Morgunblaðið - 23.04.1998, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
20X20
Afmælishappdrætti SL
Þann 20. hvers mánaðar hljóta 20
heppnir vióskiptavinir veglegan
vinning í afmælishappdrætti
Samvinnuferða-Landsýnar.
Þessir duttu í lukkupottinn þann 20. apríl og fá
farsedil fyrir tvo til hinna ýmsu staða í Evröpu.
Bknr. OTL39H Stefán Geir Karlsson
Bknr. JLPXX7 Ágústína Eggertsdóttir
Bknr. ONKZSR Eva Horlebein
Bknr. OCEZCV Anna Jenny Marteinsdóttir
Bknr. ODC7VX Unnur Sigurðardóttir
Bknr. JKPQJL Guðmundur Zebitz
Bknr. 135953 Svava Gísladóttir
Bknr. 141613 María Ammendrup
f
Þessír fá farseðil til Dufalin fyrir tvo:
Bknr. 177170 Lilja Arnlaugsdóttir
Bknr. 201942 Haraldur Sigurösson
. W
Til þess að vera með í næsta útdrætti
þarft þú að staðfesta bókunina þína
fyrir 20. maí nk., en þá verður dregið í
þriðju umferð afmæiishappdrættisins.
Við erum við símann:
virka daga frá kl. 9 - 22
laugardaga frá kl. 12 -16
sunnudaga frá kl. 16 -18
Bókunarsíminn er 569 1010
________NEYTENPUR____
Allar matvörur
geymsluþolsmerktar
Morgunblaðið/Kristinn
SUMAR bandarískar vörur hafa lengi verið merktar samkvæmt EES-
reglum og er Cheerios þar gott dæmi. Að ofan hefur ungur aðdáandi
krækt sér í pakka.
INNFLYTJENDUM er skylt að
framfylgja reglugerð Evrópska
efnahagssvæðisins um merkingu
matvæla frá 1. maí næstkomandi.
Heimilt verður að selja matvæli
með eldri merkingum til 1. septem-
ber nk. Jón Gíslason, forstöðumað-
ur matvæla- og heilbrigðissviðs
Hollustuverndar ríkisins, segir að
mesta breytingin felist í því að allar
matvörur verði geymsluþolsmerkt-
ar. Hingað til hefur verið nokkuð al-
gengt að bandarískar vörur væru
ekld geymsluþolsmerktar.
í leiðbeiningum fyrir innflytjend-
ur kemur fram að matvæli skuli
merkja með „best fyrir“ eða „best
fyrir lok“ nema matvæli með 5 daga
geymsluþol eða skemmra, þau skuli
merkja með síðasta neysludegi. At-
hygli er vakin á því að gæta skuli að
því að röðun dags, mánaðar og árs
við merkingu geymsluþols sé
þannig að merkingin sé auðskiljan-
leg fyrir neytendur. Pökkunardag-
ur á að koma fram á kælivörum með
þriggja mánaða geymsluþol eða
skemmra.
Samkvæmt reglugerðinni er
nægjanlegt að merkja vöru fram-
leiðanda þó um sé að ræða framleið-
anda utan EES. Ef varan er hins
vegar aðeins merkt dreifingaraðila
skal sá vera með aðsetur á Evr-
ópska efnahagssvæðinu. Dreifingar-
aðilar eru hvattir til, ef þeir þurfa
að endurmerkja vörur á annað borð,
að merkja hana íslenskum ábyrgum
aðila. Eins þurfa dreifingaraðilar að
tryggja að metrakerfið sé ávallt
notað þegar gefin er upp þyngd eða
rúmmál matvöru. Ef vara er í legi
skal auk heildarþyngdar gera grein
fyrir nettóþyngd.
Samræmdar
merkingar
Öll matvæli eiga að hafa inni-
haldslýsingu. Samræma á inni-
halds- og næringargildismerkingar.
Nú eru t.a.m. bandarískar næring-
argildismerkingar miðaðar við
skammta og leyfilegt er að taka
fram að varan innihaldi vítamín eða
steinefni þó að magnið sé mjög lítið.
Reglugerðin gerir á hinn bóginn ráð
fyrir að upplýsingar um næringar-
gildi vörunnar séu miðaðar við 100
gr. Merkingar í tengslum við
vítamín- og steinefnainnihald verða
að vera í viðkomandi einingum.
Athuga þarf að merkingar séu
greinilegar og vel læsilegar, ekki
síður viðbótarupplýsingar á umbúð-
um en þær merkingar sem eru á
umbúðunum þegar vörumar koma
frá framleiðanda. Von er á nýjum
reglum um merkingu á barnamat.
ÞEGAR plönturnar hafa náð ákveðinni stærð er eðlilegt að
koma þeim fyrir í stærra fláti.
Dreifing plantna
eftir forsáningu
Nýlega greindi Garðar Arnason, garðyrkjuráðu-
nautur hjá Bændasamtökunum, Hildi Einarsdótt-
ur frá því hvernig best væri að fara að forsáningu
blóma og grænmetistegunda. Nú er komið að
dreífíngu í stærri ílát.
