Morgunblaðið - 23.04.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 33
HJÓNIN Bragi Einarsson og Karen Melik i stofunni sinni, þar sem veggir eru þaktir málverkum eftir okkar helstu málara. í þessu horni þarna eru mest áberandi myndir eftir Gunnlaug
Blöndal, sem Bragi keypti margar í Danmörku. A borðinu eru rauðar alparósir, sem Bragi hefur ræktað í 38 ár.
ÓÞEKKTI túristinn. Ein af myndum Braga.
Kjarvals. Tvær af
myndum hans sem
hanga í stofunni eru úr
hennar fjölskyldu. En
allh- veggir ei-u þaktir
málverkum og þar mikl-
ir dýrgripir eftir marga
af okkar meisturum.
Fjölmargar myndir eftir
Kjarval, Gunnlaug Blön-
dal - sem Bragi hefur
keypt frá Danmörku,
m.a. frummyndina Kona
með greiðu sem þekkt
er af eftirprentunum og
kortum - Alfreð Flóka,
Finn Jónsson, Höskuld
Björnsson, Eggert Guð-
mundsson, Brynjólf
Þórðarson o.fl. Allar
ófalsaðar með rekjan-
lega sögu segir Bragi
kíminn, enda íyrir daga
meintra falsara. En eig-
ið málverkasafn ætlar
Bragi að gefa fólki kost
á að sjá í Eden á sýningu á afmæl-
inu, enda gefst fólki ekki oft færi á
slíkum myndum af einkaheimilum.
Því má skjóta hér inn í að mynd-
listarmenn hafa síðan 1972 fengið
að sýna í Eden, einkum eftir stækk-
unina 1986. Alltaf biðröð eftir að fá
að sýna, því það kostar ekkert.
Listafólkið kemur inn og sýnir og
selur í eigin nafni. Bragi segir það
borga sig beinlínis því allir sem
sýna eru með hóp af vinum og
kunningjum í kring um sig og þeir
auglýsa sig og skapa vissa umferð á
staðnum. Margir selja bara vel
þarna. Það blandast ekkert inn í
reksturinn.
Oþekkti túristinn
Þama í stofunni standa líka upp
við vegg nokkrar teiknaðar myndir
eftir Braga sjálfan, sem hefur gaman
af að föndra, eins og hann kallar það.
Byrjaði endur fyrir löngu á þvi að
teikna fólk á alla auða bletti á Mogg-
anum í kaffítímanum og kallaði það
að fullhanna Moggann. Má oft á
veggjum Edens sjá myndir eftir
hann af þekktum mönnum. Nýlega
byrjaði hann að gera myndir af því
sem hann kallar „Óþekkti túristinn",
en þær hefur hann gert fyrir áhiif
erlendra manna sem hann sér í Eden
í 20 mínútur. Og myndir af óþekkta
túristanum ætlar hann líka að hengja
upp í Eden í tilefni afmælisins.
Fjölskyldan í Edensgarði
Við röltum yfir garðinn og erum
aftur komin í Eden. „Við verðum að
standa undir nafninu og freista fólks
svolítið í aldingarðinum Eden“, seg-
ir Bragi kíminn þegar spurt er um
nafngiftina á staðnum hans. Hann
kvaðst í upphafi hafa leitað lengi að
nafni sem útlendingar skildu líka.
Og Eden var auðvitað gróðursæll
garður. Hann bar heitið undir Ki-ist-
ján Eldjárn, fonnann nafnanefndar,
sem lagði blessun sína yfir það.
Sagði nafnið Eden jafngamalt
kristni í landinu.
Fjölskyldan sýnist öll hafa áhuga
á rekstrinum. I Eden hittum við
Olgu dóttur Braga, sem kveðst
hvergi annars staðar hafa unnið, og
soninn Einar Björn, ásamt unnustu
hans Rachel Árnadóttur. En Einar
er að hálfu með eigið fyrirtæki í
sambandi við internetþjónustu, sem
kemur sér vel því Eden er þar með
söludeild fyrir ullarvörur sem boðn-
ar eru líka í bæklingum og skila sölu
á vetrum þegar minnst er. Og einka-
sonurinn af seinna hjónabandi,
André Berg, er að koma heim úr
skólanum og slæst í hópinn.
„Hér er alltaf nóg að starfa“, segir
Bragi. „Þetta er mjög krefjandi og ég
fínn orðið iyiTi- því sjálfur að fyrir-
tækið hefur tekið alltof mikið af mín-
um tíma. Það hefur komið niður á
fjölskyldunni. Við erum að vísu sam-
an á vinnustað, en það er lítið um frí-
tíma. Þetta er sjö daga vinna allan
ársins hring, við að undirbúa helg-
amar á virkum dögum og svo kemur
aðaltörnin þegar aðrir fara í frí.“
Bragi hefur verið hjúasæll. Elsti
starfsmaðurinn hefur verið hjá hon-
um frá 1967. Valgerður Jóhannes-
dóttir hefur verið ráðskona í kaffí-
teríunni frá 1972, ótrúleg kona og
jarðýta til vinnu, segir hann. Sagt er
að enginn hætti þarna fýrr en hann
fer á elliheimili. Þó er það ekki ein-
hlýtt, því Þormóður Torfason er
kominn í ellisambýli á Selfossi og
kemur samt stundum akandi til
vinnu í Eden.
Afmæli á sumardaginn fyrsta
Bragi miðar 40 ára afmælið við
þann dag þegar hann fékk hita í
húsin og byrjaði ræktunina á sumai'-
daginn fyi'sta 1958. Hefur jafnan
verið haldið upp á stærri afmælis-
daga. Síðasta vetrardag var uppá-
koma, sem sagt hefur verið frá ann-
ars staðar. Og sjá má forustusauð-
inn Jeltsín, sem hefur fengið sama-
stað í Eden. Fleira stendm- til á af-
mælisdaginn, enda eru þá jafnan
margir á ferð.
í Eden má oft á morgnana sjá
spekinga ræða málefni heims-
byggðarinnar við eitt borðið. Þar
gjarnan komnir rithöfundarnir Ind-
riði Þorsteinsson og Gunnar Dai,
sem búa í Hveragerði og eiga það
til að koma í morgunkaffí. Sitja
jafnvel til hádegis og draga fleiri
að. „Gunnar er búinn að sitja hjá
mér í 20 ár, enda á hann hér hús
sem hann notar að sumrinu. Ekkert
er það til sem hann getur ekki rætt
og fróðlegt að fylgjast með. Þeir
Indriði eru mjög ólíkar týpur, en
báðir skemmtilegir. Þetta er mikið
punt í tilverunni," segir Bragi „og
hefur verið mjög fræðandi og
menntandi, eins og að hafa prívat
kennslustundir.
Oft er kvartað undan því að ég
vinni of mikið og gefí þessu of mik-
inn tíma. En mér hefur bara alltaf
fundist að ef maður er að gera það
sem maður hefur gaman af þá er
vinnan ævintýri lífsins," segir Bragi
og verða það lokaorðin.
LANCOME
oo
>—i
Pd
Ómótstæðilegt tilboð frá LANCÖME
Rénergie taska
Primordiale taska
Bienfait Fluide
kr. 2.950 í stað 5.100 kr.
kr. 3.600 í stað 5.890 kr.
kr. 2.700 í stað 3.550 kr.
Líttu við á næsta 'J
LANCÖME
útsölustað.
Takmarkað magn