Morgunblaðið - 23.04.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 37
Heiðurstónleikar haldnir
í Hallgrímskirkj u
Morgunblaðið/Kristinn
SÓPRANSÖNGKONAN Arndís Halla Ásgeirsdóttir, Hörður Áskelsson
organisti og Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari koma fram á tónleik-
um á sunnudag, sem Listvinafélag Hallgrímskirkju gengst fyrir.
Síðasta sýningarhelgi
DeSign-Ý
LISTVINAFÉLAG Hallgríms-
kirkju gengst fyrir tónleikum nk.
sunnudag undir yfirskriftinni, Sópr-
an, selló og orgel. Þar koma fram
sópransöngkonan Amdís Halla Ás-
geirsdóttir, Inga Rós Ingólfsdóttir
sellóleikari og Hörður Áskelsson
organisti Hallgrímskirkju. Þau
flytja fjölbreytta efnisskrá, innlend
og erlend kirkjulög eftir J.S. Bach,
Jón Leifs, Pál ísólfsson og Áskel
Jónsson, einsöngskantötu eftir
ítalska barokktónskáldið G.B. Brevi
og verk fyrir selló og orgel eftir Sa-
int-Saéns og Karl Höller. Tónleik-
arnir eru haldnir til heiðurs þýska
listunnandanum Peter-Paul
Schautes, sem hefur um árabil verið
einn af dyggustu stuðningsmönnum
Listvinafélagsins, en hann hélt ný-
lega upp á sjötíu ára afmæli sitt.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17.
Þýski lögfræðingurinn Peter-
Paul Schautes frá Mönchenglad-
bach er mikill áhugamaður um
kirkjutónlist. Þegar hann kom í
fyrsta skipti til Islands, árið 1991,
var að hefjast lokaáfangi fjáröflunar
íyrir kaup á konsertorgeli Hall-
grímskirkju með sölu orgelpípa.
Schautes varð einn fyrstur manna
til að festa kaup á einni af stærstu
pípum orgelsins. Hann gekk í List-
vinafélag Hallgrímskirkju og hefur
síðan komið árlega til landsins til að
fylgjast með helstu viðburðum í
kirkjutónlistarlífi Hallgrímskirkju.
Til að halda upp á sjötíu ára af-
mæli sitt kaus hann að kosta tón-
leika með hjónunum Ingu Rós Ing-
ólfsdóttur og Herði Áskelssyni,
ásamt sópransöngkonunni Arndísi
Höllu Ásgeirsdóttur sem hann hafði
kynnst í Þýskaiandi, en hún starfar
í Berlín.
Þau munu flytja efnisskrá, sem
samanstendur af verkum eftir höf-
unda sem Schautes hefur dálæti á.
Flutt verða þrjú kirkjulög við texta
Hallgríms Péturssonar og þrjár
orgelprelúdíur eftir Jón Leifs, en
Schautes hefur hiifist mjög af verk-
um Jóns.
Stærsta söngverkið á tónleikun-
um er verkið Deliciae terrenae eftir
ítalska barokktónskáldið Giovánni
Battista Brevi, en það er kantata
fyrir sópran og fylgirödd sellós og
orgels, samin um aldamótin 1700.
Kantatan samanstendur af mörgum
aríum og tónlesi og er gott dæmi
um kröfuharða sönglist barokktím-
ans. Arndís Halla syngur auk þess
sönglag Bachs, „Bist du bei mir“ og
Máríuvers eftir Pál ísólfsson og
Áskel Jónsson. Þau Inga Rós og
Hörður flytja Priére eftir franska
tónskáldið Saint-Saéns og Tilbrigði
við sálmalagið „Dýrlegi Jesú“ eftir
þýska tónskáldið Karl Höller.
Þessir tónleikar eru síðustu tón-
leikar á vetrardagskrá Listvinafé-
lagsins, en framundan er orgeltón-
leikaröðin „Sumarkvöld við orgel-
ið“, sem hefst í byrjun júlí.
DESIGN-Ý sýningu á leðurfatnaði úr
íslensku hreindýraleðri í galleríi
Handverks & hönnunnar að Amt-
mannsstíg 1, lýkur nú á laugardag.
Sýningin er opin virka daga kl. 11-17
og laugardaga kl. 12-16.
Hafnarborg
SÝNINGU Gunnlaugs Stefáns
Gíslasonar á vatnslita- og olíuverk-
um og sýningu Louisu Matthíasdótt-
ur á pastelmyndum í Hafnarborg
lýkur á mánudag 27. apríl.
Norræna-húsið
í SÝNINGARSÖLUM Norræna
hússins hefur staðið yfir sýningin
Norrænt grafíkþríár III.
Sýningin verður opin ki. 14-18 um
helgina, og síðasti sýningardagur er
sunnudagurinn 26. apríl.
STYRKUR TIL
TÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á
þessu ári veita tónlistarfólki styrk tilJramhaldsnáms
erlendis á n&sta skólaári 1998-1999.
Veittur er styrkur að upphæð kr. 500.000.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform sendist fyrir 25. maí nk. til
formanns sjóðsins:
Arnar Jóhannssonar,
pósthólf 3372,
123 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár
frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna
hæfni umsækjanda.
