Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 53

Morgunblaðið - 19.03.1998, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 53 AÐSENDAR GREINAR í BLAÐINU Degi 28. janúar sl. birtist álitsgerð írá Löggild- ingarstofu um nýskipan rafmagnsöryggismála. Vegna fyrri skrifa og annarrar umfjöllunar fjölmiðla vil ég fara nokkrum orðum um fullyrðingar í yfirlýs- ingu þessari frá mínum bæjardyi-um séð. 1. Aukið öryggi. I yf- irlýsingunni segir að gerðar hafi verið um- talsverðar breytingar á rafmagnsöryggismál- um „til að mæta kröf- um nýrra tíma“. „Allar miða þær að auknu rafmagnsör- yggi og bættri þjónustu við neyt- endur. Löggildingarstofa fer nú með yfirumsjón rafmagnsöryggis- mála en faggiltar skoðunarstofur annast rafmagnseftirlit." Sagði einhver „auknu raf- magnsöryggi og bættri þjónustu"? Ég, sem starfandi rafVerktaki á Austurlandi frá árinu 1957, hef mikla reynslu af eldra fyrirkomu- lagi eftirlitsmála, bæði hvað varð- ar héraðsveitur, sveitarfélagaveit- ur og einkaveitur. Þau afskipti hafa verið mér og fleirum leiðar- ljós til vandaðra vinnubragða og virðingar fyrir notandanum sem alltaf hefur borgað kostnaðinn af eftirlitinu. Er það bætt þjónusta að hætta gamalskoðunum og færa nýskoðanir niður í 10% úrtaks- skoðun? Þetta er kannske bætt þjónusta við skoðunarstofur þar sem eigendur geta legið með tærnar upp í loft og þegið tugi milljóna af hinum almenna borg- ara án þess að þurfa að inna þjón- ustu af hendi í stað- inn. Lögin, sem barin voru fram á nætur- fundi rétt fyrir jól 1996, um Löggilding- arstofu og rafmagns- eftirlit, eru meirihluta alþingis til skammar. Með nýju fyrirkomu- lagi er allri eldri gerð eftirlits rústað vegna einkavæðingarhug- mynda nokkurra mis- viturra pólitískra preláta. Nefnd sú, er ráðherra skipaði 1995 til að leggja fram hug- myndir um rafmagns- eftirlit, var alls ekki starfhæf vegna of margra hags- munaaðila í henni. A þetta hefur verið bent, en löggjafinn lét það sem vind um eyru þjóta. Yfirlýs- ingar iðnaðarráðherra þá og síðar sýna auk þess að honum er svo skítsama um þessi mál að hann lætur sér nægja að lesa upp úr áliti annarra. Hræddur er ég um að allar góðu einkunnirnar hans úr skóla nái þar vart upp fyrir ökkla. 2. Aukin ábyrgð. Þessi kafli þarf ekki skýringa við. Menn hafa alltaf þurft að bera ábyrgð á eignum sín- um, en þarna virðist þó fullyrt að eigendur raflagna eigi að vera fag- menn (?!) og vita fyrirfram um dulda galla. 3. Meiri kröfur. Rafverktakar og ralveitur eiga að vinna eftir gæða- kerfi sem tryggir að öll verk séu yfirfarin í verklok og uppíylli sett- ar kröfur um öryggi. Hvað er átt við með þessu? Höf- um við rafverktakar ekki unnið eftir neinum gæðakröfum? Hvar er gamla reglugerðin um raforku- mannvirki sem varð til fyrir mína tíð og hefur margoft verið aukin og endm-bætt síðan? Hvað um samstarf okkar rafverktaka við rafveitur, rafmagnseftirlit og eig- endur raflagna? Á að kasta allri þessari reynslu fyrir róða vegna peningagræðgi nokkurra íhaldskumpána? Ég segi íhaldskumpána vegna þess að mál- ið er hápólitískt og lyktar sem slíkt. Við rafverktakar höfum alltaf yf- irfarið verk okkar í verklok, en þær auknu kröfur sem gerðar eru til okkar frá Löggildingarstofu eru að mestu fólgnar í kröfum um kaup á dýrum mælitækjum og auknum Hið nýja einkavædda rafmagnseftirlit, segir Armann Jóhannsson, er dýrara fyrir neyt- endur og ótryggara en eldra fyrirkomulag. tíma til mælinga. Það segir okkur að reikningurinn til viðskiptavinar- ins hlýtur að hækka. En viðskipta- vininum er ekki sagt frá því, að hann er búinn að greiða þetta eftir- litsgjald í formi 0,8% gjalds á keypta raforku. Þarna er semsagt tvísköttun á ferðinni, ef ekki þrí- sköttun. Hverjum er það í hag? 4. Enn auknar kröfur. Rafverk- takar sem fengið hafa löggildingu hafa einir heimild til að annast raf- verktöku og bera ábyrgð á þeim rafverkum sem falla undir lög og reglugerðir um raforkuvirki. Hér eru engir nýir hlutir á ferð- inni. En með slælegra eftirliti, sem felst í nýju lögunum, færist í vöxt að veitueigendur vilji í aukn- um mæli bjarga sér sjálfir, leggja þetta og leggja hitt. Ég hefi alla tíð neitað mönnum um efniskaup sem höfðu slíkt í huga. Þeir brosa bara, snúa sér að næsta manni og tekst að ná í sitt. Skyldi þetta vera árangur af betra og skilvirkara eftirliti? Ég get nefnt dæmi um þessa hluti og tjón af völdum þeirra. 