Morgunblaðið - 19.03.1998, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 19.03.1998, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 63 ^ MINNINGAR HALLDORA S. GUÐLA UGSDÓTTIR + Halldóra S. Guð- laugsdóttir fæddist í Odda í Vestmannaeyjum 18. júní 1920. Hún lést í Landspítalan- um 21. febrúar síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Seltjarnarneskirkju 2. mars. Mig langar til að minnast Halldóru með örfáum orðum, en ým- issa ástæðna vegna hefur það dregist lengur en ég hefði viljað. Hún var fædd 18. júní 1920 og lést á Landspítalanum 21. febrúar síðastliðinn eftir langvar- andi veikindi. Hún barðist eins og hetja við illvígan sjúkdóm sem eng- inn mannlegur máttur fær við ráð- ið. En Guð leggur öllum líkn með þraut og gaf henni styrk, óbilandi kjark og bjartsýni. Það var það sem gjörði henni lífíð bærilegra þsu- til yfir lauk. Ég ætla ekki að skrifa um lífsferil hennar eða ættir því mér er það algjörlega ókunnugt, enda búið að gjöra því góð skil svo ég hef þar engu við að bæta. En með þessum fáu línum vil ég senda henni inni- lega kveðju og þakk- læti fyrir alla þá vin- semd og umhyggju sem hún lét mér í té, ásamt eiginmanni sínum Sverri, frænda mínum og vini. Þau studdu hvort annað í þvi sem öðru. Halldóra var mikil mannkosta- manneskja, heiðarleg og starfsöm bæði innan heimilis og utan. Hall- dóra gegndi hlutverki sínu sem húsmóðir og móðir með sóma þótt hún þyrfti að sinna störfum utan heimilis. Hún vann mörg ár við þjónustustörf. Hún gekk um beina í opinberum veislum sem haldnar voru þjóðhöfðingjum og boðið til útlendingum og innlendu fyi-irfólki, bæði í Reykjavík og á Þingvöllum. Einnig vann hún á hótelum og fleiri stöðum. Að síðustu vann hún við ræstingar á meðan að heilsan leyfði. SveiTÍr minn, Vala og Asa og fjölskyldur. Ég sendi innilega sam- úðarkveðju. Guð veri með ykkur allar stundir. Dóru minni óska ég velfarnaðar í nýjum heimkynnum og kveð hana með orðum sálma- skáldsins Valdimars Briem og vona að fari hennar hafi verið stýrt „heilu heim í höfn á friðarlandi". Elín Þóra Guðlaugsdóttir. KRISTJAN GUÐMUNDSSON + Krislján Guð- mundsson fædd- ist á Eyrarbakka 26. ágúst 1917. Hann Iést á Vífílsstöðum hinn 7. mars síðast- Iiðinn og fór útför hans fram frá Há- teigskirkju 18. mars. Ég legg af stað án leiðsagn- ar og mals, mér lokast hvergi vegur austan Fjalls, ég sigli hraðbyr sumarloftið blátt, í sólarátt. (Eiríkur Einarsson frá Hæli.) Þessar ljóðlínur koma upp í hug- ann þegar ég sest niður til að skrifa nokkur kveðjuorð um elsku- legan móðurbróður minn, Kristján Guðmundsson, Kidda frænda. Ég veit að hugur hans var oft fyrir austan Fjall, nánar til tekið niður við ströndina, Eyrarbakka. Þar var hann borinn og barnfæddur, við hafið sem getur bylst með ógnar- gný eða gjálfrað létt við strönd, þarsem á góðum degi er einn víð- feðmasti fjallahringur á Suður- landi. Þar ólst hann upp við gott at- læti móður og föður í hópi glaðra systkina. Oft vitjaði hann æskustöðvanna eftir að hann flutti til Reykjavíkur, en blómann úr ævi sini var hann á Selfossi og reisti sér hús á svoköll- uðu Langanesi og undi glaður við sitt ásamt eiginkonu sinni, Ástríði Ingvarsdóttur, og dætrunum Ingi- björgu og Ragnheiði. Það var gott að koma á fallegt heimili Ástu og Kidda, hvort sem 3lómat>úðin öa^ðsKom v/ T-ossvoQski^kjugarð Sími. 554 0500 M M var á Selfossi eða í Reykjavík. Góðar móttökur húsmóður- innar í mat og drykk og ekki spillti létt lund húsbóndans og ein- stök kímni. En Kiddi frændi sagði sérstak- lega skemmtilega frá og var orðheppinn með afbrigðum, þannig að oft veltist maður um af hlátri þegar frændi fór á kostum. Þannig vil ég muna hann, glaðan og kátan. Ég vil að lokum þakka Kidda frænda fyrir alla þá gleði sem hann veitti mér og systkinum mínum. Einnig eru fluttar þakkir frá börn- unum mínum og þá sérstaklega Ragnheiði dóttur minni, sem hann var svo góður. Elsku Ásta, Ingibjörg, Ragn- heiður og fjölskyldur, megi Guð styrkja ykkur. Elín Arnoldsdóttir. