Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 48
>48 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Utigangshross . - NÚ ER talið að á ís- landi séu hátt í 90.000 hross, þar af um 13.000 í þéttbýli (1997). í til- efni af skæðri hitasótt, sem nú herjar á íslensk hross, vaknar sú áleitna spurning enn á ný: Hvemig er öllum þessum hrossum sinnt og hvemig eru þau undir það búin að takast á við hitasótt- ina? Daglega berast nú ^ fréttir í fjölmiðlum af útigangshrossum og virðist þá, sem menn eigi við stóðhross. En hvað þýðir eiginlega útigangshross? I orðabók Sigfúsar Blöndals og nýrri orðabókum er skýringin: Hest, som om vinteren selv má söge Föden i det fri = hest- ur, sem að vetri til þarf sjálfur að afla sér fóðurs úti í náttúranni. A hverju ári berast ábendingar til dýravemdarsamtakanna um hross, bæði í þéttbýli og dreifbýli, sem lítið eða ekkert virðist hugsað um. Aldrei hefir verið heimild í lögum til útigangs eða útibeitar gripa allt árið og í 80 ár eða síðan 1917 hefir verið skylda allra þeirra, sem skepnur ~ ' eiga, að hafa næg hús fyrir þær all- ar, að viðlagðri refsingu. í núgild- andi lögum um dýravernd segir að „eigendum eða umráðamönnum dýra beri að sjá þeim fyrir viðun- andi vistarverum og fullnægjandi fóðri, drykk og umhirðu. Að vetri til þegar búfé er haldið til beitar eða látið liggja við opið skal sjá til þess, að á staðnum sé húsaskjól eða ann- að öraggt og hentugt skjól í öllum veðrum. Einnig skal vera þar nægi- legt fóður og vatn og litið skal eftir •Hiúfénu reglulega en daglega eða oftar ef nauðsyn krefur að mati forðagæslumanns, ráðunautar eða dýralæknis“. íví miður virðist nú, sem umhyggja allt of margra hrossaeigenda fari minnkandi og kæruleysi og beinlínis lögbrot fari vaxandi ár frá ári, í réttu hlutfalli við aukna og óhóflega hrossaeign lands- manna. Mörgum þeirra finnst sjálfsagt og eðli- legt að hrossin bjargi sér á útibeit allan árs- ins hring, enda þótt jörð sé gaddfreðin og á kafi í snjó og aðeins visin stráin standi upp úr snjónum. Jafnframt er oft ekkert rennandi hreint vatn að fá og skjól er talið óþarfa lúxus. Eftirlitsaðilar eru ráð- þrota og sumir þeirra reyna að mæla þessari meðferð bót, í van- mætti sínum og algjörri uppgjöf við að gegna lagaskyldu sinni og stöðva ósómann. Tryggjum velferð hrossa. Sigríður Ás- geirsdóttir skorar á hestamannafélög og fé- lög hrossabænda að banna útigöngu hrossa að vetri. Jafnframt sljóvgast tilfinning manna fyrir velferð hrossanna og mælikvarðinn á ástand þeirra er alltof oft sá, að þau líti vel út og að hægt sé að klípa í hold hér og hvar. Þetta segir hins vegar ekkert um heilsufar þeirra og líðan og til að taka allan vafa af um það, hvernig langvarandi útigangur hrossa leik- ur þau, skal hér birtur kafli úr Sigríður Ásgeirsdóttir krufningarskýrslu, sem gerð var í janúar 1996, vegna ástands átta hryssna, úr stórum hópi hrossa, sem höfðu gengið úti árum saman. í stuttu máli sagt voru meiri og minni skemmdir í líffærum allra hrossanna, aðallega vegna innyfla- ormasýkingar. I flestum hrossun- um voru miklar skemmdir í lifur; bólgur, fituíferð og fitudrep. Einnig var skemmd í þind flestra hrossanna. Vöðvaþræðir voru rýrir og bilaðir. Nýrnabólgur voru í tveimur hrossanna. Þá var lang- vinn lungnabólga í nokkrum þeirra og brjósthimnubólga í sumun en berkjubólga í öðrum. Langvinnar skemmdir og bólgur voru í öndun- arfærum allra hrossanna. Síðan segir í skýrslunni: „Ljóst er að hrossin hafa orðið fyrir ofkælingu og verið viðkvæm sökum vannær- ingar og ormasýkingar. Miklar sveiflur í holdafari milli árstíða eiga sjálfsagt