Morgunblaðið - 23.04.1998, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 71
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Vígsla safnaðar-
heimilis í Sand-
gerði - sr. Hjört-
ur Magni kveður
söfnuðinn
NÝJA safnaðarheimilið í Sandgerði
verður vígt nú á sumardaginn
fyrsta við guðsþjónustu kl. 16.
Sóknarprestur, sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson, mun þjóna fyi’ir altari
og prédika en herra Sigurður Sig-
urðarson vígslubiskup í Skálholti
vígir safnaðarheimilið og helgar
muni þess. í lok guðsþjónustu verð-
ur getið um gjafir sem borist hafa
en að lokinni guðsþjónustu er boðið
til kaffisamsætis í samkomuhúsinu
í Sandgerði. Sóknarprestur, sr.
Hjörtur Magni Jóhannsson, mun
kveðja söfnuðinn í guðsþjónustu
sunnudaginn 26. apríl kl. 11 í Ut-
skálakirkju og kl. 14 í Hvalsnes-
kirkju.
Skátamessa
á Akranesi
SKÁTAMESSA verður í Akranes-
kirkju í dag, sumardaginn fyrsta,
kl. 11. Hálftíma áður verður lagt af
stað í skrúðgöngu til kirkjunnar frá
Skátaheimilinu við Háholt. Löng
hefð er fyrir skátamessu á þessum
degi á Akranesi. Avarp eldri skáta
flytur Bragi Þórðarson bókaútgef-
andi og rithöfundur. Lítið barn
verður borið til skírnar.
Umræða um
gildismat í
Keflavíkurkirkj u
KEFLAVÍKURKIRKJA gengst
fyi'ir málþingi um gildismat laugar-
daginn 25. apríl. Þetta málþing er
liður í fræðslustarfi kirkjunnar sem
verið hefur blómlegt undanfarin
misseri.
I laugardagsumræðu um gildis-
mat munu þau dr. Arnfríður Guð-
mundsdóttir guðfræðingur, Arthúr
Björgvin Bollason heimspekingur,
Hjálmar Arnason alþingismaður,
Salvör Nordal heimspekingur og
dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir pró-
fessor hafa framsögu og ræða um
gildismat, hvað breyti gildismati og
hvort hægt sé að breyta gildismati.
Umræðunni stýrir Lára G. Odds-
dóttir guðfræðingur.
Dagskráin hefst á laugardags-
morgun kl. 10.30 en henni lýkur kl.
14.30. Boðið verður upp á léttan há-
degisverð í hádegi. Aðgangur er
ókeypis.
Barnaguðsþjón-
ustuferð Grafar-
vogskirkju
FERÐ á vegum Grafarvogskirkju,
barnaguðsþjónustuferð, verður far-
in laugardaginn 25. apríl nk. Farið
verður til Keflavíkur og kirkjan þar
heimsótt. Farið verður í rútum frá
Grafarvogskirkju kl. 10. Pylsur og
gosdrykkir í boði sóknarnefndar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Skátamessa í
Hallgrímskirkju
SKÁTAMESSA verður í Hall-
grímskirkju á sumardaginn fyrsta
og hefst hún kl. 11 f.h. Séra Sigurð-
ur Pálsson mun þjóna til altaris.
Organisti verður Hörður Áskels-
son. Skátakórinn undir stjórn
Steingríms Þórhallssonar mun
leiða sönginn.
Að aflokinni messu verður selt
kaffi í sal Skátasambands Reykja-
víkur á 3ju hæð Skátahússins við
Snorrabraut 60.
Skátar munu ganga í skrúð-
göngu frá Skátahúsinu eftir
SnoiTabraut, niður Hverfisgötu,
upp Frakkastíg, niður Laugaveg
og síðan upp Skólavörðustíg að
Hallgn'mskirkju. Skrúðgangan
leggur af stað kl. 10.
Dómkirkjan. Kl. 14-16 opið hús í
safnaðarheimilinu, Lækjargötu
14a, fyrir alla aldursflokka. Kl.
17.15 samverustund fyrir börn 9-10
ára.
Háteigskirkja. Kvöldsöngur með
Taizé tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun,
endurnæring. Allir velkomnir.
Langholtskirkja. Opið hús föstu-
dag kl. 11-16. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund föstudag kl. 12.10. Fyr-
irbænaefnum má koma til prests
eða djákna. Súpa og brauð á eftir.
Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Mömmumorg-
unn fóstudag kl. 10-12. Tónleikar
Kirkjukórs Laugarneskirkju kl. 20.
Stjómandi og organisti Gunnar
Gunnarsson.
Árbæjarkirkja. Starf fyrir 10-12
ára stráka og stelpur kl.
16.30- 17.30 í Ártúnsskóla. Æsku-
lýðsfundur eldri deildar kl.
20.30- 22.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn
á morgun kl. 10-12.