5. Ábyi’gir seljendur. Kannske get ég best fellt mig við þessa grein, en hvað felst í þessum orð- um? Gamla raflagnaprófunin var ekki raunhæf. Ef panta þurfti sérhæfða hluti, t.d. í bræðslur eða frystihús, þurfti stundum að bíða eftir grænu ljósi til að fá þá. Nú á CE-merkið að vera trygging fyrir gæðakröfum Evrópusambandsins, en mikið er það nú misnotað. Séð hef ég borð- lampa með CE-merki með B22 koparfal, sem er ólöglegur hér á landi, seldan hérlendis hjá virtum innflytjanda. En ég get skilið heildsalana. Eftirlit hentar þeim einfaldlega ekki. 6. Rafmagnseftirlit ríksins hefur verið lagt niður. Nú annast „óháð- ar“ og „faggiltar" skoðunarstofur rafmagnseftirlit í umboði Löggild- ingarstofu. Satt er að Rafmagns- eftirlitið hefur verið lagt niður, illu heilli. En hvað felst í hugtakinu „óháðar skoðunarstofur“? Kannske eru þær óháðar verkefn- um sínum, en þær eru hvorld óháðar peningum né einkavæðing- arskoðunum misviturra manna. Faggilding er fallegt orð og við skulum vona að þeir, sem hafa fengið þann stimpil, beri hann með rentu. En lágmarkskrafa en að þeir, sem fást við skoðanir á raf- lögnum, hafi unnið við raflagnir um nokkurra ára bil. •' - Að lokum vil ég setja fram hug- myndir mínar um raunhæft raf- magnseftirlit: Nýskoðanir skulu vera hjá rafveitum. Röksemdin er sú, að rafveitur sjá um umsóknir um heimtaugar og lagningu þeirra, uppsetningu mæla og eru um leið seljendur raforkunnar. Á notandann er lagt 0,8% gjald sem er inni í raforkugjaldinu. Þetta eru nokkrir tugir milljóna og mundu meira en standa undir þessu eftirliti. Síðan á að vera til stofnun sem •£.. heitir einfaldlega Rafmagnseftir- lit og ætti að annast háspennueft- irlit sem ætti að fjármagna með smágjaldi af sölu raforku til stór- iðju og annarrar sölu sem ekki fer í gegnum rafveitur. Raf- magnseftirlitið ætti auk þess að annast gamalskoðun sem einnig mætti fjármagna með gjaldi á stóriðju. Ennfremur ætti Rafmagnseft- irlit að sjá um löggildingu raf- verktaka, gagnasöfnun og skýrslugerð, svo og eftirlit með einkastöðvum sem fjölga mun á næstunni. Þar ætti líka heima skoðun á brunatjónum, fræðslu- mál og útgáfumál. Með þessum *" hætti mætti dreifa skoðunarverk- um um landið sem væri hag- kvæmara en að hafa nokkrar skoðunarstofur í Reykjavík og vinna allt þaðan. Nýsett lög um rafmagnseftirlit eru þeim einum til hagsbóta sem hagnast á rekstri skoðunarstofa, en notendur borga brúsann. Því skora ég á lög- gjafann að endurskoða þessi lög. Því fyrr, því betra. Höfundur er rafverktaki á Austurlandi. Einkavæðing til óþurftar Ármann Jóhannsson Pentium II blómstrar Einstakft ftækifæri ftil að eignast Pentium II ftölvu á verði sem á sér enga hliðstæðu í hænum! Við hönnun Vision Line-tölvunnar írá Tulip eru gæðin höfð að leiðarljósi enda hefur hún náð miklum vinsældum meðal þeirra notenda sem sækjast eftir hraða, afköstum og áreiðanleika. Veldu vandaða vöru frá viðurkenndum evrópskum framleiðanda - veldu Tulip! Tæknilegar upplýsingar: Örgjorvi: Intel Pentium II 233 MHz Diskur: 2,1 Gb Vinnsluminni: 32 Mb SDRAM, stækkanlegt í 256 Mb Flýtiminni: 512 Kb L2 Geislndrii: Innbyggt 24-hraða CD drif Hljóðkort: Sound Blaster á móðurborði Skjákort: 2 Mb S3 Virge GX2 APG, stækkanlegt í 4 MB Tengi: 4 Universal Serial Bus tengi (tvö að framan) Innrautt samskiptatengi Annad: Fast 10/100-T Ethernet á móðurborði - Verslun - Skaftahlíð 24 - 105 Reykjavík Sími: 569 7700 - Fax: 569 7799 www.nyherji.is S¥mwl II computers

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.