sök á ýmsum líffæra- skemmdum, sem fundust, einkum lifrarskemmdum." Því má svo bæta við, að hrossin þoldu ekki rekstur- inn í sláturhúsið og núninginn hvert við annað og mörðust svo, að skera þurfti burt stóra hluta af skrokkunum af blóðsprengdu kjöti. Þetta er ófögur lýsing en engu að síður sönn og slíkt þarf að fyrir- byggja. Hin skæða hitasótt í hross- um gefur nú tilefni til að staldra við og huga gaumgæfilega að ásig- komulagi hrossanna í landinu og búfjár yfirleitt. Alltaf má búast við að ýmsar sóttir gjósi upp og engar betri forvarnir eru til en gott þrek hrossanna sjálfra, til að takast á við sjúkdóm sem þennan. Hér með er því skorað á öll hestamannafélög og félög hrossabænda að taka nú höndum saman og beita sér fyrir því að tryggja velferð allra hrossa, m.a. með því að útigangur að vetri til verði bannaður og að félags- mönnum verði ekki liðið að brjóta lög á hrossum sínum. Höfundur er lögfræðingur og full- trúi SDÍíDýraverndarráði. „ Eftirlitsiðnaður “ í UMFJÖLLUN fjölmiðla um opinbert eftirlit af ýmsu tagi er yfirskrift þessarar greinar oft notuð sem einhvers konar sam: heiti eða samnefnari. f orðinu felst óneitan- lega ákveðinn óbeinn dómur um þá starfsemi sem orðinu er ætlað að ná yfir, þ.e. að um sé að ræða dýrt bákn sem sé fyrst og fremst til sjálfs sín vegna fremur en til að ná þjóðfélags- legum markmiðum og viðhalda ákveðnum kröfum um gæði og ör- yggi á ýmsum sviðum. Það er því næsta dapurlegt ef starfsmenn eft- irlitsstofnana taka sér þetta orð í munn, eins og gerst hefur. Á nýafstöðnu Viðskiptaþingi var því haldið fram í erindi hagfræð- ings Granda hf. að opinber eftirlits- starfsemi kosti íslenska skattgreið- endur árlega um 3 milljarða kr., en að óbeinn kostnaður vegna kvaða og krafna gagnvart allri atvinnu- starfsemi nemi allt að 30 milljörð- um kr. Þessar tölur munu vera að mestu samhljóða ágiskunum sem settar era fram í greinargerð með lagafrumvarpi ríkisstjómar um eft- irlitsstarfsemi hins opinbera. Við þessar tölur leyfi ég mér að gera tvær almennar athugasemdir. Þeg- ar beinn kostnaður við rekstur eft- irlitsstarfsemi er reiknaður ber að gæta þess að framkvæmd eftirlits er oft einungis lítill þáttur í starf- semi ýmissa stofnana sem taldar hafa verið undir „eftirlitsiðnað". Dæmi um slíkt er Hollustuvernd ríkisins, þar sem framkvæmd eftir- lits er einungis um 10-15% af starf- seminni. Varðandi seinni þáttinn, þ.e. kostnað samfélagsins og at- . vinnulífs vegna þeirra kvaða og krafna sem felast í nútíma lögum og reglugerðum, þá er greinilega um að ræða mjög öfgafulla og illa rökstudda framsetn- ingu. Að kostnaður vegna eftirlitsskyldra þátta sé um 30 miljarð- ar, eða um 6% af vergri þjóðarfram- leiðslu, er augljóslega hrein firra. Þar með hljóta menn að telja svo til allt til auka- kostnaðar sem gerir okkur að nútíma sam- félagi og greinir okkur frá söfnuram og hirð- ingjum, svo sem öryggi og hreinlæti í matvæla- framleiðslu og heilbrigðisþjónustu, aðbúnað og öryggi fólks í hýbýlum og á vinnustöðum o.s.frv. Að hér sé um að ræða fjármuni sem megi losa Oft er eftirlit í raun ótrúlega dýrt fyrir borgarana, segír Hermann Sveinbjörnsson, miðað við hvað er í húfí. um og veita til meiri þjóðþrifaverka og hagvaxtar er að mínu mati að mestu órökstudd slagorð. í leiðara Mbl. fimmtudaginn 6. mars sl. var fjallað á mjög athyglis- verðan hátt um tvö mál sem tengj- ast umfjöllunarefni þessarar grein- ar, þ.e. umhverfisstefnu Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna og mengunarslys við Hafnarfjörð. Umhverfisstefna SH endurspeglar í hnotskurn þann veruleika sem framsækin