Digraneskirkja. Kl. 10
mömmumorgunn. Leikfimi aldr-
aðra kl. 11.15. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18. Bænaefni má setja í
bænakassa í anddyri kirkjunnar
eða hafa samband við sóknarprest.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11-12 ára kl. 17.
Grafarvogskirkja. Mömmumorg-
unn kl. 10-12. Efni m.a. fyrirlestr-
ar, bænastund o.fl. Kaffiveitingar
og djús fyrir börnin. Æskulýðsfé-
lag, eldri deild fyrir 9. og 10. bekk
kl. 20-22.
Hjallakirkja. Starf fyrir 7-9 ára kl.
16.
Kópavogskirkja. Starf eldri borg-
ara kl. 14-16 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 18. Fyrirbænaefnum má
koma til prests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Fundur KFUM fyrir
9-12 ára stráka kl. 17.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrh’ 11-12 ára börn kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu. Æskulýðsfund-
ur kl. 20-22.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 11 kyrrðarstund á Hraunbúð-
um, lokasamvera. Kl. 17 TTT starf
fyrir 10-12 ái-a börn.
Hjálpræðisherinn. Kvöldvaka kl.
20.30 vegna sumardagsins fyrsta.
Mikið verður sungið og spilað.
Fermingar
Vegna mistaka birtust ekki öll
nöfn fermingarbarna sem fermast í
Mosfellskirkju sumardaginn fyrsta
kl. 13.30. Beðist er velvirðingar á
því. Birtist því listinn aftur í heild
sinni.
Fermd verða:
Ágúst Ingi Friðriksson,
Brattholti 1.
Bergdís Björk Sigurjónsdóttir,
Dverghplti 14.
Berglind Ýr Ai’adóttir,
Björtuhlíð 9.
Davíð Örn Friðriksson,
Brattholti 1.
Ingunn Hólm Vilhjálmsdóttir,
Miðholti 1.
Magnús Óskar Guðnason,
Fagrahvammi.
Margrét Gunnarsdóttir,
Reykjavegi 65.
Sigrún Edda Sigurjónsdóttir,
Akurgerði 28.
Svavar Melberg Pálsson,
Hraðastöðum 5.
www.mbl.is
FRÉTTIR
Aðalfundur
Parkinson-
samtakanna
AÐALFUNDUR Parkinson-
samtakanna á íslandi verður
haldinn í félagsheimili Ás-
kh’kju laugardaginn 25. apríl
kl. 14. Venjuleg aðalfundar-
störf.
Hugfang hf. kynnir tjárita,
tæki sem hægt er að tengja
við tölvu og hljóðgervil sem
talar. Þetta tæki getur hjálp-
að fólki sem á við málörðug-
leika að etja.
Dr. Sigurlaug Sveinbjörns-
dóttir verður gestur fundar-
ins. Rannsóknir hennar á
Parkinsonveiki á Islandi hafa
verið i gangi sl. tvö ár og vak-
ið athygli erlendis. Hún kynn-
ir bráðabirgðaniðurstöður úr
rannsóknum sínum á fundin-
um. Sjúklingar sem ekki hafa
tekið þátt í rannsókninni en
hafa hug á því gefi sig fram á
endurhæfingadeild Landspít-
alans. Dr. Sigurlaug kemur
heim til þeirra sem ekki kom-
ast vegna veikinda sinna.
Fræðslui’it sem kom út fyr-
ir 11. apríl, dag Evrópusam-
taka Parkinsonsjúklinga,
verður selt á fundinum og
kostar 1.250 kr.
Á undan kaffiveitingum
verður einsöngur og píanó-
leikur. Allir félagsmenn og
gestir eru velkomnir.
Morgunblaðið/Kristinn
Salatbar
Eika
ÞAÐ hefur verið nóg að gera á
Salatbar Eika í Pósthússtræti
sem var opnaður nú í vikunni.
Hér undirbúa starfsstúlkur þessa
nýja veitingastaðar allt fyrir að-
alörtröðina, sem hefst um hádeg-
isbil, dag hvern, að sögn Eiríks
Friðrikssonar veitingamanns.
Opið hús
í leikskól-
um í Selja-
hverfi
BÖRN og starfsfólk leikskól-
anna í Seljahverfi verða með
opið hús laugardaginn 25. apríl
nk. Þá bjóða börnin vinum og
vandamönnum og öllum sem
vilja kynna sér starfsemi og
menningu leikskólanna í heim-
sókn.
Leikskólamir fimm í Selja-
hverfi hafa formlegt samstarf
um ýmsa árvissa viðburði s.s.
öskudag, opið hús og sérstaka
hátíð í tilefni þjóðhátíðar.
Leikskólarnir verða opnir
sem hér segir: Leikskólinn
Seljakot v/Rangársel er opinn
kl. 10.30-12.30, Seljaborg
v/Tungusel kl. 10.30-12.30,
Jöklaborg v/Jöklasel kl. 11-14,
Hálsaberg v/Hálsasel kl.