Gítargóð-
gæti fyrir
jazz-
geggjara
HLJÓMDISKUR Björns Thorodd-
sen, Jazz Guitar (Jazzís 107) hefur
farið víða og hlotið góðar viðtökur.
I febrúar sl. birtust dómar um
hann í bandaríska jazztímaritinu
Cadens og helsta dagblaði Dana,
Politiken.
Diskurinn fær fjórar stjörnur af
sex mögulegum og er hann þar
kallaður „gítarnammi fyrir jazz-
geggjara af hinum hefðbundna
svingskóla“. Þá segir m.a. að allar
gítarstjömunar sex: Björn, Philip,
Catherine, Doug Raney, Jakob
Fiseher, Paul Weeden og Leivur
Thomsen eigi það sameiginlegt „að
svinga eins og fjandinn væri á hæl-
unum á þeim en sýna samt snyrti-
mennsku og djörfung í leik sínum“.
Danirnir eru ánægðir með sinn
mann: „Jakob Fischer er kominn í
frábæran félagsskap og það á hann
líka skilið.“
Dómurinn í Cadens hefst þannig:
„Sem gítarleikara og hlustanda fell-
ur mér fátt verr en gítarflugelda-
sýningar þar sem nótunum er skot-
ið í allar áttir án takmars né til-
gangs. Sem betur fer fellur enginn í
þá gryfju á þessum diski.“
Síðan er fjallað um einstök verk
á disknum og m.a. farið fógi-um
orðum um frammistöðu gítarist-
anna, ekki síst Raneys á Völuspá
Björns, Catherine á Straight No
Chaiser Monks og dúett Jakobs
Fishers og Björns: Softly As In A
Morning Sunrise. Gagnrýnandan-
um, Larry Nai, þykir Jakob
Fischer skyldastur Birni af gítar-
leikurunum á diskinum og hrífst
sérstaklega af innileikanum í spila-
mennsku þeirra.
Dóma um hljómdisk Björns er að
vænta á næstunni í tímaritum víða
um heim.
Kaldársel
Sumarbúðir KFUM
Hafnarfirði
Sumarbúðirnar eru á fallegum stað skammt
fyrir ofan Hafnarfjörð í nágrenni Helgafells.
Þar rennur Kaldá og hraunið í kring býður upp
á fjölbreytt leiksvæði þar sem virki eru reist og
farið í búleiki. Umhverfis er stórfengleg
náttúra, vinin Valaból, eldstöðin Búrfell og
móbergsfjallið Helgafell, spennandi hellar og
margt fleira sem hægt er að skoða og njóta.
Ýmiskonar íþróttir og leikir eru eðlilegur þáttur
í starfinu. Daglega er veitt fræðsla um kristna
trú og Biblíuna, kenndar bænir og vers og
sungnir fjörugir söngvar.
I SUMAR VERÐA FLOKKARNIR SEM HER SEGIR:
DRENGIR
1 .fl. 2.júní- 9.júnf 7-12 ára
2. fl. 9.júní-1 ó.júní 7-12 ára
3. fl. 18.júní-25.júní 7-12 ára
HLÉ
4. fl. 29.júní- 6.júlí 7-12 ára
STÚLKUR
5. fl. 7.júlí-14.júlí 7-12 ára
6. fl. 15.júlí-22.júlí 7-12 ára
7. fl. 23.júlí-30.júlí 7-12 ára
HLE
8. fl. 4.ágúst-11 ágúst 7-12 ára
Verð fyrir eina viku er kr. 15.600.- og er fargjald innifalið. Innritun fer fram á skrifstofu
KFUM og KFUK við Holtaveg f Reykjavfk, sími 588 8899 frá kl. 8-16 á virkum dögum.
Einnig er skráð á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 17-19 á Hverfisgötu 15 í
Hafnarfirði til 6. maf. Síminn þar er 555 3362.
Eftirtalin fyrirtæki fá bestu þakkir fyrir veittan stuðnin
Samúel V. Jónsson
Pípulagningarmeistari
Bæjarbakarí
Bæjarhrauni 2
Tryggvi Ólafsson
Úrsmiður
Hópferðabílar K.
Willatzen
SKÓVERSLUN
IQÖSSSE3! RagnarsBjömssonarhf
D0UUS MEDICA & KRINGIUNNI
Sigga og Timo
gullsmíði, s. 565 4854
Halli rakari
Strandgötu 39, Hafnarfirði
HUSGAGNAVERSLUN
vywwnwi «. HvwiHi.iw sfis«« Dalshrauni 6, Hafinarfirði
Hárgreiðslustofan
Guðrún
Bókabúð Böðvars
Hafharfirði
Vestfjarðarleið
Heimsmarkaðurinn
Súfistinn, kaffihús, ______________________
Hafharfirði Guðrún Lækjargötu 30, Hafiiarfirði Ostahúsið
Linnetsstíg 6. Hafharfirði Hafnarfirði
Verslunin Embla Filmur og framköllun Vélaverkstæði Þvottahús og efnalaug
Hafnarfirði Hafharfirði Jóhanns Ólafs hf Hraunbrún 40