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SOFFÍA SIGFINNSDÓTTIR frá Stykkishólmi, Austurbrún 4, Reykjavík, er lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku- daginn 11. mars, verður jarðsungin frá Áskirk- ju föstudaginn 20. mars kl. 15.00. Sigfinnur Sigurðsson, Lovísa Sigurðardóttir, Magnús Fr. Sigurðsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Þuríður Sigurðardóttir, Helga Sveinsdóttir, Arnljótur Björnsson, Björg Helgadóttir, Rune Söderholm, Kári Tyrfingsson, Kristín Hauksdóttir, Soffía Sigurðardóttir, Ágúst Haraldsson, Sigurður Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Erla Þorsteinsdóttir, Erfídrykkjur 5 ujlírjííjur M H H H H H H H H u Sími S62 0200 [xiiiiiiiiirl Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA UPPLÝSINGAR í SÍMUM 562 7575 & 5O5O 925 | HOTEL LOFTLEIÐIK I C Et A N D A 1* H O T * t S t Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HENNÝ ÞÓRÐARDÓTTIR, Háengi 17, Selfossi, lést á Landspítalanum, þriðjudaginn 17. mars. Kristófer Ásgrímsson, Óskar Úlfar Kristófersson, Guðbjörg Erla Kristófersdóttir, Aðalbjörn Þór Magnússon, Ásgrímur Þór Kristófersson, Sólrún Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA KRISTIN FRIÐBJARNARDÓTTIR, Álfheimum 42, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík, sunnudaginn 15. mars, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. mars kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsam- legast bent á líknarstofnanir. Dóra Ingvadóttir, Samúel Ingvason, Anna K. Pétursdóttir, Guðrún P. Ólafsdóttir, Hlynur Ingvi Samúelsson, Ólafur Oddsson, Sabína Jónsdóttir, Hjörtur Þór Grjetarsson, Helga G. Ólafsdóttir, Halldóra K. Hjartardóttir. + Minningarathöfn um eiginmann minn, INGIMUND B. HALLDÓRSSON, sem lést sunnudaginn 15. þ.m. á Sólvangi í Hafnarfirði, verður haldin í Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði á morgun, föstudaginn 20. mars kl. 13.30. Jarðarför hins látna fer fram í Patreksfjarðar- kirkju laugardaginn 28. mars. Jóhanna B. Þórarinsdóttir, dætur, tengdasynir, afabörn og langafabarn. + Utför föður okkar, ÓLAFS HELGASONAR frá Gautsdal, fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 20. mars kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigríður Ólafsdóttir, Martha Aðalsteinsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir, Hildigunnur Ólafsdóttir. + Ástkær móðir okkar, ÞURÍÐUR SKÚLADÓTTIR, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík, sem andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 11. mars, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. mars kl. 13:30. Bjarni H. Jóhannsson, Una S. Jóhannsdóttir, Skúli H. Jóhannsson, Ómar H. Jóhannsson, og fjöiskyldur. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, AÐALSTEINN BERNHARÐSSON, Hafnartrúni 4, Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laug- ardaginn 21. mars, kl. 14.00. Guðbjörg Sjöfn Eggertsdóttir, Soffía Aðalsteinsdóttir, Sigríður Vala, Gunnar Frans Brynjarsson, barnabörn og systkini. í I t
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.