11.30-14.30, Hálsakot v/Hálsa-
sel kl. 11.30-14.30.
Erindi um veiru-
og bakteríudrep-
andi lyfjahlaup
HALLDÓR Þormar prófessor flyt-
ur fyrirlestur á vegum Líffræði-
stofnunar Háskólans um þróun á
veiru- og bakteríudrepandi lyfja-
hlaupum föstudaginn 24. apríl. Fyr-
irlesturinn verður haldinn í stofú G-
6, Grensásvegi 12. kl. 12.20.
Miklai’ ft-amfarir hafa orðið í þró-
un veirulyfja á undanfórnum árum
og þá ekki síst í þróun lyfja gegn
HIV veirunni. Lyf gegn HIV hafa þó
enn ýmsa annmarka og eru ekki
læknandi, þótt þau lækki veirumagn-
ið í líkamanum og hefti framgang
sjúkdómseinkenna. Þau eru auk þess
mjög dýr og nýtast ekki í fátækum
löndum þar sem tugmilljónir ein-
staklinga eru sýktar. Mikil áhersla
er því lögð á aðgerðir til þess að
koma í veg fyrir smit og hefta
þannig útbreiðslu sjúkdómsins.
Á Rannsóknastofu í frumulíffræði
og veirufræði við Líffræðistofnun
Háskólans, og á rannsóknastofu
Þórdísar Kristmundsdóttur, pró-
fessors í lyfjafræði lyfsala við Há-
skóla Islands, hefur undanfarin ár
verið unnið að rannsóknum og þró-
un á veiru- og bakteríudrepandi
lyfjahlaupum er innihalda einglyser-
íð af kaprínsýru (tíu kolefna fitu-
sýra) sem virkt efni, og sem drepa
herpesveirur, HIV og klamydía-
bakteríur í miklu magni á stuttum
tíma. Fyiárlesturinn fjallar um gerð
og virkni þessara lyfjahlaupa.
Morgunblaðið/Þorkell
RAGNHILDUR Sigurðardóttir, sem hlaut styrk til doktorsverkefnis,
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Rannveig Rist, for-
stjóri Islenska álfélagsins, og Gísli Már Gislason prófessor, sem tók við
styrknum fyrir hönd Þóru Ellenar Þórhallsdóttur prófessors.
ISAL styrkir umhverf-
ismál og rannsóknir
ÍSLENSKA álfélagið hefur veitt
tvo styrki til rannsóknaverkefna
á sviði umhverfismála og rann-
sókna á náttúru landsins.
Styrkirnir voru veittir þeim
Ragnhildi Sigurðardóttur, nátt-
úrufræðingi, Torfufelli II í Eyja-
íjarðarsveit, og Þóru Ellen Þór-
hallsdóttur, prófessor við Há-
skóla fslands.
Ragnhildur fékk einnar millj-
ónar króna styrk til doktorsverk-
efnis við Yale háskóla en verk-
efni hennar ber yfirskriftina
„Áhrif gróðurs á hraða og heild-
aruppsöfnun kolefnis í íslenskum
vistkerfum".
Þóra Ellen fékk 200 þúsund
króna styrk til verkefnisins
„Rannsóknir á æxlunarlíffræði
og nýliðun íslensku hálendisflór-
unnar.“
Málþing
um
vinnuna
SIÐFRÆÐISTOFNUN Háskóla
Islands gengst fyrir málþingi um
vinnuna laugardaginn 25. apríl kl.
13 í Odda, stofu 101.
Heiti málþingsins er: Er vinnan
að drepa okkur? Á málþinginu er
ætlunin að skoða þann hlut sem
vinnan á í lífi okkar. „I stað þess að
einblína á vinnuna undir efnahags-
legu sjónarhorni, eins og oftast er
gert, verður leitast við að greina þá
sálrænu, tilvistarlegu og trúarlegu
þætti sem ætla má að eigi stærstan
þátt í því að móta viðhorf okkar til
vinnu. Þessir þættir gætu varpað
ljósi á það hvers vegna vinna skipar
svo stóran sess í lífi flestra Islend-
inga,“ segir í frétt frá Siðfræðistofn-
un.
Frummælendur verða fjórir; Geir
Sigurðsson, heimspekingur, sem
nefnir erindi sitt Meinlæti og vinnu-
dýi’kun: Tilbrigði við stef eftir
Weber; Vésteinn Lúðvíksson, rit-
höfundur nefnir erindi sitt Vinnu-
fíkn; Sr. Kristján Einar Þorvarðar-
son heldur erindi er nefnist Ofur-
vinna í ljósi kristinnar trúar og Jón
Björnsson, framkvæmdastjóri hjá
Reykjavíkurborg, flytur erindi sem
nefnist Vinnan í lífinu og lífið í vinn-
unni. Að framsöguerindum loknum
verða umræður.
Málþingið er öllum opið og að-
gangur ókeypis.