavíkurflug- " velli sem tengiflugvelli, öflugu ’ markaðsstarfi og tengslu við ferða ’ þjónustuna,“ sagði Sigurður Helga- ■; son í samtali við Morgunblaðið er ~ samningurinn var kynntur. „Við getum ekki slakað á því end- urnýjunin á síðasta áratug tryggði framtíð fyrirtækisins og nú verður að halda uppbyggingunni áfram. Eiginfjárhlutfallið hefur aukist úr 10-12% í um 35% og reksturinn er hagstæður, mikil eftirspurn, góð sætanýting, eldsneytisverð á niður- leið, vextir era lágir og fyrirtækið er samkeppnisfært í launakostnaði. Fargjöld munu áfram lækka en frá árinu 1990 hefur meðalfargjaldið lækkað um 18% og hjá okkur er mikill meirihluti farþega að ferðast á ódýrustu gjöldunum," sagði Sig- urður. Gengisstýring með alstærstu viðfangsefnum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.