Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 58

Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 58
58 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Insurcion Skít Puzz Duffel ► HUÓMSVEITIN Insurcion kemur úr Grafarvoginum og er skipuð þeim Guðjóni Albertssyni gítarleikara og söngv- ara, Hirti Hjartarsyni trommuleikara, Magnúsi Unnari Ge- orgssyni bassaleikara og Jóni Arnari Helgasyni hljómborðs- leikara. Meðalaldur Insurcion er 17 ár og spila þeir rokk. ► HUÓMSVEITIN Skít Puzz kemur úr bæði Hafnarfirði og Reykjavík. Hún er skipuð þeim Hauki Hrafni Þorsteins- syni og Magnúsi B. Skarphéðinssyni og spila þeir á tölvu, blendil, smala og gervil, sem sagt tölvudót. Þeir eru báðir á sextánda árinu. Þeir segjast spila húsmæðrafönk. ► DUFFEL er Reykjavíkursveit og hana skipa þeir Bjarni Gunnarsson trommuleikari, Bjarki Rafn Halldórsson gítar- leikari og söngvari og Halldór Gunnlaugsson bassaleikari. Meðalaldur hljómsveitarinnar er 17 ár og spila þeir flott grunge rokk í anda Nirvana heitinnar. Músíktilraunir Músíktilraunir Tónabæjar Músíktilraunir, árleg hljómsveita- keppni Tónabæjar, hefjast í kvöld. —>----------------------------------------------- Arni Matthíasson spáir í hljómsveitirn- ar níu sem fram koma í kvöld, en alls taka nær 40 sveitir þátt í tilraununum. MÚSÍKTILRAUNIR, árleg hljómsveitakeppni Tóna- bæjar, heíjast í kvöíd með fyrsta undanúrslitakvöldi af fjórum. í Músíktilraunum keppa hljómsveitir hvaðanæva af landinu sem eiga það eitt sameiginlegt að hafa ekki gefið út tónlist sína og eiga í fórum sínum þrjú frum- samin lög. Tilgangurinn með þátttöku í tilraununum er einmitt oft að komast yfir hljóðverstíma því verðlaun Mús- íktilrauna eru jafnan tímar í helstu hljóðverum landsins, sem nýst geta viðkomandi hljómsveitum til að koma sér á fram- færi. Músíktilraunir Tónabæjar eru nú haldnar í sextánda sinn, en fyrstu tilraunimar voru haldnar 1982 og sigraði þá Dans- hljómsveit Reykjavíkur og nágrennis, DRON. Upp frá því hefur fjölbreytt hljómsveitaflóra borið sigur úr býtum og flestar gerðir tónlistar komist á verðlaunapall, allt frá sum- arpoppi í dauðarokk. Sé rýnt i tölur kemur í Ijós að kvenna- sveitir hafa verið sárafáar, en þó hafa tvær slíkar náð að sigra í tilraununum, Dúkkulísumar 1983 og Kolrassa krókríðandi 1992. Tvær taka þátt að þessu sinni og veit von- andi á gott, aukinheldur sem stúlkur koma við sögu í nokkrum sveitumn og þá ekki bara til skrauts. Rokklíf virð- ist standa með miklum blóma í Hafnarfirði, því síðustu sjö ár hafa þijár hafnfirskar sveitir borið sigur úr býtum, en ann- ars era sigursveitir flestar af mölinni sem vonlegt er. Hljóm- sveitir sem komnar era lengra að hafa þó staðið sig með prýði og þannig hafa fimm sveitir utan af landi, hafnfirskar ekki meðtaldar, hreppt hnossið frá því tilraunirnar hófust. Einnig má geta þess fyrir þær rokksveitir sem enn syngja á ensku að ekki hefur nema ein slík sveit sigrað í tilraununum síðustu tólf árin. Ýmsar gestasveitir Eins og getið er eru helstu verðlaun Músíktilrauna hljóð- verstímar, fyrstu verðlaun era 25 hljóðverstímar í Sýrlandi, önnur verðlaun 25 tímar í Grjótnámunni, þriðju verðlaun timar í 20 Hljóðhamri, en siðan hlýtur athyglisverðasta hljómsveitin 20 tíma í Hellinum, hljóðverið Núlist veitir