Morgunblaðið - 20.03.1998, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÚR sýningarsalnum þar sem verið er að koma upp verkum yngri kynslóðar íslenskra málara.
Sýningin Islensk málverk á 20. öld í Hong Kong
Islensk málara-
list í nýju ljósi
ABSTRAKT eftir Nínu Tryggvadóttur. íslensk
abstrakt-málverk voru kynnt í beinu samhengi
við náttúru landsins.
SÝNING á úrvali íslenskra
málverka var opnuð í Nú-
tímalistasafninu i Hong
Kong 16. mars sl. Forsvars-
menn safnsins bíða spenntir
eftir viðbrögðum gesta en
verkin eru talsvert frá-
brugðin þeirri tegund
myndlistar sem þarlendir
eiga að venjast og áttu
menn jafnvel von á að ein-
hverjar mjmdanna yllu
hneykslan.
Að sögn Viktors Smára
Sæmundssonar, forvarðar á
Listasafni íslands sem
fylgdi verkunum 49 utan,
var ákaflega fagmannlega
og vel að undirbúningi sýn-
ingarinnar staðið. Sýningin
ber yíírskriftina íslensk
málverk á 20. öld og á henni
eru úrval íslenskra mál-
verka í eigu Listasafns ís-
lands eftir 28 listamenn.
Sýningarskrá var gefin út af
þessu tilefni þar sem Hall-
dór Björn Runólfsson, listfræðing-
ur, ritar grein um íslenska mynd-
list. Forsiðuna prýðir hluti mál-
verks eftir Kristján Daviðsson
ásamt lítilli innfelldri mynd af mál-
verki eftir Gunnlaug Scheving.
Ólík nálgun
við verkin
Viktor Smári segir að nálgun kín-
versku starfsfélaganna við verkin
hafi komið skemmtilega á óvart og
sé um margt frábrugðin vinnu-
brögðum sem tíðkist hér á landi.
Hann tekur dæmi af hönnunarvinnu
og kynningu sýningarinnar sem
mikið var gert úr. Fyrir ofan inn-
gang safnsins hangir risavaxin
handmáluð endurgerð upp úr mál-
verki eftir Ásgrím Jónsson. Ljós-
myndaeftirprentun á málverki eftir
Finn Jónsson í stærðinni 4x4
metrar blasi við gestum við inn-
komu í sýningarsalinn. Þá hafi
kynning fræðsludeildar safnsins á
íslensku abstrakt-málurum komið
fslendingnum í opna skjöldu þar
sem bein tengsl þóttu á milli verk-
anna og íslensks landslags. Sem
dæmi var ljósmynd af jökulsprung-
um komið fyrir við hlið mál-
verksins ísbröt eftir Svavar
Guðnason.
Mannslíkaminn gæti
hneykslað
Forráðamenn safnsins
voru heldur uggandi yfir
viðbrögðum Kínverja við
sumum málverkanna og
áttu von á að verk eftir
Helga Þorgils og annað eft-
ir Erró yllu hneykslan
gesta sem eru óvanir lík-
amsnekt í myndlist. Þetta
kom fulltrúum Listasafns
íslands talsvert á óvart en í
kínverskri myndlist er
mannslíkaminn ekki sýndur
neðar en að brjósti og því
var litið svo á að um eró-
tískar myndir væri að ræða.
Málverkum þessum var
komið fyrir á lítt áberandi
stað í salnum.
„Það hefur verið mjög
fróðlegt að upplifa þessi
ólíku viðhorf og skoðanir á verkum
íslenskra málara," segir Viktor
Smári. „Við höfðum ekki gert okkur
grein fyrir hversu framandi mörg
íslensku verkanna yrðu Kínverjum.
Þeir eru t.d. óvanir að sjá
geometrísk málverk og það kom
skemmtilega á óvart að sjá hvernig
þeir tengdu abstrakt-málverkin
beint við íslenska náttúru. Töluverð
vinna var lögð í sýninguna af hálfu
safnsins og vel að henni staðið."
Forráðamenn safnsins bíða nú
spenntir eftir viðbrögðum almenn-
ings og aðsókn að sýningunni.
í TILEFNI af sýningunni íslenskt málverk á 20. öld hefur um 15 metra
háu, handmáluðu kynningarveggspjaldi verið komið fyrir á framhlið
Nútímalistasafnsins í Hong Kong. Þar sést hluti úr málverkinu
Skammdegissól úr Hafnarfirði eftir Ásgrím Jónsson með innfelldri
mynd af verki eftir Jón Engilberts.
VIÐ innkomu í sýningarsalinn blasir við annað veggspjald með hluta
málverksins Úr Þingvallarhrauni eftir Finn Jónsson og innfelldri ljós-
mynd af hluta verksins Vindgæra eftir Svavar Guðnason ásamt kynn-
ingu á styrktaraðilum sýningarinnar. Og engu líkara en að um kfn-
verska myndlist sé að ræða.
Hljómtækjasam-
stæða m/ geisla-
spilara, útvarpi og
kassettutæki.^í
Nett en öflug Jm
stæða! jfH
ERICSSON
—Nýtt síma-^
númer 550-4444
Póstkröfusími
«w550-4400^
Nettur og
skemmtilegur
GSM sími á
ótrúlegu verði.
Þýskt gæðatæki
á hlægilegu
opnunartilboði.