„MARKMIÐ forræktunar er að ala
upp kröftugar, stinnar og þéttar
plöntur til útplöntunar," segir Garð-
ar. „Ef plöntumar em veiklulegar
getur ástæðan verið sú að hitinn hafi
verið of hár miðað við birtuna. Önnur
ástæða er að of þétt hafi verið á
plöntunum. Það er því nauðsynlegt
að setja plöntumar í stærri ílát, þ.e.
ef ekki er sáð stökum fræjum í pott-
ana, en gæta verður að draga ekki
dreifplöntunina á langinn.
Æskilegt er að hefja dreifingu
plantnanna þegar hægt er að ná
sæmilegu taki á þeim, það er að segja
þegar þær hafa breytt vel úr
kímblöðunum. Plöntunum er ýmist
dreift í potta eða bakka. Algeng
stærð potta er 6-10 cm. Einnig er
hægt að nýta ýmis ílát sem falla til
eins og jógúrtbox.
Þegar dreifplöntun hefst er hægt
að kaupa tilbúna mold sem í er
blandað kalki og áburði í réttu
magni. Tiltölulega auðvelt er að búa
til sína pottamold sjálfur, til dæmis
úr vel fúinni mómold. Þá er hægt að
miða við að vera með fjóra fimmtu-
hluta af mómold og einn til tvo hluta
vikur eða frekar grófan sand. í hvern
rúmmetra af moldarblöndu er svo
bætt 5-6 kílóum af blákomi og hálfu
kílói af þrífosfati og 150 grömmum af
Sporumix, sem er snefilefnablanda.
Næringin sem er sett í pottunar-
moldina endist sjaldan nema framan
af forræktuninni. Þegar rætumar
em komnar út að pottveggnum er yf-
irleitt kominn tími til að gefa viðbót-
amæringu. Handhægt er að notast
við blákom eða Græði 1. Miða mætti
við að gefa um tíu grömm af áburðin-
um í tíu lítra af vatni.
Eins og kom fram í fyrri greininni
þá er algengur forræktunartlmi 4-6
vikur við 12-15 gráða hita á Celsíus.
Mikilvægar undantekningar em hita-
kærar tegundir eins og til dæmis
tómatar, agúrka og paprika sem og
kínakál.
Þegar frost er farið úr jörðu og
mold tekin að hlýna og hættan að
mestu liðinn hjá af slæmum nætur-
frostum þá er kominn tími til að
planta út á beð utandyra,“ sagði
Garðar að lokum.
Ný fríðinda-
þjónusta
ÍSLENSKA útvarpsfélagið hefur
hleypt af stokkunum nýrri fríðinda-
þjónustu, M12, að því er kemur
fram í fréttatilkynningu. Þar segir
að þjónustan sé ætluð tryggustu
áskrifendum fyrirtækisins.
Allir sem verið hafa áskrifendur
að Stöð 2, Sýn eða Fjölvarpi sam-
fellt í 12 mánuði eða lengur eru
sjálfkrafa í M12. Aðild að M12 kost-
ar ekkert aukalega og áskrifendur
ráða því hvort þeir nýta sér þau
fríðindi sem eru í boði.
Að því er fram kemur veitir aðild
að M12 áskrifendum ávinning af
ýmsu tagi. Megi þar nefna margvís-
leg tilboð, sérkjör á Gullsérkorti
Stöðvar 2, aðild að „World for 2“ á
vildarkjörum og tækniþjónustu án
endurgjalds hjá íslenska útvarpsfé-
laginu og þjónustufulltrúum þess
um land allt. Ýmis önnur fríðindi
verða kynnt áskrifendum í M12
reglulega.
Askrifendur í M12 geta um þess-
ar mundir komist til Lundúna fyrir
14.900 kr (með sköttum). Gullsér-
kortshafar fá þessa sömu ferð á
10.900 kr. ef þeir nýta ferðaávísun
sem kortinu fylgir.
----------------
Nýjung frá
Oroblu
OROBLU hefur sett á markaðinn
NUDE 3 D, þ.e. 20 dena sokkabux-
ur, og SUN UP 3 D, þ.e. 10 dena
sokka með þunnri mattri og eðli-
legri áferð.
í fréttatilkynningu kemur fram
að með tilkomu þríþætts örvefnaðar
hafi verið stigið nýtt skref inn í 21.
öldina hvað tækni við framleiðslu
sokkabuxna varðar. Með því fáist
þéttari og mýkri áferð. Jafnframt
séu sokkabuxurnar enn sterkari. Að
lokum segir að NUDE 3 D, 20 dena
sokkabuxumar, og SUN UP 3 D, 10
dena háir sokkar með blúndu og
gúmmíi hafi þessa sérlega mjúku og
eðlilegu áferð sem einna helst megi
líkja við silkimjúka húð. SUN UP 3
D sokkarnir em gegnsæir á tám.