Morgunblaðið - 23.04.1998, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Umræður um Goethe-stofnunina í Reykjavík á þýzka þinginu
Stuðningi stjórnvalda
við nýj a stofnun heitið
TALSMAÐUR þýzku ríldsstjómarinnar skýrði
frá því í þinginu í Bonn í gær, að í Reykjavík yrði
komið á fót stofnun sem tæki við hlutverki
Goethe-stofnunarinnar, sem lokað var um síðustu
mánaðamót.
I svari stjómarinnar við íyrirspum Annette
FaBe, þingmanns Jafnaðarmannaflokksins
(SPD), sem Helmut Scháfer, þingmaður Frjáls-
lynda demókrataflokksins (FDP) og ráðuneytis-
stjóri í utanríkisráðuneytinu, las upp, kom fram
að mikill áhugi væri fyrir því hjá þýzkum stjóm-
völdum að viðhalda góðum menningartengslum
við Island, og að þau myndu styðja hina nýju
stofnun fjárhagslega.
Engar tölur nefndar
„Hann sagði hins vegar ekkert um það hvenær
ný stofnun tæki til starfa, hann nefndi engar töl-
ur og lét heldur einskis getið um hvað nánar til-
tekið stæði til,“ sagði Annette Fafie í samtali við
Morgunblaðið. „Hann gaf heldur ekkert svar við
spurningu. annars þingmanns um viðbrögð við
þingsályktunartillögu Alþingis [þar sem lokun
Goethe-stofnunarinnar er hörmuð].“
Faíie sagði talsmann stjómarinnar hafa heitið
því að gefa skriflegt svar við spurningum hennar
um væntanleg fjárframlög í þessu sambandi, sem
ekki fengust svör við í gær. Heyrzt hefur nefnt
að stjórnin sé reiðubúin að leggja 75.000 mörk,
um þrjár milljónir króna, til þeirrar starfsemi
sem komið yrði á fót í Reykjavík í stað Goethe-
stofnunarinnar, og fór FaBe fram á skýr svör við
þessu. Rekstur Goethe-stofnunarinnar kostaði
um 350.000 mörk árlega.
„Jákvætt er að koma á fót nýrri stofnun, sem
tekur við hlutverki Goethe-stofnunarinnar; enn
er gengið út frá því að Reykjavíkurborg sé reiðu-
búin að veita félagi sem stæði að hinni nýju stofn-
un stuðning. Einna mikilvægast er að þýzk
stjómvöld hafa heitið fjárstuðningi,“ sagði þing-
maðurinn. „Stjómin hefur orðið þess vör að í
Þýzkalandi er líka mikill áhugi fyrir því að stofn-
un sem taki við af Goethe-stofnuninni hefji starf-
semi í Reykjavík."
Ingimundur Sigfússon, sendiherra íslands í
Þýzkalandi, var á þingpöllum í Bonn og fylgdist
með umræðunni. Sagði Ingimundur í samtali við
Morgunblaðið að sér hefði komið á óvart hve
margir þingmenn tóku til máls, en auk Annette
Fafle beindu fjórir aðrir þingmenn munnlegum
viðbótarspurningum til talsmanns stjómarinn-
ar.
Einnig sagði Ingimundur að allnokkuð væri
liðið síðan upphæðin 75.000 mörk heyrðist nefnd
í sambandi við þetta mál, en sú staðreynd að
talsmaður stjórnarinnar hefði í svörum sínum í
gær ekki nefnt neina upphæð gæfi tilefni til að
vona að niðurstaðan verði sú að ákveðið verði að
verja hærri upphæð en þessari til stuðnings
þýzkri menningarstarfsemi á Islandi.
Lögregla
leitar nagla-
dekkja
HINN 15. apríl s.l. áttu bif-
reiðaeigendur að hafa tekið
nagladekkin undan bílum sín-
um. Samkvæmt könnun lög-
reglu aka fjölmargir enn á
nagladekkjum þrátt fyrir
sumarveður og enga þörf fyr-
ir neglda hjólbarða.
Lögreglan í Reykjavík
væntir þess að menn noti
næstu daga til að taka nagla-
dekk undan bílum sínum svo
að engin nagladekk sjáist eftir
næstu helgi. I næstu viku
mun lögreglan í Reykjavík
byrja að hafa afskipti af þeim
sem þá aka enn á negldum
hjólbörðum.
„Vert er að hafa í huga að
kostnaður við umfelgun þarf
ekki að vera mikill og betra að
leggja í þann kostnað en að
eiga á hættu að fá sektir sem
gætu orðið hærri,“ segir í til-
kynningu frá lögreglunni.
Bjargaði þýsk-
um ferðamönnum
TVÆR þýskar konur á óbreyttum
bílaleigujeppa sátu fastar nálægt
bílastæðinu vestan við Dettifoss á
sunnudag og var það aðeins fyrir til-
viljun að aðrir ferðalangar komu
auga á þær.
Hafsteinn Halldórsson, starfsmað-
ur Fjallasýnar á Húsavík, var í skoð-
unarferð með nokkra ferðamenn
þegar hann kom auga á konurnar.
Hann hafði verið í sex jeppa ferð
daginn áður og heldur að konumar
hafi náð að fylgja frosinni slóð þess
hóps snemma á sunnudagsmorgun.
Svo þegar snjór fór að bráðna í sól-
inni eftir því sem leið á daginn hafi
þær fest bílinn og hvorki komist lönd
né strönd.