starfsemi býr við í dag. Allt helst í hendur: umhverfis- stjórn, framleiðslustjóm, innra eft- irlit og gæðakerfi ásamt alþjóðleg- Hermann Sveinbjömsson um stöðlum og vottun. Þannig tengjast flestir þeirra þátta sem kenndir eru við eftirlit almennum framförum í landinu og bættum þjóðarhag. í seinni grein leiðara Mbl. hinn 5. mars sl. er m.a. spurt hvort eftirlit sé nægilegt í tilefni af því mengunarslysi og lögbrotum við meðferð úrgangs sem upp komst nýlega sunnan Hafnarfjarð- ar. Slík ábending er þarft umhugs- unarefni með hliðsjón af nýsam- þykktum lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og markmið fyrrgi-einds lagafrumvarps um op- inbera eftirlitsstarfsemi. Þar er kveðið á um að kostnaður við eftir- lit megi aldrei verða meiri en sem nemur reiknuðum eða áætluðum ábata þjóðfélagsins. Þegar áföll og slys verða virðast Islendingar yfir- leitt ekki telja einhlítt eða nægilegt að styðjast við kostnaðar- eða arð- semisútreikninga til að ákveða að- gerðir eða móta stefnu. Oft er eftirlit í raun ótrúlega ódýrt fyrir borgarana miðað við hvað er í húfí. Sem dæmi má nefna að allt umhverfis- og heilbrigðiseft- irlit ríkis og sveitarfélaga kostar um 200 miljónir kr. á ári eða tæplega 800 kr. á hvern mann. Ymsir út- gjaldaliðir heimilanna, sem þykja oftast sjálfsagðir, hlaupa á öðrum stærðargráðum. Til dæmis má laus- lega áætla að skylduti-ygging á bíla- flota landsmanna kosti árlega ekki undir fjórum milljörðum kr. eða rúmlega 15 þús. kr. á hvert manns- barn í landinu. Mikilvægt er þó að hafa ætíð hug- fast að eftirlitsstarfsemi sé ekki til sjálfs sín vegna. Vinna verður eftir ákveðnum markmiðum, sem oft er hægt að ná á skilvirkari hátt með nútíma stjórnunar- og eftirlitskerf- um og einkavæðingu á ákveðnum þáttum þar sem það á við. Ábyrgðin á að markmið náist og að lögboðn- um reglum sé fylgt er þó eftir sem áður á hendi viðkomandi opinberrar eftirlitsstofnunar. Höfundur er framkvæmdastjóri Hollustuvemdar ríkisins. Fangar frelsis- ins - Fjalla-Ey- vindur og Halla SÚ ákvörðun Fjalla- Eyvindarfélagsins að reisa minnisvarða um Eyvind og Höllu á Hveravöllum hefur fengið mjög góðar undirtektir. Magnús Tómasson listamaður vinnur verkið. Þau hjón voru á sinni tíð aldrei dæmd sem sakamenn en lifðu æv- intýralegu lífi á eilífum flótta undan réttvís- inni og byggðamönn- um. Þjóðsagan er römm og hefur slegið ævintýraljóma á hfs- hlaup Eyvindar og Höllu. Hann var langt á undan samtíð sinni á mörgum sviðum og svo fljótur á handahlaupum að fráir hestar höfðu ekki við honum. Alltaf fylgdust þau að og frelsaði Ey- vindur Höllu aftur og aftur úr höndum sýslumanna með ótrúleg- um hætti. Hver hin raunverulega ógæfa var sem olli útlegð þeirra er óljós því þegar byrjað er að auglýsa eft- ir Eyvindi er hann fyrst og fremst horfinn vinnumaður frá Traðar- holti í Flóa, sem hefur yfirgefið barnsmóður sína sem var dóttir Jörgens Möllers þjóns í Skálholti. Eyvindur hefur enga ástæðu til að leyna nafni sínu þegar hann sest 1 bú með ungri ekkju vestur á fjörð- um. En þar taka málin að gerjast. Hveravellir eru tilvalinn staður fyrir minnisvarðann um Eyvind og Höllu. Guðni Ágústsson skorar á fólk að láta fjárhæð af hendi rakna í söfnunina. Upphafið var áburður um að hafa stoíið golsóttum sauð úr búi ná- grannans. Slíkt var brennimerk- ingarsök og kannski var það ást- arfarsinn svikin við dóttur danska þjónsins og golsóttur sauður sem gerðu Eyvind og Höllu að föngum frelsisins á öyæfum Islands í ein tuttugu eða þrjátíu ár. Fjalla-Ey vindur alltaf vinsæll Hvað sem því líður þá er full ástæða fyi'ir okkur að gera sögu þeirra