sér- stök Núlistarverðlaun sem er 25 hljóðverstímar, besti söngvari fær verðlaun frá Tónabúðinni, besti bassaleikari og besti hljómborðsleikari fá verðlaun frá Hljóðfæraverslun ► MAD METHODS er Drum ‘n Bass hljómsveit ættuð úr Reykjavík skipuð þeim Halldóri Hrafni Jónssyni tölvutól- leikara, Bjarna Þór Pálssyni tölvutólleikara og Jóhanni Gunnari Jónssyni tölvutólleikara. Meðalaldur Mad Met- hods manna er 17 ár. Kókóhundur ► HLJÓMSVEITIN Kókóhundur er ættuð úr Reykjavík og hana skipa Rúbert Örn Hjálmtýsson bassaleikari og söngv- ari, Steindór Ingi Snorrason gítarleikari og söngvari og Baldur Þór Jack trommuleikari. Meðalaldur hljómsveitar- manna er 21 ár og segjast þeir spila popp fyrir ungmenni. Reykjavíkur, best rapparinn fær verðlaun frá Japís, Rín verðlaunar besta gítarleikarann, Samspil besta trommuleik- arann og Nýherji besta tölvarann. Styrktaraðilar era síðan Domino’s pizza, Flugfélag íslands, Flugleiðir, Hard Rock Café, Jón Bakan, Pizzahúsið, Rás 2, Vífilfell, Tónastöðin og BT Tölvur. Skipan atkvæðagreiðslu Músíktilrauna hefur verið breytt frá fyrri högun og vægi dómnefndar aukið til að styrkja faglegan grann keppninnar. í þessum tilraunum velja áheyrendur eina hljómsveit áfram hvert kvöld, en sérstök dómnefnd velur síðan þá eða þær hljómsveitir áfram sem henni þykir rétt að komist áfram. Úrslitakvöld- ið gilda atkvæði áhorfenda síðan tæpan þriðjung á móti at- kvæðum dómnefndar. Eins og jafnan leika ýmsar hljómsveitir sem gestir fyrir tilraunirnar og síðan meðan atkvæði era talin. I kvöld eru gestasveitir tvær, Spírandi baunir og Soðin fiðla, sigursveit síðustu Músíktilrauna. Annað tilraunakvöldið, 26. mars næstkomandi, era gestasveitir einnig tvær, Subterranean og Stjörnukisi. Þriðja tilraunakvöldið, föstudaginn 27. mars, leikur Maus sem gestasveit. Loka undanúrslitakvöld- ið verður síðan fimmtudaginn 2. apríl og þá verður Quaras- hi gestasveit, en Botnleðja leikur úrslitakvöldið, föstudag- inn 3. apríl. Krumpreður ► HLJÓMSVEITIN Krumpreður er reykvísk hljómsveit skipuð þeim Ottó Reimarssyni trommuleikara, Guðmundi Davíð Hermannssyni gítarleikara og söngvara og Daníel Frey Cox bassaleikara. Þeir segjast spila grunge pönk og er meðalaldur hljómsveitarinnar 16 ár. Endemi ► HLJÓMSVEITIN Endemi kemur frá Reykjavík og hana skipa Guðrún Dalía Salómonsdóttir hljómborðsleikari, Ólöf Helga Arnaldsdóttir söngkona og gítarleikari, Eirík- ur Orri Olafsson tölvuleikari og Andri Snær Guðmundsson bassaleikari. Meðalaldur hljómsveitarmeðlima er 17 ár og segjast þau spila tónlist sem er ekki popp ekki rokk heldur eitthvað þar á milli. Spúnk ► HLJÓMSVEITIN Spúnk er kvennahljómsveit úr Reykja- vík skipuð þeim Öddu Ingólfsdóttur sem spilar á sampler og syngur og Kristínu Björk Kristjánsdóttur sem syngur og spilar á taktsmið. Adda er tvítug, Kristín rn'tján. Með þeim leika Bjarni Benedikt Björnsson kontrabassaleikari, Gerður Jónsdóttir kontrabassaleikari og Hrafnhildur Guð- rúnardóttir málmgjallaleikari. Silfurrefur ► HLJÓMSVEITIN Silfurrefur er ættuð úr Reykjavík og er skipuð þeim Ásgeiri Einari Einarssyni gítarleikara og söngvara, Einari Óla Kristóferssyni bassaleikara og Helga Davíð Ingasyni trommuleikara. Þeir eru allir á 18. árinu og segjast spila rokk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.