Æthiðu að halda áfram
Hafsteinn var á bakaleið frá fossin-
um þegar hann kom auga á konum-
ar. Hann dró þær upp úr skafli og
þvert ofan í ábendingar hans um að
fylgja sömu slóð til baka þá vildu þær
halda áfram. Það kom þó strax í ljós
að það var ekki hægt og það endaði
með því að Hafsteinn dró þær upp á
vegamót þaðan sem þær áttu að geta
fylgt slóð sinni suður á Austurlands-
veg. Þar skildi leiðir en Hafsteinn var
í miðri skoðunarferð með sinn hóp og
hélt í norðurátt. Hann fékk þó bíl til
að koma úr Mývatnssveit og sjá til
þess að konurnar kæmust upp á
þjóðveg.
Hafsteinn fékk síðan þær fréttir að
bíllinn hefði ekki komist til þeirra
fyrr en á miðnætti og þá höfðu þær
fest sig aftur, þá ekki komnar nema
hálfa leið upp á þjóðveg. Þeim var
hjálpað þangað og héldu síðan sína
leið.
Sumarslóði
fær jeppurn
Hafsteinn segir að konumar hafi
ekki verið með nein fjarskiptatæki og
þær hafi ekki áttað sig á að slóðinn
sem þær fóm inn á er sumarslóði og
þá aðeins fær jeppum. Þeim hafi ekki
verið grein fyrir því á bflaleigunni að
það væru margir vegir ófærir á þess-
um árstíma. Þá hafi enginn vitað um
ferðir þeirra.
„Það var svolítið skrítið að sjá þær
þama vegna þess að á þessum tíma
árs er allt í snjó og ekki möguleiki
fyrir nokkum mann að vera þarna
nema á öflugum bíl eða sleða. Fyrir
tilviljun náðu þær að fylgja slóð
þeirra sem höfðu verið þama daginn
áður en guð má vita hvenær þær
hefðu fundist hefðum við ekki verið
þarna. Það em mjög fáir sem em
þama á ferð,“ sagði Hafsteinn.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁ slysstaðnum við Áburðarverksmiðjuna
Klemmdust milli rútu og bíls
við Áburðarverksmiðjuna
ÞRÍR menn slösuðust í árekstri
við Áburðarverksmiðjuna í Gufu-
nesi í gærmorgun. Voru þeir að
stíga út úr rútu á stæði við verk-
smiðjuna þegar aðvífandi bfl var
ekið á kyrrstæðan bfl sem hentist
á mennina.
Slysið varð klukkan 7.42 í gær-
morgun. Samkvæmt upplýsing-
um iögreglunnar kom bfll inn á
athafnasvæði verksmiðjunnar og
mun bflstjórinn hafa fengið
flogaveikikast og misst stjóm á
honum. Rakst bfll hans á kyrr-
stæðan bfl sem hentist af miklum
krafti á mennina sem vom við
rútuna og urðu á milli bflsins og
hennar.
Tveir mannanna slösuðust
mikið en sá þriðji heldur minna.
Fjórir sjúkrabflar vom sendir á
vettvang og fluttu þrír þeirra
hina slösuðu á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
HRUNIÐ og kletturinn sem eftir stendur og horaið á bflastæðum Hótels Víkur.
Enn hrynur grjót við Víkurþorp
Vík. Morgunblaðið.
VORIÐ er sá tími þegar mest hætta
er á grjóthruni úr fjöllum landsins.
Þegar frost fer úr jörðu losnar um
kletta sem frostið hefur losað yfir
veturinn.
Víkurbúar hafa ekki farið var-
hluta af þeim veðrabrigðum sem
hafa verið í vetur, frost og þíða á
vígsl í allan vetur. Stórt stykki
hrundi úr Reynisfjalli rétt vestan
Víkurþorpsins í vetur og nú í vik-
unni hrundi klettur úr berginu ca.
metra norðan við Hótel Vík. Eftir
stendur mun stærri klettur sem er
ca. 20-30 metra hár og 6-8 metra
breiður sem gæti valdið hættu ef
hann hryndi öllum að óvörum.
Sigurður Jónsson yfirmaður
ferðaþjónustusviðs KÁ sem rekur
Hótel Vík í Mýrdal segir að klettur-
inn sem eftir stendur sé sprunginn
frá berginu. Hann segir að klettur-
inn verði felldur hið fyrsta til að fyr-
irbyggja að hann valdi tjóni og verði
það verk unnið í samvinnu við Mýr-
dalshrepp. Enginn hætta er á því að
sjálft húsið skemmist.
Fyrírspurn um málefni Lindar
Tíu daga frestur
FINNUR Ingólfsson, viðskipta-
ráðherra, segir að gefinn sé
ákveðinn frestur í þingsköpum
Alþingis til að svara fyrirspum-
um og hann muni reyna að svara
fyrirspum Astu Ragnheiðar Jó-
hannesdóttur, alþingismanns, um
málefni Lindar, innan þess
frests. Samkvæmt þingsköpum
Alþingis er gefinn tíu daga frest-
ur til að svara skriflegum fyrir-
spumum. Fyrirspum Astu
Ragnheiðar er í tíu liðum og
fjallar um málefni Landsbank-
ans og fjármögnunarfyrirtækis-
ins Lindar hf.
Mótmæla
eiturútburði
FUGLAVERNDARFÉLAG íslands
skorar hefur skorað umhverfisráð-
herra að heimila ekki notkun eiturs
til að drepa fugla eins og æðarbænd-
ur hafa krafist.
„Umrætt eitur, fenemal, er ákaf-
lega þrávirkt og því hættulegt öðr-
um fuglum og spendýmm sem kom-
ast í eiturdauða fugla, eins og mörg
dæmi em um hér á landi.“