skil, svo sérstök var hún. Meðan þau lifðu kom það til tals að gefa þeim upp sakir og semja við þau frið ef Eyvindur vildi gerast leiðsögumaður yfir miðhálendið. Nú er miðhálendi íslands perla í ferðamensku samtímans því er það við hæfi að reisa þeim manni sem oft hefur verið nefndur konungur öræfanna og drottningu hans minnisvarða. Margt bendir til að það hafi verið lítil sök sem orsakaði alla þeirra baráttu því Fjalla-Ey- vindur var vel látinn maður og átti vini, sem hlífðu honum og hjálpuðu, jafnvel í röðum sýslumanna og presta. Sveitungar Eyvindar tóku ávallt málstað hans og mönnum í Hrunamannahreppi var það heiður að rekja ættir sínar til hans og þannig er það enn í dag. Fræg er sagan af Helga Haraldssyni á Hrafnkelsstöðum sem dvaldi sem ungur maður með Þingeyingum fyrr á öldinni. Þingeyingar fóru í mannjöfnuð við Helga á kvöldvöku sem haldin var. Leikurinn fór þannig fram að þeir nefndu mann úr sinni sýslu og báðu um jafn- oka úr Árnessýslu. Gekk leikurinn lengi kvölds þar kom að þeir nefndu Jóhann Sigm’jónsson skáld og töldu Helga eiga erfitt með að finna jafnoka hans. Helgi nefndi Fjalla-Eyvind Jónsson frá Hlíð. Þótti Þingey- ingum tilnefning Helga undarleg og þóttust nú hafa sigur en Helgi sagði að lífs- hlaup og afrek Ey- vindar hefðu orðið Jóhanni slík uppspretta að án afreks hans hefði Jóhann ekki samið leikritið um úti- legumennina o.s.frv. Urðu þeir að fallast á þessi rök og hélt leikurinn áfram. Minnismerki - verklýsing Leita skal uppi stein, sem væri á að giska 120x120x160 cm á hvern kant, svipaður að lögun og sá sem líkanið sýnir. Sá steinn yrði síðan sagaður í tvennt, efri helmingi síð- an lyft upp á 23-25 teina eða rimla úr kortenstáli eða bronsi. Þeir tein- ar eða rimlar mynda ferhyrnt búr utan um tvo steina, sem hoggnir yrðu í hjartalaga form. Vel mætti hugsa sér að annar steinninn yrði sóttur í átthaga Eyvindar en hinn í átthaga Höllu. Utan á minnisvarð- anum eða á stökum steinum við hlið hans yrði texti er greindi í stuttu máli frá helstu æviatriðum Eyvindar og Höllu, og þá gjarnan á nokkram tungumálum. Hugsanlegt er að steinn sá er sagaður yrði í miðju væri til muna óreglulegri en sá sem sýndur er á módelinu, held- ur stærri um sig og myndu þá riml- arnir mynda ferkant inn á hinum sagaða fletí, en jaðrar steinsins skaga út fyrir eins og þurfa þætti. Við staðsetningu og uppsetningu yrði þess gætt að raska engu í um- hverfi, og staðsetning yrði vita- skuld að vera gerð með samvinnu réttra aðila. Hvers vegna Hveravellir Hveravellir eru tilvalinn staður fyrir minnisvarðann. Þeir eru í al- faraleið á milli héraða og þar eru tóttarbrot og hver sem kennd eru við Eyvind. Fjalla-Eyvindarfélag- ið stendur enn fremur fyrir ráð- stefnu í vor á Flúðum um Eyvind og Höllu, þar sem fræðimenn munu svara því hver þau voru. Grunnskólabörn í Árnes- og Húnavatnssýslum heyja ritgerðar- samkeppni um lífshlaup þeirra. Gangi fjársöfnun vel mun félagið huga að fleiru sem þeim tengist jafnvel reisa Eyvindarstofu og heiðra legstað þeirra beggja vestra. Félagið heitir á einstaklinga og fyrirtæki að ganga í Fjalla-Ey- vindarfélagið og láta einhverja fjárhæð af hendi rakna. Sýslu- menn Árnesinga og Húnvetninga endurskoða reikninga félagsins. Reikningur félagsins er gullreikn- ingur í Búnaðarbanka Islands á Selfossi nr. 99. á nafni Eyvindar og Höllu, kennitala 430398-2029. Félagið heitir á sem flesta að ger- ast virkir þátttakendur og styrkja minnisvarðann FANGAR FRELSISINS. Höfundur er alþingismaður og formaður Fjalla-Eyvindarfélags- ins. Guðni Ágústsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.